Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 57
MINNINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
✝ Birkir Skarp-héðinsson
fæddist á Akur-
eyri 5. september
1938. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri 19.
nóvember 2018.
Foreldrar hans
voru Skarphéðinn
Ásgeirsson, f. 3.
mars 1907, d. 22.
september 1988,
og Laufey Valrós Tryggva-
dóttir, f. 5. apríl 1911, d. 28.
desember 1997. Bræður Birkis
eru Brynjar Skarphéðinsson,
f. 18. nóvember 1931, og
Kristján Viðar Skarphéð-
Kristófer Pálsson, f. 1. sept-
ember 1989. 2) Laufey Birkis-
dóttir, f. 22. janúar 1961, sam-
býlismaður Friðrik Karlsson,
f. 24. apríl 1960. Börn Lauf-
eyjar: Birkir Thor Björnsson,
f. 5. mars 1999, María Elísabet
Björnsdóttir, f. 1. nóvember
2000. 3) Guðrún Margrét
Birkisdóttir, f. 10. apríl 1967,
maki Jóhannes Rúnar Jóhann-
esson, börn Sigrún Ósk Jó-
hannesdóttir, f. 29. október
1990, Egill Árni Jóhannesson,
f. 1. júlí 1994. 4) Skarphéðinn
Birkisson, f. 4. júní 1971.
Birkir bjó alla sína tíð á
Akureyri. Hann rak versl-
unina Amaro með fjölskyldu
sinni. Hann var einn af stofn-
endum JC á Akureyri og var
félagi í Oddfellow-reglunni.
Útför Birkis fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 29.
nóvember 2018, klukkan
13.30.
insson, f. 21. júní
1946. Birkir var
kvæntur Maríu
Einarsdóttur f. 28.
apríl 1940. For-
eldrar hennar eru
Einar Sigurbjörns-
son, f. 19. febrúar
1917, d. 19. apríl
1975, og Matthild-
ur Soffia Marías-
dóttir, f. 14. maí
1919. Börn Birkis
og Maríu eru 1) Hildur Birkis-
dóttir, f. 7. september 1959,
börn hennar eru Thelma Þor-
bergsdóttir, f. 10. desember
1981, Pálína Kristín Páls-
dóttir, f. 7. apríl 1988, Gunnar
Elsku pabbi.
Ég sakna þín. Ég er svo óend-
anlega þakklát fyrir að hafa ver-
ið hjá þér þegar þú kvaddir, svo
friðsæll og fallegur. Ég geymi
allar góðu minningarnar í hjarta
mínu. Takk fyrir allt, elsku
pabbi minn. Þakklæti er mér
efst í huga. Ég elska þig. Guð
geymi þig.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu
þá aftur huga þinn, og þú munt sjá,
að þú grætur vegna þess, sem var
gleði þín.
(Úr Spámanninum e. Kahlil Gibran)
Þín dóttir
Guðrún Margrét.
Það var einn fallegan vordag
1957 að ungur maður kom yfir
holtið í Litla Hvammi við Engja-
veg til að heilsa upp á tilvonandi
tengdaforeldra sína. Hann var
dökkhærður, brúneygður, í
leðurjakka, með brilljantín í
hárinu. Það fylgdi honum fram-
andi andblær. María systir og
Birkir höfðu kynnst árið áður í
gróðrarstöðinni í Vaglaskógi.
Við litlu systkinin stóðum þarna
á bak við hurðina í stofunni og
skoðuðum tengdasoninn í gegn-
um dyragættina. Við Ragnheið-
ur höfðum aldrei séð annan eins
gæja. Við vorum svo hvert á eft-
ir öðru látin heilsa með handa-
bandi og segja til nafns. Nokkr-
um kvöldum áður þegar
barnaskarinn var sofandi hafði
Birkir komið og beðið um hönd
elstu dótturinnar eins og í ævin-
týrunum. Við höfðum oft verið
send til dyra til að segja ungum
mönum sem vöppuðu yfir holtið
að heimsækja Maríu, að hún
væri ekki heima, hún þá falin
inni í fataskáp. En Birkir var al-
vöru prins. Hann vissi ekki þá og
ekki við heldur, mörgu börnin
hans Einars og Matthildar, sem
áttu eftir að verða enn fleiri, að
flest okkar myndu dvelja hjá
Bikka og Maju á Akureyri í
lengri eða skemmri tíma á leið-
inni út í lífið.
