Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Vogir sem sýna verð
á vörum eftir þyngd
Löggiltar fyrir Ísland og
tilbúnar til notkunar
ELTAK sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
VERSLUNAR-
VOGIR
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Unnið er að lengingu tveggja báta
Skinneyjar-Þinganess í Nauta-
skipasmíðastöðinni í Gdynia í Pól-
landi. Þá er verið að smíða tvö 29
metra skip fyrir fyrirtækið í Víet-
nam og eru þau væntanleg í lok
næsta árs. Smíði skipanna er hluti af
raðsmíði sjö skipa fyrir íslensk fyrir-
tæki hjá norska Vard-skipasmíða-
fyrirtækinu.
Samstarf við Micro
Skinney SF og Þórir SF verða
lengd úr 29 metrum í 38 metra í Pól-
landi og eru væntanleg til landsins í
febrúar. Skipin eru tíu ára gömul,
smíðuð á Taívan 2008.
Ásgeir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri veiða hjá Skinney-
Þinganesi á Höfn í Hornafirði, segir
að með lengingu skipanna í Póllandi
fáist mun stærra vinnsludekk og
gæði vinnslunnar aukist til muna.
Horft er til þess að bæta kæli- og
blæðitíma bolfisks og stórbæta alla
aflameðferð á humri. Aðstaða til
netaveiða verður betri um borð í
skipunum eftir lengingu, en neta-
dekkið flyst upp um eitt dekk og
verður á togdekki fyrir ofan vinnslu-
dekkið. Einum klefa verður bætt við
fyrir skipverja og einnig setustofu
þannig að rýmra verður um áhöfn.
Vinnslulína í skipin verður hönnuð
og smíðuð af Micro í Garðabæ í sam-
starfi við starfsfólk Skinneyjar-
Þinganess. Vinnsludekkið verður
sett upp í Hafnarfirði og að því verki
loknu er reiknað með að skipin fari á
humarveiðar um miðjan mars.
Breiðari og hærri skip
Nýliðun hefur verið léleg í humar-
stofninum síðustu ár og afli dregist
saman. Ásgeir segir að sú staða hafi
lítillega verið rædd við sérfræðinga
Hafrannsóknastofnunar og í byrjun
janúar sé fyrirhugað að fara yfir
málin með þeim. Í kjölfarið er von á
tillögum stofnunarinnar um nýtingu
humarstofnsins á næstu vertíð.
Skinney-Þinganes er með tvö skip
í smíðum hjá Vard, en auk þeirra er
einnig verið að smíða skrokka
tveggja skipa fyrir Gjögur í Víet-
nam. Í Noregi er verið að smíða tvö
skip eftir sömu teikningu fyrir Berg-
Hugin ehf. í Vestmannaeyjum, sem
er dótturfyrirtæki Síldarvinnsl-
unnar hf., og eitt fyrir ÚA.
Þegar greint var frá samningum
um smíði þessara sjö systurskipa
fyrir ári kom fram að hvert skip
kostar um 100 milljónir norskra
króna eða sem nemur um 1.440
milljónum íslenskra króna. Skipin
eru jafn löng og skipin sem nú er
verið að lengja, en breiðari og
hærri. Skipin á öll að afhenda á
næsta ári, en nokkurra vikna
seinkun er fyrirsjáanleg á smíði
þeirra.
Tvö skip í lengingu
og tvö í smíðum
Skinney og Þórir lengd í Gdynia Aukin gæði vinnslu
Í heimahöfn Þórir SF 77 kemur nýr til Hafnar í Hornafirði fyrir 10 árum.
Breyting Þannig verður Þórir útlits eftir breytingarnar í Póllandi.
Ljósmyndir/Skinney-Þinganes
Þinganes Systurnar sjö í raðsmíðaverkefninu verða afhentar á næsta ári.
Skipasmíðastöðin í Víetnam Vinnupallar umlykja skrokk nýja skipsins sem á að vera tilbúið í lok næsta árs.
Ísfisktogarinn Helga María AK lét
úr höfn í Reykjavík í fyrradag eftir
að hafa komið inn með 165 tonna
afla úr veiðiferð á Vestfjarðamið.
Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á
Helgu Maríu, minnist þess ekki í
samtali við heimasíðu HB Granda
að hafa fengið aðra eins veðurblíðu
á Vestfjarðamiðum á þessum árs-
tíma.
Þar sem spáð er brælu á Vest-
fjarðamiðum næstu daga var stefn-
an á þriðjudag tekin á miðin út af
Suðvesturlandi.
Einstök veðurblíða
miðað við árstíma
Bjarni Ólafsson AK kom til Nes-
kaupstaðar í gær með 1.600 tonn en
veiðiferðin hjá honum tók eina tíu
daga. Runólfur Runólfsson skip-
stjóri segir að til að byrja með hafi
lítið fengist en síðan hafi ræst úr.
„Aflinn fékkst í átta holum og það
var lengi dregið, einkum til að byrja
með. Lengsta holið var 24 tímar og
það er persónulegt met hjá mér. Ég
hef aldrei dregið svo lengi áður.
Þrjá síðustu dagana fékkst hins veg-
ar þokkalegur afli en fiskurinn gef-
ur sig bara seinni part dags og á
nóttunni. Allan tímann vorum við að
veiða norðaustur af Færeyjum,“
segir Runólfur í frétt á heimasíðu
Síldarvinnslunnar.
Í gær voru Beitir NK og Börkur
NK að veiðum 60-80 mílur norð-
austur af Færeyjum.
Aðeins að lifna yfir
kolmunnaveiðum