Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hvatt Evrópuríki til að gera meira til stuðnings Úkraínu vegna spennu í samskiptum landsins við Rússland eftir að Rússar hertóku tvö úkra- ínsk varðskip og dráttarbát í Kertsjsundi á sunnudaginn var. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sagði að framfylgja þyrfti betur refsiaðgerðum sem þegar hefur verið gripið til gegn stjórnvöldum í Rússlandi. Áhrifa- miklir stjórnmálamenn í Þýska- landi, Austurríki, Póllandi og Eist- landi hafa sagt að til greina komi að grípa til frekari refsiaðgerða gegn Rússum vegna málsins. Hætt við fund? Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við The Washington Post að hann kynni að hætta við fund með Vladimír Pútín Rúss- landsforseta í tengslum við leiðtoga- fund G20-ríkjanna í Buenos Aires í Argentínu á föstudaginn og laug- ardaginn kemur. Gert hafði verið ráð fyrir því að Trump og Pútín not- uðu tækifærið til að ræða öryggis- mál, afvopnunarmál, deilur Rússa og Úkraínumanna og átökin í Mið- Austurlöndum. „Mér líkar ekki þessi yfirgangur,“ sagði Trump um aðgerðir Rússa í Kertsjsundi milli Rússlands og Krímskaga sem var innlimaður í landið árið 2014. Skip þurfa að fara um sundið til að komast til borga í austanverðri Úkraínu, m.a. Maríu- pol. Samkvæmt samningi ríkjanna frá árinu 2003 geta þau bæði haldið uppi eftirliti á Azovshafi. Mike Pom- peo, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, og ráðamenn í fleiri vestræn- um ríkjum hafa sagt að aðgerðir Rússa til að hindra aðgang Úkra- ínumanna að Azovshafi séu brot á alþjóðalögum. Sakaðir um ögrun Rússnesk varðskip skutu á úkra- ínsku skipin þrjú áður en þau voru hertekin. Tuttugu og fjórir Úkra- ínumenn voru handteknir og þrír þeirra særðust í átökunum, að sögn Rússa. Stjórnvöld í Úkraínu segja að sex skipverjanna hafi særst. Dómstóll á Krímskaga úrskurðaði Úkraínumennina í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Rússar hafa gefið til kynna að þeir ætli að sækja Úkra- ínumennina til saka fyrir að hafa farið með ólöglegum hætti yfir landamæri Rússlands og verði þeir dæmdir sekir eiga þeir yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. Pútín sagði í gær að rússnesku landamæraverðirnir hefðu uppfyllt skyldu sína með því að hertaka skipin til að verja landamærin. Öryggisyfirvöld í Úkraínu hafa sagt að úkraínskir leyniþjónustu- menn hafi verið í varðskipunum sem voru hertekin og þeir hefðu tekið þátt í aðgerðum á vegum sjóhers landsins til að svara „þrýstingi“ sem rússneskir leyniþjónustumenn hefðu beitt Úkraínumenn. Rúss- neska öryggislögreglan FSB sagði að sigling varðskipanna með leyni- þjónustumenn um borð væri „ögrun“ við Rússa af hálfu Úkra- ínumanna. Rússar segja að mark- mið úkraínskra stjórnvalda með því að ögra Rússum sé að stuðla að hertum refsiaðgerðum gegn Rúss- landi og auka stuðninginn við for- seta Úkraínu, Petró Pórósjenkó, fyrir forsetakosningar sem fara fram 31. mars. Kannanir benda til þess að Pórósjenkó bíði þá ósigur. „Hann þurfti að gera eitthvað til að valda aukinni spennu,“ sagði Pútín. Pórósjenkó hefur sagt að Rússar séu að undirbúa innrás í Úkraínu og hafi fjölgað hermönnum sínum við landamæri ríkjanna verulega og þrefaldað fjölda skriðdreka sinna á svæðinu. Þing Úkraínu hefur sam- þykkt beiðni forsetans um að setja herlög sem eiga að gilda í 30 daga á svæðum við landamærin að Rúss- landi. Herlögin gera m.a. stjórn- völdum kleift kalla almenna borgara til að gegna herskyldu, leggja höml- ur á frelsi fjölmiðla og banna úti- fundi á svæðunum. Talsmaður Pútíns sagði í fyrra- dag að atburðirnir á sunnudag gætu orðið til þess að átök blossuðu upp að nýju í austurhéruðum Úkraínu. Rúmlega 10.000 manns hafa beðið bana í suðausturhluta landsins frá árinu 2014 þegar aðskilnaðarsinnar hófu uppreisn með stuðningi Rússa. Flutningaskip tafin Spennan í samskiptum ríkjanna jókst í maí þegar Rússar tóku í notkun nítján kílómetra langa brú yfir Kertsjsund. Áætlað er að brúin hafi kostað jafnvirði rúmra 500 milljarða króna, að sögn breska dagblaðsins The Guardian. Eftir að brúin var opnuð hafa Rússar tafið flutningaskip sem sigla til og frá mikilvægum úkraínskum höfnum við Azovshaf. Að sögn bandaríska dagblaðsins The Wall Street Journal er markmið Rússa með þessu að skaða efnahag Úkra- ínu. Skipin töfðust fyrst í nokkrar klukkustundir en síðustu mánuði hafa þau þurft að bíða dögum sam- an í Kertsjsundi, að því er blaðið hefur eftir Andrí Klymenko, úkra- ínskum sérfræðingi í siglingamálum og ritstjóra fréttavefjarins Black Sea News. Tafirnar hafa orðið til