Árið 1958 keyptu foreldrar
okkar Hjörsey 2 og gerðust
bændur. Ungu hjónin komu öll
vor að hjálpa til í sveitinni. Þau
komu á græna Volvónum og síð-
ar Broncónum að norðan eftir
rykugum malarveginum yfir
heiðarnar með börnin í aftursæt-
inu sofandi á bílveikipillum, svo
þau sáu aldrei neitt annað lands-
lag í sinni æsku en Akureyri og
Hjörsey. Sumarið kom með þeim
með norðlenskum hreim sem tók
að linast um haustið. Birkir var
áhugaljósmyndari og tók mikið
af góðum myndum frá þessum
tíma af fuglalífinu í eyjunni
mannlífinu og náttúrunni sem í
dag geyma dýrmætar minning-
ar.
Þessi ungi alvörugefni kaup-
mannssonur frá Akureyri heill-
aði tengdaforeldrana með sinni
ljúfu framkomu. Það var móður
okkar kappsmál að gefa honum
gott að borða og Birkir elskaði
gamlan sveitamat súrsaðan og
sviðinn og þegar til var selur í
Hjörsey fékk hann alltaf sér-
fæði, sel og selspik. Þegar ég var
14 ára og skólaskyldan í sveit-
inni liðin, buðu Birkir og María
mér að vera hjá sér. Ég er þeim
afar þakklát fyrir það tækifæri
að fá að vera hjá þeim og ganga í
Menntaskólann á Akureyri,
þann góða skóla. Ég hef minnst
þess með samviskubiti síðar
hvað ég var oft löt að hjálpa til
við húsverkin, þó ég hefði lofað
foreldrum mínum því að vera
dugleg að taka til hendinni. Það
var ekki sjaldan sem ég gat ekki
vaskað upp, því að annað hvort
þurfti ég að læra eða að fara út
að hitta stelpurnar. En það var
aldrei neitt mál hjá þeim, þau
studdum mig með ráðum og dáð.
Birkir var alla sína starfsævi
kaupmaður og rak með foreldr-
um sínum og bræðrum Amaro á
Akureyri, sem var lengi vel ein
stærsta og glæsilegasta verslun
á Norðurlandi.
Mágur minn var ekki marg-
máll né flíkaði tilfinningum sín-
um, en hann var raungóður og
stóð með sínu fólki.
Elsku María systir og fjöl-
skylda, við sendum ykkur okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Margrét Einarsdóttir.
Birkir
Skarphéðinsson
✝ GuðbrandurEiríksson
fæddist í Reykja-
vík 12. apríl 1926.
Hann lést 23. nóv-
ember 2018 á
dvalarheimili aldr-
aðra, Víðihlíð í
Grindavík.
Móðir hans var
Margrét Eiríks-
dóttir frá Byggð-
arenda í Grinda-
vík, f. 31. janúar 1903, d. 27.
október 1986. Fósturfaðir hans
var Alexander Georg Sigurðs-
son, f. 16. september 1893, d.
17. maí 1942.
Systir Guðbrandar er Elín
P. Alexandersdóttir, f. 30.
aldri til 22 ára aldurs er hann
hóf nám í Samvinnuskólanum,
en þar lauk hann tveggja ára
námi 1950 með fyrstu einkunn.
