Morgunblaðið - 16.11.2018, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
✝ Agnes Geirs-dóttir fæddist
í Reykjavík 28.
apríl 1952. Hún
lést á líknardeild
Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja
28. október 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Gunn-
hildur Viktors-
dóttir húsmóðir, f.
1929, d. 2013, og
Geir Þorvaldsson verkstjóri, f.
1930, d. 2004.
Systkini Agnesar eru: Mar-
teinn Elí, f. 1951, maki Hugrún
Pétursdóttir; Helga Margrét, f.
1954, maki Valdimar Bergsson;
Þorvaldur Geir, f. 1958, maki
Ólöf Ingimundardóttir; Guð-
rún, f. 1961, maki Steinar Birg-
isson.
Fyrri eiginmaður Agnesar
var Birgir Lárusson kaup-
maður, f. 1951, þau skildu.
Egill, f. 2008, og Brynhildur
Una, f. 2015.
Agnes ólst upp á Sogavegi í
Reykjavík en bjó síðar í Mos-
fellsbæ og Reykjanesbæ. Hún
starfaði lengi sem aðalbókari
hjá Álafossi, síðan Miklagarði
og Rúmfatalagernum. Einnig
starfaði Agnes sem fram-
kvæmdastjóri Smáratorgs ehf.
Síðustu árin hannaði hún og
saumaði föt undir vörumerkinu
Agnes Design og hélt úti vinnu-
stofu á frumkvöðlasetrinu Eld-
ey á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Agnes var félagi í Inner
Wheel Keflavík og einnig var
hún virk í Oddfellowreglunni í
Rebekkustúkunni Steinunni.
Hún málaði og vann glerlist.
Hún söng í bæði Álafoss-
kórnum og Mosfellskórnum.
Agnes hafði áhuga á golfi og
þau hjónin ferðuðust mikið
bæði innanlands og utan og
áttu margar ánægjustundir í
sumarbústaðnum Hreiðrinu.
Útförin fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 16. nóvem-
ber 2018, klukkan 13.
Börn þeirra eru: 1)
Geir Rúnar, f.
1974, maki Laufey
Ólafsdóttir. Börn
Geirs og fv. eigin-
konu hans, Stef-
aníu Óskar Þor-
steinsdóttur, eru
Agnes, f. 1997,
Björgvin Óli, f.
2001, og Ásbjörn,
f. 2005. 2) Hrafn-
hildur, f. 1980,
maki Aðalsteinn Sigurðsson,
börn þeirra eru Birgir Jarl, f.
2001, og Amanda Brák, f. 2009.
Eftirlifandi eiginmaður
Agnesar er Guðjón Guðmunds-
son, fv. framkvæmdastjóri, f.
1949. Börn Guðjóns frá fyrra
hjónabandi eru: 1) Kristín, f.
1965, maki Gísli Stefán Sveins-
son. 2) Hildur, f. 1982, maki
Arnar Snæberg Jónsson, börn
þeirra eru Tómas Andri, f.
1998, Brynjar Freyr, f. 2002,
Elsku ástin mín. Aldrei bjóst
ég við því að þú yrðir á undan
mér yfir í sumarlandið. Við sem
áttum eftir að gera svo margt og
njóta efri áranna. Við áttum
yndislega ævi saman. Fjölskyld-
una, vinina, öll ferðalögin, golfið,
sumarbústaðinn og svo margt
fleira. Nú sit ég eftir og skoða
myndir og yndislegar minningar
rifjast upp. Við hættum snemma
fastri vinnu og nutum lífsins sam-
an og gerðum það sem okkur
langaði. Þú blómstraðir sem
listamaður. Glerlistin, málverkin
og síðar hönnun og saumaskapur
sem átti stóran sess í sköpun-
arþrá þinni. Meira að segja fár-
sjúk á líknardeild lagðir þú á ráð-
in um nýjar flíkur og óskaðir þess
að þú hefðir meiri tíma.
Þú tókst á við veikindi þín af
einstakri bjartsýni, trú og þraut-
seigju alveg frá upphafi. Þetta
var bara verkefni sem við ætluð-
um að klára saman og sigrast á.
