Morgunblaðið - 29.11.2018, Blaðsíða 84
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ERTU AÐ LEITA
AÐ JÓLAGJÖF?
WWW.ILVA.IS/JOLAGJOF
MARVIC blómavasi. Reyklitaður eða glær. 3.495 kr.
AURA borðlampi. Messing eða svartur fótur. 9.995 kr.
Tónleikaröðin Á ljúfum nótum held-
ur áfram göngu sinni í Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag. Tónleikarnir hefjast
kl. 12 og á þeim kemur fram djass-
sveitin Mantra og flytur þekkta
djassstandarda og frumsamin lög í
bland við framandi möntrur.
Mantra er skipuð Aroni Steini Ás-
bjarnarsyni, Erni Ými Arasyni, Gísla
Gamm og Gunnari Gunnarssyni.
Mantra spilar reglulega við messur
og á tónleikum í Fríkirkjunni.
Á ljúfum nótum með
djasssveitinni Möntru
FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 333. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
„Amma og mamma gerðu það gott
á sínum tíma og eins afi minn. Ég
geng inn í mikla sögu í handbolt-
anum, sem ég er stolt af,“ segir
handknattleikskonan Sigríður
Hauksdóttir, sem fetar í fótspor
þeirra með íslenska landsliðinu í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins í Makedóníu á næstu dögum. 4
Ég geng inn í mikla
sögu í handboltanum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Jón Gnarr mun segja sannar og
lygilegar sögur af sjálfum sér í nýrri
sýningu, Kvöldvöku, sem hefur
göngu sína í Borgarleikhúsinu í jan-
úar á næsta ári. Jón hefur komið
víða við, starfað sem leikari, grín-
isti, útvarpsmaður og borgarstjóri
svo nokkur störf séu
nefnd. Sumar sög-
urnar hafa einhverjir
heyrt hann segja í
útvarpinu en
flestar þeirra
hafa aldrei
heyrst áður.
Fyrsta
Kvöldvakan
verður hald-
in laugar-
daginn 5. jan-
úar.
Jón Gnarr segir sannar
og lygilegar sögur
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu
lauk í gær. Ein þeirra um 400 kvenna,
sem sóttu ráðstefnuna, Heather
Stefanson, varaforsætisráðherra og
fjölskylduráðherra Manitoba í Kan-
ada, segir að þingið hafi opnað augu
sín fyrir því að hún gæti lagt sitt af
mörkum til þess að auka samskipti
Kanada og Íslands og sérstaklega
Manitoba og Íslands.
„Við eigum svo margt sameiginlegt
og möguleikarnir á samvinnu, til
dæmis í ferðamálum, eru víða,“ segir
ráðherrann, sem hefur setið óslitið á
þingi fyrir Íhaldsflokkinn síðan 2000.
Aðeins tveir núverandi þingmenn
hafa meiri reynslu.
Heather er af enskum og skoskum
ættum en kynntist eiginmanni sínum,
Jason Stefanson, þegar þau störfuðu
sem aðstoðarmenn ráðherra á Kan-
adaþinginu í Ottawa. Hann er af
þekktri íslenskri ætt sem hefur látið
til sín taka á mörgum sviðum í Mani-
toba. Eric Stefanson, afi hans, var til
dæmis þingmaður um árabil og Eric
Stefanson yngri, föðurbróðir Jasons,
fylgdi í fótsporið og var m.a. varafor-
sætisráðherra.
„Fyrstu kynni mín af íslenska sam-
félaginu voru samt ekki í gegnum
Jason því þegar ég var unglingur í
Winnipeg kenndi amma vinkonu
minnar okkur að baka vínartertu,“
segir hún. „Og ég beit á agnið.“
Tækifærið með heimsþinginu
Heather segist ekki hafa beitt sér
sérstaklega á sviði samskipta við Ís-
land og ekki almennilega hugleitt það
fyrr en boð kom um að sækja heims-
þing kvenleiðtoga. Hún hafi rætt við
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð-
herra í hádegisverðarboði hjá Janice
Filmon, fylkisstjóra Manitoba, í
sumar, samskiptin hafi borið á góma
og þegar Katrín hafi viðrað þátttöku
á heimsþinginu hafi hún gert sér
grein fyrir því að hún gæti komið
góðu til leiðar á þessum vettvangi.
„Orð eru til alls fyrst,“ segir
Heather, sem notaði tækifærið í ferð-
inni og ræddi óformlega við íslenska
ráðamenn og stjórnendur Icelandair
um möguleikana. „Íslenska sam-
félagið í Manitoba er það fjölmenn-
asta utan Íslands. Eins og Ísland
höfum við upp á svo margt að bjóða
og ég vil vekja athygli á því í sam-
vinnu við Íslendinga.“
Heather leggur áherslu á að margt
hafi áunnist í samskiptunum, sendi-
herrar vinni gott starf sem og ýmsir
einstaklingar eins og Eric Stefanson,
Kris heitinn, bróðir hans, og Janis
Johnson, en stöðugt þurfi að treysta
undirstöðurnar og bæta við þær.
„Það er til dæmis mikil upplifun að
heimsækja Churchill, „höfuðborg ís-
bjarna í heiminum“, fara í kajakróður
innan um hvali eða synda í Hudson-
flóa innan um ísjaka. Að standa úti á
köldu vetrarkvöldi á Gimli og horfa á
norðurljósin er sérstök upplifun.“
Vakin er athygli á íþróttum fatl-
aðra í Manitoba í annarri viku júní ár
hvert. Þökk sé Heather, sem fékk til-
lögu þess efnis samþykkta á þinginu
fyrir nokkrum árum, þrátt fyrir að
hafa þá verið í minnihluta. Hún hefur
lyft Grettistaki og er tilbúin í annað
átak. „Ég vil vekja athygli á því hvað
margt er líkt með Manitoba og Ís-
landi, hvað megi upplifa á báðum
stöðum og vonandi verður draumur-
inn um beint flug milli Winnipeg og
Íslands aftur að veruleika.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Hörpu Heather Stefanson, varaforsætis- og og fjölskylduráðherra Manitoba í Kanada, er full orku í samskiptum.
Beit á vínartertuna
Heather Stefanson segir margt líkt með Íslandi og Manitoba