Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 79

Morgunblaðið - 29.11.2018, Page 79
MENNING 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2018 Kvenfólk eftir Eirík G.Stephensen og HjörleifHjartarson í hljómsveit-inni Hundur í óskilum er þriðja sýningin frá Leikfélagi Akureyrar (LA) sem undirrituð sér á fjölum Borgarleikhússins á síðustu fjórum árum, en árið 2014 rataði Gullna hliðið suður og ári seinna Öldin okkar. Þegar leiðin liggur alltof sjald- an í höfuðstað Norðurlands er þakkarvert að LA veiti höfuðborgar- búum kost á að njóta afbragðssýninga á heimavelli. Gott orð hefur farið af Kvenfólki síðan sýningin var frum- sýnd norðan heiða í leikstjórn Ágústu Skúladóttur fyrir rúmu ári – og ekki að ástæðulausu. Þríeykið vinnur aug- ljóslega afskaplega vel saman þar sem hugmyndaauðgin fær notið sín með kímnina að leiðarljósi á sama tíma og samfélagsádeilan er aldrei langt und- an. Kvenfólk mun vera síðasti hluti þrí- leiks Hunds í óskilum sem hófst með Sögu þjóðar 2012, þar sem félagarnir fóru á hundavaði í gegnum Íslands- söguna, og hélt áfram í Öldinni okkar 2015, þar sem þeir horfðu til atburða 21. aldarinnar með fókus á efnahags- hrunið 2008 og afleiðingar þess. Í öll- um þremur sýningum leikur húmor- inn lykilhlutverk, en óhætt er að segja að Eiríkur og Hjörleifur séu nokkurs konar hirðfífl þjóðarinnar sem leyfist að gagnrýna menn og málefni með bros á vör og sakleysisblik trúðsins í augum áhorfendum til ómældrar skemmtunar – og stundum jafnvel undrunar. Eftir að hafa sökkt sér fyrst ofan í Íslandssöguna og síðan samtímasöguna hafa tvímenningarnir dregið þá „rökréttu“ ályktun að konur hafi ekki komið til Íslands fyrr en laust fyrir aldamótin 1900 og í Kven- fólki deila þeir uppgötvun sinni með áhorfendum og greina í framhaldinu sögu kvenna og kvennabaráttunnar hérlendis með nokkrum vel völdum vísunum út fyrir landsteinana. Eiríkur og Hjörleifur leggja út af fortíðinni með bráðskemmtilegum hætti þar sem ólíkir tímar mætast með skapandi hætti. Í meðförum þeirra er auðvelt að sannfærast um að Íslendingasögurnar hafi beinlínis ver- ið skrifaðar af munkum á miðöldum sem viðvörun við því hvaða afleið- ingar það gæti haft að hleypa konum til Íslands, enda gripu menn, að þeirra sögn, til íþyngjandi reglugerða til að stemma stigu við landnámi kvenna. Beitt er ádeilan þegar orð- ræða samtímans um óæskilega fjölg- un útlendinga sem ræni af heima- mönnum störfunum fyrir mun lægra kaup er snúið upp á konur. Víða er komið við í yfirferð tví- menninganna og áhugaverðum mol- um úr veraldarsögunni lætt að áhorf- endum í bland við nýstárlegri túlkanir. Þannig fræðast leikhús- gestir um Olympe de Gouges sem missti höfuðið í frönsku byltingunni eftir að hafa barist fyrir réttindum kvenna og rifjað er upp þegar versl- unarkonunni Vilhelmínu Lever tókst að kjósa í sveitarstjórnarkosning- unum á Akureyri bæði 1863 og 1866 – allnokkrum árum áður en konur fengu formlega kosningarétt hér- lendis. Þá fær hin merka baráttukona Bríet Bjarnhéðinsdóttir sinn skerf, en hún stofnaði sem kunnugt er Kven- réttindafélag Íslands fyrir 111 árum og var ein fjögurra kvenna sem náðu kjöri í bæjarstjórnarkosningunum í Reykjavík 1908. Þó að margar þeirra upplýsinga sem Eiríkur og Hjörleifur bera á borð í sýningunni séu vel þekktar stað- reyndir mátti iðulega heyra andköf áhorfenda og upphrópanir á borð við „Að hugsa sér!“, til dæmis þegar rifj- að var upp að þegar Jóhanna Sig- urðardóttir settist á þing 1978 hafi hún aðeins verið tíunda alþingiskonan hérlendis og að fyrsta verkfall lands- ins hafi verið knúið fram 1912 af konum sem kröfðust sömu launa fyrir sömu vinnu – krafa sem því miður enn er í fullu gildi rúmum hundrað árum síðar. Því eins og þeir félagar benda réttilega á hafa hlutirnir þokast alltof hægt í átt að jafnrétti – þrátt fyrir að við Íslendingar teljum okkur iðulega vera heimsmeistara í kynjajafnrétti (þó að tölurnar segi síðan annað). Á sama tíma og áhorfendur gátu hlegið sig máttlausa yfir skemmtilegheitum Eiríks og Hjörleifs fór þungur undir- tónn sýningarinnar ekki á milli mála, enda ekkert launungarmál að bar- áttan fyrir jöfnum tækifærum og kjörum kynjanna á enn töluvert í land. Umgjörð sýningarinnar sem Íris Eggertsdóttir hannaði gladdi augað í einfaldleika sína. Grunnbúningar tvíeykisins voru svartir kjólar, sem undirstrikuðu þá íhaldssömu hefð sem enn gildir í fatavali, enda klæðast karlmenn almennt ekki pilsum og kjólum. Hvítur þvottur á snúru aftar- lega á sviðinu minnti á aldalangt strit kvenna við heimilisstörfin, en þjónaði einnig sem strigi fyrir myndefni Jóns Páls Eyjólfssonar og glæsilega lýs- ingu Lárusar Heiðars Sveinssonar. Hvítklæddar gínur breyttust með lit- ríkri lýsingu jafnauðveldlega í konur á kvenfélagsfundi og innrásarlið kvenna undir aðalstefinu úr Innrás- inni frá Mars, en hljóðhönnun Gunn- ars Sigurbjörnssonar var vel unnin. Líkt og fyrri daginn leikur tónlistin stórt hlutverk í sýningunni þar sem Eiríkur og Hjörleifur túlka ýmis þekkt erlend lög með sínu nefi, og iðu- lega frumsömdum texta, allt frá „Aquarius“ úr Hárinu, „9 to 5“ eftir Dolly Parton og „Babooshka“ eftir Kate Bush yfir í þekkt íslensk lög á borð við „Ekkert mál“ sem Grýlurnar gerðu frægt, „Pamela“ sem Dúkkulís- urnar sungu um og „Áfram stelpur“ sem varð einkennislag kvennahreyf- ingarinnar á áttunda áratug síðustu aldar. Sérsmíðuð hljóðfæri úr smiðju Eiríks, Ilmar Stefánsdóttur og Jóns Marinós Jónssonar glöddu jafnt augu og eyru. Í mörgum tilvikum var hefð- bundnum vinnutækjum kvenna breytt til tónsköpunar, eins og þegar rokkum var umbreytt í trommur og vefstól fyrst í nokkurs konar langspil og síðan höggstokk. En ólíkt Frökk- um sem brenndu og hálshjuggu sterkar baráttukonur sínar hafa íslenskir karlmenn, að sögn Hunds- ins, gripið til mun árangursríkari leið- ar sem felst í því að þagga konur í hel – sem birtist skýrt í nafnleysi þeirra í gegnum söguna og Hjörleifur syngur um í áhrifaríkum óði til ömmu sinnar. Í ljósi þess að enn hallar á konur innan leikhússins, hvort heldur er í hópi leikskálda, leikstjóra eða burðar- hlutverka, spyr sig vafalítið einhver hvað tveir miðaldra karlar vilja upp á dekk í sýningu um kvenfólk. Því er til að svara að sama er hvaðan gott kem- ur. Hundur í óskilum skilgreinir sig kinnroðalaust sem femíníska hljóm- sveit, en femínisti er einfaldlega karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki enn verið náð og vill gera eitthvað í því. Kyns síns vegna ná Eiríkur og Hjörleifur vafa- lítið