Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 29.11.2018, Qupperneq 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík • Frábær staðsetning, göngufæri við Playa Flamenca ströndina, La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og laugardagsmarkaðinn • Vandaðar íbúðir með sérgarði, stórum svölum eða þaksvölum • Val um 2 eða 3 svefnherbergi og 1 eða 2 baðherbergi • Bílakjallari • Lokað svæði með sundlaugargörðum, göngustígum og hlaupabrautum, líkamsræktaraðstöðu o.fl. • Kaffihús/bar og ýmis þjónusta í fallegu grónu umhverfi inni á svæðinu Flamenca Village FORSALA - FORSALA - FORSALA Flamenca Village, íbúðirnar sem beðið hefur verið eftir eru nú að koma í sölu. Dásamlegt þorp við Miðjarðarhafið. Skráið ykkur á forsölulistann - Fyrstir fá að velja bestu eignirnar VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrir stuttu gaf bókaforlagið Partus út bókina Kláði, sem hefur að geyma smásögur eftir Fríðu Ísberg. Fríða átti áður ljóð í ljóðasöfnunum Ég er ekki að rétta upp hönd og Ég er fagnaðarsöngur, sem komu út á síð- asta ári, og ljóðabókin Slitförin kom út sama ár. Hún segist hafa skrifað smásögur árum saman, samið þær samstiga ljóðum, en þetta er í fyrsta sinn sem sögur eftir hana eru gefnar út, „Kláðinn, titill bókarinnar, kom frekar snemma á síðasta ári og þá byrjaði ég markvisst að vinna með málefni sem sögupersónur mínar gæti klæjað undan. Það er gott að klóra sér og það er líka vont — lang- tímalausnin er að láta kláðann í friði, en skammtímalausnin er að klóra sér. Ég er að vinna með þetta, til dæmis það að gefa undan, að láta undan freistingum þegar maður veit að maður ætti að láta þær í friði.“ — Gott dæmi um það er í sögunni „Fingur“ þegar sögupersónan klór- ar sér til blóðs á vinstri baugfingri og hægri löngutöng: hjónabands- fingrinum og fokkjúputtanum. Það leysir ekki hennar vandamál að klóra sér, í eiginlegri eða óeiginlegri merkingu. „Hún er að leita að skammtíma- lausnum við því vandamáli að kom- ast í samband og skammtímalausn- irnar eru ekkert að virka, hana klæjar bara meira og meira — það er það sem gerist þegar maður klór- ar sér á kláðabletti, hann verður verri og það svíður ennþá meira, þó það sé kannski gott til að byrja með. Sama má segja um marga, í sein- ustu sögunni þá er það sorg, sögu- persónan er búin missa tvíbura- bróður sinn og sleppir ekki sorginni. Þar af leiðandi fer hún að bregðast líkamlega við á svo skrýtinn hátt. Það er svo sjaldan farið í langtíma- lausnina, að leyfa kláðanum að dofna með tímanum.“ Klæjað undan samfélaginu — Í sögunni „Einmitt“ segir skemmtilega frá þeim Inga og Sigga sem tengjast í gegnum lestur á On the Road eftir Jack Kerouac. „Þessir tveir strákar eru að vissu leyti andstæður, ég tengi svo mikið við þá báða, það er partur af manni sem vill affirrast, vill ná tengingu, en þegar það er farið út í öfgar af- neitar maður því. Þá klæjar undan samfélaginu, þeir vilja öðlast dýpri skilning og vilja báðir tengjast um- hverfinu betur en kunna það ekki, ná því ekki. Þessi saga snýst líka um það að það er búið að selja okkur upplifunina, nú er upplifunin orðin svo mikil söluvara. Við eigum að læra að tengjast okkur sjálfum og heiminum meira með upplifuninni en síðan þegar við erum komin út í sjálfa upplifunina erum við ennþá jafn dofin.“ — Vegna þess að það er ekki hægt að kaupa þetta. „Já, einmitt, það er ekki hægt að kaupa þetta og við höldum að það sé bráðabirgðalausn.