Þegar ljóst var að það tækist ekki
sýndir þú óbilandi æðruleysi og
kjark sem ég hefði aldrei trúað að
hægt væri að sýna við slíkar að-
stæður.
Þú tókst á við næstu verkefni,
áttir góðar kveðjustundir með
fjölskyldu og vinum, bjóst í hag-
inn fyrir framtíðina, undirbjóst
útförina og umgjörð hennar. Þú
varst þakklát fyrir alla þá aðstoð
og umönnun sem þú fékkst og
óskaðir sérstaklega eftir því að
ég myndi skila góðum þökkum til
hennar Ingu vinkonu okkar fyrir
hlýhug, hugulsemi og hjálp m.a.
með þá hluti sem okkur körlun-
um yfirsést, en skipta ykkur elsk-
urnar svo miklu máli.
Allt til enda hélstu reisn þinni,
jákvæðni og lífsgleði. Fyrir það
er ég stoltur og þakklátur. Þú
styrktir okkur um leið með þín-
um sterka persónuleika og ein-
staka húmor. Þú gafst okkur hin-
um ró og kærleik sem gerði
okkur betur kleift að takast á við
kvíðann og missinn sem í vænd-
um var.
„Ástin setur öngul sinn í hjarta þér og
knýr þig til að skilja að hið sterkasta af
öllu sterku, ástin, er ómótstæðileg.“
(William Law 1686-1761)
Ástin mín. Ég kveð þig í bili
með einlægri ást og virðingu.
Þinn
Guðjón.
Að minnast góðrar móður
er mannsins æðsta dyggð
og andans kærsti óður
um ást og móðurtryggð.
Hjá henni blíðum barmi
er barnsins hvíld og fró.
Þar hverfa tár af hvarmi
og hjartað fyllist ró.
(Freysteinn Gunnarsson)
Móðurmissir er sár. Mikil sorg
greip mig þegar stundin kom og
ég kvaddi mömmu mína í síðasta
sinn. Það var mér afskaplega
dýrmætt að vera með mömmu
síðustu vikurnar í lífi hennar. Fá
tækifæri til að kveðja hana fal-
lega og þakka henni fyrir allt sem
hún gerði fyrir mig og gaf mér.
Hún var mér góð fyrirmynd sem
veitti mér áhyggjulausa og gleði-
lega æsku. Fyrir það verð ég
ávallt þakklát.
Mamma var alltaf sérlega
glæsileg. Iðulega spurði hún mig
hvort hún væri ekki fín. Og jú
hún var alltaf fín. Heimili
mömmu voru alltaf falleg. Hún
hafði gott auga fyrir fallegum
hlutum og skapaði þá líka sjálf.
Henni var margt til lista lagt.
Hún gerði glerlistaverk, málaði
myndir, hannaði föt og útkoman
var alltaf stórkostleg því hún
kom auga á fegurðina allt um
kring.
Hún saumaði föt á mig og
dúkkurnar mínar og einu sinni
saumuðum við saman hárteygjur
og fórum með þær og seldum í
búðum á Laugavegi. Það er
minning sem yljar og líka kósí-
kvöldin þegar við sátum og horfð-
um saman á sjónvarpið, borðuð-
um Lindubuff og drukkum kók
með lakkrísröri.
Mamma var ákaflega dugleg
og félagslynd. Ef hún var ekki að
vinna, eða sat við eldhúsboðið að
spjalla við vinkonur, eða á kaffi-
húsum, var hún á kóræfingu eða
að sinna félagsmálum. Mamma
naut þess að syngja og hlusta á
góða tónlist.
Það var alltaf gaman að koma í
mat til hennar og Guðjóns. Í eld-
húsinu var mamma líka snillingur
og töfraði þar fram veislumat og
nóg af honum. Hún passaði vel
upp á að það væri alltaf nóg til og
uppskriftirnar voru oftar en ekki
margfaldaðar. Það er mér svo
minnisstætt þegar ég hringdi í
hana fyrir jólin í fyrra til að fá
uppskrift að jólaísnum fræga frá
Gunnömmu. Ég skrifaði upp-
skriftina samviskusamlega niður
og svo fórum við hjónin að kaupa
hráefni í ísinn. Við áttuðum okk-
ur fljótlega á að eitthvað væri
bogið við magnið í uppskriftinni.
