Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 48
48 15. feb 2019
E
flaust má til sanns vegar
færa að um helgarhjóna-
band hafi verið að ræða hjá
frönsku hjónunum Joel og
Nadine Baude. Þau bjuggu í Iville,
þorpi skammt frá Rouen í Norm-
andí-héraði.
Joel var slátrari með aðstöðu í
úthverfi Parísar og þurfti að hefja
störf í rauðabítið hvern virkan
dag. Því hafði hann tekið á leigu
stúdíóíbúð skammt frá vinnustað
sínum og kom heim um helgar.
Nadine var sjálfstæður
sjúkrabifreiðarbílstjóri og réð
tíma sínum nokkuð sjálf.
Fljótlega var ljóst að Nadine
var full alvara með sambandinu
og engu líkara en hún hefði full-
komlega gleymt þeirri staðreynd
að hún hafði verið gift í tvo áratugi,
eða þar um bil, og ætti 21 árs son.
Í rúmið með skjólstæðingi
Einn góðan veðurdag var Nadine
fengin til að skutla manni að
nafni Jacques Merlan til sjúkra-
þjálfara. Jacques hafði lent í slysi
á mótorhjóli sínnu og var í endur-
hæfingu. Þetta varð að vikulegum
viðburði hjá Nadine og Jacques
og á endanum fóru þau saman í
rúmið.
Fjárfesta í fasteign
Nadine sagði Jacques að hún
hefði skilið fyrir 20 árum. Sonur
hennar byggi enn hjá henni og
hún væri ágætlega efnuð, þökk
væri fjölskyldu hennar. „Svo,
af hverju kaupum við ekki hús
saman. Ég verð ekki í vandræð-
um með að leggja fram helm-
ing kaupverðsins?“ sagði hún við
Jacques dag einn í apríl 2002.
Á næstu vikum skoðuðu þau
hús saman og festu að lokum,
í byrjun maí, kaup á einu sem
hentaði. Kaupverðið var 230.000
evrur, Jacques borgaði 40 prósent
og Nadine afganginn og notaði
sitt eigið ættarnafn, Morel, þegar
hún skrifaði undir kaupsamn-
inginn.
Bakari finnur slátrara
Árla morguns sunnudaginn
5 maí, 2002, sá bakari á leið í
vinnuna bíl í ljósum logum og
hafði samband við slökkviliðið.
Þegar búið var að ráða niðurlög-
um eldsins kom illa brunnið lík
Joels í ljós.
Áður en eiginleg rannsókn
hófst skellti Nadine sér til Par-
ísar. Síðar sagði hún að tilgang-
ur fararinnar hefði verið að finna
eiginmann sinn. Daginn eft-
ir hafði hún samband við lög-
regluna. Sagði hún að eiginmað-
ur hennar hefði komið heim í
helgarbyrjun en síðan þurft að
fara aftur til Parísar vegna vinnu-
tengdra vandræða.
„Hann hefur ekki skilað sér
heim,“ sagði hún og bætti við að
hann hefði haft á sér 500 evrur í
reiðufé og verið á bíl sonar þeirra.
Áverkar á líkinu
Það tók fimm daga að tengja
brunna bílinn sem bakarinn ók
fram á og hvarf Joels, því Nadine
hafði ruglast á einum tölustaf í
bílnúmerinu þegar hún gaf lög-
reglunni þær upplýsingar.
Fljótlega varð ljóst að Joel
hafði ekki sest í bílinn sjálfur,
staða hans mælti gegn því. Einnig
bentu áverkar á líkinu til þess að
hann hefði verið barinn.
Lögreglan ákvað að kanna
lista yfir símhringingar Baude-
-fjölskyldunnar. Komu þá í ljós
mikil samskipti Nadine við karl-
mann að nafni Jacques. Fannst
lögreglunni tími til kominn að
spjalla aðeins við Nadine og son
hennar, Jerome.
Uppgjör í uppsiglingu
Í ljós kom að tveimur dögum áður
en Nadine og Jacques tóku við ný-
keyptu húsi sínu, hafði Nadine
hringt í Jerome, sem þá var stadd-
ur ásamt kærustu sinni, í ónafn-
greindum þemagarði.
Það var laugardagur og Nadine
vildi vara Jerome við því að fað-
ir hans yrði hugsanlega í slæmu
skapi þegar hann kæmi heim.
Jerome, sem vissi um ást-
mann móður sinnar, ákvað að
brenna heim án tafar. Hann var
mjög hændur að móður sinni
og ósáttur við að faðir sinn hafði
aldrei viljað heyra minnst á skiln-
að. Þegar þarna var komið sögu
taldi Nadine nokkuð víst að inn-
an tíðar myndi Joel komast að
ótryggð hennar.
4 dögum eftir að hafa myrt aldraða foreldra sína, var dr. Idella Kathleen Hagen handtekin. Þann 22. ágúst, árið 2000, banaði Idella 92 ára móður sinni og 86 ára föður sínum með því að kæfa þau. Notaði hún plastpoka
og kodda til verksins, en foreldrar hennar voru í fastasvefni þegar hún réðst til
atlögu.
Við réttarhöldin kom fram að Idella hefði þjáðst af þunglyndi og að sögn tveggja
lækna sem báru vitni hélt Idella að hún fengi skilaboð, meðal annars úr sjón-
varpsauglýsingum, frá umferðarljósum og spilum. Idella ku einnig hafa heyrt
rödd föður síns, sem skipaði henni að fremja morðin, því þannig myndu hún og
foreldrar hennar fara til staðar þar sem hamingja ríkti.
Idella var ekki talin sakhæf og dæmd til vistar á stofnun fyrir geðsjúka árið 2002.
SAKAMÁL
BANVÆNN BLEKKINGARLEIKUR FRÚ BAUDE
n Hjónaband Nadine og Joel var ekki traust n Blekkingar einkenndu tilveru Nadine n Sonur þeirra blandaðist í málið
„Það sem þau ekki vissu, og kom
ekki í ljós fyrr en við krufningu,
var að Joel var ekki dáinn þegar hann
varð eldhafinu að bráð.
Heimili Baude-fjölskyldunnar
Joel var lítið heima við vegna vinnu sinnar.
Nadine Baude
Blekkti bæði eiginmann sinn og ástmann.