Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Norðurljósaferðir eru alltaf vinsæl-
ar en það hefur ekki viðrað vel til
þeirra í haust. Það er ekki hægt að
ganga að norðurljósunum vísum,“
sagði Þórir Garðarsson, stjórnar-
formaður ferðaþjónustufyrirtækisins
Gray Line Iceland. Hann sagði að
fjöldi ferðamanna kæmi hingað
vegna norðurljósanna enda hentaði
Ísland einkar vel til norðurljósaskoð-
unar. Norðurljósin eru eitt aðal-
aðdráttaraflið sem dregur hingað
vetrarferðamenn.
Þórir sagði að þeir hefðu verið
frumkvöðlar í að bjóða upp á
norðurljósaferðir og byrjað með þær
árið 2001. Þá hefðu menn haft mis-
jafnlega mikla trú á þessu framtaki
en nú væri þetta orðið mjög algengt.
„Það geta verið þúsundir farþega að
fara að kvöldi úr borginni að leita að
norðurljósum. Við seljum í raun ekki
norðurljósaferðir heldur leit að
norðurljósum,“ sagði Þórir. Hjá
Gray Line gildir að sjáist ekki
norðurljós geta farþegar komið aftur
í allt að tvö ár, sér að kostnaðar-
lausu, þar til þeir sjá norðurljósin.
Stundum gefur ekki til norður-
ljósaleitar nokkra daga í röð og þá
safnast upp mikill fjöldi fólks sem
bíður eftir betri tíð. „Ég held að
metið hjá okkur hafi verið um 2.000
farþegar á einu kvöldi. Þá hafði ekki
sést til norðurljósa í nokkurn tíma.
Meðaltalið er hins vegar 2-3 hund-
ruð manns eða 4-8 rútur á kvöldi,“
sagði Þórir. Stuðst er við reynsluna
og nokkrar norðurljósaspár, íslensk-
ar og erlendar, þegar metnar eru
líkur á því að sjá norðurljós. Vakt-
stjórarnir þekkja nú orðið hvar lík-
urnar eru mestar miðað við vindátt
og skýjafar. Mest er farið á staði á
Vesturlandi eða Suðurlandi þar sem
er lítil ljósmengun.
„Þegar við byrjuðum á þessu var
almennt ekki mikil þekking á
norðurljósum. Hún er orðin miklu
meiri,“ sagði Þórir. „Við Íslendingar
erum farnir að meta norðurljósin
meira en við gerðum fyrir 10-15
árum.“
Þórir sagði að myndavélatækninni
hefði líka fleygt mikið fram. Nú
fengju menn miklu betri norður-
ljósamyndir en áður og oft sæju
myndavélarnar norðurljósin betur
en bert mannsaugað.
Ýmislegt ber við í ferðunum
Japanir voru markhópurinn þegar
norðurljósaferðirnar hófust 2001 en
þeir hafa almennt áhuga á norður-
ljósum. Síðan hafa fleiri þjóðir bæst
í hópinn, t.d. sækja Bretar í að sjá
norðurljós, að sögn Þóris. „Einhvern
veginn finnst mér að þeir sem hafa
alist upp í stórborgum þar sem allt
er upplýst séu hrifnari af því að
upplifa myrkrið og norðurljósin en
hinir sem þekkja myrkrið,“ sagði
Þórir.
Það ber ýmislegt við í norður-
ljósaferðunum. Fólk hefur trúlofað
sig undir norðurljósunum eða játast
hvort öðru. Skemmtilegasti norður-
ljósatíminn er fram undan, það er
frá desember og fram í mars þegar
jörð er snævi þakin og endurspeglar
tunglsljósið, stjörnuskinið og norður-
ljósin.
Norðurljósin draga að ferðamenn
Besti norðurljósatíminn er að ganga í garð Þúsundir ferðamanna í leit að norðurljósum á sama
kvöldi Þekking á norðurljósunum og hvar best er að sjá þau hverju sinni hefur almennt aukist
Morgunblaðið/Eggert
Norðurljós Erlendir ferðamenn sækjast margir eftir því að sjá hin rómuðu norðurljós í ferð sinni til Íslands.
afmæli kirkjunnar 16. desember
klukkan 11.
Hópur fólks í eldra starfi Kópa-
vogskirkju skoðaði endurbætta
glugga á suðurhlið kirkjunnar á
þriðjudag og kunni vel að meta. Að
sögn Sigurðar var Stefan Oidtmann
og hans fólki fagnað með lófaklappi
og síðan húrrahrópum.
höfum víða fengið vilyrði um stuðn-
ing,“ segir Sigurður. „Mikið munar
um myndarlegt framlag frá Jöfn-
unarsjóði sókna og einstaklingar,
fyrirtæki og félagasamtök hafa stutt
okkur dyggilega, sem er þakkað af
heilum hug.“ Hann segir að þessum
endurbótum verði sérstaklega fagn-
að í guðsþjónustu á 56 ára vígslu-
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Senn sér fyrir endann á endur-
bótum sem unnið hefur verið að í
Kópavogskirkju frá því í sumar. Í
vikunni luku starfsmenn þýska
fyrirtækisins Oidtmann við að setja
upp steinda glugga Gerðar Helga-
dóttur í kirkjunni eftir viðgerð í
Þýskalandi, þar sem þeir voru smíð-
aðir.
