Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Jón Gunnarsson var á sinni tíð
áhrifa- og umsvifamikill í íslensku
viðskiptalífi, stýrði Síldarverksmiðju
ríkisins og byggði síðan upp fisksölu-
fyrirtæki vestan hafs sem varð
stærsta fyrirtæki Íslendinga í útlönd-
um. Jakob F. Ásgeirsson, rithöf-
undur og útgefandi, hefir ritað sögu
Jóns og gefið út.
— Jón Gunnarsson var þekktur
maður á sinni tíð og umdeildur, en
færri þekkja nafn hans í dag. Hver
var Jón Gunnarsson?
„Jón Gunnarsson var goðsögn í lif-
anda lífi, en hann er því miður flest-
um gleymdur nú um stundir. Hann
var maðurinn sem hélt einsamall til
Bandaríkjanna eftir heimsstyrjöldina
síðari, stofnaði fisksölufyrirtækið
Coldwater og setti á fót stóra fisk-
réttaverksmiðju þar sem íslenskur
fiskur var framleiddur í neytenda-
umbúðir og seldur út um öll Banda-
ríkin. Þetta var ótrúlegt afrek á sín-
um tíma og ekki síðra ævintýri en
Loftleiðaævintýrið. En það er ekkert
rómantískt við framleiðslu og sölu á
frystum fiski og Jón varð aldrei hetja
í almenningsálitinu eins og þeir Loft-
leiðamenn. Afrek hans hafði þó meiri
þjóðhagslega þýðingu, því að hrað-
frysting sjávarafurða var burðarás
efnahagslífsins á Íslandi í 3-4 áratugi.
Jón var áður framkvæmdastjóri
Síldarverksmiðja ríkisins þegar síld-
arvinnsla var undirstaða þjóðarbús-
ins. Það var á kreppuárunum og í
heimsstyrjöldinni síðari, en þá höfðu
saltfisksmarkaðir lokast og hrað-
frystingin var á frumstigi. Bókin um
Jón er því öðrum þræði mikil at-
vinnusaga, þótt fókusinn sé vitaskuld
á Jóni og hans mikla framfarahug og
eljusemi.
Jón var af skagfirskum ættum,
fæddist aldamótaárið 1900, en ólst
upp í Húnavatnssýslu. Hugur hans
hneigðist snemma til mennta. Hann
fór í Samvinnuskólann þar sem Jónas
frá Hriflu réð ríkjum. Jónas reyndist
honum betri en enginn. Jón hélt síð-
an til náms í Noregi og Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrir lítil efni gerði Jón
sér lítið fyrir og lauk prófi í verkfræði
frá MIT, fremsta verkfræðiháskóla
heims, árið 1930.
Prófið frá MIT opnaði honum þó
engar dyr hér heima. Embættis-
mennirnir og verkfræðingarnir í
Reykjavík tortryggðu Jón vegna
tengslanna við Jónas, sem þeir fyrir-
litu, og líka vegna náms hans í
Bandaríkjunum, sem þeir töldu síðra
en þeirra nám í Danmörku og Þýska-
landi. Jón fékk jafnvel ekki strax inn-
göngu í Verkfræðingafélag Íslands.
Ekkert starf bauðst þessum há-
menntaða manni og fór svo að hann
gerðist hænsnabóndi í Selásnum um
hríð.
En Jónas frá Hriflu var staðráðinn
í að veita nemanda sínum braut-
argengi. Hann sá um síðir til þess að
Jón var ráðinn forstjóri Síldarverk-
smiðja ríkisins sem var stærsta fyr-
irtæki landsins í þá daga. Jón stýrði
SR farsællega á miklu vaxtarskeiði í
sögu fyrirtækisins í átta ár uns hann
gekk í raðir SH-manna lýðveldisárið
1944.“
— Líkt og vera vill með atorku-
menn, þá var Jón oft umdeildur, eins
og fram kemur í bókinni, bæði sem
framkvæmdastjóri SR og hjá SH og
Coldwater. Að hve miklu leyti áttu
slíkar krytur pólitískar rætur og að
hve miklu leyti persónulegar?
„Já, það léku stormar um Jón. Mér
sýnist að það hafi oftar en ekki verið
af litlu tilefni. Jón var kappsamur og
atorkusemi hans gerði það vissulega
að verkum að hann eignaðist óvild-
armenn. Velgengni hans kallaði líka á
öfund. Þá var hatrömm stjórnmála-
barátta altumlykjandi á þessum ár-
um. Jón stóð jafnan fast gegn af-
skiptum afskiptasamra stjórn-
málamanna af ríkisfyrirtækinu SR
og það aflaði honum ekki vinsælda.
