Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Veður víða um heim 28.11., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Hólar í Dýrafirði -2 snjókoma
Akureyri 2 snjókoma
Egilsstaðir 2 rigning
Vatnsskarðshólar 6 skýjað
Nuuk -3 skýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló -4 skýjað
Kaupmannahöfn 1 léttskýjað
Stokkhólmur -6 þoka
Helsinki -8 heiðskírt
Lúxemborg 4 súld
Brussel 8 skýjað
Dublin 11 rigning
Glasgow 12 rigning
London 12 súld
París 11 alskýjað
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 1 heiðskírt
Berlín 0 heiðskírt
Vín 0 léttskýjað
Moskva -9 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 11 heiðskírt
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg -7 alskýjað
Montreal 1 snjókoma
New York 3 alskýjað
Chicago -5 snjókoma
Orlando 9 heiðskírt
29. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:41 15:53
ÍSAFJÖRÐUR 11:14 15:29
SIGLUFJÖRÐUR 10:58 15:11
DJÚPIVOGUR 10:17 15:15
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Norðan 15-23 m/s NV-til og með SA-
ströndinni, annars 10-18 m/s. Snjókoma og síðar él
norðan til, en lengst af úrkomulaust syðra. Dregur
úr vindi þegar líður á kvöldið. Frost víða 1-6 stig.
Dregur smám saman úr vindi en bætir í ofankomu norðan til síðdegis. Hiti 0 til 5 stig fyrir
sunnan, en frost 0 til 10 stig norðan heiða.
Silkitoppurnar á myndinni glöddu
augu ljósmyndarans á Seyðisfirði í
kalsaveðri nýlega. Silkitoppan er
óreglulegur gestur sem kemur
stundum í stórum hópum á haustin
og veturna, sennilega vegna fæðu-
skorts á vetrarstöðvum. Síðustu
tvær vikur hafa silkitoppur meðal
annars einnig sést á Höfn, Djúpa-
vogi, Akureyri, Selfossi og Sand-
gerði.
Göngurnar byrja oftast í október
og dvelja fuglarnir stundum vetrar-
langt, jafnvel fram í apríl, og stöku
fuglar sjást flesta vetur. Fyrstu
skráðar heimildir um silkitoppur
hér á landi eru frá 1903, samkvæmt
upplýsingum Jóhanns Óla Hilmars-
sonar fuglafræðings. Ein stærsta
silkitoppuganga sem vitað er um
var veturinn 2010-2011. Þá sáust
þær hundruðum saman og varp var
staðfest á Dalvík, við Mývatn og í
Fellabæ. Silkitoppurnar hurfu að
varpi loknu og hafa ekki reynt varp
aftur svo vitað sé.
Silkitoppa er auðgreind á skraut-
legum fjaðurham sínum, grunnlitur
er grábleikur, höfuðtoppur, svart
andlit, gult, hvítt og rautt lita-
mynstur á vængjum og stéli og
rauður undirgumpur eru einkenn-
andi. Hún verpur nyrst í barr-
skógabelti Skandinavíu, Rússlands,
Síberíu og N-Ameríku. Hér sækja
silkitoppur í reyniber og önnur ald-
in í görðum, en þegar þau þrýtur
þiggja þær gjarnan epli og aðra
ávexti eða annað sem býðst.
aij@mbl.is
Litríkar silkitoppur lífguðu upp á umhverfið
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Gáð til
veðurs
á Seyðis-
firði
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þeir hafa leyfi til að sækja um
vörur eins og hver annar birgir,“
segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri Vínbúðarinnar, í
samtali við Morgunblaðið og vísar í
máli sínu til þess að verslunarrisinn
Costco hefur nú fengið leyfi til að
selja áfengi undir merki sínu Kirk-
land Signature í verslunum Vín-
búðarinnar. Komu nokkrar tegundir
í sölu í byrjun þessa mánaðar og er
von á fleiri vörum á næstunni.
Alls má nú finna sex tegundir af
Kirkland-víni í Vínbúðunum. Er um
að ræða kampavín, freyðivín, marga-
rítablöndu, hvítvín, rauðvín og
romm, en vínið kemur frá Frakk-
landi, Ítalíu, Bandaríkjunum og
Spáni. „Þessar vörur eru nú þegar
komnar í sölu og svo eru einhverjar
tvær til þrjár tegundir til viðbótar
sem eru í ferli,“ segir Sigrún Ósk.
Bjóða þeir í aðrar vörur?
Hver sá sem hefur áfengis-
heildsöluleyfi og hefur gert stofn-
samning telst vera birgir ÁTVR og
getur sent umsóknir um að koma
vöru í sölu í Vínbúðunum. Birgir
ákveður svo sjálfur verð til ÁTVR.
