Morgunblaðið - 24.12.2018, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2018
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
ICQC 2018-20
Söngsveitin Fílharmónía heldur ár-
lega jólatónleika sína kl. 20 í Lang-
holtskirkju fimmtudaginn 27. des-
ember. Einsöngvari verður Þóra
Einarsdóttir sópransöngkona og
með kórnum leikur tríó skipað
Snorra Sigurðarsyni trompetleik-
ara, Þórði Sigurðarsyni píanóleik-
ara, og Gunnari Hrafnssyni kontra-
bassaleikara. Yfirskrift tónleikanna
er Jólaljós og verða þeir í senn há-
tíðlegir og með djassyfirbragði.
Þóra kveðst hafa sungið einu
sinni fyrir mörgum árum á jóla-
tónleikum með Fílharmóníu, sem þá
voru líka haldnir eftir að mestu há-
tíðahöldin voru um garð gengin.
Hentugur tími
„Mér finnst þessi tími, rétt eftir
jólin, mjög hentugur fyrir jóla-
tónleika. Fólk getur sest niður í
kirkjunni og látið jólastressið líða úr
sér um leið og það hlustar á fallega
tónlist; hefðbundin jólalög, kórverk
og léttari verk með sveiflu.“
Sjálf verður Þóra á hefðbundnum,
klassískum nótum, kórinn og tríóið
sjá um djassívafið. „Auk þess að
vera með sóló í nokkrum kórverk-
um, syng ég lög sem ekki heyrast
mjög oft og líka vinsæl lög eins og
til dæmis „Ó helga nótt“ og „Ave
Mariu“ hans Sigvalda Kaldalóns.
Þessi tvö lög finnst alltaf jafn hátíð-
leg og viðeigandi á jólunum.“
Þóra á góðar minningar frá Lang-
holtskirkju og finnst einstaklega
gaman að fá að syngja á jóla-
tónleikum „akkúrat þar“, eins og
hún segir. „Gegnum tíðina hef ég
nokkrum sinnum sungið í kirkjunni,
en ég söng með kirkjukór Lang-
holtskirkju í mörg ár frá því ég var
fimmtán ára – og alltaf á jólunum.
Ég man mjög vel þegar Ólöf Kol-
brún Harðardóttir óperusöngkona
söng „Ó helga nótt“ og „Ave
Maria“. Mér verður ennþá alltaf
hugsað til hennar og þessa tíma
þegar ég heyri eða syng þau sjálf.
Þau bara tilheyra jólunum,“ segir
Þóra. Á efnisskrá Jólaljósa eru líka
lög eftir Ingibjörgu Þorbergs, Jór-
unni Viðar og Jón Sigurðsson svo
fáein tónskáld séu nefnd, og eru lög-
in ýmist flutt í nýjum eða alþekkt-
um útsetningum. Einnig verður
boðið upp á jólalög frá ýmsum lönd-
um og frumfluttur jólasálmur eftir
Arngerði Maríu Árnadóttur og séra
Davíð Þór Jónsson.
Söngsveitin Fílharmónía var
stofnuð fyrir nærri sextíu árum, en
þá þótti nauðsynlegt að stofna kór
sem ætlað væri að flytja stór kór-
verk með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Stjórnandi Fílharmóníu síðan
árið 2006 er Magnús Ragnarsson.
Hluti af jólahaldinu
„Svona bara mátulega,“ svarar
Þóra þegar hún er spurð hvort hún
hafi sungið á mörgum jólatónleikum
þennan mánuðinn. „Þetta er búin að
vera svolítil jólatörn hjá mér eins og
undanfarin ár. Mér finnst alltaf jafn
gefandi og fæ aldrei leið á að syngja
á jólatónleikum, enda eru þeir orðn-
ir stór hluti af jólahaldinu hjá mér,“
segir Þóra, sem í kvöld, aðfanga-
dagskvöld, syngur í messunni
klukkan sex í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. vjon@mbl.is
Söngsveit Fílharmóníu Hinn tæplega sextugi kór, Söngsveit Fílharmóníu, fór síðastliðið sumar á kórakeppni í Flórens, þar sem þessi mynd var tekin.