Eftir nám hóf hann störf í
Hraðfrystihúsi Grindvavíkur
sem skrifstofustjóri þar sem
hann hafði umsjón með færslu
bókhalds, launavinnuslu fyrir
alla starfsmenn fyrirtækisins,
bæði landverkafólks og sjó-
manna, auk annarra almennra
skrifstofustarfa. Því starfi
gegndi hann óslitið þar til fé-
lagið hætti starfsemi. Eftir
það starfaði hann hjá Ísfélagi
Grindavíkur til starfsloka.
Guðbrandur tók virkan þátt
í félagsstörfum og var einn af
stofnendum Lionsklúbbs
Grindavíkur 1965 og hann
söng í kirkjukór Grindavík-
urkirkju í áratugi.
Útför Guðbands fer fram
frá Grindavíkurkirkju í dag,
29. nóvember 2018, og hefst
athöfnin klukkan 14.
ágúst 1932, maki
Edvard Júlíusson,
f. 7. september
1933. Bróðir hans
var Eiríkur Alex-
andersson, f. 13.
júní 1936, d. 11.
júlí 2008, og maki
Hildur Júlíus-
dóttir, f. 7. júlí
1941.
Maki Guðbrands
var Hrefna Guð-
mundsdóttir, f. í Vestmanna-
eyjum 1936, d. 2. maí 2010.
Þau gengu í hjónaband 5.
ágúst 1972, en varð ekki barna
auðið.
Guðbrandur vann ýmsa
verkamannavinnu frá unga
Við kveðjum í dag móðurbróð-
ur okkar, Gugga eins og hann var
alltaf kallaður, sem hefur verið
hluti af fjölskyldu okkar frá því
að við munum fyrst og því skrýt-
in tifinning að hann sé farinn.
Guggi var hjálparhella fjöl-
skyldunnar í ýmsum málum, sér-
staklega þegar þurfti að keyra
okkur með hraði til læknis í
Keflavík eftir að okkur hafði tek-
ist að slasa okkur við að kynnast
heiminum sem ungir krakkar,
enda eignuðust foreldra okkar
ekki bifreið fyrstu árin í þeirra
hjúskap en Guggi átti alltaf
glæsilega bíla.
Það voru ófár ferðir sem farn-
ar voru á sumrin vítt og breitt um
landið þar sem hann var iðulega
þátttakandi. Oft voru einnig farið
í svokallaða sunnudagsbíltúra
með honum og ömmu Margréti,
sem hann bjó hjá. Þá var ekið
eitthvað út í sveit og sest í góða
laut þar sem nesti var dregið
fram og slegið upp veislu.
Einnig bauð hann okkur
systkinunum oft í bíó eða leikhús
í Reykjavík, sem var ógleyman-
legt ungum krökkum á þeim
árum.
Laxveiði hefur verið stór hluti
af tómstundaiðkun fjölskyldunn-
ar og tók hann virkan þátt í henni
fyrstu árin og eru ýmsar ánægju-
legar minningar tengdar þeim
ferðum.
Guggi var hægur og rólegur
maður, en mjög fróður um flesta
hluti og hagmæltur, sem gott var
að heimsækja og spjalla við og
leita ráða hjá þegar þannig stóð
á.
Við kveðjum með söknuði
þennan fjölskyldumeðlim sem
hefur verið hluti af fjölskyldu
okkar alla tíð.
Alexander, Kristín
og Sigmar.
Það er með söknuði sem ég
kveð frænda minn hann Guð-
brand Eiríksson, sem var aldrei
kallaður annað en Guggi. Ég hélt
lengi vel að hann héti bara Guggi
og ekkert meira enda var ýmist
talað um hann Gugga, Gugga
bróður eða Gugga hennar
Hrefnu, en hann var kvæntur
Hrefnu Guðmundsdóttur sem
lést 2. maí 2010.
Ég á margar góðar minningar
um hann Gugga eins og þegar lít-
inn frænda langaði í fimm aura
kúlur eða ís þá fór hann til Gugga
sem átti risastóran peningaskáp.
