Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Nanso
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
SAMOON
15%
kynningar-
afsláttur
Stærri stærðir
42-52
frá
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Jólafötin
Túnikur
Kr. 7.900
Str. 40-56/58
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Jólatilboð
20% afsláttur
Herrahanskar með loðflís
Nú 5.500 kr.
Áður 6.900 kr.
Dömuhanskar með ull
Nú 5.500 kr.
Áður 6.900 kr.
Herrahanskar með smellu
Nú 5.500 kr.
Áður 6.900 kr.
Dömulúffur með ull
Nú 5.500 kr.
Áður 6.900 kr.
Sendum frítt um allt land
Atvinnustefnan sem bæjarstjórn
Akureyrar samþykkti vorið 2014 er
úrelt og mikilvægt að marka nýja.
Þetta kom fram í umræðum á síðasta
fundi bæjarstjórnar Akureyrar. Berg-
lind Ósk Guðmundsdóttir, fulltrúi D-
lista, tók málið upp. Hún reifaði nauð-
syn þess að styrkja samkeppnisstöðu
bæjarins á atvinnumarkaði og fjölga
íbúum. Urðu miklar umræður um mál-
ið þar sem bent var á ýmsar brotalam-
ir sem lagfæra yrði ef laða ætti fleira
fólk og fyrirtæki til bæjarins.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
létu bóka að þeir óskuðu eftir því að
farið yrði í vinnu við að gera sam-
keppnisgreiningu fyrir bæjarfélagið til
þess að nota til markaðssetningar á
bænum, bæði á atvinnu- og íbúamark-
aði.
Fram kom við umræðurnar að
fólksfjölgun á Akureyri hefði ekki orð-
ið í takt við þær bjartsýnu vonir sem
atvinnustefnan byggðist á. Á síðustu
fimm árum hefur íbúum Akureyrar
fjölgað um rétt innan við 5%. Á sama
tíma hefur íbúum landsins fjölgað um
8%. Á þessu ári nemur fjölgun íbúa á
Akureyri 0,5%. Það þýðir að rétt innan
við 100 manns hafa flust til bæjarins.
Berglind Ósk sagði við umræðurnar
að skortur á leikskólaplássum í bæn-
um og hálaunastörfum væru meðal
þátta sem hefðu letjandi áhrif á fólks-
flutninga til Akureyrar. Bæjarráð
Akureyrar á eftir að taka afstöðu til
þess hvort ráðist verður í þá sam-
keppnisgreiningu fyrir bæjarfélagið
sem sjálfstæðismenn stungu upp á.
Hafa áhyggjur af sam-
keppnisstöðu Akureyrar
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Akureyri Þrátt fyrir að íbúafjölgun þyki ekki nægilega ör á Akureyri er enn
verið að reisa þar íbúðarhús eins og þetta myndarlega fjölbýli.
Minni fólksfjölgun í bænum en að meðaltali á landinu
Allt um sjávarútveg
Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir
af matareitrun af völdum nóróveiru
hjá hópum einstaklinga í tengslum
við neyslu sjávarafurða á Skelfisk-
markaðnum í Reykjavík. Staðfest
hefur verið að
orsök veikind-
anna má rekja
til mengaðra
ostra, að því er
fram kemur í
frétt frá Heil-
brigðiseftirliti
Reykjavíkur, Matvælastofnun og
sóttvarnalækni.
Alls veiktust 44 einstaklingar eftir
að hafa snætt ostrur á veitinga-
staðnum dagana 8. nóvember til og
með 13. nóvember.
Einnig er vitað um fjóra ein-
staklinga sem veiktust og áttu það
sameiginlegt að hafa borðað ostrur
á staðnum dagana 29. október til 4.
nóvember. Um er að ræða ostrur
innfluttar frá Norður-Spáni sem
ungviði og áfram ræktaðar í búrum
til manneldis í Skjálfandaflóa af
fyrirtækinu Víkurskel á Húsavík.
Samkvæmt upplýsingum Matvæla-
stofnunar er þetta í fyrsta sinn sem
nóróveira er staðfest í ostrum hér á
landi.
Við skoðun Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur kom í ljós að virkt mót-
tökueftirlit og matvælaöryggiskerfi
er í gildi á Skelfiskmarkaðnum.
Nóróveira greindist í
ostrum frá Víkurskel