Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónu-
verndar, segir gríðarlegt álag vera á
stofnuninni í kjölfar setningar nýju
persónuverndarlaganna. Um 220 mál
eru nú í sameiginlegri vinnslu hjá Evr-
ópska persónuverndarráðinu og þarf
Persónuvernd að
fara yfir hvert ein-
asta mál og at-
huga hvort það sé
snertiflötur við Ís-
land. Þá hefur
símtölum hjá
stofnuninni fjölgað
um 50% til 100%
suma mánuði. Þá
hefur gengið erf-
iðlega að halda ut-
an um nýskrán-
ingu mála fjölda þeirra vegna auk
manneklu. Í Evrópu hafa verið skráðir
27 þúsund öryggisbrestir frá setningu
nýju persónuverndarlaganna hjá
Evrópusambandinu. Kvartanir til per-
sónuverndarstofnananna innan svæð-
isins eru um 57 þúsund talsins.
Ráða fjóra nýja lögfræðinga
„Við vorum með sjö til átta stöðu-
gildi í upphafi vors. Í sumar náðum við
því að verða 11 og höfum verið 11
núna frá því í sumar. Við erum að
ganga núna frá fimm nýjum ráðn-
ingum, þar af eru fjórir nýir lögfræð-
ingar að bætast við og við náðum að
bæta við tveimur tæknimönnum í síð-
ustu ráðningu,“ segir Helga spurð
hvort þurfi að fjölga starfsmönnum.
„Álagið hefur verið á því stigi að það
er ekki hægt að bjóða fólki upp á það
mikið lengur. Umfang þeirra verkefna
sem Persónuvernd hefur fengið í
fangið við þessa löggjöf hefur reynst
langt umfram það sem gera mátti ráð
fyrir.“
Í fyrra voru 1.911 mál hjá Persónu-
vernd og vinnur stofnunin nú að því að
skrá öll nýju málin hjá sér fyrir ára-
mót. Helga segir ljóst að þau mál fari
langt yfir 2.000 talsins.
Persónuvernd lauk í vikunni hring-
ferð um landið þar sem nýju persónu-
verndarlögin voru kynnt fólki, fyrir-
tækjum, sveitarfélögum og opinberum
aðilum. Heimsótti stofnunin Akureyri,
Ísafjörð, Vestmannaeyjar, Höfn, Sel-
foss, Reykjanesbæ, Borgarnes og
endaði með fund í Reykjavík nú sl.
mánudag. „Þetta hefur gengið gríðar-
lega vel. Aðsókn hefur verið mismun-
andi en það mættu t.d. hátt í 200
manns á Selfossi,“ segir Helga.
„Á mínum 20 ára ferli hef ég aldrei
lent í öðru eins verkefni,“ segir hún en
verkefnið hófst árið 2016. Eftir opinn
kynningarfund í lok 2016 opnuðust
flóðgáttirnar þar sem þverskurður af
íslenskum fyrirtækjum óskaði eftir
einstaklingsbundinni ráðgjöf og kynn-
ingu. Upplýsingagjöf og vitundavakn-
ing Persónuverndar um nýju persónu-
verndarlöggjöfina var hagað með
þeim hætti að vitneskjan bærist sem
flestum í hvert sinn.
Má þar nefna að öllum dómstólum
landsins var lokað í einn dag í maí á
málþingi Dómstólasýslunnar sem var
helgað persónuverndarmálefnum.
Starfsmenn Persónuverndar sáu þar
um fræðslu fyrir starfsfólk og dómara.
Skólar og heilbrigðisstofnanir
Spurð um eftirlitshlutverk Per-
sónuverndar á næstu árum segir
Helga þau málþing, sem stofnunin
hefur haldið, vera vísbendingu um
hvar áherslur Persónuverndar liggja.
Hún segir að vinnsla persónuupplýs-
inga í heilbrigðisgeiranum og í skóla-
samfélaginu sé meðal forgangsmála
hjá Persónuvernd.
„Þegar maður er með takmarkaðan
mannskap til að bregðast við þarf að
sýna ákveðna skynsemi í forgangs-
röðun. Það eru ýmsir aðrir geirar sem
við munum fylgjast með og ákveða
hvar við munum bera niður.“
Helga segir stofnunina einnig glíma
við ákveðinn fortíðarvanda þar sem
mál séu farin að safnast upp hjá þeim
sem þarfnast úrlausnar, stofnunin hafi
ekki heimild til að ýta neinum málum
frá sér.
