Morgunblaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
FATNAÐUR Á ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr lífrænni ull og silki
Kíktu á
netverslun okkar
bambus.is
Veður víða um heim 15.11., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Akureyri 3 rigning
Nuuk -8 heiðskírt
Þórshöfn 8 súld
Ósló 10 þoka
Kaupmannahöfn 8 þoka
Stokkhólmur 9 súld
Helsinki 9 skýjað
Lúxemborg 4 þoka
Brussel 11 heiðskírt
Dublin 13 rigning
Glasgow 13 alskýjað
London 12 þoka
París 9 þoka
Amsterdam 10 heiðskírt
Hamborg 9 heiðskírt
Berlín 7 heiðskírt
Vín 8 léttskýjað
Moskva -1 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 13 skúrir
Barcelona 15 þrumuveður
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 heiðskírt
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -4 snjókoma
Montreal -8 alskýjað
New York 0 alskýjað
Chicago 0 snjókoma
Orlando 22 heiðskírt
16. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:00 16:26
ÍSAFJÖRÐUR 10:25 16:11
SIGLUFJÖRÐUR 10:09 15:53
DJÚPIVOGUR 9:35 15:50
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Suðaustan 13-20, hvassast suðvestan-
til, og rigning, en þurrt og bjart norðaustanlands.
Hiti 8 til 13 stig. Á sunnudag Sunnanátt, víða 10-15
m/s, og rigning, einkum suðaustanlands.
Suðaustan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s. Rigning, talsverð rigning sunnanlands, og hlýn-
andi veður, en heldur hægari og þurrt á norðaustanverðu landinu. Dregur úr vindi seint í kvöld.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Byggingarfulltrúi í Reykjavík hefur
afgreitt tugi umsókna í ár vegna
veitingarekstrar í miðborginni.
Samkvæmt lauslegri athugun á
fundargerðum hjá byggingarfulltrúa
hafa um fjörutíu slíkar umsóknir
verið afgreiddar á árinu. Eru hér
undanskildar umsóknir sem höfðu
verið afgreiddar en verið lagðar
fram á ný með ósk um breytingar.
Listinn ætti því að endurspegla
umsóknir vegna nýrra staða. Skal
tekið fram að hann er ekki tæmandi.
Fjöldi annarra veitingastaða er í
pípunum, ekki síst á nýjum reitum í
miðborginni. Kaffihús sem selja létt-
ar veitingar eru hér meðtalin.
Þá er hér allt frá kaffiteríu í Há-
skóla Íslands upp í veitingastaði
fyrir hundruð gesta á hótelum. Á
Hverfisgötu 33 og Bankastræti 14 er
um að ræða staði sem selja áfengi.
Veitingahús á þéttingarreitum
Meðal annars hefur verið rætt um
að veitingastaðir verði á Hafnar-
torgi, á Austurhöfn við Hörpu og á
jarðhæð þriggja nýrra fjölbýlishúsa
á Hverfisgötu, þ.e. á Brynjureit og á
tveimur reitum á horni Hverfisgötu
og Barónsstígs. Ennfremur er verið
að byggja veitingahús á Mýrargötu
18, ásamt því sem veitingarými verð-
ur líklega á hóteli á Laugavegi 95-99,
sem áformað er að opna í sumar. Þá
er rætt um að veitingastaðir verði í
íbúðahverfinu Vesturbugt við höfn-
ina.
Á listanum eru ný Mathöll á
Granda og umsókn um matarmark-
að í Kringlunni, alls 14 staðir. Kemur
þetta til viðbótar við Mathöllina á
Hlemmi sem var opnuð í fyrrahaust
og fyrirhugaða Mathöll á Bíldshöfða
sem ætlunin er að opna í desember.