þess að vöruflutningarnir til úkra- ínsku hafnarborgarinnar Berdyansk hafa minnkað um 21% og til Maríu- pol um 7%. Úkraínskir sjómenn hafa einnig kvartað yfir aukinni áreitni Rússa á Azovshafi, einkum eftir að úkraínskt varðskip færði rússneskt fiskiskip til hafnar og handtók áhöfn þess í mars fyrir meintar ólöglegar veiðar. Að sögn The Guardian hafa fréttaskýrendur verið með vanga- veltur um að deilan um aðgerðir Rússa í Kertsjsundi verði til þess að stuðningurinn við Pútín aukist í Rússlandi. Vinsældir forsetans hafa minnkað verulega vegna þeirrar ákvörðunar rússneskra stjórnvalda að hækka lágmarkslífeyrisaldur landsmanna. The Guardian bendir á að síðast þegar stuðningurinn við Pútín mældist um 65% eins og nú lét hann innlima Krímskaga í Rúss- land og stuðningurinn við hann jókst þá í 85%, ef marka má rúss- neskar skoðanakannanir. Hætt við gasleiðslu? Bandaríkjaþing er að íhuga frek- ari efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Rússlandi, að sögn The Wall Street Journal. Blaðið segir að slíkar aðgerðir beri mestan árangur þegar gripið sé til þeirra í samstarfi við Evrópuríki og bendir á að stjórnvöld í Þýskalandi gætu endur- skoðað áform um að auka innflutn- ing Þjóðverja á rússnesku jarðgasi með fyrirhugaðri gasleiðslu, Nord Stream 2, frá Rússlandi á botni Eystrasalts til Þýskalands. Græn- ingjar, sem hafa stóraukið fylgi sitt samkvæmt skoðanakönnunum, eru andvígir gasleiðslunni. „Ef við vilj- um að Pútín taki okkur alvarlega aftur þurfum við aðeins að hætta við gasleiðsluna Nord Stream 2 í Eystrasalti,“ sagði Cem Özdemir, leiðtogi Græningja, fyrr á árinu. Rætt um að herða refsiaðgerðir  Rússar sakaðir um að hafa brotið alþjóðalög  Stjórnvöld í Rússlandi saka Úkraínumenn um ögrun  Segja að forseti Úkraínu vilji magna spennuna til að auka sigurlíkur sínar í kosningum á næsta ári RÚSSL. ÚKRAÍNA KRÍM 60 km Simferopol Sebastopol Jalta Maríupol Odessa Svarta- haf Kertsjsund Azovs- haf 10 km Úkraínsk skip hertekin Á valdi upp- reisnarmanna sem Rússar styðja Innlimað í Rússland Svarta-haf Azovs- haf 2. Rússar hertóku tvö úkraínsk herskip 1. Rússneskt varðskip er sagt hafa siglt á úkraínskan dráttarbát Krímbrúin RÚSSL.KRÍM Kertsj Túzla- eyja Taman Kútsjúgúrí maps4news.com/©HERE Á sunnudag AFP Spenna Úkraínskur hermaður á verði í herskipi í höfn borgarinnar Maríu- pol við Azovshaf. Borgin er nálægt yfirráðasvæði uppreisnarmanna. Sagðir neyddir til játningar » Rússneska öryggislögreglan hefur birt myndskeið þar sem nokkrir úkraínsku skipverj- anna, sem voru handteknir, eru yfirheyrðir. » Einn þeirra kvaðst gera sér grein fyrir því að sigling úkra- ínsku varðskipanna sem voru hertekin hefði verið „ögrun“ af hálfu Úkraínumanna. » Yfirmaður sjóhers Úkraínu sakaði rússnesku öryggis- lögregluna um að hafa neytt úkraínsku skipverjana til að játa að þeir hefðu brotið rúss- nesk lög. Kínverskur vísindamaður segist ætla að bíða með frekari tilraunir með erfðabreytingu á börnum eftir hávær mótmæli vísindamanna og almennings eftir að hann sagðist hafa breytt erfðaefni tveggja stúlkna. He Jiankui, vísindamaður sem segist hafa búið til fyrstu erfða- breyttu börn sögunnar, sagði á læknaráðstefnu í Hong Kong í gær að sér hefði tekist að breyta erfða- efni tvíburastúlkna. Faðir þeirra er með HIV að sögn He en breytingin á erfðamenginu þýði að dætur hans geti ekki smitast af veirunni. Í ræðu sinni á ráðstefnunni sagðist hann stoltur af vinnu sinni. Erfðabreyting á fósturvísum eins og sú sem He segist hafa fram- kvæmt er bönnuð í flestum löndum heims. He segir að átta pör hafi boðist til að taka þátt í frekari tilraunum. Í öllum tilvikum er karlinn HIV- smitaður en konan ekki. Eitt par hefur þegar hætt við þátttöku að sögn He eftir að umræða um til- raunina fór af stað í fjölmiðlum. He segir að niðurstöðum tilraunarinnar hafi verið lekið í fjölmiðla án sinnar vitundar og því sé hún nú í biðstöðu. He sagðist hafa unnið að tilraun- unum í samstarfi við sjúkrahús í Kína en yfirmenn sjúkrahússins grunar að undirskrift á skjali um samþykkt tilraunarinnar sé fölsuð. Sjúkrahúsið hefur beðið lögregluna að rannsaka málið. Í yfirlýsingu spítalans segjast yfirmennirnir al- gerlega á móti genatilraunum á mönnum. Þá hefur háskólinn sem He starfar við neitað þátttöku og segir He hafa unnið að tilraunum sínum utan skólans. Breytti erfðaefni barna  Vísindamaður stöðvar tilraunir með erfðabreytt börn eftir hávær mótmæli  Kveðst vera stoltur af tilraununum AFP Umdeildur Vísindamaðurinn He Jiankui á læknaráðstefnu í gær.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.