Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 53

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 53
KYNNING Gómsætt og girnilegt í 12 ár Það er ekki sjálfgefið að veitinga-staðir haldi velli í harðri samkeppni, en veitingastaðir Castello fagna núna 12 ára afmæli. „Þetta hefur verið frábær tími með frábæru starfsfólki sem hefur unnið hjá okkur í mörg ár, sumir frá upphafi,“ segir Armend, eigandi staðanna. Castello heldur upp á afmæli dagana 17. til 21. febrúar og verða þá ýmis spennandi tilboð á boðstól- um. Vinsældir Castello hafa verið miklar í gegnum árin allt frá opnum árið 2007. „Við opnuðum Castello fyrst í Kópavogi árið 2007 og tveimur árum síðar opnuðum við annan stað í Hafnarfirði til þess að anna eftir- spurn, enda stækkaði kúnnahópurinn hratt,“ segir Armend sem rekur stað- ina tvo með bróður sínum Dardan. Staðirnir eru að Dalvegi 2 í Kópavogi og Dalshrauni 13 í Hafnarfirði. Castello-staðirnir eru þekktir fyrir framúrskarandi eldbakaðar pítsur, þar á meðal hina vinsælu kebabpít- su, Dolce eftirréttapítsu, frábærar ostastangir, kanilbát, súkkulaðihálf- mána og margt fleira. Kebabpítsan kom á markaðinn í haust og hefur slegið í gegn. „Pítsan er með pítsusósu, osti, jalapeño, kebabsósu, fersku jöklasalati og kebabkjöti. Hægt er að fá ýmist kjúkling eða lamb á pítsuna og erum við að nota sama kjöt og í keba- bréttina okkar. Þessar eru alveg svakalega góðar, bæði ferskar og djúsí,“ segir Armend. Safaríkir hamborgarar og sætar eftirréttapítsur „Þess má geta að við erum með sjúk- lega djúsí og ljúffenga 140 gramma hamborgara sem hamborgara- meistarinn okkar töfrar fram af sinni einstöku list. Þetta eru fyrsta flokks borgarar úr hágæða nautahakki með góðu brauði og öllu tilheyrandi,“ segir Armend. „Einnig erum við með kanilbát með kanilsykri og súkkulaðibát með karamellu og súkkulaði. Þetta eru niðurskornir hálfmánar sem bornir eru fram með ýmist glassúr, kara- mellusósu eða súkkulaðisósu,“ segir Armend. Að auki bætti Castello ný- lega við ostastöngum á matseðilinn og eru þær vægast sagt guðdóm- legar. Castello-staðirnir eru opnir sun– fim frá 11.00–23.00 og fös–lau frá 11.00–23.30. Pöntunarsími er 577- 3333. Netfang er castello@simnet.is Castello býður til afmælisveislu:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.