Morgunblaðið - 29.11.2018, Síða 60
Á
sgeir Gunnar Jónsson
fæddist í Reykjavík
29.11. 1948: „Ég fædd-
ist á 25 ára afmælis-
degi móður minnar
sem verður 95 ára í dag. Við höldum
því sameiginlega upp á daginn.“
Ásgeir Gunnar ólst upp á Þverá í
Eyjahreppi í hópi sjö systkina, við
öll almenn bústörf þeirrar tíðar en
hefur búið í Stykkishólmi frá 1966.
Hann hóf nám í farskóla í Eyja-
hreppi, var einn vetur í framhalds-
skóla á Staðarstað hjá séra Þor-
grími Sigurðssyni, fór þaðan í
Iðnskólann í Reykjavík, lauk prófi í
húsasmíði og lærði faglega þáttinn í
Trésmiðjunni Ösp í Stykkishólmi.
Hann hlaut meistararéttindi 1971
og síðar byggingarstjóraréttindi.
Ásgeir Gunnar stundaði smíðar
að aðalatvinnu í 30 ár og rak sam-
hliða um tíma steypustöð: „Starfið
var fjölbreytt því að í Öspinni var
allt smíðað sem smíðað varð úr tré
og á þurfti að halda í þá daga, s.s.
bátar, borð og stólar, hurðir,
gluggar og rúm, einingahús, líkkist-
ur skápar og skúffur, svo nokkuð sé
nefnt.“
Ásgeir Gunnar hóf síðan störf hjá
umdæmisskrifstofu RARIK í
Stykkishólmi 1996, fyrst í sölukerfi
fyrirtækisins og seinna í áætlana-
gerð, teikningum, mælingum og vél-
gæslu.
„Á Þverá og víðar kom faðir minn
upp vatnsaflsrafstöð og starfrækti
hana alla sína búskapartíð.
Uppsetning og rekstur vatnsafls-
virkjana varð áhugamál hjá okkur
feðgum sem varð til þess að ég hef
komið að nýsmíði og endurbótum á
nokkrum vatnsaflsvirkjunum.“
Ásgeir Gunnar Jónsson byggingarmeistari – 70 ára
Heima í sófa Ásgeir Gunnar og Guðrún Anna með börnunum þremur, Gunnari, Kristínu Guðrúnu og Erlu Ósk.
Einn af þúsundþjala-
smiðum ættarinnar
Móðir Ásgeirs Kristín Guðríður
Þorleifsdóttir fékk Ásgeir í af-
mælisgjöf. Hún verður 95 ára í dag.
60 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Birkir Þór Stefánsson,bóndi í Tröllatungu áStröndum, er fimm-
tugur í dag. Bærinn liggur við
veginn sem lá yfir Trölla-
tunguheiði frá Ströndum og í
Geiradal. Nú er ekið um
Þröskulda sem voru opnaðir
árið 2009 og er Tröllatunga
eini bærinn á Tröllatungu-
vegi.
„Ég er mjög sáttur við að
vegurinn var færður, þetta
var orðið óbærilegt áður en
Þröskuldar voru opnaðir.
Maður komst ekki á milli
bæja, það var orðin svo mikil
umferð. Það eru þrír kíló-
metrar á næsta bæ, áður fyrr
fannst manni bærinn vera út
úr en núna finnst mér þetta
vera alveg passlegt,“ en Birk-
ir ólst upp í Tröllatungu og
tók við búskapnum af föður
sínum 18 ára gamall.
Fjárbúskapur er í Trölla-
tungu, rúm 600 fjár, en Birki
finnst vanta heildarstefnu í
sauðfjárrækt. „Flestir vinna með þessu, konan mín er leiðbeinandi í
Grunnskólanum á Hólmavík og er í íþróttakennaranámi og ég er í
skólaakstri í afleysingum.“
Birkir hefur stundað mikið skíðagöngu gegnum tíðina og unnið
til margra verðlauna en er meira kominn í almenn hlaup. „Snjórinn
hefur minnkað hérna og svo er auðvitað bara þægilegra að smella
sér í hlaupaskóna.“
Hann hélt upp á fimmtugsafmælið með því að hlaupa Ultravasa
18. ágúst síðastliðinn en leiðin er 90 kílómetrar frá Sålen til Mora í
Svíþjóð. Einnig hlupu með honum tveir hlauparar úr Flandra í
Borgarnesi, en áður hafði Birkir tekið þátt þrisvar í Vasagöngunni.
Til gamans má nefna að Birkir var næstum tvöfalt lengur á leiðinni
að hlaupa vegalengdina en að ganga hana.
Eftir að Birkir greindist með hrygggigt árið 2015 hefur hann
markvist notað hreyfingu til að halda sér góðum.
Eiginkona Birkis er Sigríður Drífa Þórólfsdóttir og börnin þeirra
eru Árný Helga 11 ára og Stefán Þór 10 ára. Einnig á hann dæt-
urnar Agnesi Sif 25 ára og Emblu Skeie 20 ára.
90 km að baki Birkir kominn í mark
í Ultravasa-hlaupinu.
Hljóp 90 kílómetra
í tilefni afmælisins
Birkir Þór Stefánsson er fimmtugur í dag
Hafnarfjörður
Hilmir Magnús
fæddist 9. apríl
2018 í Reykjavík.
Hann vó 3.790 g og
var 51 cm langur.
Foreldrar hans eru
Hildur Magnús-
dóttir og Heiðar
Ólafsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Opnaðu
einfaldlega
– með Yale Doorman
Nýi Yale Doorman stafræni lásinn er einföld og örugg la
loka útihurðum og innihurðum (IP55). Passar í sams ko
læsingar. Lásinn er hægt að opna með því að slá inn nú
rafrænum nema (Mifare, 3 kort fylgja með) eða með fja
Mjög auðvelt er að skipta um númer, skipta út
korti eða fjarstýringu. Alltaf er hægt að komast
inn með númeri og vandamálið með að gleyma
lykli er úr sögunni. Tengingar eru einfaldar og
endingartími rafhlaða er langur.
usn til að opna og
nar úrtak og ASSA
mer, nota kort með
rstýringu (aukahlutur).
TILBOÐ
meðan birgðir endast
43.400 kr.
(venjulegt verð 49.600 kr.)
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.