Morgunblaðið - 29.11.2018, Side 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Hinn árlegi jólabasar Kattavina-
félags Íslands verður haldinn
laugardaginn 1. desember kl. 11-16
í Kattholti, Stangarhyl 2 í Reykja-
vík.
Á boðstólum verða ýmsir munir
sem tengjast jólunum, s.s. jólakort,
merkispjöld, jólapappír, jólaskraut,
handverk og handunnin kerti. Til
sölu verður dagatal ársins 2019,
könnur og innkaupapokar merktir
Kattholti. Einnig kisutengdur varn-
ingur eins og kattastyttur, skart-
gripir og basardót.
„Eins og endranær verðum við
með girnilegar smákökur og annað
bakkelsi. Yndislegar kisur verða
sýndar sem allar eiga það sameig-
inlegt að þrá að eignast ný og góð
heimili,“ segir í fréttatilkynningu
frá Kattholti.
Allur ágóði fer til styrktar óskila-
kisunum í Kattholti.
Jólabasar í
Kattholti
1. desember
Ágóði til styrktar
óskilakisunum
Ljósmynd/Kattholt
Kattholt Jasmín er hótelstýra á
Hótel Kattholti um þessar mundir.
Ljósin á Hamborgartrénu verða
tendruð kl. 17 laugardaginn 1.
desember nk. en tréð stendur á
Miðbakka Reykjavíkurhafnar, fyrir
framan Hafnarhúsið. Allir eru vel-
komnir til athafnarinnar og í mót-
töku að henni lokinni.
Þetta er árlegur siður í upphafi
aðventunnar, en allt frá árinu 1965
hafa góðir vinir í Hamborg sent
jólatré til Íslands.
Við athöfnina munu fulltrúar frá
Hamborg flytja stutt ávarp um leið
og þeir afhenda gjöfina. Kristín
Soffía Jónsdóttir, formaður stjórn-
ar Faxaflóahafna sf., þakkar fyrir
jólatréð fyrir hönd hafnarinnar.
Herbert Beck, sendiherra Þýska-
lands á Íslandi, ávarpar gesti ásamt
dr. Sverri Schopka, fulltrúa Þýsk-
íslenska félagsins í Þýskalandi. Að
athöfn lokinni er gestum boðið í
heitt súkkulaði í Hafnarhúsinu.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur og
jólasveinar kíkja í heimsókn.
Jólatréð er tileinkað íslenskum
togarasjómönnum sem sigldu til
Hamborgar með fisk eftir seinni
heimsstyrjöldina. Sjómennirnir
gáfu svöngu og ráðlausu fólki á
hafnarsvæðinu fiskisúpu á meðan
verið var að landa úr togurunum.
Á hverju ári síðan 1965 hefur
Eimskipafélag Íslands flutt tréð
endurgjaldslaust frá Þýskalandi til
Reykjavíkur. Íslandsvinafélögin í
Hamborg og Köln hafa styrkt þetta
framtak árlega. Faxaflóahafnir og
Þýsk-íslenska viðskiptaráðið hafa
staðið fyrir móttöku trésins og
skipulagt uppsetningu þess á
hafnarbakkanum. sisi@mbl.is
Ljósin tendruð á Miðbakka
Morgunblaðið/ÞÖK
Miðbakki Hátíðleg stund þegar ljósin eru tendruð á jólatrénu frá Hamborg.
Íslandsvinir hafa sent hingað jólatré í meira en hálfa öld
Gerð hefur verið
krafa fyrir Hér-
aðsdómi Suður-
lands um farbann
yfir litháískum
karlmanni á
fimmtugsaldri
eftir að lög-
reglumenn hand-
tóku hann á
sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu á
þriðjudag. Þar vann hann að ræktun
kannabisplantna í töluverðu magni.
Um er að ræða á fjórða tug fullvax-
inna plantna og töluvert magn af
græðlingum.
„Maðurinn hefur kannast við að
eiga ræktunina sjálfur. Hún er vel
búin og unnt að fylgjast með henni
og húsinu þar sem hún fór fram með
netmyndavélum úr fjarlægð,“ segir í
tilkynningu frá Lögreglunni á
Suðurlandi.
Dómari tók sér frest til dagsins í
dag til að úrskurða um kröfu lög-
reglu og verður maðurinn í haldi
fram að uppkvaðningu úrskurðarins.
Maðurinn er búsettur í Litháen.
Lögreglan
stöðvaði rækt-
un á kannabis Ómissandi í jólabaksturinn!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
10
9
9