Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
n getur minnkað
gum, hvarmabólgu og
ð áhrif á augnþurrk,
sroða í hvörmum/
og vanstarfsemi í
.
stu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum
Augnhvíla
þreytu í au
haft jákvæ
vogris, ró
augnlokum
fitukirtlum
Augnheilbrigði
hel
Augnhvíla
Dekraðu við augun
Margnota
augnhitapoki
Frábær
jólajöf
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þegar gestir ganga inn á sýningu
Leifs Ýmis Eyjólfssonar myndlistar-
manns, Handrit, í D-sal Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsi taka á móti
þeim rúmlega 250 leirtöflur sem
standa á viðarhillum frá gólfi upp í
loft og á hverri töflu er setning eða
orð úr daglegu máli Íslendinga. Á
einni stendur sem dæmi hvernig
virkar þetta, á annarri viltu ekki nota
ferðina, ég sé þetta gengur svona upp
og niður og svo er það einfaldlega æ
æ. Hvaða handrit er þetta, svo spurt
sé út frá heiti sýningarinnar sem
verður opnuð klukkan 17 í dag,
fimmtudag?
„Þetta er handrit að einhverju og
það verður aldrei tilbúið,“ svarar Leif-
ur Ýmir þar sem verið er að ljúka við
að skrúfa allar hillurnar á veggina og
hann byrjar að raða leirplötunum á
þær. „Verkið fæst við tungumálið, ís-
lenskuna sem er alltaf að þróast. Þess-
ar setningar og orð sem hér raðast
upp hafa farið gegnum ákveðið nál-
arauga hjá mér og þetta er handrit
með mikið notuðum setningum og
frösum, setningar sem maður notar oft
og stundum án þess að hugsa út í það.“
Verður meðvitað um málið
Leifur segist hafa byrjað að velja
setningarnar fyrir um ári og þótt
hann sýni nú rúmlega 250, á hátt sem
er í senn formlegur og yfirþyrmandi,
þá á hann enn fleiri til.
Margar setninganna segja ekki
mikið, eru hreinlega eins og uppfyll-
ing í daglegu tali, en fá vægi hér í
þessu handriti og vegna þess að þær
eru skrifaðar á leirtöflur.
Leifur Ýmir nam fyrst við Mynd-
listaskólann í Reykjavík, í deildinni
keramík og mótun, auk þess að hafa
verið þar í fornámi. Hann útskrifaðist
svo frá myndlistardeild LHÍ árið
2013. Hann er 35. listamaðurinn sem
sýnir í sýningaröðinni í D-sal en þar
er efnilegum listamönnum boðið að
halda sína fyrstu einkasýningu í opin-
beru safni.
Það að Leifur Ýmis skrifi þessar
hverdagslegu setningar og frasa á
leirtöflur vísar beint til elstu varð-
veittu skrifa manna, sem varðveist
hafa á leirkeflum og leirplötum
„Ég hef til að mynda velt fyrir mér
varðveislugildi tungumálsins og
hvort nákvæmlega þessar setningar
séu þess virði að þær varðveitist,“
segir hann og tekur upp eina leirplöt-
una. Og hann bætir við að þetta verk
eða innsetningu megi skoða frá
mörgum sjónarhornum.
„Fólk sem hefur séð leirplöturnar
hjá mér hefur ósjálfrátt orðið með-
vitað um tungumálið sem það notar,
við notum svo gjarnan allskyns hik-
orð og uppfyllingasetningar, til dæm-
is þegar við leitum að hugsunum.
Sumar setninganna hér eru gildis-
hlaðnari en aðrar, þær hafa mismikið
að segja,“ segir Leifur og raðar
nokkrum þeirra upp á hillur. Hann
segist vilja setja þær upp með tilvilj-
anakenndum hætti og að ekki sé auð-
velt að lesa á milli þeirra.
Orða- og setningaspuni
Leifur hefur á undanförnum árum
unnið talsvert með texta, til að mynda
í grafíkverkum.
„Þetta er í raun um tíu ára gömul
hugmynd sem kviknaði þegar ég var
að læra keramík. Í náminu gerði ég
tilraunir í þessa átt en það tók mig
þessi ár að ákveða hvernig þetta ætti
að verða. Ég ákvað svo að gera eins-
konar handritssíður; þetta vísar í
skinnhandritin og í pappírshandrit,
og líka í málverkið.“
Það tók hann marga mánuði að
gera leirtöflurnar. Fyrstu tilraunir
misheppnuðust illa, segir hann, en
svo komst hann á skrið eftir góða að-
stoð í Myndlistaskólanum í Reykja-
vík – náði samt ekki að gera fleiri en
um 20 á viku. „Það er engar tvær
plötur eins en þær mynda heild.
Þegar fólk kemur hér inn verður upp-
lifunin nokkuð yfirþyrmandi. En rétt
eins og við ræðum hér saman í
ákveðnum spuna þá upplifir fólk eitt-
hvað svipað hér inni; þetta er algjör
orða- og setningaspuni,“ segir Leifur
Ýmir.
Hversdagsmálið komið á leirtöflur
Sýning Leifs Ýmis Eyjólfssonar, Handrit, verður opnuð í D-sal Hafnarhússins í dag „Þetta er
handrit að einhverju og það verður aldrei tilbúið,“ segir listamaðurinn um yfirþyrmandi sýninguna
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn „Ég hef til að mynda velt fyrir mér varðveislsugildi tungumálsins og hvort nákvæmlega þessar
setningar séu þess virði að þær varðveitist,“ segir Leifur Ýmir um setningarnar sem hann hefur valið að skrifa.