Morgunblaðið - 11.12.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.12.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2018 MIKIÐ AF ÚRVALS VERKFÆRUM TILVALIÐ Í JÓLAPAKKANN TRÉRENNIJÁRN, TRÉ ÚTSKURÐARJÁRN, HVERFISTEINAR OG HEFILBEKKIR Í MIKLU ÚRVALI Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Ný vefverslun brynja.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú kemur sjálfum/sjálfri þér á óvart með því að afþakka heimboð til að geta verið heima. Horfðu á hlutina úr fjarlægð og gerðu svo áætlun. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er stundum erfitt að horfast í augu við staðreyndir en hjá því verður samt ekki komist. Staldraðu aðeins við og mundu að dómgreind þín hefur hingað til verið í lagi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Flest virðist ganga þér í haginn svo þú getur slakað á og þarft ekki stöðugt að vera að reyna að hagræða hlutunum. Ein- beittu þér því að því að klára jólagjafainnkaup í tíma. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að láta samviskubit naga sig vegna atburða sem þú gast engu ráðið um. Ástarsamband heldur áfram að vera spennandi, gefðu því tíma til að dafna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Rétt mataræði, útivist og hreyfing gera kraftaverk fyrir heilsuna. Þér eru allir vegir færir og það sem best er: þú trúir því. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur haft mikið að gera í skemmt- analífinu að undanförnu. Forðastu tal um pen- inga eins og heitan eldinn. Ekki sýna of mikla undanlátssemi heima fyrir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hlustaðu á gagnrýni á störf þín án þess að stökkva upp á nef þér. Hugsanlegt er að einhver plati þig, annaðhvort óviljandi eða af ráðnum hug. Notaðu daginn í dag til að sinna fjölskyldunni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nálgastu rómantískt vandamál frá öllum hliðum. Reyndu að ná tökum á stressinu og þá fara hlutirnir að ganga. Vinur í vanda leitar til þín. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert uppfull/ur af háleitum hug- sjónum og rómantískum hugmyndum varð- andi samband þitt við þína nánustu í dag. Lærðu af reynslunni og láttu smávandamál ekki slá þig út af laginu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hugsar eins og sigurvegari þessa dagana. Kannaðu hug fjölskyldunnar til vetrarfrís. Þú ert slyng/ur í fjármálum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Orka þín vex og dvín í dagsins önn, allt eftir því hverjir eru í kringum þig. Þú ert undir smásjánni hjá einhverjum. Vertu snögg/ ur að ákveða þig þegar þú færð gott tilboð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver vill gleðja þig svo þú skalt bara taka öllum tillögum með bros á vör. Þú situr við stýrið í eigin lífi, enginn annar. Að launa hvað þú laugst á mig, Loðmfirðinga-rógur, hrykki ekki’að hýða þig Hallormsstaða-skógur. Á laugardaginn tók ég upp íVísnahorni stutta klausu úr ritdómi Tómasar Guðmundssonar um Ljóðmæli Páls Ólafssonar sem út komu árið 1944, Gunnar Gunn- arsson rithöfundur gaf út og ritaði formála. Í umsögn sinni í Helgafelli tók Tómas upp þessa stöku með þeirri breytingu þó, að fyrsta hend- ingin hljóðaði svo: „Fyrir lygina sem þú laugst á mig.