Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 20
Thinkstock/Getty Images
Tæknifrjóvgun Kostnaður sjúklinga við tæknifrjóvgun mun stóraukast á árinu í kjölfar nýrrar reglugerðar.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Tilvera, samtök um ófrjósemi, harm-
ar nýútgefna reglugerð heilbrigðis-
ráðherra um greiðsluþátttöku
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna
kostnaðar við tæknifrjóvganir. Segir
í tilkynningu frá félaginu að breyt-
ingarnar muni hafa stóraukinn
kostnað í för með sér fyrir sjúklinga í
tæknifrjóvgunarmeðferðum.
Binný Einarsdóttir, formaður Til-
veru, segir í samtali við Morgunblað-
ið að hvorki ráðuneytið né ráðherra
hafi haft samráð við félagið áður en
breytingar voru gerðar. Samtökin
funduðu með heilbrigðisráðherra í
apríl í fyrra og þá hafi þessi breyting
ekki verið á döfinni að þeim vitandi.
Samkvæmt nýju reglugerðinni
greiða Sjúkratryggingar 5% af
fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferðinni,
30% fyrir aðra meðferð en ekkert
eftir það. Áður fyrr var ekkert greitt
með fyrstu meðferðinni en 50% með
annarri, þriðju og fjórðu meðferð.
Binný segir þessi 5% ekki breyta
miklu þar sem 35% líkur séu á því að
meðferð heppnist í fyrsta skipti og að
meðaltali þurfi fjórar meðferðir.
„Algengt er að fólk þurfi að fara í
nokkrar meðferðir til að draumurinn
um fjölskyldu geti ræst. Ef miðað er
við par/einstakling sem fer í fjórar
meðferðir mun þessi nýja reglugerð
auka greiðslubyrði þeirra sem nem-
ur ríflega hálfri milljón eða heilli
óniðurgreiddri meðferð. Ófrjósemi
er sjúkdómur sem hefur mikið álag í
för með sér, bæði andlega, líkamlega
og fjárhagslega, en tæknifrjóvgunar-
meðferðir eru oft eina leið fólks til
þess að reyna að eignast barn,“ segir
í fréttatilkynningu Tilveru.
Spurð hvort þetta gæti haft fæl-
andi áhrif á fólk telur Binný svo vera.
„Jú, mjög. Það er hellingur af fólki
sem hefur ekki efni á þessu og þarf
að fresta meðferðum um eitt til tvö
ár því það þarf að safna svo lengi.
Maður á mörg vinahjón sem bara
komast ekki í meðferð og eru að
nálgast fimmtugsaldurinn, eiga eng-
in börn og ekkert bakland til að
hjálpa sér.“
Leita utan í meðferð
Binný bendir jafnframt á að í flest-
um norrænu löndunum séu allt að
þrjár heilar glasameðferðir niður-
greiddar að fullu. Aðspurð segir hún
algengt að fólk leiti utan í meðferðir.
„Það er algengt að fólk fari til Grikk-
lands, Tékklands og Norðurlanda-
þjóðanna eins og t.d. Danmerkur.
Meðferðirnar eru yfirleitt ódýrari til
dæmis í Tékklandi og Grikklandi.
Fólk setur þetta síðan í skattskýrsl-
una sem lækniskostnað en greiðir
fullt meðferðargjald úti.“
Ekki náðist í Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir.
Harma ákvörðun
heilbrigðisráðherra
Greiðsluþátttaka SÍ í tæknifrjóvgunum minnkar til muna
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Samkvæmt gjaldskrá Sjúkra-
trygginga Íslands (SÍ) fyrir tækni-
frjóvgun fyrir 2019 (sem ekki hef-
ur verið samið um) kostar glasa-
frjóvgun 480.000 kr. Eggheimta
fyrir konur með yfirvofandi ófrjó-
semisvanda, geymslugjald greitt
árlega, er 384.000 kr. Ástunga á
eistu kostar 85.000 og frysting
sáðfruma 25.000 kr.
Samkvæmt nýrri reglugerð um
þátttöku Sjúkratrygginga í kostn-
aði er greitt 5% af fyrsta skipti í
glasafrjóvgun eða smásjár-
frjóvgun og 30% af öðru skipti.
Þá er greitt 65% af kostnaði
vegna eggheimtu og frystingar
eggfruma þegar um er að ræða
konur með yfirvofandi ófrjósemis-
vandamál vegna fyrirsjáanlegrar
lyfjameðferðar, geislameðferðar
eða beinmergs-flutnings. Þá
greiðir SÍ einnig 65% vegna
ástungu á eista og frystingu sáð-
fruma þegar um er að ræða karl-
menn með yfirvofandi ófrjósemis-
vandamál.
Kostnaður
við frjóvgun
SJÚKRATRYGGINGAR
Tilbúinn til neyslu, en má hita.
Afbragðs vara, holl og
næringarík.
Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir,
Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík.
Heitreyktur lax
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
FORDKUGA TITANIUM
nýskr. 02/2017, ekinn 82 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verð 3.650.000 kr.
Raðnúmer 380274
FORDMONDEOTITANIUM
nýskr. 06/2016, ekinn 79 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verð 3.150þkr. TILBOÐ 2.950.000 kr.
Raðnúmer 380278
ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
FORDGALAXY TITANIUM
nýskr. 03/2017, ekinn 63 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
7manna. Verð 4.690.000 kr.
Raðnúmer 380277
FORD FOCUS TREND
nýskr. 05/2017, ekinn 78 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 1.980þkr. TILBOÐ 1.650.000 kr.
Raðnúmer 380157
FORD FIESTA TITANIUM
nýskr. 05/2017, ekinn aðeins 7 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. Verð 2.290.000 kr.
Raðnúmer 380255
Bílafjármögnun Landsbankans
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt
2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat
og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu
verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar-
ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur
í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGAR MIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt
fyrir sínar glæsibyggingar sem margar
eru á minjaskrá Unesco, forna menningu
og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið
kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu
Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í
tímann. Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem gerir borg
ina svo sérstaka.
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
BÚDAPEST
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Gdansk,
Krakow, Varsjá,
Bratislava
Vínarborg og
Brugge
fasteignir