Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
búningur í keppnisbílana sjálfa,
skrúfa þá í sundur, gera við og rétta
ef eitthvað er úr sér gengið. Á vorin
fer í gang undirbúningur fyrir
keppnirnar sjálfar, það þarf að vinna
mörg verk í tengslum við hverja
keppni, fá leyfi fyrir þeim hjá yfir-
völdum, útbúa tímaáætlun, leiðarlýs-
ingu, raða niður rásröð keppenda og
svo framvegis. Keppendur undirbúa
sig síðan sérstaklega fyrir hverja
keppni, skoða keppnisleiðirnar og
skrifa niður leiðanóturnar sem ekið
er eftir. Margir nota orðið tæknina til
að hjálpa sér í undirbúningnum,
horfa á „incar“ upptökur af leiðinni
og stúdera hverja einustu beygju og
brekku. Svo þarf að skipuleggja ferð-
ir á staðinn, viðgerðarlið, nesti og
jafnvel gistingu fyrir allan hópinn.“
Sá myndarlegan ökumann
Í ferðinni á Snæfellsnes haustið
2009 var það ekki bara sportið sem
heillaði heldur segist Guðný hafa
rekið augun í bráðmyndarlegan að-
stoðarökumann, Aðalstein Símonar-
son úr Borgarnesi.
„Þetta var næstum því ást við
fyrstu sýn því við fórum að spjalla
strax þegar við hittumst í fyrsta sinn
þegar ekið var um Jökulhálsinn. Það
samtal vatt upp á sig og á einni sér-
leiðinni var ég næstum búin að
klúðra ræsingunni því við vorum að
tala svo mikið. Það var hrikalega
fyndið, ég náði að bjarga ræsingunni
en þorði ekki að segja frá þessu lengi
á eftir. Til að gera langa sögu stutta
urðu samtölin mun fleiri og við Aðal-
steinn áttum sjö ára brúðkaups-
afmæli núna í október.“
Guðný á ekki rallýbíl en þau hjónin
áttu Toyota Corolla Twin Cam, ár-
gerð 1984, sem þau hafa keppt á.
„Sá bíll var gamall og lúinn, skap-
aði góðar minningar en krafðist mik-
illar umhyggju. Við seldum hann því
til góðs manns sem hafði bæði tíma
og fjármagn til að hlúa vel að
honum.“
Guðný álítur mótorsport vera jað-
arsport á Íslandi sem verulega eigi
undir högg að sækja. „Af einhverri
ástæðu er sú mýta í gangi að þetta sé
stórhættulegt bæði fólki og náttúru,
en sannleikurinn er hins vegar sá að
keppnisbílar eru að mínu mati örugg-
ari heldur en fjölskyldubíllinn úti í al-
mennri umferð.“
Í flestum greinum akstursíþrótta
er lítill hópur fólks, oftast sama fólkið
ár eftir ár. Það þekkjast allir, teng-
ingar eru sterkar á milli hópa og fólk
hjálpast að ef eitthvað kemur upp á.
„Auðvitað er keppnisskap í mönnum
og upp geta komið ágreiningsmál en
þá erum við með Akstursíþrótta-
samband Íslands (AKIS) sem ætlað
er að halda utan um regluverkið og
leysa úr erfiðari málum,“ segir
Guðný.