“ Vegna ábendinga sem mér hafa borist hef ég nú flett upp á þessari vísu í útgáfu Gunnars og er hún önnur vísan af þrem þar sem Páll yrkir „um illgjarnan óþokka“: Þú hefur oft á móti mér málin sótt af kappi en eg hef staðið undir þér eins og Þráinn Hrappi. Og þriðja vísan: Betur fór, hann Bósi sór og brúkaði stóra vitið. Gerir minnst, ef málið vinnst, þó mannorðið sé slitið. Í útgáfu Gunnars stendur „að launa hvað þú laugst á mig“ svo að annars staðar verður að leita skýr- inga á því hvers vegna Tómas segir „fyrir lygina sem þú laugst á mig“. Kannski hefur hann lært vísuna þannig eða heyrt hjá einhverjum Austfirðingi. Oftar en ekki er orða- munur á vísum sem eru á hvers manns vörum – jafnvel innan sama héraðs. Umhugsunarverð eru þessi orð Gunnars í formálanum: „Fátækir verðum við Íslendingar, þegar vér eigum ekki lengur menn eins og Pál Ólafsson og Guðmund á Sandi meðal íslenskra bænda, svo að tveir kjörkvistir aðeins séu nefndir og þó sinn af hvoru taginu.“ Gunnar segir að Páll muni hafa búið sæmilega fram eftir aldri, að minnsta kosti meðan fyrri konu hans Þórunnar Pálsdóttur naut við: Á Hallfreðarstöðum heyja má, heyið er sem viður. Sex að raka, sjö að slá, sjálfur spretti ég niður. Páli var sérlega uppsigað við sr. Björn á Dvergasteini – hér er and- varp hans þegar kirkjan á Dverga- steini fauk: Kirkjuna Drottinn burtu blés í bræði sinni. Því var prestur þá ekki inni! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Loðmfirðingarógi og Hallormsstaðaskógi SNILLINGUR. „GÖMLU BREMSURNAR BILUÐU!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stákastelpan sem krækti í hjarta þitt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA, ÉG HLAKKA TIL FYRIR LESTRAR- INS Í KVÖLD. JÆJA, ERT ÞÚ SÉRFRÆÐINGUR Í DÝRA- LÆKNINGUM? NEI, ÉG ER SÉRFRÆÐINGUR Í LEIÐINDUM Í ALVÖRU? FLESTUM FINNST ÞEIR LEIÐINLEGIR EKKI MÉR! ÉG VAR AÐ VONA AÐ ÉG FYNDI ÞIG EKKI HÉR Á BARNUM, HRÓLFUR! EKKI KVÍÐA NEINU, BRÓÐIR ÓLAFUR! ÉG MUN EKKI SEGJA NEINUM AÐ ÞÚ HAFIR VERIÐ HÉR. ÞETTA ER RÁN! OG ÞETTA ER LÍMBYSSA. Níu ára gömul sonardóttir Vík-verja er dugleg að segja afa sínum brandara. Um helgina fékk hann að heyra einn nýjan. „Afi, þekkirðu lagið Nú liggur vel á mér?“ Já. Heldur betur. Þetta er gamall og góður slagari. „Það var einu sinni stelpa sem var alltaf að syngja þetta lag. Svo datt þvottavél ofan á hana og hvað held- urðu að hún hafi sungið þá? Tja, nú veit ég ekki. „Nú liggur vél á mér.“ Einmitt það. Skutlaði bara einum broddi inn í textann. x x x Afinn verður að viðurkenna aðhonum þótti þetta svolítið fynd- ið en vildi eigi að síður ganga úr skugga um að allt hefði farið vel að lokum. Aumingja stelpunni hefði verið bjargað undan þvottavélinni. „Já, já, henni var bjargað og meiddi sig ekki neitt.“ Sennilega vegna þess að hún gat sungið eftir hjálp. x x x Veislan verður bedri, saumaklúbb-urinn verður bedri, jólaboðið verður bedra, allt verður bedra,“ segir í kexauglýsingu sem hljómar daginn út og inn í sjónvarpinu um þessar mundir. Er ekki mál til kom- ið að lög verði sett um það í þessu landi að Sigvaldi Júlíusson og aðeins Sigvaldi Júlíusson lesi auglýsingar í sjónvarpi? Það yrði miklu BETRA! x x x Umvöndun knattspyrnumannsinsRaheems Sterlings við breska fjölmiðla um liðna helgi var athygl- isverð en hún snerist um það að svartir og hvítir leikmenn sitji ekki við sama borð þegar kemur að því að fjalla um hagi þeirra í fjöl- miðlum. Nefndi hann tvo unga samherja sína hjá Manchester City, annan svartan en hinn hvítan, sem fjár- festu nýverið í sinni fyrstu fasteign. Að sögn Sterlings kom það þannig út í fjölmiðlum að sá svarti hefði verið að strá um sig peningum en sá hvíti að kaupa hús handa móður sinni og fjárfesta í framtíðinni. vikverji@mbl.is Víkverji Munnur minn er fullur lofgjörðar um þig, af lofsöng um dýrð þína allan dag- inn. (Sálmarnir 71.8)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.