Fjórar umsóknir tengjast hótel-
um. Á Hótel Öldu (Icelandair-hótel),
á Laugavegi 66-68, fékkst leyfi til að
innrétta veitingastað. Þá var leyfi
veitt fyrir veitingastað á fyrirhuguðu
hóteli í Skipholti 1 og á áformuðum
hótelum við Austurvöll, Lækjargötu
2A og á Seljavegi 2. Undirbúningur
að byggingu þessara hótela er langt
kominn. Á Laugavegi 55 verður veit-
ingasala á nýju Guldsmeden-hóteli.
Verða veitingagötur
Með nýju veitingastöðunum
breytist ásýnd margra gatna í borg-
inni. Fjórar umsóknanna eru á
Grandagarði en þar eru fyrir nokkr-
ir veitingastaðir. Hugmyndir eru um
hótel í húsi CCP á Grandagarði 8 og í
Alliance-húsinu skammt frá.
Á Klapparstíg 29 er áformað að
opna veitingahús fyrir 120 gesti. Þar
var lengi rekin rakarastofa.
Í Bankastræti 14 vék rakarastofa
fyrir bjórstað, Session.
Á Bergstaðastræti 14 hefur verið
sótt um leyfi fyrir veitingastað í
kjallara en þar var kjötbúð.
Á Mýrargötu 26 verður opnað
núðluveitingahús en handan götunn-
ar verður bakarí, Brikk, þar sem
veitingahúsið LOF var áður. Stein-
snar frá, á Mýrargötu 18, er sem
fyrr segir verið að byggja veitinga-
hús.
Á Laugavegi 4 verður veitingasala
í ísgalleríi í kjallara sem áformað er
að opna upp úr áramótum.
Fundargerðirnar ná aftur til 9.
janúar í ár. Síðan hafa orðið svipt-
ingar í ferðaþjónustunni. Má til
dæmis rifja upp þau orð Hrefnu
Sætran, veitingamanns á Fisk-,
Grill- og Skelfiskmarkaðnum, í sam-
tali við Morgunblaðið, að einhverjum
veitingahúsum kynni að verða lokað
vegna harðnandi samkeppni. Hrefna
og viðskiptafélagar hennar opnuðu
Skelfiskmarkaðinn, eitt stærsta veit-
ingahús borgarinnar, í ágústlok.
Veitingahúsum gæti því fækkað
samhliða því að ný eru opnuð.
Gífurlegir hagsmunir
Veiking krónunnar í haust ætti að
óbreyttu að styrkja rekstrargrund-
völl veitingahúsa í miðborginni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins úr veitingageiranum hefur
róðurinn þyngst hjá mörgum veit-
ingamönnum eftir vaxtarskeið.
Það ásamt milljarða fjárfestingu í
nýjum hótelum í miðborginni vitnar
um þá gífurlegu hagsmuni sem veit-
ingageirinn og ferðaþjónustan hefur
af því að ekki verði bakslag.
Þá eru ótalin þau hundruð starfa
sem myndu skapast á nýjum stöðum.
Umsóknir varðandi
rekstur veitingastaða
hjá byggingarfulltrúa
Póstnúmer 101, 103,
105 og 107 í Reykjavík
Heimilisfang/umsækjandi Um hvað er sótt
1 Bergstaðastræti 10aMálstaður Innrétta kaffihús í flokki I
2 Laugavegur 116Mai Thai
Auka leyfilegan gesta-
fjölda í 45
3 Bergstaðastræti 14*Grettisberg
Leyfi fyrir veitingastað í
flokki II
4 Grundarstígur 10Hannesarholt
Breyta veitingastað úr
flokki I í flokki II
5 Mýrargata 26Reykjavík núðlur ehf.
Breyta áður samþ. kaffi-
húsi í núðluveitingahús
6 Hjarðarhagi 2-6Háskóli Íslands
Innrétta veitingastað í
flokki II, kaffihús
7
Vesturgata 6-10a,
Tryggvagata 18
The Black Pearl
Innrétta veitingastað í
flokki II
8 Lækjargata 6bReykjavík Rent
Leyfi fyrir veitingastað
fyrir 55 gesti í kjallara
9 Laugavegur 77Reitir Fjölga gestum úr 60 í 80
10 Laugavegur 66-68Reitir
Innrétta veitingastað á
hótelinu
11 Hlíðarendi 6-10Valur veisluhöld
Veitingast. í íþróttam.
