Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Falleg fjölskylda Aron Einar og Kristbjörg Jónasdóttir með drengina sína tvo, Óliver Breka og Tristan Þór.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, og eig-
inkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari, komu sérstaklega til
landsins til að kynna bókina, Aron - Sagan mín, sem kom út í síðustu viku. Í
tilefni af útkomu bókarinnar var slegið upp teiti á Kornhlöðunni.
Í bókinni opnar Aron Einar sig upp á gátt en brot úr bókinni hafa ratað í
fréttir á síðustu vikum og mun hún væntanlega rata í marga jólapakka fyrir
þessi jólin.
Aron hélt hjartnæma ræðu fyrir gesti og táraðist þegar hann þakkaði fjöl-
skyldu og vinum fyrir stuðninginn í gegnum árin. „Eins og þið sjáið er ég
ekki mikill ræðumaður. Sem betur fer er ég bara fótboltamaður,“ sagði Aron
og uppskar mikinn hlátur.
Aron hélt ræðu
og táraðist
Að deyja úr ást Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm.
Hjálpar pabba Óliver
Breki hjálpar pabba
sínum að árita bókina.
MEXICOALLT ÁRIÐ
PLAYA DEL CARMEN
ogDÓMINIKANSKA LÝÐVELDIÐ
www.transatlantic.is Sími 588 8900
Þú ferð þegar þú vilt eins lengi og þú vilt. Pálmatré, hvítar
strendur og kristaltær sjór. Karíbahafið eins langt og augað
eygir. Þarmá auk þess finnaMaya pýramída, frumskóga, tær
lón, eyjar, neðanjarðarhella, veitingahús, verslanir og næturlíf.
Þú finnur allt í Playa Del Carmen. Er þetta aðeins hluti
af því fjölmörgu í þessu stórbrotna umhverfi sem heillar
ferðamanninn.
Rétt utan við ströndina er svo næst stærsta kóralrif heims
með öllum sínum litaafbrigðum og ótrúlegum fjölda fiska í
öllum regnbogans litum.
Við höfum verið í Mexico á hverju ári síðan 2005 og höfum
sent þangað þúsundir íslendinga.
Nú bætum við Dóminikanska Lýðveldinu.
Við bjóðumuppá glæsilegt 4* hótel svæði
(resort) og allt innifalið, um40atriði
- þú þarft ekki að taka upp veskið.
Tilvalið fyrir alla aldurshópa.