Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 49
Ertu nú ánægð kerling? til liðs við verkefnin og þannig sköpuðust frjó- söm tengsl við háskólaparið Dagnýju Kristjánsdóttur og Kristján Jóhann Jónsson. Um sumarið sótti ég tíma í gítarleik hjá ungum tónlistarkennara sem fljótlega gafst upp á að kenna mér gripin en langaði til að gefa út með mér plötu ef ég vissi um gott efni. Og það gerði ég, upptendruð af þeim fjölmörgu kvennasöngvum sem ég hafði tekið þátt í að flytja, suma í Þjóðleikhúsinu, aðra á baráttu- fundum. Nærtækt var að hóa í þær leikkonur sem mest höfðu sungið saman en að auki styrktum við hóp- inn með landsþekktri og vinsælli vísnasöngkonu, Kristínu Á. Ólafs- dóttur, sem þá starfaði með Leik- félagi Akureyrar. Fljótlega kom upp sú hugmynd að tengja útgáfu plöt- unnar við fyrirhugað kvennafrí og þá dró ég upp úr pússi mínu tveggja laga plötu með baráttusöngnum úr Jösses flickor! Befrielsen är nära sem ég hafði keypt á Stadsteatern í Stokkhólmi. Textinn var í leikskrá sýningarinnar og með hann gekk ég á fund Dagnýjar og Kristjáns Jó- hanns og fékk þau til þess að snara honum úr sænsku. Sem þau gerðu af stakri snilld. Þeirra er síðan heið- urinn af báðum titlunum á þeim mik- ilvægu bókum um kvennasögu sem ég hef getið hér að framan, Veröld sem ég vil og Já, ég þori, get og vil. Sama gildir um yfirskrift plötunnar og hvatninguna: Áfram stelpur! sem segja má að hafi hljómað óslitið frá 1975. Dómur kynslóðanna Viðlag baráttusöngsins er eftirfar- andi: Og seinna börnin segja: Sko mömmu, hún hreinsaði til. Já, seinna börnin segja: Þetta er einmitt sú veröld sem ég vil! En þori ég, vil ég, get ég? Já, ég þori, get og vil! Viðlagið hefur fólgið í sér fram- tíðarspá og von sem enn er ekki fallin út gildi. Margt úr textanum að öðru leyti geymir tilfinningar kvenna sem árið 1975 skynjuðu að þær stóðu á sögulegum tímamótum, þar rúmaðist jafnt reiði yfir aldalangri kúgun, stolt yfir þeim sigrum sem unnist höfðu í jafnréttisbaráttunni, hvatning til þess að missa ekki móðinn og bjart- sýni á framtíðina: Í augsýn er nú frelsi! Lag og íslenskaður textinn hittu gjörsamlega í mark við frumflutning- inn á kvennafrídaginn 24. október. Langlífi sitt á Íslandi á söngurinn að líkindum þrennu að þakka: Í fyrsta lagi því að fundurinn á Lækjartorgi varð svo sögulegur í stærð sinni og umfangi að fréttamyndir um hann og sjónvarpsupptökur hafa varðveist og verið endurbirtar aftur og aftur þeg- ar atburðarins er minnst. Í öðru lagi því, að íslenskar kvennahreyfingar gerðu sönginn að sínum, fyrst rauð- sokkar, síðan kvennaframboðin og Kvennalistinn. Hann hefur til að bera klassíska eiginleika sem hafa tryggt honum sess á efnisskrá kvennahljómsveita og sönghópa og nú síðast fjölmennra kvennakóra. Í þriðja lagi lifir söngurinn vegna þess að baráttunni er ekki lokið. Undir- okun kvenna á sér svo djúpar rætur í öllum samfélögum og er svo samofin feðraveldinu, samskiptum kynjanna, jafnt í einkalífi sem atvinnu-, félags- og skemmtanalífi, að þar hefur ekki enn að fullu verið „hreinsað til“. Um það vitnar nýjasta bylgja fjölþjóð- legrar baráttu gegn kynferðislegri áreitni, sem kennd er við Me too. Tack mödrar det gjorde ni bra Það stenst ekki skoðun rúmum fjórum áratugum eftir kvennafríið 1975 að þakka það einhverjum einum hópi eða einstaklingum og hnýta í aðra, sem ekki hafi verið á réttu lín- unni. Sú magnaða og einstæða að- gerð sem Kvennafríið var tókst vegna þess að þær fjölmörgu konur sem skipuðu forystusveitir íslenskra kvennahreyfinga af öllum hugs- anlegum gerðum, eða komu úr lista- og menningarlífinu, skynjuðu að þær voru hluti breiðfylkingar sem teygði arma sína út um allan heim. Hug- mynd sem hafði verið rædd víðar komst í framkvæmd á Íslandi m.a. vegna smæðar samfélagsins og eins- leitni, tiltölulega lítils stéttamunar og menntunarstigs, sem gerði það að verkum að konur náðu hver til ann- arrar og gátu skilið hver aðra í grundvallaratriðum, þrátt fyrir kyn- slóðabil og misjöfn kjör. Við vorum t.d. fjórar kynslóðir kvenna sem tók- um þátt í aðgerðinni, móðuramma mín, f. 1896, móðir mín, f. 1924, ég, f. 1948, og dóttir mín, f. 1968. Ungar og róttækar konur höfðu vissulega stóru hlutverki að gegna með ákafa sinn og nýjar hugmyndir að vopni, en gamalreyndar konur í baráttunni skiptu ekki minna máli. Þær sem þekktu æðaslátt sögunnar og vissu að hver kynslóð baráttukvenna naut afraksturs hinna fyrri. Í viðlaginu sem nefnt er hér að framan kemur sú afstaða skýrt fram í sænska frum- textanum: Och en dag ska barnen säga: Tack mödrar det gjorde ni bra. Seinni línan í beinni þýðingu: Takk mæður, þetta gerðuð þið vel. Sem sagt: þökk sé fyrri kynslóðum kvenna. Ung sænsk listakona, Anna Lidman að nafni, hefur nú mótað þökkina: TACK MÖDRAR DET GJORDE NI BRA, í málm, í mögn- uðu útilistaverki sem var sett upp í Stokkhólmi og víðar í Svíþjóð sum- arið 2015. Verkið tileinkar hún Suz- anne Osten, Margaretu Garpe og þeirra kynslóð baráttukvenna, á meðan Suzanne og Margareta þakka kynslóð sinna mæðra. Verkið má finna á netinu og af því hafa verið gerðar smækkaðar afsteypur. Kvennabaráttu þarf sannarlega að heyja á mörgum vígstöðvum og með mismunandi áherslum eftir að- stæðum á hverjum stað og tíma. En þar sem konur eru um það bil helm- ingur mannkyns skilar hún varanleg- ustum árangri þegar hún er þver- pólitísk og nær til allra kvenna. Höfundur er leikkona og rithöfundur. Bjarnfríður Leósdóttur, móðir höfundar, á fundi kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í kringum 1975. Er hún eina konan í tuttugu karla hópi. Myndin sýnir glöggt þá miklu breytingu sem orðið hefur á stöðu kvenna í stjórnmálum. UMRÆÐAN 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 ÞINGVEL LIR Hárbei tt umr æða á hverju m sunn udegi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.