Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Rejúníon nefnist nýtt íslenskt leikrit
eftir Sóleyju Ómarsdóttur í leik-
stjórn Árna Kristjánssonar sem leik-
hópurinn Lakehouse frumsýnir í
Tjarnarbíói annað
kvöld, föstudag,
kl. 20.30. Sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá leik-
húsinu gerist
verkið, sem er
fyrsta leikrit höf-
undar í fullri
lengd, í íslenskum
samtíma og varp-
ar ljósi á málefni
sem sjaldan eru í
deiglunni, þ.e. fæðingarþunglyndi,
barneignir, sambönd og samfélags-
pressu.
„Verkið fjallar um Júlíu, sem er
ekta íslensk ofurkona sem gefur sig
110% í allt sem hún tekur sér fyrir
hendur. Hún er eftirsóttur ferlafræð-
ingur með eigið ráðgjafarfyrirtæki
en nýtt hlutverk hennar í lífinu hefur
reynst henni krefjandi, það er
móðurhlutverkið. Í stað þess að horf-
ast í augu við erfiðleika sem fylgja
nýja lífinu tapar hún sér í ferlagrein-
ingu, bollakökubakstri og í hlutverki
sínu sem Snapchat-stjarna. Þegar
óumflýjanlegar breytingar vofa yfir
hjá fjölskyldunni reynir hún að end-
urnýja tengslin við æskuvinukonu
sína. Saman ætla þær að skipuleggja
grunnskólarejúníon aldarinnar,“
segir Árni. Með hlutverk Júlíu fer
Sólveig Guðmundsdóttir, vinkonu
hennar leikur Sara Martí Guðmunds-
dóttir og eiginmann Júlíu leikur Orri
Huginn Ágústsson.
Reynir að gera hið ómögulega
Spurður hvað við Rejúníon hafi
heillað hann segir Árni að líkt og
margir Íslendingar glími Júlía við
óraunhæfar væntingar um eigin
frammistöðu. „Júlía er að reyna að
gera hið ómögulega, sem er að vera
fullkomin í öllu sem hún tekur sér
fyrir hendur,“ segir Árni og tekur
fram að sökum þess hversu vel plott-
að verkið sé frá höfundarins hendi
með endalausum hvörfum vilji hann
ekki gefa of mikið upp til að spilla
ekki upplifun væntanlegra áhorf-
enda.
„Þessi sýning hefur átt sér langan
aðdraganda. Handritavinnan komst
á fullt skrið í mars í fyrra, við völdum
leikara í hlutverkin í fyrrahaust og
vorum með vinnusmiðju í vor. Í raun
má segja að meðgangan hafi verið
fremur löng,“ segir Árni og rifjar upp
að þau Sóley hafi kynnst fyrir fjórum
árum þegar hún sótti hjá honum höf-
undanámskeið í Tjarnarbíói.
„Þetta var námskeið með fókus á
endurskrif. Kenning námskeiðsins
var að margir höfundar búi yfir
ástríðunni til að skrifa fyrsta upp-
kast, en skorti verkfærin og drif-
kraftinn til að vinna áfram með verk-
ið sem lendir þá iðulega bara ofan í
skúffu. Með þessum fókus þróuðu
nemendur handrit sín og eitt varð að
sýningu strax. Sóley var þá að vinna
með annað verk, en ég sá strax að þó
að hún væri ekki með neinn grunn
sem leikritahöfundur bjó hún yfir
flottum hæfileika til að taka við hug-
myndum, ábendingum og gagnrýni
og vinna markvisst úr henni á sama
tíma og hún heldur sínum stíl full-
komlega. Samtímis bjó texti hennar
yfir ákveðnum tón sem maður finnur
ekki hjá hverjum sem er,“ segir Árni
og minnist þess að nokkru eftir nám-
skeiðið hafi Sóley boðið sér að vera
með innlegg á öðru skrifkvöldi.
Hreifst af stíl höfundar
„Þar var um að ræða viðburð undir
yfirskriftinni „Haltu kjafti og skrif-
aðu“ þar sem fólk hittist til að skrifa
saman í þögn. Þar sýndi hún mér
frumdrögin að Rejúníon sem Sóley
var þá búin að vinna í um tíma en var
enn á grunnstigi. Ég hreifst af stíl
hennar sem höfundar og umfjöll-
unarefninu sem snerti við mér og ég
vissi að myndi snerta við Hörpu líka,“
segir Árni og vísar þar til tónlistar-
konunnar Hörpu Fannar Sigur-
jónsdóttur meðstofnanda að Lake-
house sem semur tónlist og hljóð-
mynd fyrir Rejúníon ásamt því að
ritstýra handritinu.
„Í framhaldinu buðum við Sóleyju
til samstarfs og unnum að handritinu
í hálft ár áður en við sóttum um styrk
hjá leiklistarráði,“ segir Árni og rifj-
ar upp að styrkumsóknin hafi verið
send af fæðingardeildinni því Harpa
og Árni eignuðust frumburð sinn í
október 2017. Þess má geta að Lake-
house hlaut hæstan styrk til atvinnu-
leikhópa fyrir árið 2018 samkvæmt
tillögu leiklistarráðs eða ríflega 10
milljónir króna. „Þetta var í fyrsta
sinn sem Lakehouse hlaut þennan
styrk, þannig að þetta eru spennandi
tímar,“ segir Árni en Rejúníon er
fjórða uppfærsla Lakehouse frá
stofnun félagsins 2016.