Erlent samstarf
Akstursíþróttasamband Ísland er
hluti af FIA (Federation Inter-
nationale de L’Automobile) og Norð-
ur-Evrópusvæði alþjóðaaksturs-
íþróttasambandsins (FIA North
European Zone). AKIS er virkt þar,
m.a. hvað varðar nefndarþátttöku
Guðnýjar í Women in Motorsport
Commission á vegum FIA en árið
2009 setti FIA á laggirnar verkefni
sem ber heitið „Women in Motor-
sport“ en markmið þess er að efla
þátttöku kvenna í akstursíþróttum
um allan heim. Skipuð var nefnd til
að sinna þessu verkefni (WIM Com-
mission) en í henni sitja þrjár konur
víðs vegar að úr heiminum. Hluti
þeirra er kosinn af stjórn FIA en síð-
an eru fulltrúar tengdir sportinu, til
dæmis ein fyrir hönd keppenda, önn-
ur fyrir hönd framleiðenda, þriðja
fyrir hönd starfsfólks mótorsports og
svo framvegis. Guðný var tilnefnd
fyrir ári síðan fyrir Íslands hönd.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við eig-
um fulltrúa í framkvæmdanefnd FIA
og er ég afar stolt af kjörinu. Nefndin
vinnur að ýmsum verkefnum, við
reynum að vekja athygli á þeim kon-
um sem nú þegar eru að gera góða
hluti en einnig kynna mótorsport fyr-
ir stúlkum í von um að vekja áhuga
þeirra. AKIS tekur þátt í ýmsu sam-
starfi, til dæmis er „FIA NEZ tor-
færan“ hluti af slíku samstarfi. Auk
þess hafa Íslendingar keppt í ýmsum
greinum úti, svo semrallýi, rallýcross
og drifti,“ segir Guðný að lokum.
Alls konar fólk keppir í rallýi
Guðný Jóna Guðmarsdóttir fékk mikinn áhuga á akstursíþróttum Ást við fyrstu sýn í rallýkeppni
Á sæti í alþjóðlegri nefnd sem ætlað er að efla hlut kvenna í íþróttinni Segir alla geta ekið bíl
Rallýhjón Guðný Jóna og Aðalsteinn Símonarson tóku þátt í Suðurnesja-
rallinu fyrir nokkrum árum, hann við stýrið og hún til aðstoðar.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Rallýkona Guðný Jóna Guðmarsdóttir er komin á kaf í akstursíþróttirnar
og á sæti í alþjóðlegri nefnd sem ætlað er að auka hlut kvenna í sportinu.
VIÐTAL
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Guðný Jóna Guðmarsdóttir man
fyrst eftir rallýbílum þegar hún var
krakki að alast upp í Gnúpverja-
hreppi. Þá var keppt upp við Heklu
en sérleiðin var í gegnum sveitina.
Mörgum árum seinna, árið 2009,
bauðst Guðnýju að vera tímavörður í
Skagafjarðarrallinu, en segist ekki
alveg hafa fallið fyrir sportinu þá.
Sama ár um haustið fór hún ásamt
sex öðrum galvöskum stelpum úr
Bílaklúbbi Skagafjarðar að aðstoða
við keppni á Snæfellsnesi. Þá kom að
því að Guðný féll kylliflöt fyrir íþrótt-
inni, enda segist hún vera mikill adr-
enalínfíkill og líkar vel hraðinn og
spenna sem fylgir henni.
Undanfarin ár hefur hún verið í
námi, lauk BA í sálfræði frá HA, dip-
lomu í málefnum flóttafólks s.l. vor
frá HÍ og er núna í meistaranámi í
sálfræðilegum áföllum og ofbeldi.
Keppni á jafningjagrundvelli
„Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá
er rallý að aka bíl inni á sérleið, vegi
sem er lokað fyrir annarri umferð á
meðan, á sem stystum tíma. Sérleið
er leiðin sem keppt er á en leiðin milli
sérleiða er kölluð ferjuleið þar sem
almennar umferðarreglur gilda,
meðan á sérleið er í raun allt leyfi-
legt,“ segir Guðný. „Alls konar fólk
keppir í rallýi, konur og karlar á öll-
um aldri. Ökumaður þarf að hafa gilt
bílpróf en aðstoðarökumaður þarf að
hafa náð 15 ára aldri. Það skemmti-
lega við rallý er að þar keppir fólk á
jafningjagrundvelli óháð kyni eða
aldri, jafnvel blandað í liði. Ég hef
keppt sem aðstoðarökumaður nokkr-
um sinnum, það á vel við mig. Hins
vegar er ég oftar í starfsmannahópn-
um, er í dag einn af reyndari tíma-
vörðum landsins auk þess að hafa
skapað mér góðan sess sem rallý-
ljósmyndari.“ Hún segir íþróttina
vera tímafreka en það sé þó misjafnt
eftir árstíðum.
„Yfir veturinn fer mestur undir-
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í ný gleraugu
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum