Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 63
DÆGRADVÖL 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að miðla að reynslu þinni til
þeirra sem yngri eru. Sýndu þolinmæði í
uppeldinu, reiði eða pirringur gerir bara illt
verra.
20. apríl - 20. maí
Naut Farðu þér hægt og veldu hvert skref
af kostgæfni því ein lítil mistök geta reynst
dýrkeypt. Betra er seint en aldrei, hafðu
það í huga í umferðinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú átt alveg skilið það hrós sem
þú færð fyrir vinnu þína og sérstaklega
lausn ákveðins verkefnis. Makinn kemur þér
á óvart.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er eitthvað sem þér finnst ekki
vera í lagi, þú bara veist ekki alveg hvað
það er, ennþá. Vertu stolt/ur af árangri
barna þinna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur um skeið unnið að ákveðnu
máli bak við tjöldin. Hugsanlegt er að þú
hellir þér í nám aftur á nýju ári. Þú færð
frábæra hugmynd sem leysir vandamál með
pláss heima fyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hafðu augun opin og ekki láta sár-
indi úr fortíðinni hindra að þú nýtir tækifæri
sem bjóðast. Gamall vinur skýtur upp koll-
inum og þú finnur að lengi lifir í gömlum
glæðum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hláturinn lengir lífið, á því leikur enginn
vafi. Þú kemur frábærri hugmynd á koppinn
og færð hrós fyrir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú færð óvænta athygli sem þú
kærir þig alls ekki um. Kaflaskil í lífi þínu
blasa við, ekki óttast, allt mun fara vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu þolinmóð/ur og nær-
gætin/n við maka og nána vini í dag. Var-
astu að láta hugmyndaflugið hlaupa með
þig í gönur. Framtíð þín er björt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Settu þér það takmark að vera
öðrum góð fyrirmynd. Það kemur upp
ósætti í fjölskyldunni en öldurnar lægir
fljótt. Þú færð boð í brúðkaup.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að leysa fjárhagslegt
vandamál sem upp hefur komið. Ekki ör-
vænta, þetta er vel yfirstíganlegt. Leggðu
land undir fót þegar tækifæri gefst.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt gott sé að skoða mál frá sem
flestum hliðum, kemur að því fyrr en seinna
að það verður að taka ákvörðun. Virkjaðu
bjartsýni þína og settu þér háleit markmið.
Jón skáld Jónatansson segir fráþví að á sokkabandsárum sín-
um hafi sér verið bannað að busla í
sjónum – „gætu mörg sjóskrímsli
komið og étið mig, svo sem vatna-
nykur og selir, er sumir væru
mannætur, að sögn. Konurnar
hefðu líka sagt margar ljótar sögur
af því.“ – „Á þennan lestur hlýddi
ég þegjandi og niðurlútur, þar til
ég fór að hlæja og segi:
Má ég ekki lifa og láta
líkt og hinar skepnurnar,
hlaupa, synda, flökta og fáta
fjörinu til hressingar?“
Árla á sunnudag skrifaði Sigur-
jóna Björgvinsdóttir á Boðnarmjöð:
Sólarupprás seint á ferð,
sést til hvítra fjalla
af þeim sökum enn ég verð
upp að klífa á hjalla.
Og enn orti hún og hefur lög að
mæla:
Göngutúr sem græðir mein,
gleði og kraftinn veitir;
best er að ganga alveg ein
út um borg og sveitir
Bjarni Sigtryggson yrkir á
Boðnarmiði:
Í Silfri morguns má víst sjá
er magnast orðasenna
að freka karlinn finna má
fullt eins meðal kvenna.
Tryggvi Jónsson spurði á sunnu-
dag hvort ekki væri komið að þeim
tíma sem maður yrði að græja sig
upp fyrir veturinn:
Haustlauf falla, hríma tún,
heldur á síðu þunnur.
Nú ég gamla beisla Brún
og brytja hann ofaní tunnur.
Ingólfur Ómar Ármannsson tók
þessu rólega og sagði bjart og stillt
veður með frosti:
Gróður frýs um grund og völl,
greinar íshúð skarta
Geislum lýsir gil og fjöll
glóðardísin bjarta.
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
yrkir „eina skammhenda í tilefni
flensu“:
Ég hef slæma flensu fengið,
ferðast innan húss.
Orðið viðkvæmt gamla gengið,
gæti þegið sjúss.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af jarðarskepnum, fjall-
göngum og gamla Brún
„Ég er nokkuÐ sáttur viÐ c mínus í
meÐaleinkunn, en ef þú ert ósátt
get ég alltaf hakkaÐ mig inn á
skólanetiÐ og breytt því í c. ”
„HvaÐ er aÐ þér? ég er aÐ leita AÐ
ávísanaheftinu!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga hugsanlega
lítinn snilling.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NÚ RÆÐST
LJÓNIÐ Á
BRÁÐINA
ALVEG EINS
OG ÉG!
EN ÉG HEFÐI NOTAÐ
STEIKARSÓSU
UNDIRBÚÐU ÞIG
FYRIR EILÍFÐINA!
ÉG VEIT EKKI … ÞEIR VIRÐAST
NÁLGAST OKKUR ÓÐFLUGA!
Það ætlaði allt um koll að keyra ávinnustaðnum í gær þegar
bráðabanaskákirnar í heimsmeist-
araeinvígi þeirra Magnúsar Carlsen
og Fabiano Caruana voru tefldar.
Sjónvarpstæki eitt var stillt á norska
ríkissjónvarpið, NRK, sem fylgdi
sínum manni að sjálfsögðu og bauð
upp á skákskýringar með. Verður að
segjast að mikill sómi var að þeirri
umgjörð sem NRK setti um einvígið.
x x x
Úrslit einvígisins urðu á endanumþau sem flestir höfðu búist við.
Carlsen náði að snúa á Caruana þeg-
ar tímamörkin til að hugsa voru
skemmri en í fyrri einvígisskák-
unum tólf sem komu á undan bráða-
bananum, og er verðskuldaður
heimsmeistari.
x x x
Gerðust sumir af samstarfs-mönnum Víkverja kannski full-
bráðir á sér í yfirlýsingum um getu
Caruana í hraðskák þegar ljóst varð
í hvað stefndi. Þykist Víkverji full-
viss um að hann myndi ekki hafa
betur í hraðskák við áskorandann,
jafnvel þó að heimsmeistari síðustu
fimm ára hafi reynst honum ofjarl.
Talar Víkverji þó þar eingöngu fyrir
sjálfan sig.
x x x
Einvígið þótti að þessu sinni ekkiendilega það mest spennandi
sem háð hefur verið. Það er skiljan-
legt þegar haft er í huga að í tólf
keppnisskákum voru gerð tólf jafn-
tefli. Víkverja skilst að ýmislegt hafi
verið lagt til á undanförnum árum til
þess að gera skákina „sjónvarps-
vænni“, meðal annars að stytta um-
hugsunartíma keppenda.
x x x
Skák er raunar ekki eina íþróttinþar sem talað hefur verið fyrir
styttri tíma. M.a.s. knattspyrnan,
ein vinsælasta sjónvarpsíþrótt
heims, hefur sætt gagnrýni fyrir að
leiktíminn sé of langur og að t.d.
mætti stytta hann niður í klukku-
tíma, en stöðva klukku dómarans í
hvert sinn sem boltinn fer úr leik.
Miðað við reynsluna af öðrum íþrótt-
um myndi það ekki stytta leiktímann
sem neinu næmi. vikverji@mbl.is
Víkverji
Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur
vera dáin frá syndinni en lifandi Guði
í Kristi Jesú.
(Rómverjabréfið 6.11)