Sjálfur var hann lítt pólitískur. Þá
var Jón fráhverfur öllum undir-
málum og hann smjaðraði ekki fyrir
fólki til að vinna það á sitt band.
Hann var fyrst og fremst maður at-
hafna og stórhuga framkvæmda og
bjó yfir þeim einstaka hæfileika að
geta leitt hjá sér persónuleg árás-
arskrif. Hann leit svo á að flest af því
væri tilhæfulaust eða byggt á van-
þekkingu og því ekki svaravert. Hans
hugur var allur í athöfnunum: Áfram,
áfram! var hans mottó.“
— Í bókinni má lesa að Jón hafi
ekki notið sannmælis að öllu leyti í
sögu SH. Var það ástæða fyrir því að
ævisaga hans er rituð?
„Það má kannski segja það. Ég
skrifaði fyrir nokkrum árum litla bók
um Jóhannes Einarsson verkfræðing
og framkvæmdastjóra hjá Loftleið-
um og Cargolux, en hann stýrði verk-
smiðju Coldwater í Bandaríkjunum.
Jóhannes var ósáttur við ýmislegt í
sögu SH. Hann hvatti fjölskyldu Jóns
til að fá mig til að skrifa ævisögu
Jóns. Jóhannesi fannst ótækt að saga
þessa mikla frumkvöðuls í atvinnu-
sögu Íslendinga hefði ekki verið fest
á blað. Ég vissi ekki mikið um Jón, en
hreifst mjög af honum þegar ég fór
að kynna mér heimildir.
Jón er að mínu viti einn mikilvæg-
asti maður í atvinnusögu landsins á
tuttugustu öld. Farsæl stjórn hans á
SR skipti miklu máli á erfiðleikatím-
um í þjóðarsögunni og uppbyggingin
vestan hafs hefði ekki orðið með
sama hætti án hans atbeina. Það var
bókstaflega enginn maður í landinu
sem var fær um að gera það sem Jón
gerði af eigin rammleik í Bandaríkj-
unum á fyrstu eftirstríðsárunum. Jón
hafði til að bera það sem þurfti:
kjarngóða menntun, mikla stjórn-
unar- og rekstrarreynslu, góða
enskukunnáttu og hann þekkti vel til
í Bandaríkjunum eftir nám sitt og
störf þar í landi. Og þar nutu sín hans
miklu eðliskostir - óbilandi kjarkur
og dugnaður, stórhugur og sannfær-
ingarkraftur.
Því miður voru ekki allir sam-
ferðarmenn hans í SH á sömu bylgju-
lengd og hann lét af störfum allt of
fljótt. Það varð hallarbylting í SH ár-
ið 1962 eins og ég fjalla um í bókinni.
En Jón naut þess að starfa náið með
tveimur öðrum stórhuga afreks-
mönnum í sjávarútvegi, Sveini Bene-
diktssyni og Einari ríka Sigurðssyni.
Sveinn stóð einarðlega við bakið á
Jóni í SR og Einar lengst af í SH.“
— Þú hefur skrifað nokkrar ævi-
sögur, hvert er næsta ævisöguverk-
efni þitt?
„Já, það er rétt, bókin um Jón
Gunnarsson er fjórða stóra ævisagan
sem ég skrifa. Áður hef ég skrifað um
Alfreð Elíasson, flugstjóra og for-
stjóra Loftleiða, Pétur Benediktsson,
sendiherra og bankastjóra, og Valtý
Stefánsson, ritstjóra Morgunblaðsins
og skógræktarfrömuð. Allir voru
þeir, eins og Jón, kappar miklir sem
settu mikinn svip á íslenskt samfélag
á tuttugustu öld með athöfnum sín-
um og persónuleika. Næstur í röðinni
er dr. Bjarni Benediktsson, prófess-
or, borgarstjóri og forsætisráðherra,
en ævisaga hans er óskrifuð. Ég
hlakka mikið til að takast á við það
verkefni.“
Áfram,
áfram! var
hans mottó
Í nýrri bók rekur Jakob F. Ásgeirs-
son ævi Jóns Gunnarssonar sem hann
segir hafa verið goðsögn í lifanda lífi
Morgunblaðið/RAX
Kappar Bókin um Jón Gunnarsson er fjórða stóra ævisagan sem Jakob F. Ásgeirsson skrifar.
Samhent Jón Gunnarsson og eiginkona hans, Lína, Hólmfríður Sigurlína
Björnsdóttir, um borð í breska farþegaskipinu Queen Elizabeth.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Bamix töfrasproti
Verð 33.900 kr.
Lyngás
Breiðhöfða
Grjóthálsi
Fiskislóð
nesdekk.is / 561 4200
REYKJAVÍK | GARÐABÆR | REYKJANESBÆR | AKUREYRI
Láttu
fagmenn
dekkja
bílinn!