„Við þurfum að koma auga á alvar-
legu málin sem liggja hjá okkur og
bregðast við þeim en á sama tíma að
vera leiðandi stjórnvald á okkar sviði.“
Tvöfalt álag á Persónuvernd
Mikil fjölgun mála eftir setningu nýrra persónuverndarlaga Skrásetning
mála gengur erfiðlega vegna manneklu 27 þúsund öryggisbrestir innan ESB
AFP
Persónuvernd Stofnunin hefur m.a. sett í forgang að tryggja að persónu-
upplýsingum nemenda sé ekki deilt milli skólastarfsfólks á Facebook.
Helga
Þórisdóttir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á þriðja tug starfsmanna frá Skag-
anum 3X, Frost og Rafeyri eru nú
við störf á Shikotan, sem er ein
Kúrileyja austast í Rússlandi. Þar er
unnið að uppsetningu búnaðar í full-
komið frystihús og er ráðgert að
hann verði gangsettur í maí næsta
vor. Mánaðarhlé verður gert á
vinnunni í Shikotan um hátíðar og
halda starfsmennirnir heim á leið
viku til tíu daga af desember.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans 3X, segir að verkefnið
á Shikotan gangi samkvæmt áætlun.
Um þrjá mánuði tekur að flytja bún-
aðinn frá Íslandi til Kúrileyja, en
uppsetning hefur gengið vel. Jöfnum
höndum hefur verið unnið að smíð-
um á búnaði og er reiknað með að
þeirri vinnu ljúki fyrir áramót og öll
framleiðsla verði þá tilbúin til flutn-
ings. Einkum verða smásíld og
alaska-ufsi fryst í verksmiðjunni í
Shikotan, sem er byggð fyrir dóttur-
fyrirtæki rússneska útgerðarfélags-
ins Gidrostroy.
Norður til Petropavlosk
Ráðgert er að búnaður, tæki og tól
starfsmanna verði flutt næsta vor
norður til Petropavlosk á Kamts-
jatka-skaganum. Þar er verið að
taka grunn að verksmiðju fyrir nýtt
fiskiðjuver Lenin-samvinnufélagsins
og sjá fyrrnefnd íslensk fyrirtæki
einnig um búnað og uppsetningu á
búnaði þar.
Sú verksmiðja verður búin lausn-
um til að stærðarflokka, vinna og
frysta tegundir eins og alaska-ufsa,
nokkrar tegundir villts lax, kyrra-
hafsþorsk, uppsjávarfisk og smokk-
fisk.
Shikotan Hátt er til lofts og vítt til veggja í nýja fiskiðjuverinu.
Mánaðarhlé
á Kúrileyjum
Um þrjá mánuði tekur að flytja tæki
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
MOZART REQUIEM
Í LANGHOLTSKIRKJU
ÓPERUKÓRINN Í REYKJAVÍK
ÁSAMT SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
OG EINSÖNGVURUM
STJÓRNANDI: GARÐAR CORTES
Miðasala: midi.is / sími 552 7366 / í Langholtskirkju 1 klst. fyrir tónleikana
TÓNLEIKARNIR ERU HELGAÐIR MINNINGU MOZARTS OG
ÍSLENSKRA TÓNLISTARMANNA SEM LÉTUST Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA:
Kristinn Daníelsson / Júlíus Sigurðsson / Þorsteinn Kragh
Ingibjörg Ólafsdóttir / Björgúlfur Egilsson / Sveinn Rúnar Björnsson
Guðmundur Haraldsson / Esther Garðarsdóttir / Gauja Guðrún Magnúsdóttir
Tómas Magnús Tómasson / Þórir Magnússon / Jóhann Jóhannsson
Heimir Klemenzson / Björn Stefán Guðmundsson / Már Magnússon
Grétar Magnús Grétarsson / Bjarni Marteinsson / Sigríður Einarsdóttir
Bjarni Sigurðsson / Birgir Einarsson / Helga Guðrún Helgadóttir
Njáll Þórðarson / Sigríður Þórunn Fransdóttir / Ragnar Ásgeir Óskarsson
Hafliði Jósteinsson / Engilráð Óskarsdóttir / Jón Sigurðsson
Arnfinnur Friðriksson / Louise Kristín Theodórsdóttir
Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir / Brynjólfur Sigurður Árnason
Árni Ísleifsson / Guðmundur H. Norðdahl / Brynja Tryggvadóttir
Hallveig
Rúnarsdóttir
Viðar
Gunnarsson
Garðar Thór
Cortes
Sesselja
Kristjánsdóttir
Garðar
Cortes
Þriðjudaginn 4. des. 2018 kl. 00.30
– húsið er opið frá 23.50 –