Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 68

Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Valdbeiting í þágu listarinnar Þvingun Marlon Brando og Maria Schneider í nauðgunaratriðinu í Last Tango in Paris. Margir áratugir liðu þar til hið sanna kom í ljós, að Schneider hefði ekki vitað af smjörinu og grátið raunverulegum tárum í atrðinu. myndin er góð er sumsé réttlætan- legt að blekkja, misþyrma og fara illa með leikkonur. Í fimm ára gömlu viðtali við hol- lenskan sjónvarpsmann, Wijbrand Schaap, segist Bertolucci leiður yfir því að Schneider hafi lagt fæð á hann eftir þetta, hatað hann hreinlega það sem eftir var ævi hennar en hún lést úr krabbameini árið 2011. En að öðru leyti virtist hann ekki sjá eftir neinu. Spurningin sem gleymdist í viðtalinu er þessi: Myndir þú, Bern- ardo Bertolucci, vilja að Marlon Brando girti niður um þig og træði smjöri upp í rassinn á þér, án nokk- urrar viðvörunar eða útskýringar? Líklega hefði leikstjórinn ekki verið til í það. The Last Tango in Paris var frumsýnd árið 1972 en það var ekki fyrr en árið 2007 sem Schneider sagði frá því hvað Brando og Berto- lucci gerðu henni, í viðtali við enska götublaðið Daily Mail. Schneider sagðist hafa grátið við tökurnar af reiði og niðurlægingu og liðið að vissu leyti eins og henni hefði verið nauðgað í raun og veru af leikar- anum og leikstjóranum. Brando hefði ekki huggað hana að töku lok- inni eða beðist afsökunar. „Ég hefði betur hringt í umboðsmanninn minn eða beðið lögmann að koma á töku- stað því það má ekki þvinga fólk til að gera eitthvað sem er ekki í hand- ritinu. En á þessum tíma vissi ég það ekki,“ segir Schneider í viðtalinu. Mörg ljót dæmi Last Tango in Paris fjallar um miðaldra og niðurdreginn Banda- ríkjamann sem kynnist konu í París sem er um 30 árum yngri en hann. Hann vill eingöngu eiga í holdlegu sambandi við hana og í sem stystu máli fær hann sínu framgengt, líkt og svo margir karlkyns leikstjórar kvikmyndasögunnar. Dæmin eru mörg. Í áhugaverðri grein Ruby nokkurrar Hamad í Sydney Morning Herald, Morgun- blaðinu í Sydney, eru nokkur talin upp. Stanley Kubrick var tólf mán- uði að taka upp The Shining og þurfti leikkonan Shelley Duvall að gráta nær látlaust í tökum í níu mán- uði, tólf tíma á dag. Álagið var svo mikið að hún var meira eða minna veik í hálft ár, að eigin sögn, al- gjörlega örmagna. Annað stór- menni, Alfred Hitchcock, var álíka áhugalaust um heilsu aðalleikkonu sinnar í The Birds, Tippi Hedren. Í einu atriða myndarinnar, þar sem fuglager ræðst á aðalpersónuna uppi á háalofti, notaði leikstjórinn raun- verulega fugla og batt meira að segja einhverja fasta við leikkonuna. Fuglarnir réðust að leikkonunni í raun og veru og hlaut hún skurði og skrámur svo blæddi úr. Hedren sagði síðar frá því að Hitchcock hefði ekki varað hana við, haldið henni í andlegu fangelsi og hótað að eyði- leggja feril hennar ef hún væri með mótþróa. Hræðilegt kynlífsatriði Eitt dæmið enn (hægt væri að telja upp fleiri) og það nýlegasta af þeim sem hér verða nefnd, er svo valdbeiting franska leikstjórans Ab- dellatif Kechiche við tökur á verð- launamyndinni La vie d’Adéle frá árinu 2013. Í myndinni segir af ástarsambandi tveggja ungra lesbía sem leiknar eru af Léa Seydoux og Adéle Exarchopoulos og hlaut myndin mikið lof og verðlaun, m.a. Gullpálmann, aðalverðlaun kvik- myndahátíðarinnar í Cannes. Tökur stóðu yfir í hálft ár og voru starfs- menn gjörsamlega útkeyrðir, látnir vinna í 16 tíma á dag og sögðu marg- ir upp. Og líkt og með Last Tango in Paris var það einkum eitt atriði sem vakti mesta athygli og umtal áhorf- enda og gagnrýnenda, sjö mínútna langt kynlífsatriði leikkvennanna sem mörgum þótti dansa á mörkum kláms og listar. Í viðtali við vefinn Daily Beast sagði Seydoux að tökur á atriðinu hefðu tekið tíu daga (!). Sagði hún leikstjórann hafa beðið þær að gera eitt og annað sem fæst- um myndi detta í hug að biðja leik- konur að gera. „Guði sé lof að við fengum Gullpálmann því þetta var svo hryllilegt,“ sagði Seydoux í við- talinu. Það kemur líklega engum á óvart að leikstjórinn brást illa við þessari gagnrýni, sagði þjáninguna hluta af listsköpuninni og sakaði leikkonuna um að eyðileggja mynd- ina fyrir sér. Þeir sem telja sig búa yfir heil- brigðri skynsemi og siðferðiskennd hljóta að vera sammála um að aldrei sé hægt að réttlæta ofbeldi, þving- anir eða annars konar brot á leik- konum eða leikurum í þágu listar- innar. Bertolucci heitinn var á öðru máli og verður því ekki aðeins minnst fyrir afrek sín heldur einnig það sem hann gerði hinni ungu leik- konu Mariu Schneider. Vonandi hef- ur #metoo byltingin útrýmt þessari gerð leikstjóra en ef svo er ekki geta unnendur góðra kvikmynda lagt sitt af mörkum með því að sniðganga verk slíkra manna. » Schneider sagðisthafa grátið við tökurnar af reiði og niðurlægingu og liðið að vissu leyti eins og henni hefði verið nauðgað í raun og veru af leik- aranum og leikstjór- anum. Hryllingur Shelley Duvall örvænt- ingarfull í The Shining. Fuglamartröð Tippi Hedren varð fyrir árás fugla í The Birds. Ástarsaga Léa Seydoux og Adéle Exarchopoulos í La Vie d’Adéle. AF LEIKSTJÓRUM Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tveir leikstjórar héldu á vit for-feðra sinna og -mæðra nýver-ið, hinn enski Nicolas Roeg á föstudag og Ítalinn Bernardo Berto- lucci á mánudagsmorgun. Báðir óumdeilanlega áhrifamiklir lista- menn og taldir með stórmennum kvikmyndasögunnar. Bertolucci gerði fjölda kvikmynda en í flestum fréttum voru þó einkum tvær nefnd- ar, tífalda Óskarsverðlaunamyndin The Last Emperor og Last Tango in Paris. Fyrir þá síðarnefndu hlaut Marlon Brando tilnefningu til Ósk- arsverðlauna sem og Bertolucci fyrir leikstjórn en aðalleikkonan, Maria Schneider, var ekki tilnefnd. Hún fékk þó David di Donatello verðlaun- in en hefur mögulega átt erfitt með að fagna þeim þar sem Bertolucci og Brando fóru illa með hana við tökur á kvikmyndinni. Tveir miðaldra karlmenn níddust á 19 ára leikkonu, það er óumdeilt og fræg eru þau um- mæli Brandos við tökur á myndinni að Schneider þyrfti engar áhyggjur að hafa þar sem þetta væri „bara kvikmynd“. Nauðgun með smjöri Og hvert var níðingsverkið? Jú, Brando bað Schneider að ná í smjör- stykki, lagði hana svo á grúfu, hélt henni niðri, girti niður um hana, tróð smjöri upp í rassinn á henni og nauðgaði henni svo í endaþarm. Að vísu – og sem betur fer – ekki bók- staflega en engu að síður var leik- konan beitt valdi, látin taka þátt í þessu gegn vilja sínum. Þetta ógeðs- lega atriði átti ekki að vera í kvik- myndinni upphaflega en Bertolucci bætti því við og þeir Brando fengu svo þá „frábæru“ hugmynd að bæta við smjöri. Einhverra hluta vegna átti það að gera atriðið betra. Síðan var ákveðið að láta Schneider ekki vita af smjörinu. Og hvers vegna? Jú, Bertolucci var svo mikill lista- og raunsæismaður að hann vildi fá al- vöru viðbrögð frá leikkonunni. Hún mátti ekki leika að hún væri undr- andi og síðan grátandi af sársauka, ótta og niðurlægingu yfir ofbeldinu sem miðaldra elskhugi hennar beitti hana. Allt í þágu listarinnar. Sá ekki eftir neinu Þeir sem halda að þetta sé lyga- saga geta horft á viðtöl á YouTube þar sem Bertolucci viðurkennir að þeir Brando hafi leynt þessu fyrir leikkonunni til að fá raunveruleg við- brögð. Schneider vissi á síðustu stundu að nauðgunaratriði hefði ver- ið bætt við en hún vissi ekki af smjörinu. Og spurður að því hvort hann sæi eftir því að hafa farið svona með leikkonuna sagði Bertolucci nei, hann sæi ekki eftir því vegna þess að útkoman hafi orðið svo góð. Ef kvik-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.