Vals við Hlíðarenda
12 Grettisgata 3CupCake Café Innrétta kaffihús
13 Laugavegur 42Valdís
Breytingar á innra rými
fyrir ísbúð
14 Skipholt 1Skipholt ehf.
Hótel fyrir 156 gesti og
veitingast. á 1. hæð
15 Grandagarður 16Faxaflóahafnir
Reka matarmarkað og 9
veitingastaði
16 Grandagarður 14Grandagarður 14 ehf.
Bryggju og veitingastað
fyrir 80 gesti
Heimilisfang/umsækjandi Um hvað er sótt
17 Fiskislóð 43F43 ehf.
Byggja sýningarhús með
veitingastað o.fl.
18 Grandagarður 5Kría Hjól ehf.
Innrétta veitingastað
fyrir 80 gesti
19 Frakkastígur 8Blómaþing ehf.
Fjölga gestum veitingast.
úr 80 í 120
20 Eyjarslóð 7*Hífandi ehf.
Innrétta veitingastað
fyrir 50 gesti
21 Thorvaldsensstræti 2Lindarvatn
Byggja 145 herb. hótel
með veitingahúsi
22 Lækjargata 2aReitir
Fjölga gestum úr 150 í
300 í kjallara hótels
23 Bankastræti 14-14bB14 ehf.
Innrétta veitingastað
fyrir 80 gesti á 2. hæð
24
Seljavegur 2
Seljavegur ehf.
(CenterHotels)
Byggja hótel fyrir 304
gesti og opna veitinga-
stað í flokki II
25 Hverfisgata 33R101 ehf.
Veitingastað fyrir 130
gesti á 1. hæð og í kj.
26 Skipholt 31Víðsjá - kvikmyndagerð
Gera bruggstofu ásamt
veitingastað
27 Hafnarstræti 1-3*Strjúgur ehf.
Breyta verslun í veitinga-
hús fyrir 50 gesti
28 Freyjugata 41 Ásmundarsalur ehf.
Innrétta veitingahús fyrir
55 gesti
29 Nóatún 17Íshamrar Innrétta veitingastað
30 Laugavegur 4Laugastígur ehf.
Innrétta veitingastað í
kjallara
31 Grandagarður 15-37Corvino ehf.
Innrétta bar/verslun sem
verður hluti veitingahúss
32 Klapparstígur 29*Barbræður
Innrétta veitingastað
fyrir 120 gesti
1
4
7
8
6
11
12 13
5 14
15
17
18
19
16
910
2
Heimilisfang/umsækjandi Um hvað er sótt
33 Snorrabraut 27-29Vietnamese cuisine
Veitingastað fyrir 80
gesti
34 Vitastígur 12Hugver ehf.
Innrétta kaffihús fyrir
20 gesti
35
Þingholtsstræti 1/
Ingólfsstræti 2
Reykjavík Rent
Innrétta veitingastað á
1. hæð
Heimilisfang/umsækjandi Um hvað er sótt
36 Laugavegur 20BStórval
Breyta veitingastað úr
flokki III í flokk II, eða í krá
37 Borgartún 8-16a*Höfðavík ehf. Veitingastað á jarðhæð
38 Kringlan 4-12Reitir
Breyta verslunareiningu
í matarmarkað, 4
veitingahús og krá
20
21
22
24
25
26
27
28
29
30
23
31
32
33
34
35 36
373
5
38
*Afgreiðslu frestað
Heimild Reykjavíkurborg
Ásókn í veitingasölu í miðborginni
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt tugi umsókna um veitingastaði í miðborginni í ár
Allt frá kaffiteríu til staða fyrir hundruð gesta Samhliða opnun staða kann öðrum að verða lokað
Morgunblaðið/Hanna
Nostra Veitingahús var nýverið opnað í Kjörgarði á Laugavegi 59.