Þá hafa starfsmenn Fagsmíði
unnið við viðgerð á ytra byrði
glugganna frá júníbyrjun, útilýsing
verður öflugri en áður, ný raf-
magnstafla er komin í kirkjuna,
unnið hefur verið við jarðvegs-
framkvæmdir og málað, svo fátt eitt
sé nefnt. Nú er verið að fjarlægja
vinnupalla innan úr kirkjunni.
Þakkar stuðning
Sigurður Arnarson, sóknarprest-
ur Kópavogskirkju, segir að þessi
verkefni hafi verið kostnaðarsöm og
áætlar að kostnaður verði talsvert á
fjórða tug milljóna króna. „Við
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einkenni Gluggar Gerðar Helgadóttur setja mikinn svip á Kópavogskirkju, en þeir voru smíðaðir í Þýskalandi.
Endurbótum í Kópa-
vogskirkju að ljúka
Kostnaður á fjórða tug milljóna Gert við glugga Gerðar
Á heimavelli Sigurður Arnarson sóknarprestur og fólk úr sókninni skoðar
gluggana eftir lagfæringar sem staðið hafa frá því snemma í sumar.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við höfum ekki orðið vör við að
það sé neitt meira í gangi núna en
oftast er á þessum árstíma. Það eru
fyrst og fremst kvefpestir sem hrjá
landann en inflúensu höfum við ekki
orðið vör við,“
segir Jón Aðal-
steinn Jónsson,
fagstjóri lækn-
inga á Heilsu-
gæslunni í Mjódd
í Reykjavík.
Jón segir kvef-
pestir geta haft
misjafnar afleið-
ingar fyrir fólk.
Sumir geti fengið
lungnakvef og
ungviðið eyrnabólgu. En flestum
batni ef þeir fara vel með sig og halda
sig jafnvel heima, það geti líka komi í
veg fyrir smit. Jón segir að í hita-
breytingum sem fylgi vetrinum sé
mikilvægt að klæða sig eftir veðri.
Inflúensan ekki komin á flug
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir,
sérfræðingur í smitsjúkdómum
barna og staðgengill sóttvarna-
læknis hjá Embætti landlæknis,
tekur í svipaðan streng og Jón, það
sé fyrst og fremst venjulegt kvef
sem gangi um þessar mundir. Hún
segir að inflúensa og RSV-veirusýn-
ing séu ekki komnar á flug. Þær
byrji yfirleitt fyrir alvöru upp úr
miðjum desember á kaldasta tíma
ársins.
„Vegna fjölda kvefveira er erfitt að
mynda ónæmi fyrir kvefpest þrátt
fyrir að hafa fengið kvef oft áður.
Inflúensuveirur breytast hratt og
þess vegna eru útbúin bóluefni á
hverju ári sem líkjast eins mikið og
mögulegt er þeim veirum sem eru
líklegar til þess að fara af stað það ár-
ið,“ segir Kamilla.
Flestir jafna sig fljótlega á flensu,
segir Kamilla en alvarleg veikindi og
fylgikvillar séu algengari hjá fólki
eftir sextugt og hjá þeim sem eru
með lungnasjúkdóma eða bælt
ónæmiskerfi af einhverjum orsökum.
„Það eru ekki til nákvæmar tölur
um umgagnspestir og orsakir þeirra.
því aðeins lítill hluti þeirra, sem fá
kvef eða niðurgang, fer til læknis og
enn færri sýni eru send til rannsókn-
ar,“ segir Kamilla. Hún bætir við að
smitleiðir inflúensu og kvefpesta séu
svipaðar. Veirurnar berist með drop-
um eða úða frá nefi eða munni, til
dæmis þegar hnerrað er eða nefið
nuddað.
„Það er auðvelt að verða sér úti um
kvef á ferðalögum. Hurðarhúnar og
bakkarnir í öryggiseftirliti í flug-
stöðvum geta borið veirur í stuttan
tíma og sá næsti sem handfjatlar
hlutinn getur smitast,“ segir Kam-
illa. Best sé að snerta sem fæsta fleti
með berum höndum á ferðalagi og
nota til dæmis olnboga til þess að
opna baðherbergishurðir en fyrst og
síðast sé handþvottur besta vörnin.
Kvefpestir herja
á landsmenn
Mikilvægt að klæða sig eftir veðri
Kvef eða flensa?
Kvefeinkenni
✔ Stíflað nef
✔ Hnerri
✔ Særindi í hálsi
✔ Þurr hósti
✔ Vægur
höfuðverkur
✔ Vægir verkir í
vöðvum og liðum
✔ Þyngsli í
brjóstkassa
✔ Slappleiki
Flensueinkenni
✔ 39-40º hiti
í 3-4 daga
✔ Höfuðverkur
✔ Verkir í vöðvum
og liðum
✔ Slæmur
hósti
✔ Þreyta og
slappleiki
í 2-3 vikur
Kamilla Sigríð-
ur Jósefsdóttir