Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Side 6
6 25. jan 2019FRÉTTIR
F
orsætisráðuneytið hlaut í
desember vottun á jafn
launakerfi ráðuneytisins.
Vottunarstofan Vottun hf.
gaf staðfestinguna út. Um miðj
an september í fyrra fjallaði DV
um að Einkaleyfastofa hefði svipt
fyrir tækið faggildingu sinni á vott
un stjórnkerfa. Sú faggilding hafði
veitt fyrirtækinu undanþágu til
þess að votta jafnlaunakerfi. Góð
ráð voru dýr því að öll ráðuneyti
áttu að hafa fengið jafnlaunavott
un fyrir árslok 2018. Svo heppilega
vildi til að velferðarráðuneytið
breytti reglugerð í nóvemberlok
sem gerði Vottun hf. kleift að fá
leyfi til bráðabirgða til þess að
votta jafnlaunakerfi. Nokkrum
dögum síðar fékk forsætisráðu
neytið afhent skírteini sitt. Stærstu
eigendur Vottunar hf. eru hags
munasamtök vinnumarkaðarins
á borð við Samtök iðnaðarins, Fé
lag atvinnurekenda og Viðskipta
ráð Íslands.
Framlengdu frest um tólf
mánuði
Lög um jafnlaunavottun tóku gildi
þann 1. janúar 2018. Þá var stofn
unum og fyrirtækjum gert skylt að
sýna fram á þau greiði jöfn laun
fyrir sömu og jafnverðmæt störf.
Það áttu þau að gera með því að
fá úttekt hjá sérstökum óháðum
vottunaraðila á jafnlaunakerfi
fyrir tækisins eða stofnunarinnar
sem staðfesti að jafnlaunakerfið
og framkvæmd þess uppfyllti kröf
ur staðalsins ÍST 85.
Gert var ráð fyrir að öll fyrirtæki
með fleiri en 25 starfsmenn ættu
að fá jafnlaunavottun. Til þess að
lagasetningin yrði ekki íþyngjandi
var gert ráð fyrir aðlögunartíma og
þannig áttu aðeins fyrirtæki með
fleiri en 250 starfsmenn að hafa
hlotið jafnlaunavottun fyrir árs
lok 2018, auk opinberra stofnana
og fyrirtækja. Fyrir árslok 2021
áttu öllu fyrirtæki með fleiri en 25
starfsmenn að hafa hlotið jafn
launavottun.
Til að byrja með voru tvö fyrir
tæki sem gátu vottað jafnlauna
kerfi. Annars vegar Vottun hf., sem
fékk undanþágu til þess á grund
velli þess að fyrirtækið hafði fag
gildingu í vottun stjórnkerfa, og BSI
á Íslandi, sem er faggilt skoðunar
stofa. Á síðari hluta ársins bættist
síðan vottunarstofan iCert í hóp
þeirra sem heimild hafa til vottana
á jafnlaunakerfum.
Í ljósi þess að hægt gekk hjá
stóru fyrirtækjunum að fá jafn
launavottun var tilkynnt um
miðjan nóvember að Ásmundur
Einar Daðason, félags og jafn
réttismálaráðherra, hefði ákveðið
að framlengja frest fyrirtækja og
stofnana til að öðlast slíka vott
un um 12 mánuði. Aukinn frestur
náði þó ekki til opinberra stofn
ana, sjóða og fyrirtækja sem voru
að hálfu eða að meiri hluta í eigu
ríkisins með 25 starfsmenn eða
fleiri.
Jafnlaunavottun ekki
útboðsskyld
Í svörum frá Ágústi Geir Ágústs
syni, skrifstofustjóra skrifstofu
yfir stjórnar í forsætisráðuneytinu,
við fyrirspurnum DV um hvernig
staðið var að samningum við
vottunaraðila og hvenær úttekt
ir vegna jafnlaunavottunar fóru
fram, kemur fram að ráðuneytið
hafi sótt um jafnlaunavottun frá
Vottun hf. þann 5. mars 2018 og
skrifað hafi verið undir samning
þann 19. mars 2018. Ekki hafi verið
leitað eftir tilboði frá samkeppnis
aðila. „Ráðuneytin í Stjórnarráði
Íslands hafa átt með sér samvinnu
og samráð varðandi innleiðingu
jafnlaunakerfa og var af hálfu for
sætisráðuneytisins meðal annars
litið til reynslu velferðarráðuneyt
isins og umhverfis og auðlinda
ráðuneytisins í þeirra innleiðingu
og vottunarferli á árinu 2017. Þess
skal getið að endurgjald til vottun
arstofu er ekki há fjárhæð og því er
verkefnið ekki útboðsskylt,“ segir
Ágúst Geir.
Jafnlaunaúttekt getur tekið
drjúgan tíma og því fór úttekt Vott
unar hf. fram í áföngum á árinu.
Babb kom í bátinn þegar Vottun
hf. var svipt faggildingu sinni þann
17. september 2019 enda er vott
un ófaggilds aðila ekki pappírs
ins virði enda uppfyllir slík vott
un ekki þær kröfur sem stjórnvöld
settu á þeim tíma. „Er ljóst var að
starfsleyfi vottunaraðila hafði fall
ið niður var að höfðu samráði
við þáverandi velferðarráðuneyti
ákveðið að fresta vinnunni þar til
úr hefði verið bætt,“ segir Ágúst
Geir enn fremur í svari sínu.
Ekkert bólar á faggildingu
Vottunar hf.
Einkaleyfastofa veittir fyrirtækjum
faggildingu til fjögurra ára og
leyfið er svo endurnýjað eftir
ítarlega skoðun og virkt eftirlit
með starfseminni. Á heimasíðu
Einkaleyfastofu kemur fram að
„Faggilding er formleg viðurkenn-
ing þar til bærs stjórnvalds á því
að aðili sé hæfur til að vinna til-
tekin verkefni varðandi samræm-
ismat svo sem að prófa eiginleika
efna, skoða ástand tækja og verk-
smiðja eða votta stjórnunarkerfi“.
Ekki hefur verið gefið upp af hverju
Vottun hf. missti faggildingu sína
en framkvæmdastjóri félagsins,
Kjartan J. Kárason, sagði í stuttu
viðtali við DV að faggildingin
hefði runnið út og að félagið væri
í endurúttektarferli.
Fram kom að slík endurúttekt
hafi farið fram 26. september en
núna, fjórum mánuðum síðar, hef
ur fyrirtækið ekki enn hlotið fag
gildingu og ljóst að Einkaleyfastofa
telur Vottun hf. enn ekki hæfa til
þess að votta stjórnunarkerfi. Að
láta faggildingu renna út er þó
einkennilegir stjórnarhættir því
Einkaleyfastofa, sem veittir fag
gildingu, er í sambandi við fyr
irtæki sem þurfa endurúttekt
með mjög löngum fyrirvara og
hefur virkt eftirlit með starfsemi
þeirra. „Það vaknar enginn einn
daginn án faggildingar, þetta er
langt ferli,“ sagði Elías M. Erlends
son, sviðsstjóri faggildingarsvið
Einkaleyfastofu, í áðurnefndri
frétt DV. Hinn möguleikinn er sá
að verulegar brotalamir hafi verið
í starfsemi Vottunar hf. Í lögum
um faggildingu kemur eftirfar
andi fram: „Þá getur faggildingar-
svið fellt niður faggildingu ef skil-
yrði fyrir veitingu hennar eru
ekki lengur uppfyllt eða faggiltur
aðili hefur stórfellt eða ítrekað
brotið ákvæði laga, reglugerðar,
staðla og reglna sem gilda um fag-
gildingu eða skilyrði þau sem sett
hafa verið fyrir faggildingu hans.“
Málinu bjargað með
reglugerðarbreytingu
Þessi faggildingarsvipting kom þó
ekki að sök. Þann 30. nóvember
skrifaði Ásmundur Einar nefni
lega undir reglugerðarbreytingu
þar sem tiltekið var að nóg væri að
vera með bráðabirgðastarfsleyfi
frá Jafnréttisstofu til þess að votta
jafnlaunakerfi. Það bráðabirgða
starfsleyfi hlaut Vottun hf. þann
14. desember 2018 og er gildistím
inn eitt ár. Sex dögum síðar fékk
forsætisráðuneytið síðan skírteini
frá Vottun hf. um að jafnlaunakerfi
ráðuneytisins hefði verið vottað.
Þess má geta að um síðustu ára
mót fluttist málaflokkur jafnréttis
mála til forsætisráðuneytisins.
„Er ljóst var að starfsleyfi vott
unaraðila hafði fallið niður var að
höfðu samráði við þáverandi vel
ferðarráðuneyti ákveðið að fresta
vinnunni þar til úr hefði verið
bætt. Þegar tilskilið leyfi vottun
araðilans lá fyrir að nýju var vinnu
við úttekt kerfisins framhaldið
og lokið með afhendingu vott
unarskírteinis til ráðuneytisins í
lok desember síðastliðinn,“ sagði
Ágúst Geir um þetta ferli. n
Reglugerðarbreyting gerði forsætisráðu-
neytinu kleift að hljóta jafnlaunavottun„Er ljóst var að starfsleyfi vottunaraðila hafði
fallið niður var að höfðu samráði við þáverandi
velferðarráðuneyti ákveðið að fresta vinnunni þar til
úr hefði verið bætt. Þegar tilskilið leyfi vottunaraðil-
ans lá fyrir að nýju var vinnu við úttekt kerfisins fram-
haldið og lokið með afhendingu vottunarskírteinis til
ráðuneytisins í lok desember síðastliðinn
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðu-
neytisstjóri, Emil B. Karlsson,
úttektarmaður hjá Vottun
hf., og Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra.