Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 25

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 105 2. mynd. Líkan Butlers um lífsferil áfangastaða. – The Tourism Area Life Cycle (TALC) model by Butler.8 Samgöngubætur og breytingar á vegakerfi landsins breyta möguleikum ferðamanna til að velja sér áfanga- staði (staðarval) og upplifun. Kjarni ferðamennskunnar er að ferðamenn eiga sér upprunastaði (fasta búsetu) og ferðast þaðan um ákveðin svæði (t.d. um háloftin í flugi eða eftir vegum í bíl) til að komast á áfangastað. Á milli þessara þriggja svæða eru vensl sem mynda það sem Leiper11 kallar „kerfi ferðamennsku“ (e. the tourism system). Ástæður þess að fólk ferðast milli staða til afþreyingar geta verið margs konar. Þær ráðast meðal annars af innri hvötum eins og t.d. hvað fólki þykir eftirsóknarvert og hve mikla fyrirhöfn það vill leggja í ferðir sínar sem og ytri þáttum eins og tíma sem það hefur til ráðstöfunar. Að ferðast fljúgandi, akandi eða hreinlega fótgangandi felur í sér ólíka fyrirhöfn og tekur mislangan tíma. Það ræðst svo af samspili hvata og ferðamáta hvaða áhrif fjarlægðin milli uppruna- og áfangastaðar hefur. Firðarfall (e. distance decay) er hug- tak sem lýsir kjarna ferðamennskunnar og segir til um hvernig samband tveggja eða fleiri þátta veikist með vaxandi fjarlægð þeirra í millum. Firðarfallið er hægt að tjá sem F=aD-b, þar sem F er flæðið, D er fjarlægðin og a og b eru fastar. Gildi b endurspeglar hve bratt firðarfallið er frá upprunastað, það er hversu mikil mótstaðan er. Fastinn a er stilltur af með ýmsum rannsóknum, svo sem á eðli tengsla milli uppruna- og áfangastaðar, gæðum samgangna og því hversu eftirsóttur eða þekktur staður- inn er. Ferðamenn meta í þessu sam- hengi stöðugt hvaða „hag“ þeir hafa af ferðalaginu á móti fyrirhöfn og kostnaði við ferðalagið. Mat fólks á fjarlægð, fyrirhöfn og tíma hefur mikil áhrif þegar ferðamenn velja sér áfangastað.12 Þetta mat fólks er í raun kjarninn í þekktasta líkani ferðamálafræðanna um „lífsferil áfangastaða“ sem Richard Butler13 setti fram og er lýst í fimm stigum (2. mynd). Fyrst er áfangastaður uppgötvaður og fyrstu ferðamennirnir heimsækja staðinn. Næst fer heimafólk að þjónusta vaxandi fjölda ferðamanna og til verða fyrstu vísar ferðaþjónustu. Síðan þróast ferðaþjónusta á staðnum og verður hagsmunaðili í samfélagi staðar- ins. Ferðamönnum heldur áfram að fjölga, sem og fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu og samkeppni eykst milli þeirra. Síðan hægir á fjölgun ferðamanna og leitast ferðaþjónustan við að styrkjast með samruna fyrirtækja, en þá er hætt við stöðnun í vöruþróun. Að lokum verður áfangastaðurinn fjöldanum að bráð þar sem mjög hefur dregið úr gæðum aðdráttaraflsins. Ferðamönnum fækkar og ferðaþjónustan skilar litlum arði. Einhverjir staðir geta endurupp- götvast ef sett er fjármagn í frekari upp- byggingu og í markaðsstarf. Forsenda þess að áfangastaður þró- ist í skilningi Butlers13 er aðgengi að staðnum. Aðgengileiki stýrist af fjar- lægð og hún er afstæð eins og að ofan hefur verið rakið. Samspil tíma og fjar- lægðar við mat ferðamanna á því hvert skal fara og hvernig best sé að komast þangað færir áfangastaðina inn á kort ferðalanga eða út af því. Þannig myndast landslag ólíkra uppruna- og áfangastaða sem mótast af samgöngum, því sem hefur áhrif á þróun samgangna og svo af hvötum og þörfum ferðamannanna. Þetta landslag má skoða hnattrænt, innan landa, á einstökum svæðum eða hreinlega út frá tilteknum upprunastað. SAMHENGI ÁFANGA- STAÐA OG IÐJU Nýir áfangastaðir verða til og aðrir hverfa af korti ferðalangsins, þótt stað- irnir sem slíkir eigi sér fastan sess í hnattrænu evklíðsku hnitakerfi. Segja má að landslag uppruna- og áfanga- staða sé teygjanlegt og breytilegt en það heldur þó alltaf eiginleikum sínum sem samfella sem ekki rofnar.14 Venslin sem viðhalda þessari samfellu eru í stöðugri mótun og umbyltingu15 og umbreytingu þeirra stýra ráðandi valdahlutföll og -öfl í samfélaginu.16 Samfélagið verður að skilja þau vensl sem móta það, þar sem staðir eiga sér ekki beina braut til neinnar einnar skilgreindrar framtíðar.17 Rétt eins og landfræði Íslands er nokkuð fastmótuð samfella, að minnsta kosti á tímakvarða sem við getum skynjað og upplifað, komast staðir á landinu nær hver öðrum þegar samgöngur batna eða breytast. Til verður eins konar ferðakort sem er eins og kennaratyggjó sem hægt er að móta í ýmis form án þess að slíta það í sundur. Katrín Anna Lund og Gunnar Þór Jóhannesson18 rýna með þessum hætti í sköpun áfangastaða á Ströndum. Þau leggja áherslu á þátttöku ferða- mannanna og hið efnislega í sköpun áfangastaðarins og nefna einmitt aksturinn á malarvegi norður Strandir sem dæmi um hlutverk vegarins sjálfs í mótun áfangastaðarins. Þannig er það iðja ferðamanna og athafnir, auk hins efnislega, sem sveigja og beygja ferðakortið. Fjarlægðir og aðgengi eru fjarri því að vera bara spurning um hnit á korti. Tilurð áfangastaðar byggist á ákvörðunum sem teknar eru um það sem skal tengja saman og hvernig það er gert.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.