Hátíðlegt og djassað yfirbragð
Þóra Einarsdóttir einsöngvari á jólatónleikum Söngsveitarinnar Fílharmóníu
Morgunblaðið/Eggert
Gefandi Þóru Einarsdóttur finnst
gefandi og fær aldrei leið á að
syngja á jólatónleikum.
Þegar búið verður að telja síðustu
seldu bíómiðana á Bretlandi bendir
allt til að þarlendir hafi farið 176
milljón sinnum í bíó á árinu. Viðlíka
aðsókn hefur ekki verið í kvik-
myndahús landsins síðan árið 1971
þegar mest sóttu myndirnar voru
Diamonds are Forever, French
Connection, Dirty Harry og Fiddler
on the Roof.
Niðurstöðurnar þykja tíðindum
sæta, sérstaklega í ljósi þess að á
sama tíma hefur streymisveitum á
borð við Netflix vaxið fiskur um
hrygg og veitt kvikmyndahúsum
harða samkeppni. Þótt engar stór-
myndir eins og til dæmis jóla-
stjörnustríðsmynd hafi verið til að
glæða miðasöluna þetta árið telja
kvikmyndasérfræðingar að frum-
sýningar í desember á kvikmynd-
unum Mary Poppins Returns,
Aquaman, Bumblebee og teikni-
mynd um Kóngulóarmanninn hífi
aðsóknartöluna upp. Að sögn sér-
fróðra spilar líka inn í að kvik-
myndaframboðið er orðið fjöl-
breytilegra en áður og litlum
sjálfstæðum kvikmyndahúsum fer
fjölgandi.
AFP
Ofurhetja Jason Momoa, aðalleikarinn í
Aquaman, á frumsýningu í Los Angeles.
Algjör sprengja á
hvíta tjaldinu
Eftirtaldar kvikmyndir verða frum-
sýndar á annan í jólum.
Mary Poppins Returns
Barnfóstran Mary Poppins snýr aft-
ur aldarfjórðungi eftir að hún sveif
á braut og eru Banks-systkinin sem
hún gætti nú orðin fullorðin.
Michael á þrjú börn á svipuðum
aldri og þau Jane voru á þegar
Poppins kom í heimsókn á sínum
tíma. Þegar fjölskylduvandi steðjar
að birtist Poppins á ný. Leikstjóri
er Rob Marshall og með helstu hlut-
verk fara Emily Blunt og Ben Wis-
haw. Metacritic: 65/100
Bumblebee
Upprunasaga Transformers--
vélmennisins Bumblebee er rakin
hér. Charlie Watson er nýbúin að fá
bílprófið og dreymir um að eignast
bíl. Henni tekst að safna fyrir gam-
alli Volkswagen-bjöllu og uppgötv-
ar að þar fer vélmenni sem getur
breytt sér í bíl og er auk þess á
flótta. Leikstjóri er Travis Knight
og aðalleikarar Hailee Steinfeld,
Dylan O’Brien og Megyn Price.
Metacritic: 68/100
Second Act
Maya sem er komin á fimmtugs-
aldur er í láglaunavinnu í stór-
markaði. Hún hefur ekki menntun
eða reynslu til sækja um betur laun-
uð störf en henni býðst hálauna-
starf eftir að eiginmaður vinkonu
hennar tekur upp á því að falsa fer-
ilskrá hennar. Leikstjóri er Peter
Segal og með helstu hlutverk fara
Jennifer Lopez, Vanessa Hudgens
og Milo Ventimiglia.
Metacritic: 49/100
Almennar sýningar hefjast auk
þess 26. desember á Spider-Man:
Into the Spider-Verse sem sagt var
frá þegar hún var forsýnd.
Bíófrumsýningar
Poppins snýr aftur
Endurkoma Emily Blunt fer með
hlutverk Mary Poppins.