„Sóley er með mjög góðan húmor
og einstaklega flink að plotta fram-
vinduna með óvæntum tengingum
sem víkka skilning manns. Leikar-
arnir hafa líka staðið sig mjög vel í
því að skerpa á hverri senu og setn-
ingu,“ segir Árni og bætir við að
framlag leikaranna í sköpunarferlinu
hafi verið óvenjumikið.
„Þau hafa öll þrjú mikla reynslu af
því að vinna að nýjum leikverkum.
Sara er hörkuleikstjóri, Sólveig hefur
varla unnið í verkefni án þess að þróa
handritið í því og Orri er líka vanur
leikari og leikstjóri. Þess utan búa
þau yfir nauðsynlegri lífsreynslu,
sem passar vel inn í umfjöllunarefnið.
Í mínum huga eru þau ekki bara leik-
arar heldur miklir listamenn sem
hafa haft mótandi áhrif á handritið.“
Taka meiri áhættu
Aðspurður segir Árni spennandi
fyrir sig sem leikstjóra að fá fyrstur
að setja nýtt leikrit á svið. „Eitt af því
sem er skemmtilegast við að setja
upp nýtt íslenskt verk er að manni
þykir svo vænt um að það hafi orðið
til, því það er ekkert sjálfgefið,“ segir
Árni og tekur fram að hann skynji
mikla grósku meðal íslenskra leik-
skálda nú um stundir. „Það er ákveð-
in blómatíð hjá íslenskum leik-
skáldum nákvæmlega núna. Það eru
margir að koma fram sem eru að
skrifa mjög áhugaverð ný verk og
nýjar raddir sem heyrast, sem er já-
kvætt fyrir íslenskt leiklistarlíf.“
Spurður hvort hann líti á sig sem
ljósmóður Rejúníon svarar Árni því
umsvifalaust neitandi. „Þetta er góð
myndlíking, en ég ber alltof mikla
virðingu fyrir ljósmæðrum til að geta
líkt mínu starfi við þeirra,“ segir Árni
og tekur fram að hlutur Hörpu í
dramatúrgískri vinnu verksins sé
ekki minni en hans. „Mitt hlutverk
hefur meira verið handritaráðgjafi
um hvert bæri að stefna næst, en
stöðugur yfirlestur Hörpu og ábend-
ingar hennar hafa verið aðalelds-
neytið í endurskrifunum. Það hefur
síðan verið áhugavert að sjá hvernig
það færist yfir í tónsmíðar hennar
fyrir uppfærsluna.“
Inntur eftir því hvernig hann nálg-
ist verkið sem leikstjóri segist Árni
alltaf leita að sterkum og óvæntum
andstæðum. „Þar sem Sóley gefur
okkur í verkinu mjög natúralískan
heim sem auðvelt er að tengja við, þá
hefur það í raun frelsað okkur frá því
að vera með vask og þvottavél í leik-
myndinni. Vegna þess hversu vel
jarðtengt verkið er þá veitir það okk-
ur færi á að fara lengra sem lista-
menn og taka meiri áhættur.
Kallar á líkamlega nálgun
Ég hef allan tímann verið meðvit-
aður um að verkið kallaði á mjög lík-
amlega nálgun og þess vegna fékk
ég Völu Ómarsdóttur til liðs við mig,
en hún er hreyfileikstjóri verksins.
Við höfum þannig verið að skoða
hvar verkið brýst frá natúralism-
anum og verður að einhverju sem
áhorfendur gætu ekki séð á Netflix
heima hjá sér,“ segir Árni og tekur
fram að eitt af því sem hann skoði
sem leikstjóri sé samspil verksins
við leikrýmið sjálft. „Ólíkt því sem
var þegar við settum upp Í sam-
hengi við stjörnurnar á sama stað í
fyrravor verður áhorfendum ekki
raðað upp hringinn í kringum leik-
rýmið. Að þessu sinni vinnum við
með lengd salarins sem kallast á við
tískupallinn sem gegnir lykilhlut-
verki í uppfærslunni og kallast á við
upplifun margra nútímamæðra.“
Ekki er hægt að sleppa Árna án
þess að grennslast fyrir um það fyr-
ir hverja Rejúníon sé. „Ég myndi
segja að þetta væri sýning fyrir
mæður og alla sem þeim tengjast.
Án gríns þá held ég að þetta sé sýn-
ing sem tali til mjög skýrs mark-
hóps sem heilt samfélag þarf engu
að síður að geta skilið. Ég held því
að sýningin sé jafnáhugaverð fyrir
þá sem þekkja efnið af eigin raun og
fyrir þá sem skilja ekki hvers vegna
besta vinkonan varð fjarlæg þegar
hún eignaðist barn eða hvers vegna
vinaparið hvarf inn í hreiður, sem
getur verið yndislegt en líka erfitt.
Það er í raun ósanngjarnt hversu
mikið tabú fylgi því að tala um erf-
iðu tilfinningarnar inni í hreiðrinu.“
Þess má að lokum geta að næstu
sýningar verða 2., 5. og 9. desember
kl. 20.30 alla daga.
Ljósmynd/Juliette Rowland
Móðurhlutverkið krefjandi Sólveig Guðmundsdóttir fer með hlutverk Júlíu í Rejúníon eftir Sóleyju Ómarsdóttur.
Glíma við óraunhæfar væntingar
Lakehouse frumsýnir Rejúníon eftir Sóleyju Ómarsdóttur í Tjarnarbíói annað kvöld kl. 20.30
Leikstjórinn Árni Kristjánsson skynjar mikla grósku meðal íslenskra leikskálda nú um stundir
Árni
Kristjánsson