Við ákváðum að gera bara einn
fjórða en samt dugði ísinn öll jól-
in.
Í veikindunum sýndi mamma
ótrúlega mikinn styrk og já-
kvæðni. Hún tókst á við veikindin
af miklu æðruleysi og ró sem ég
vissi ekki að hægt væri að hafa á
tímum sem þessum. Ég er þakk-
lát fyrir þá sterku og samheldnu
fjölskyldu og þá góðu vini sem
hún átti sér við hlið. Hún var um-
vafin ást í baráttu sinni. Þá er ég
sérstaklega þakklát fyrir að
mamma hafi átt Guðjón sinn að.
Ástina sína. Hann var kletturinn í
lífi hennar allt til enda þess.
Ég á eftir að sakna þess mikið
að geta ekki tekið upp símann og
heyrt í mömmu. Hún skildi mig
alltaf og umvafði mig bæði í sorg
og gleði. Ég er stolt og þakklát að
hafa átt hana fyrir móður, hún
kenndi mér margt og skilur eftir
dýrmætar minningar sem lýsa
veginn. Ég mun ávallt minnast
hennar sem sterkrar, ástríkrar
konu sem var ákaflega lífsglöð og
elskaði skilyrðislaust. Nú er hún
farin en lifir áfram í hjörtum okk-
ar um ókomna tíð.
Hrafnhildur Birgisdóttir
(Habbý).
Að kveðja nána vini og ætt-
ingja er sárt og erfitt. Í dag
kveðjum við elsku Agnesi.
Agnes var tengdamóðir mín í
22 ár, amma barnanna minna og
ágætis vinkona mín. Við vorum
nú ekki alltaf sammála og fórum
ólíkar leiðir í ýmsu.
Agnes var mikill fagurkeri og í
gegnum tíðina fékk hún ýmis
áhugamál. Við vissum í raun aldr-
ei hvaða áhugamál kæmi næst
enda voru þau mörg. Sem dæmi
um áhugamál má nefna kórsöng,
leirmálun, listmálun, útsaum með
pallíettum, brauðbakstur, glerlist
og kjólasaum, sem var hennar
nýjasta áhugamál. Þegar Agnes
fékk áhuga á einhverju var farið á
fullt í það, allt keypt sem þurfti til
að sinna því og svo var setið við
löngum stundum. Hún sagði allt-
af að annaðhvort hefðirðu áhuga
eða ekki. Hún átti það líka til að
hætta skyndilega að stunda
áhugamálin en var ávallt komin
með ný innan skamms. Ekki sat
hún aðgerðalaus, svo mikið er
víst. Við sem stóðum henni næst
eigum marga hluti sem tilheyrðu
hverju og einu áhugamáli. Við
eigum málverk, glerspegla, jóla-
styttur, útsaumaða jólasokka,
kjóla og margt fleira sem hún gaf
okkur. Allt er þetta mjög fallegt
og er enn í notkun í dag. Allt sem
Agnes gerði gerði hún vel og
henni var ótal margt til lista lagt.
Golfið átti hug þeirra hjóna og
ósjaldan fengum við að heyra
þegar tengdamamma spilaði vel,
það var mun sjaldnar sem slæmu
hringirnir fóru í loftið. Guðjón
gaf Agnesi golfbíl í afmælisgjöf
og það sem hún var glöð með
hann og sagði mér að það væri
svo nauðsynlegt fyrir Guðjón að
vera á bíl því hann ætti erfitt með
að ganga 18 holu völl en alls ekki
hún. Ég spurði hana rétt fyrir
andlátið hvað þau hjónin hefðu
verið lengi að verða góð í golfi.
Það stóð ekki á svari: „Sko, ég
var bara í tvo mánuði en Guðjón
tuttugu ár.“ Það var aldrei langt í
húmorinn og hann hélst til síð-
asta dags.
Agnes var alltaf smart og vel
tilhöfð, fallega lakkaðar neglur
og varalitur var staðalbúnaður
þar á bæ. Oft langaði mig að geta
notað sömu númer og hún af föt-
um og skóm því hún var dugleg
að kaupa sér föt og alveg sama
hvað hún keypti; allt var það flott
og elegant.
Agnes og Guðjón voru sérlega
gestrisin og ekki spillti fyrir hvað
þau saman elduðu góðan mat. Ég
hlakkaði alltaf til að fara í mat til
þeirra. Svo var spilað fram á nótt,
kana, og við fengum okkur í tána.
Svona getum við rifjað upp minn-
ingarnar sem hrannast upp á
slíkri stundu.
Erfiðir tímar taka nú við en
saman komumst við í gegnum
sorgina og minningin um Agnesi
lifir með okkur til dauðadags.
Ykkar
Ósk.
Við andlát Agnesar tengda-
móður minnar lauk samleið okk-
ar sem varði í rúmlega tuttugu
ár. Agnesi kynntist ég í gegnum
Habbý mína og fann ég strax frá
fyrstu kynnum gagnkvæma
væntumþykju og virðingu. Alltaf
þótti mér gott að heimsækja þau
hjónin, Agnesi og Guðjón, hvort
sem var í sumarbústaðinn þeirra
eða á heimili þeirra. Ávallt var
boðið upp á veislumat og nóg af
honum.
Það truflaði Agnesi þó alltaf
pínulítið hvað ég var lengi að
borða, enda vildi hún alltaf vera
fljót að taka af borðinu og gera
fínt eftir matinn. Enda var alltaf
allt fínt og flott hjá henni. Skipti
þar engu máli hvort hún hafði
keypt það eða skapað það sjálf
enda var Agnes mikill listamað-
ur. Þannig gerði hún stórkostleg
listaverk með speglum, málaði
falleg málverk og síðustu árin
hannaði hún og saumaði föt. Allt
sem hún snerti varð fallegt.
Agnes gerði líka gómsætar
sultur og var afar áhugasöm um
berjarækt okkar hjóna eftir að
við eignuðumst garð með rifs-
berja- og sólberjarunnum. Hún
spurði reglulega hvort komin
væru ber og hvort þau væru að
verða tilbúin og varð spretta
þessa síðasta sumars hennar
okkur báðum því mikil vonbrigði.
Í sumarbústaðnum var alltaf
sérlega kósý. Eldur í kamínunni,
falleg tónlist og notaleg stemn-
ing. Oft sátum við Agnes lengi og
spjölluðum í bústaðnum, jafnvel
langt fram á nótt og eru þær
stundir mér afar dýrmætar og
hefði ég gjarnan viljað hafa þær
mun fleiri.
Agnes var alltaf sérstaklega
stolt af börnunum sínum, Geira
og Habbý, og notaði hún hvert
tækifæri til að láta vini þeirra og
fjölskyldur vita hvað þau væru
dugleg og hvað hún væri stolt af
þeim. Ávallt við öll stór tímamót í
þeirra lífum, svo sem stórafmæli,
útskriftir eða annað hélt hún
ræðu þar sem hún sagði frá af-
rekum þeirra og því hversu stolt
hún væri af þeim. Ef hún ein-
hverra hluta vegna gat ekki sjálf
verið á staðnum var ræðan send
og skyldi hún flutt í veislunni.
Þannig kom það í hlut Habbýjar
minnar að flytja bróður sínum
ræðu Agnesar í afmæli hans fyrir
nokkrum árum og tókst þeim
mæðgum vel upp með það sam-
starf.
Agnes varð þeirrar gæfu að-
njótandi að eiga Guðjón að og fal-
legri hjón er vart hægt að hugsa
sér. Þau nutu þess að vera sam-
an, hvort sem var á ferðalögum, í
golfi eða bara í hversdagsleikan-
um. Þau voru samstiga í öllu sem
þau gerðu og gátu stutt hvort
annað bæði í gleði og í sorg.
Hvergi var þetta þó jafn augljóst
og í veikindum Agnesar þar sem
Guðjón hennar sat yfir henni all-
an sólarhringinn og gerði allt
sem hann gat til að auðvelda
henni lífið og gleðja hana. Sterk-
ari ást hef ég aldrei séð en ást
þeirra hjóna. Mikill er missir
okkar en engum þó meiri held ég
en Guðjóns sem misst hefur sálu-
félaga sinn.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst jafn stórkostlegri konu og
henni Agnesi og ég bið Guð að
vernda hana. Ég vil einnig biðja
Guð að gefa Guðjóni huggun og
frið í hjarta sitt.
Aðalsteinn Sigurðsson.
Elsku amma sem varst með
hjarta úr gulli og alltaf með bros
á vör. Það var alltaf svo gaman að
koma til þín. Takk fyrir að vera
amma mín, þú ert í hjörtum okk-
ar allra og verður þar alla tíð.
Þinn
Birgir Jarl.
Elsku amma mín er nú farin úr
veikum líkama til mömmu sinnar
og pabba. Þar er gott að vera.
Það var alltaf gott að koma til
ömmu og afa, hvort sem það var
heim til þeirra eða í sumarbú-
staðinn. Amma tók stundum á
móti okkur með svuntuna á sér
og húsið ilmaði. Upp í bústað fór-
um við oft í mínígolf og í heita
pottinn og þar var alltaf
skemmtilega sumarbústaðar-
tónlistin. Það var alltaf gott að
gista hjá ömmu og afa, þau áttu
mjúkan svefnpoka fyrir mig. Allt-
af þegar amma háttaði mig eða
hjálpaði mér í föt þá gerði hún
kross framan á mig með hend-
inni. Mér finnst vænt um það og
smá fyndið, mikið er það falleg
minning sem mun fylgja mér.
Fyrir jólin bökuðum við oft smá-
kökur, og mikið af þeim, og gerð-
um konfekt. Amma gat breytt
kartöflum í konfekt, en kartöflu-
konfektið er uppáhaldið mitt.
Takk fyrir allt sem þú kenndir
mér og þann kærleika sem þú
sýndir mér. Takk fyrir að vera
góð amma. Ég veit að ég á eftir
að sakna þín, elsku amma mín, en
ég veit líka að nú ertu hjá Guði og
þar líður þér vel.
Þín
Amanda Brák.
Elsku Agga, stóra systir mín.
Mikið eru þetta búnir að vera
miklir sorgardagar undanfarna
vikur. Ég veit að við áttum að
gráta þig en fyrr má nú vera. Að
hitta þig ekki í Hreiðrinu, spila
golf saman, drekka rauðvín fram
eftir nóttu þegar karlarnir okkar
eru farnir að sofa, hlæja saman,
gráta saman og hlusta á falleg
lög. Það eru svo mörg lög sem ég
tengi við þig. Þú varst kletturinn
minn þegar pabbi okkar dó svo
skyndilega fyrir 14 árum og það
sem þú gerðir fyrir mig mun ég
aldrei gleyma. Svo þegar þú
stofnaðir Agnes design er það
mér svo mikils virði að hafa að-
stoðað þig á Ljósanótt, Lækjar-
ási, Ásbrú, Hrafnagili við Akur-
eyri þar sem við áttum yndislega
daga með elskunum okkar. Þegar
þú varst komin á líknardeildina
fékk ég þann heiður að taka þátt í
bænarstund með þér og fá að að-
stoða þig á þann hátt sem ég
fékk, það yljar mér um hjarta-
rætur. Elsku Agga mín, ég veit
að góður Guð hefur tekið þér
opnum örmum. Ég ætla að enda
þetta á fermingarversinu okkar
sem við vorum að tala um síðustu
dagana þína.
Vísa mér vegu þína, Drottinn,
kenn mér stigu þína.
(Davíðssálmur 25)
Elska þig.
Þín litla systir
Guðrún.
Það er ólýsanlega erfitt að
setjast niður og skrifa um hana
Agnesi systur mína sem kvaddi
þennan heim 28. október síðast-
liðinn. Við vorum ekki bara syst-
ur heldur bestu vinkonur, það
voru aðeins tvö ár á milli okkar
en við vorum fimm systkini sem
ólumst upp á Sogaveginum hjá
ástríkum foreldrum. Marteinn
elstur, svo Agnes, ég sem þetta
skrifa, Þorvaldur og yngst er
Guðrún.
Það eru svo ótalmargar minn-
ingar sem koma upp í hugann,
það væri hægt að skrifa heila bók
um Öggu systur eins og ég kallaði
hana oftast. Við sem litlar stelpur
söfnuðum servíettum og leikara-
myndum, lékum okkur inni og úti
og svo komu unglingsárin, þá
fékk ég að vera með vinahópnum
hennar, við sögðumst vera tví-
burar svo ég kæmist með í Silfur-
tunglið. Eftir að við urðum full-
orðnar var farið í ferðalög saman;
við Valdimar maðurinn minn í
Hreiðrið þeirra fyrir austan og
þau Guðjón komu norður í
Sjarma til okkar. Við fórum sam-
an í utanlandsferðir ásamt eigin-
mönnum okkar og vinum til
Köben, Þýskalands, Karíbahafs-
ins, Glasgow og nú síðast til
Tenerife í apríl síðastliðnum.
Agnes var mjög dugleg, hún tók
allt með trompi, vann hratt og
örugglega. Ég segi stundum að
þegar við vinkonurnar saumuð-
um eitt dress þá saumaði Agga
fimm, þegar við bökuðum tvær
formkökur bakaði hún tíu form-
kökur og tíu botna, allt tekið með
trompi. Námskeiðin voru mörg,
indverskt matreiðslunámskeið,
glerlist, postulínsmálun og nagla-
myndir. Hún saumaði, prjónaði,
svo fór hún í golf, Oddfellow, fór
að mála myndir, já, já, að sjálf-
sögðu var haldin málverkasýn-
ing. Hún bjó til sultur með vin-
konum í Keflavík, fór að hanna
föt á konur fyrir nokkrum árum
og tók það hug hennar allan, al-
veg fram á síðasta dag var hún að
spá og spekúlera í hönnun, ný
snið og efni. Agnes var glæsileg,
alltaf vel tilhöfð, laðaði fólk að sér
með sjarma sínum, hún var
skemmtileg og sagði frá á svo
skemmtilegan hátt. Hún elskaði
börnin sín og barnabörn og var
svo stolt af þeim, eiginmann sinn,
hann Guðjón, elskaði hún svo
innilega og var þeirra samband
mjög fallegt og er hann búinn að
standa sig eins og hetja við hlið
hennar í þessum miklu veikind-
um hennar ásamt börnunum
þeirra.
Elsku, elsku stóra systir mín,
ég sagði þér hvað ég elska þig
mikið og mun alltaf gera, góða
ferð í sumarlandið. Sjáumst
þegar minn tími kemur.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Við Valdimar biðjum Guð að
blessa Guðjón, börn, tengdabörn,
barnabörn og aðra ástvini
Agnesar.
Þín
Helga systir.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Elsku Agga mín.
Ég get ekki annað en hugsað
til þín þegar ég les textann hér að
ofan. Þú lifðir í núinu og naust
þess á hverjum degi að vera til.
Með Guðjón þinn, börnin, barna-
börnin, systkini og aðra ættingja
og vini þér við hlið. Þannig leið
þér best. Það var alltaf svo ynd-
islegt að koma til ykkar Guðjóns í
Hreiðrið ykkar fyrir austan. Góð-
ur matur, gott vín og heiti pottur-
inn klikkar seint.
Þú varst best í öllu sem þú
tókst þér fyrir hendur. Þér
fannst það og okkur fannst það
líka. Þú tókst allt alla leið. Þú
fékkst saumavél og innan
skamms stofnaðir þú vörumerki
og hélst tískusýningar. Þú byrj-
aðir að mála og fyrr en varði
varstu farin að selja málverk.
Glerlistin og golfið, það er hægt
að halda endalaust áfram. Þú
varst einfaldlega best. Þú hafðir
óbilandi trú á sjálfri þér og ekki
skrítið. Allt sem þú gerðir, gerðir
þú vel. Þú varst sigurvegari á öll-
um sviðum og þess vegna vorum
við alveg viss um að þegar þú
greindist með krabbameinið
myndir þú sigra það líka.
Takk fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig og fjölskylduna
Agnes Geirsdóttir