Spurð hvort Costco sé búið að
falast eftir því að selja annað áfengi í
Vínbúðunum en það sem finna má
undir vörumerki Kirkland kveður
Sigrún Ósk nei við. „En ef birgir
sækir um vörur sem annar er með
þá fer það bara í formlegt ferli, sem
kallast verðboð, og þá gildir bara
hvor aðili hefur betra verð. Það er
opinn möguleiki fyrir alla, hvort sem
það er Costco eða einhver annar,“
segir hún.
Áfengi Costco
komið í verslanir
Vínbúðarinnar
Sex áfengisteg-
undir frá Kirkland
komnar í sölu og
fleiri á leiðinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÁTVR Costco er nú einn þeirra
birgja sem selja í Vínbúðinni.
Sorphirða Reykjavíkur auglýsir nú
sérstaklega eftir konum til starfa í
von um að stuðla að jafnari kynja-
skiptingu innan starfsgreinarinnar.
Er um að ræða starf við hreinsun á
blönduðum heimilisúrgangi og end-
urvinnsluefnum frá íbúðarhúsum í
Reykjavík og verkefni sem því til-
heyra.
„Um er að ræða starf sem felur í
sér hreyfingu og útiveru,“ segir í
auglýsingu sorphirðunnar.
„Þetta tengist tilraunaverkefni
borgarinnar um jafnari kynja-
hlutföll á þremur starfsstöðvum,“
segir Eygerður Margrétardóttir,
deildarstjóri umhverfis- og
úrgangsstjórnunar, í samtali við
Morgunblaðið, en auk sorphirð-
unnar taka leikskóli og þjónustuver
borgarinnar þátt í verkefninu.
„Í þessu verk-
efni tökum við
sérstaklega fyrir
vinnustaði þar
sem hallar á ann-
að kynið. Hjá
sorphirðunni
vinna mestmegnis
karlmenn en á
hinum tveimur
starfsstöðvunum
eru konur í miklum meirihluta. Það
er því auglýst eftir því kyni sem er í
minnihluta,“ segir Eygerður og
bendir á að markmiðið sé að jafna
út stöðu karla og kvenna á starfs-
stöðunum. „Og einnig að reyna að
breyta þeim viðhorfum sem tengj-
ast ákveðnum störfum, þ.e. að sum
störf séu sérstaklega karla- eða
kvennastörf,“ segir hún. khj@mbl.is
Reykjavíkurborg vill
fleiri konur í sorphirðu
Í rusli Sorphirða
er oft mikið verk.
Björgunarsveitir alls staðar á land-
inu voru í viðbragðsstöðu í gærkvöldi
vegna óveðurs sem gengur yfir land-
ið. Ekki er búist við að veðrið gangi
niður fyrr en aðfaranótt föstudags.
Var nokkrum hlutum hringvegar-
ins lokað þegar undir kvöld í gær.
Veginum milli Núpsstaðar og Hafn-
ar í Hornafirði var lokað fyrst og var
ekki búist við að sá vegarkafli yrði
opnaður á ný fyrr en síðdegis í dag.
Þá var veginum um Kjalarnes lok-
að í gærkvöldi og einnig veginum
milli Hvolsvallar og Víkur. Nú í
morgunsárið átti að taka afstöðu til
þess hvort veginum um Mývatns- og
Möðrudalsöræfi yrði lokað og einnig
var talið líklegt að veginum um
Öxnadalsheiði yrði lokað í dag.
Veðurstofan gaf í gær út appels-
ínugula viðvörun fyrir Suðurland og
Suðausturland vegna óveðursins en
annars staðar á landinu var gul við-
vörun í gildi.
Þannig var því spáð að vindhviður
gætu mælst 45-55 metrar á sekúndu
við fjöll frá Lómagnúpi til austurs í
Lón. Aðstæður til ferðalaga voru
taldar hættulegar og líkur á grjót-
og sandfoki. Þá gerði spáin ráð fyrir
því að vindhviður í Mýrdal gætu náð
allt að 50 m/s. Yrði veðrið þar vara-
samt ökutækjum og líkur á foktjóni.
Aðvörun var sett inn á Safe Tra-
vel-vefinn og staðbundin SMS-skila-
boð send út. Eins voru ferðaþjón-
ustufyrirtæki beðin um að vara
ferðamenn við en nokkur þúsund er-
lendir ferðamenn eru á landinu.
Vegum lokað vegna óveðurs
Viðvörun vegna veðurs um allt land Spáð allt að 55
metrum á sekúndum í vindhviðum frá Lómagnúpi að Lóni