Í Hraðfrystihúsi Grindavíkur
vann hann stóran hluta af starfs-
ævinni sem skrifstofustjóri og
var móðir hans, amma mín, iðu-
lega ekki langt undan að gera að
fiski við eitt af mörgum
færiböndunum. Þarna á skrif-
stofunni var þessi mikli peninga-
skápur og alltaf var ég viss um að
hann væri fullur af peningum
enda sagði Guggi miklar sögur af
skápnum góða.
Alltaf vissi maður hvenær
Guggi væri í heimsókn því ekki
leyndi sér góða pípulyktin en píp-
an var aldrei langt undan þegar
þeir bræður tóku tali saman,
pabbi með Camelinn og Guggi
með pípuna en hann átti ýmsar
gerðir af þeim sem voru ýmist
hversdags eða til spari.
Þegar við fjölskyldan í Grinda-
vík fluttum frá Hólum í Heiðar-
hraunið þá keyptu þau hjónin
Hóla og gerðu húsið upp þannig
að það varð eins og nýtt en þar
bjuggu þau í áratugi þar til þau
fluttu í Víðihlíð.
Ég og fjölskyldan í Stórahjalla
í Kópavogi kveðjum nú góðan
mann og veit ég að bæði faðir
minn og Hrefna taka vel á móti
sínum manni. Við vottum Ellu
frænku samúð okkar sem nú hef-
ur kvatt bræður sína tvo.
Leifur Eiríksson.
Guðbrandur
Eiríksson
Ástkær móðir og tengdamóðir okkar,
ELLEN LÍSBET PÁLSSON,
Mosateigi 7, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn
24. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 30. nóvember klukkan 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á
Akureyri.
Sigríður Sverrisdóttir Brandur Búi Hermannsson
Lárus Sverrisson
Inga Björg Sverrisdóttir Torfi Ólafur Sverrisson
Páll Sverrisson Guðbjörg Ingimundardóttir
✝
Ástkær móðir okkar og amma, elskulegur bróðir okkar og frændi,
JENSA KITTY PETERSEN
og
ÞRÖSTUR VILBERGSSON
sem létust sunnudaginn 18. nóvember og miðvikudaginn
21. nóvember verða jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 29. nóvember klukkan 13.30.
Pétur Daníel Vilbergsson
Jóna Björg Vilbergsdóttir
Soffía Vilbergsdóttir Petersen
og barnabörn
Elsku eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
sonur og afi,
PÉTUR GUNNARSSON
blaðamaður,
Bólstaðarhíð 64,
sem lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 23. nóvember,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 3. desember
klukkan 13.
Anna Margrét Ólafsdóttir
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, Kristján Oddur Sæbjörnsson
Anna Lísa Pétursdóttir Hannes Pétur Jónsson
Pétur Axel Pétursson
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
barnabörn og aðrir ástvinir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
SIF AÐALSTEINSDÓTTIR,
Geitlandi 1, Reykjavík,
andaðist laugardaginn 24. nóvember
í faðmi ástvina. Útför hennar verður frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. desember klukkan 15.
Jón B. Stefánsson
Ívar Már Jónsson Svandís Íris Hálfdánardóttir
María Birna Jónsdóttir Baldur Þór Sveinsson
Vilborg Mjöll Jónsdóttir Friðrik Magnússon
Margrét Lára Jónsdóttir Steinar Örn Sigurðsson
og barnabörn
Þökkum auðsýndan samhug og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
SIGURPÁLS ÁRNASONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Krummalundi í Boðaþingi fyrir einstaka
umhyggju og alúð.
Kristján Páll Sigurpálsson Sigríður Halldórsdóttir
Sigurbjörg Sigurpálsdóttir Sigvaldi þorgilsson
Kolbrún Sigurpálsdóttir Freysteinn Sigurðsson
Sigurlaug Sigurpálsdóttir Sigurjón P. Stefánsson
Árni Baldvin Sigurpálsson Harpa Jóhannsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar-
greinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar