Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Síða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Síða 57
SAKAMÁL 5725. jan 2019 fórnarlamba sinna, eða undir neglurnar. Hún brenndi kynfæri þeirra með kertaloga og skar í brjóst þeirra. Stundum var ungu konunum hent nöktum út í snjó­ inn og síðan var helt yfir þær köldu vatni þar til þær frusu í hel. Pyntingarnar stóðu stund­ um yfir svo klukkustundum skipti og Elísabet stikaði um herbergið og öskraði: „Meira, meira. Miklu meira.“ Sérsmíðað búr Greifynjan lét útbúa sívalt búr með löngum, hvössum göddum sem sneru inn á við. Stúlka var síð­ an sett í búrið sem var híft upp frá gólfinu. Einn þjóna Elísabetar var látinn pota í stúlkuna með rauð­ glóandi skörungi og þurfti hún þá að velja á milli þess að láta brenna sig eða þrýsta sér að göddunum. Meðan á þessu gekk stóð Elísabet á stól og jós fórnarlambið klám­ fengnum svívirðingum. Gekk of langt Enn jókst ofsi greifynjunnar blóð­ þyrstu. Lík fórnarlambanna voru ýmist brennd, hent út fyrir kastala­ veggina í skjóli nætur, þar sem þau urðu fæða fyrir hungraða úlfa, eða hreinlega látin rotna þar sem þau lágu. Óstjórnlegur kvalalosti og blóð­ þorsti kom Elísabetu í koll að lok­ um, því hún fór yfir strikið. Hún tók upp á því að láta ræna stúlkum sem ekki komu úr röðum bænda og leiguliða. Fjölskyldur þeirra stúlkna tóku því ekki þegjandi og leituðu til konungs Ungverjalands, Matthíasar II. Næturárás Konungurinn gat ekki annað en látið undan sívaxandi þrýstingi um að láta málið til sín taka og fyrirskipaði hann rannsókn undir stjórn nágranna Elísabetar Bathory, Thurzo greifa. Thurzo lét til skarar í Cachtice­ kastala um miðja nótt, þann 29. desember 1610. Liðsmenn greifans gripu Elísabetu og hjálparkokka hennar glóðvolg í miðri pyntinga­ og morðlotu og blóðug ógnarstjórn greifynjunnar rann sitt skeið. Múruð inni Réttað var yfir Elísabetu og vit­ orðsmönnum hennar vegna dauða 80 kvenna, árið 1611, þótt talið sé víst að fjöldi fórnarlamba hennar hafi sennilega verið nær 300. Sex þjóna Elísabetar voru fundnir sekir og teknir af lífi og voru sumir þeirra pyntaðir áður, og fengu þá að kynnast eigin með­ ulum. Greifynjan naut þeirra for­ réttinda að þurfa ekki að vera við­ stödd réttarhöldin, en var eigi að síður sakfelld og dæmd til múr­ ast inni í eigin svefnherbergi. Einungis var rifa á einum vegg þar sem unnt var að smeygja inn mat og drykk. Elísabet dó í því herbergi þremur árum síðar, 21. ágúst 1614, að því sem talið er. n Frost í kortunum? Ekki láta kuldann koma þér í vandræði Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn! TUDOR Alltaf öruggt start eftir kaldar nætur MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST OG FAGLEG ÞJÓNUSTA Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is Við mælum rafgeyma og skiptum um Hr að þjónusta 5 börn ól bandaríska konan Michele Kalina á laun. Hún ól þau öll í baðkarinu á heimili sínu, það fyrsta 1996 og það síðasta árið 2010. Að sögn voru fjögur barnanna andvana fædd, en það þriðja, drengur, var með lífsmarki. Michele sá þó til þess að svo var ekki lengi. Öll þessi ár hafði hún komist upp með að fela lík barnanna inni í skáp og það var ekki fyrr en dóttir hennar, á unglingsaldri, fann fyrir tilviljun litlu beinagrindurnar inni í skápnum að sannleikurinn kom í ljós. Michele Kalina var ákærð fyrir morð á fyrrnefndum dreng og játaði sig seka. Hún fékk 20 til 40 ára dóm árið 2011. KVALALOSTI OG BLÓÐÞORSTI n Elísabet Bathory var alræmd n Grimmd greifynjunnar þekkti engin takmörk n Pyntingaloturnar stóðu klukkustundum saman Grænn dreki Skjaldarmerki greifynjunnar. Ferenz Nad­ asdy Greifinn var fjarverandi svo mánuðum skipti. Greifynjan blóðþyrsta Elísabet Bathory komst lengi vel upp með ódæði sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.