“ — ... og erum líklegri til að telja að það sé eitthvað að okkur, frekar en að það sé eitthvað að lausninni. „Það er satt, algerlega. Síðan er þessi aðalkarakter, það er búið að hægja aðeins á honum, hann er orð- inn þrítugur, kominn með konu og barn og líður í smástund eins og hann hafi misst af hinni lestinni, misst af upplifuninni, misst af því að jarðtengjast, að hann sé firrtur með fjölskyldulífinu, sem er alls ekki málið, það er ekkert verra en eitt- hvað annað. Endurtekningin getur verið jarðtengingin, að dvelja í augnablikinu og geta lifað endur- tekninguna og tekið eftir smá- atriðum í leiðinni.“ — Ertu með skáldsögu í koll- inum? „Já, ég er að skrifa skáldsögu, en það má ekki gera lítið úr smásögum. Ég er búin að fá svo margar spurn- ingar um skáldsöguna að ég fæ reglulega mótþróaköst, mér verður skapi næst að segja: heyrðu, nei, ég ætla bara að skrifa smásögur og ljóð, af því mér líður svo mikið eins og fólk sé að segja: nú ertu búin með menntaskólann í ljóðum og síðan ertu búin með BA-gráðuna í smá- sögum og nú ertu komin á masters- stigið. Það er rosalega pirrandi þeg- ar maður fær þessa spurningu úr svo mörgum áttum og finnur fyrir því viðhorfi að smásagan sé bara stökkpallur. Núna er Guðrún Eva með frábært smásagnasafn, Þórdís Helga með æðislegt smásagnasafn, hún er með rödd sem ég hef ekki séð á Íslandi, og Friðgeir með sitt annað smá- sagnasafn. Það er svo mikið að gerast í smá- sögunni úti í heimi, til dæmis í Bret- landi og Bandaríkjunum, þar er samtal að eiga sér stað í því bók- menntaformi, einhvers konar fram- þróun, og maður finnur fyrir að hér er þetta samtal að byrja líka. Mér finnst smásagnasafnið hafa það fram yfir skáldsöguna að rithöf- undar geta notað þetta tól til að hafa margar raddir, til að tala fyrir minnihlutahópa og að nálgast mál- efni frá mörgum áttum. Smásagna- safnið verður að kór í staðinn fyrr einsöng og það verður oft svo flott i krafti kórsins ef það er gert vel.“ Smásagnasafnið verður að kór  Í nýju smásagnasafni segir Fríða Ísberg af fólki sem grípur alltaf til skammtímalausnarinnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Kór Í Kláða fjallar Fríða Ísberg um það að láta und- an freistingum sem maður ætti að láta í friði. Líffræðikennarinn fyrrverandi Stephen Hillenburg, sem varð frægur fyrir að skapa Svamp Sveinsson, eina vinsælustu teikni- myndafígúru síðustu ára, og skrautlegt persónugallerí í kring- um hann á hafsbotni, er látinn 57 ára að aldri. Banamein hans var hreyfitaugahrörnun eða ALS en Hillenburg var greindur með sjúk- dóminn í fyrra. Teiknimyndirnar um Svamp Sveinsson slógu í gegn í sjónvarpi en einnig í kvikmyndaformi; Hillen- burg leikstýrði sjálfur kvikmynd- inni The SpongeBob SquarePants Movie sem kom á markað árið 2004. Margir í dægurheiminum, teikn- arar jafnt sem leikarar, hafa vottað minningu Hillenburg virðingu á samfélagsmiðlum. Strandvarða- stjarnan David Hasselhof, sem lék í fyrrnefndri kvikmynd, sagði til að mynda að missirinn væri mikill og að hinn látni hefði skapað einstaka og stórkostlega karaktera. Höfundur Svamps Sveinssonar látinn AFP Hæfileikaríkur Teiknarinn Stephen Hil- lenburg skapaði vinsæla karaktera. Sjónvarpsefnis- veitan Netflix hefur samið við dánarbú barna- bókahöfundarins Roalds Dahl um að framleiða og sýna teiknimynd- araðir sem byggjast á mörg- um hans vinsæl- ustu sögum. Framleiðsla þáttanna hefst á næsta ári og meðal verka sem verða framleidd má nefna Matilda – leikgerð sögunnar verður senn frumsýnd í Borgarleikhúsinu, The BFG, Kalli og sælgætisgerðin og The Twits. Í yfirlýsingu frá Netflix segir að við gerð þáttanna verði anda og tóni sagna Dahl sýnd full virðing. Ekkja hans, Felicity Dahl, lýsir verkefninu sem nýjum og spenn- andi kafla í heimi sagnanna og seg- ir að Roald hefði verið spenntur. Sögur Roalds Dahl njóta mikilla vinsælda hjá yngri lesendum víða um lönd. Yfir 200 milljónir bóka hafa verið seldar og sögurnar þýddar á 58 tungumál. Netflix gerir þætti eftir sögum Dahl Roald Dahl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.