Morgunblaðið - 24.12.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.12.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2018 Ásmundur Einar Daðason, fé-lags- og jafnréttismálaráð- herra, undirritaði fyrir helgi nýja reglugerð um framkvæmd not- endastýrðrar persónulegrar að- stoðar, NPA, fyrir fatlað fólk. NPA er tiltölulega nýleg þjónustuleið fyrir fatlaða en reynslan af henni er góð og hún gerir þeim sem aðstoð þurfa kleift að lifa lífi sínu við eins góðar aðstæður og unnt er. Og þeir gera það á eigin forsendum, sem skiptir miklu.    Hvers kyns sjúkra- og umönn-unarstofnanir eru vissulega af hinu góða og stundum óhjá- kvæmilegar þegar aðstæður fólks eru með þeim hætti. Flestir kjósa hins vegar dvöl á eigin heimili og persónulega þjónustu þegar það er mögulegt.    Góð reynsla af NPA verður von-andi til að unnið verði áfram að því að auka val einstaklingsins þegar kemur að því að leita sér slíkrar þjónustu. Það getur verið hagkvæm lausn og er örugglega til þess fallin að auka lífsgæði fólks.    Þetta á ekki aðeins við um fatl-aða, heldur alla þá sem þurfa á þjónustu að halda, ekki síst aldr- aða.    Með aukinni hjálp heima fyrir,sem sniðin er að hverjum og einum, má gera þeim sem það vilja kleift að búa lengur á eigin heimili.    Með því mundi líka minnkaþörf fyrir vist á dvalarheim- ilum, en þar er sem kunnugt er allt of lítið rými að óbreyttu. Ásmundur Einar Daðason Jákvæð þróun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Litlu-Ávík Það sem af er desember er búið að vera frábært veður í Ár- neshreppi. Veðurhæð mest verið á rólegu nótunum, þótt aðeins hafi blásið af ýmsum áttum hluta úr dög- um. Mest hafa verið austlægar vind- áttir eða suðlægar og jafnvel breyti- legar vindáttir. Alhvít jörð var fyrstu sex daga mánaðarins, en það snjóaði talsvert um síðustu mánaðamót og fór snjó- dýpt í 20 cm. Frá 7. desember var flekkótt jörð en fyrir helgina gaf veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík upp auða jörð í veðurskeyti, rétt að- eins smávegis snjór í djúpum laut- um. Það er jafnvel ótrúlegt að sjá veginn héðan úr Árneshreppi gefinn upp auðan á þessum árstíma. Fólk spáir oft í hvort verði hvít eða rauð jól og veðurfræðingar og jafnvel veðureftirlitsmenn einnig mikið spurðir. En fólk hugsar þá lítið um hvaða dag eða tíma er miðað við. Á Veðurstofunni er alltaf miðað við hvaða jarðlag, eða snjólag, er gefið upp frá veðurstöðvum að morgni jóladags klukkan níu að morgni þess dags. Ekki er miðað við aðfangadag kl. 18 þegar jólin eru hringd inn. Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson Vorlegt Veðurathugunarstöðin í Litlu-Ávík í Árneshreppi á Ströndum. Á þessum árstíma hefur oft verið kafsnjór en núna er vorlegt um að litast. Rauð og flekkótt jól  Veðrið í Árneshreppi á Ströndum í desember hefur verið eins og að vori OPIÐ ALLA DAGA YFIR HÁTÍÐARNAR Í AUSTURVERI 9–18 24. des 9–24 25. des 9–24 26. des 9–24 27. des 9–24 28. des 9–24 29. des 9–24 30. des 9–18 31. des 9–24 1. jan Opið fyrir þig Háaleitisbraut 68 Sími: 581 2101 www.apotekarinn.is Starfsfólk Apótekarans óskar viðskiptavinum sínum gleðilegrar hátíðar Hangikjötið er enn með mikla yfir- burði yfir þá rétti sem landsmenn ætla sér að borða á jóladag. Þrátt fyrir að þeim fækki sem ætli að borða hangikjöt á jóladag eru 69% landsmanna sem ætla að hafa hangikjötið á sínum diski þennan dag. 9% ætla hins vegar að hafa hamborgarhrygg, 4% kalkún og 4% annað lambakjöt en hangikjöt. Þetta kemur fram í könnun MMR. Þá njóta grænmetisréttir meiri vinsælda en áður en þó eru ekki nema 3% sem ætla að hafa græn- metisrétti á jóladag. Hangikjötið með yfirburði á jóladag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.