Morgunblaðið - 29.11.2018, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sumarið 2003 teiknuðu GP arkitekt-
ar tillögu að þremur íbúðarturnum
við Ánanaust í Reykjavík, nánar til-
tekið á svonefndum Héðinsreit.
Húsin skyldu hvert um sig vera um
400 fermetrar að
grunnfleti og með
inndregna þak-
íbúð á 14. hæð.
Skyldi húsunum
vera lyft um 5
metra frá götu-
hæð við Ána-
naust. Gert var
ráð fyrir bifreiða-
stæðum á tveim-
ur hæðum.
Slík stórhýsi
hefðu sett svip sinn á hverfið.
Í hverjum turni hefðu verið 54
íbúðir og alls 162 á reitnum. Íbúð-
irnar hefðu verið í fjórum stærðar-
flokkum; 60, 80, 95 og 110 fermetrar.
Miðað var við 243 bílastæði fyrir
íbúðir, eða 1,5 bílastæði á íbúð. Þá
skyldu vera 28 stæði fyrir 1.000 fer-
metra af atvinnuhúsnæði sem yrði
meðfram Ánanaustum. Byggingar-
magn íbúða var 16.500 fermetrar.
Guðni Pálsson, arkitekt og eigandi
GP arkitekta, segir tillöguna ekki
hafa hlotið brautargengi hjá skipu-
lagsyfirvöldum í Reykjavíkurborg.
„Það var sú stefna að húsin mættu
ekki vera hærri en sjö hæðir,“ segir
Guðni. Verkefnið tók því nýja stefnu.
Íbúðir fyrir eldri borgara
Guðni og samstarfsmenn hans
teiknuðu því næst 120 íbúðir fyrir
eldri borgara, 64 hjúkrunarrými og
þjónustukringlu. Þar átti að bjóða
heilbrigðis- og félagsþjónustu með
áherslu á þjónustu við íbúa húsanna,
ásamt því að þjóna íbúum í aðliggj-
andi hverfum. Íbúðirnar skyldu vera
60 til 120 fermetrar og vera allar
hannaðar með þarfir fatlaðra í huga.
„Þjónustukringlan er þannig upp-
byggð að fyrir utan fjölþætta
hjúkrunarþjónustu verður m.a. hár-
greiðslustofa, lítið kaffihús og mat-
salur og tengt útisvæði, verslun, set-
rými og kapella. Hugmyndin er að
brjóta niður stofnanabraginn og
hafa þetta eins opið og mögulegt er
fyrir íbúa og utanaðkomandi.
Íbúðarbyggingar eru hugsaðar
sem turnar með fjórum íbúðum á
hæð, þar sem auðveldara er fyrir
eldra fólk að ferðast lóðrétt en lá-
rétt,“ sagði í lýsingu GP arkitekta á
fyrirhugaðri 18.000 fermetra byggð.
Yrðu eins og heill hringur
Til að gera langa sögu stutta var
uppbyggingin samþykkt af skipu-
lagsyfirvöldum. Verkefnið hafði þó
tekið einhverjum breytingum. Hinn
1. febrúar 2008 sagði Morgunblaðið
frá fyrirhugaðri uppbyggingu:
„Guðni Pálsson, arkitekt hjá GP
arkitektum, teiknaði húsið sem á að
rísa á Héðinsreitnum og að hans
sögn verða þar 176 íbúðir. „Þetta er
smáhús,“ segir hann, „svona 32.000
fermetrar. Þarna verða íbúðir fyrir
aldraða, með ákveðinni þjónustu.“
Stærðir íbúðanna verða á bilinu 70-
140 fermetrar. Guðni lýsir húsinu
svo að það nái að Héðinshúsinu,
Seljavegi, fari svo niður Vesturgöt-
una, eftir Ánanaustum og fyrir horn-
ið á Mýrargötu. „Þetta verður svona
heill hringur og svo verður inn-
garður í miðju húsinu,“ segir hann,“
sagði í frétt Morgunblaðsins.
Hinn 8. ágúst 2008 var gefið út
graftrarleyfi á reitnum. Tveimur
mánuðum síðar brast á bankahrun
og verkefnið var sett á ís. Síðar var
horfið frá þessum áformum.
Við tóku áralangar deilur um
eignarhald á lóðunum á Héðinsreit
sem útkljáðar voru fyrir dómstólum.
Framkvæmdir eru hafnar við hótel á
austari hluta reitsins og á næsta ári
er áformað að hefja uppbyggingu
íbúða á þeim hluta reitsins sem snýr
að Ánanaustum (sjá næstu síðu).
Fyrstu háhýsin í miðborginni
Guðni Pálsson teiknaði á sínum
tíma hvítu háhýsin við Skúlagötuna,
vestan við núverandi Skuggahverfi.
Hvítu húsin risu á svonefndri Völ-
undarlóð við Skúlagötu og hófust
framkvæmdir 1988. Þeim lauk svo
um miðjan tíunda áratuginn.
Ásamt hvítu húsunum voru
byggðir turnar fyrir eldri borgara
austar á Skúlagötunni. Voru þetta
fyrstu háhýsin í miðborginni.
Guðni kveðst hafa fylgt ströngu
deiliskipulagi við hönnun turnanna á
Völundarlóðinni. Samkvæmt deili-
skipulaginu skyldu vera háhýsi við
alla strandlengjuna. „Það var allt
formað fyrir fram, nákvæmlega hver
og einn turn. Meira að segja áttu
allir turnar að vera einhalla. Við
gerðum þetta þakform og vorum
kærð fyrir það,“ segir Guðni, en
hvítu húsin hafa burstalaga þak sem
setur svip sinn á Skúlagötuna.
Vildu nýta lóðina sem best
Hann kveðst ekki hafa horft til
eigin hönnunar á Völundarlóðinni
við hönnun turna við Ánanaust.
„Í fyrsta lagi var hugmyndin að fá
sem besta nýtingu. Í öðru lagi að
byggja húsin upp til að fá útsýni, í
stað þess að teikna lokaða rand-
byggð. Með því myndu íbúarnir fá
útsýni út á sundin, “ segir Guðni.
Þess má geta að uppbyggingu há-
hýsa við Skúlagötu er ekki lokið.
Framkvæmdir eru hafnar við 17
hæða hótelturn og áform eru um
átta hæða íbúðarturn að auki.
Tíðarandinn mótaði Héðinsreit
Arkitektar hafa teiknað minnst fjórar útfærslur af íbúðarbyggð á reitnum á síðustu 15 árum
Fyrsta tillagan var með þremur 14 hæða íbúðarturnum Síðan teiknað hús fyrir eldri borgara
2003 2008
Teikning/GP arkitektar
Upphafið Fyrst voru teiknaðir stílhreinir 14 hæða íbúðaturnar með 2 hæða bílageymsla.
Teikning/GP arkitektar
Næsta skref Síðan teiknuðu sömu arkitektar fjölbýlishús sem voru ætluð 55 ára og eldri.
Teikning/GP arkitektar
Norður eftir Vesturgötu Hér má sjá fjölbýlishúsið ætlað 55 ára og eldri frá öðru sjónarhorni. Hér sést í inngarð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Héðinsreiturinn Um er að ræða eitt stærsta óbyggða svæðið í næsta nágrenni miðborgar Reykjavíkur.
Teikning/GP arkitektar
Útsýni Ein af íbúðunum sem voru fyrir 55 ára og eldri.
Teikning/GP arkitektar
Við sjávarsíðuna Þakíbúðir voru teiknaðar á húsin.Guðni Pálsson
Uppbygging í miðborginni