Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Side 58
58 FÓKUS 25. jan 2019
Eitt sinn var sagt „dúx í skóla, fúx í lífinu“ en það
hefur fyrir margt löngu verið afsannað. Dúxar
eru ekki aðeins nördar, svo helteknir af náminu
að þeir geta ekki fótað sig úti í veröldinni. Sumir
eiga reyndar erfitt með að fóta sig í leikfimisaln-
um og er það þeirra eini ljóður á skólagöngunni,
og aðaleinkunninni. DV skoðaði nokkra dúxa
sem hafa gert það gott og haft áhrif á íslenskt
samfélag eftir menntó.
„Ég hef svo sem enga töfraformúlu fyrir dúxa, en ég lærði vel
fyrir prófin. Ég tek tarnir fyrir próf, fremur en að liggja alltaf yfir
bókunum og hef alltaf verið með góðar einkunnir,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir í maí árið 1996. Katrín dúxaði í Menntaskólanum
við Sund, með 9,70 í aðaleinkunn sem var met hjá skólanum.
Sagði Katrín að franska væri eitt af uppáhaldsfögunum og
hún stefndi á að læra hana og rússnesku. Lélegasta einkunn-
in var í leikfimi, slétt 8. „Ég hef nú ekki alveg ákveðið hvað ég
ætla að fást við í framtíðinni,“ sagði Katrín sem átti eftir að
verða formaður Vinstri grænna, þingmaður og forsætisráð-
herra Íslands.
„Annars dúxaði ég eiginlega
óvart! Ég er nefnilega þeirr-
ar náttúru að vera aðeins of
skipulögð, svo jaðrar við maníu!
Að auki er ég líka eðalnörd og
hafa vinir mínir strítt mér svo-
lítið á þessu,“ sagði Edda Sif
Pálsdóttir í samtali við Blað-
ið vorið 2007. Edda sló öll met
Fjölbrautaskóla Garðabæjar
og dúxaði með einkunn-
ina 9,63.
Edda sagðist hafa
sérstaklega gaman
af fjölmiðlafræði og íslensku.
Eins og flestir vita þá sigldi hún
á þau mið og varð vinsæl
íþróttafréttakona. Edda
er dóttir Páls Magn-
ússonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins.
Í viðtalinu við Blaðið
sagðist hún einmitt
hafa kosið þann
flokk í fyrsta
skiptið sem
hún fékk að
kjósa.
„Enginn nær góðum árangri nema
að hafa mjög góða kennara og vil
ég ekki síst þakka þeim þennan ár-
angur,“ sagði Ólafur Jóhann Ólafs-
son, dúx Menntaskólans í Reykja-
vík vorið 1982. „Ég stefndi ekki
sérstaklega að því að slá neitt met
enda varð mér ekki ljóst fyrr en
allra síðustu daga hvert stefndi.“
Ólafur náði hæstu einkunn síðan
tugakerfið var tekið upp, samanlagt
9,67, og sló 25 ára met Jónatans
Þórmundssonar lagaprófessors.
Eftir MR lá leiðin til Boston í
eðlisfræði- og stærðfræðinám.
Síðan hóf hann störf fyrir risa-
fyrirtækin Sony og Time Warn-
er. Leiddi hann Sony á þeim tíma
þegar PlayStation-leikjatölvan vin-
sæla var tekin í notkun. Í hjáverk-
um hefur Ólafur reglulega gefið út
skáldsögur og leikrit.
„Ég las sæmilega fyrir próf,“
sagði Gylfi Zoega, dúx
Menntaskólans í Reykjavík
vorið 1983. Hann hafði þá
náð einkunninni 9,68 og þar
með slegið met Ólafs Jóhanns
Ólafssonar frá vorinu
áður. Gylfi sagðist
ekki hafa stefnt sér-
staklega að þessu en
lagði á sig til þess að
sleppa við eftirsjá
eftir prófin.
Gylfi sagðist stefna á að
læra þýsku eftir menntaskól-
ann. Hann hefur síðan gert
garðinn frægan sem einn af
helstu hagfræðingum lands-
ins og starfar sem prófessor
við Háskóla Íslands. Var hann
sérstaklega áberandi í þjóðfé-
lagsumræðunni á árunum eftir
bankahrunið. Gylfi er ekki eini
dúxinn í fjölskyldunni. Bróðir
hans, Gunnar Már, dúxaði tíu
árum á eftir Gylfa og afi þeirra,
Geir G. Zoega, dúxaði árið
1903.
„Ég hef reynt að hafa sem
víðastan sjóndeildarhring
og takmarka mig ekki við eitt
áhugamál. Ég kem því aldrei
til með að eignast neitt verð-
mætt frímerkjasafn eða ann-
að þess háttar, sem tekur hug
manns allan,“ sagði Eiríkur
Tómasson, dúx Mennta-
skólans við Hamrahlíð vor-
ið 1970. Þá útskrifaðist
hann með 8,85 í aðal-
einkunn.
Almennt séð
sagðist hann vera
ánægður með kennsluna
en kvartaði þó undan minni
sveigjanleika námsins í MH
miðað við aðra skóla. Uppá-
haldsfögin og þau sem hann
náði bestum árangri í voru
félagsfræði, saga og íslenska.
Eftir skólann hélt hann út
til Svíþjóðar til starfa í verk-
smiðjum Volvo. Eftir það varð
hann lögfræðingur og hæsta-
réttardómari. Eiríkur
var sá sem kom Davíð
Oddssyni og Halldóri
Ásgrímssyni saman
árið 1995 til að
mynda ríkisstjórn
sem sat að lokum
í tólf ár.
Við erum
í þínu
hverf i Bíldshöfði 9
Smáratorg 1
Helluhraun 16-18
Fiskislóð 1
Lélegust í leikfimi
Kaus Sjálfstæðisflokkinn
Stefndi ekki að meti
Las sæmilega
Ekkert
frímerkjasafn
D ðu í skóla og í lífinu
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is