eyrum sem kvenkyns femínistar eiga erfiðara með að ná og það er já- kvætt. Á sama tíma eru tvímenning- arnir meðvitaðir um mikilvægi þess að raddir kvenna heyrist. Það birtist skýrt í lokakafla sýningarinnar sem er ótvíræður hápunktur hennar. Hann hefst með upptöku af ræðu Árna Johnsen á Alþingi 1984 í um- ræðu um fæðingarorlof þar sem þing- maðurinn fræddi þingheim um mikil- vægi reglulegrar brjóstagjafar og lauk með magnaðri innkomu kvenna- hljómsveitar sem nefnist Bríet og bomburnar og skipuð er Fríðu Björgu Pétursdóttur, Hrafnhildi Einars- dóttur, Margréti Hildi Egilsdóttur og Unu Haraldsdóttur. Af viðbrögðum leikhúsgesta að dæma komust fleiri við en undirrituð þegar hæfileikakon- urnar ungu tóku sviðið yfir og fluttu vel þekkt lag frá sjöunda áratug síð- ustu aldar sem inniheldur mikilvæga sjálfstæðisyfirlýsingu kvenna sem enn er í fullu gildi. Áfram stelpur Ljósmynd/Auðunn Níelsson Hirðfífl þjóðar Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson eru „nokkurs konar hirðfífl þjóðarinnar sem leyfist að gagnrýna menn og málefni með bros á vör og sakleysisblik trúðsins í augum,“ segir í rýni um Kvenfólk. Borgarleikhúsið Kvenfólk bbbbn Höfundar og flytjendur: Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir. Tónlist: Hundur í óskilum sem Eiríkur G. Steph- ensen og Hjörleifur Hjartarson skipa. Leikmynd, búningar og leikmunir: Íris Eggertsdóttir. Gervi: Soffía Margrét Hafþórsdóttir. Sérsmíðuð hljóðfæri: Eiríkur G. Stephensen, Ilmur Stefáns- dóttir og Jón Marinó Jónsson. Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson. Myndbands- hönnun: Jón Páll Eyjólfsson. Hljóð- hönnun: Gunnar Sigurbjörnsson. Hljóm- sveitin Bríet og bomburnar: Fríða Björg Pétursdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir, Margrét Hildur Egilsdóttir og Una Haraldsdóttir. Raddir: Ólafur Darri Ólafsson og Jón Páll Eyjólfsson. Frum- sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar í Sam- komuhúsinu 29. september 2017, en rýnt í fyrstu sýningu á Nýja sviði Borg- arleikhússins 22. nóvember 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 Mathilde M. - Falleg baðlína og heimilisilmir ICQC 2018-20 Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyr- ir málþingi og sýningu á dansk- íslenskri hönnun í samvinnu við verslunina Epal og sendiráð Dana á Íslandi í dag og er viðburðurinn hluti af dagskrá aldarafmælis full- veldis Íslands og styrktur af af- mælisnefnd og danska menningar- málaráðuneytinu. Málþingið hefst kl. 14 með ávarpi Auðar Hauksdóttur, prófessors í dönsku og á eftir henni setur Eva Egesborg Hansen, sendiherra Dana, málþingið formlega. Af öðr- um sem flytja erindi á málþinginu má nefna Kristján Garðarsson arki- tekt sem fjallar um danska hönnun í Veröld – húsi Vigdísar; Æsu Sigurjónsdóttur, dósent í listfræði, sem flytur erindið „Sigurjón Ólafs- son og Finn Juhl – hugarflug milli höggmyndar og hönnunar“ og Arn- dísi Árnadóttur hönnunarsagn- fræðing sem fjallar um Svein Kjar- val og tengsl hans við danska hönnun. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlesari Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði, er meðal þeirra sem taka þátt. Málþing og sýning á hönnun í Veröld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.