Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 Þú finnur næsta sölustað á www.facebook.com/tetesepticeland EKKI láta veturinn ná þér Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýtt rammaskipulag fyrir hafnar- svæðið í Hafnarfirði verður kynnt í maí. Út frá því verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Rammaskipulagið verður unnið á grundvelli tveggja vinningstillagna í skipulagssamkeppni sem unnar voru af sænskum og hollenskum arki- tektastofum (sjá kort). Munu stof- urnar kynna sameiginlegt skipulag. Nánar tiltekið er um að ræða Flensborgar- og Óseyrarsvæðið. Upphaflega stóð til að gera nýtt deiliskipulag fyrir Flensborgarhöfn. Skipulagssvæðið var síðan útvíkkað inn á land Óseyrar, vestan við Flens- borgarhöfn, og að Suðurbakka. Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafn- arfjarðar, segir að mögulega verði hægt að hefja framkvæmdir á næsta ári. Endurnýjun hafnarsvæðisins verði hugsanlega lokið 2030. Hluti skipulagssvæðisins er þó lengra kominn í undirbúningi. Þannig er áformað að hefja byggingu nýrra höfuðstöðva Hafrannsóknastofn- unar með vorinu. Grunnur að þeim hefur þegar verið steyptur. Ólafur segir það auðvelda fyrir- hugaða uppbyggingu að fáir eig- endur séu að mannvirkjum og lóð- um. Með uppbyggingunni verður byggð upp þjónusta við smábáta- höfnina við Flensborgarkvosina. Íshúsið til skoðunar Stærsta byggingin við hana er Ís- hús Hafnarfjarðar. Að sögn Ólafs Inga verður horft til nýtingarmögu- leika hússins. Gamli Drafnarslipp- urinn norðan við smábátahöfnina fær nýtt hlutverk. Hugmyndir eru um nýbyggingar sjávarmegin við Strandgötuna, nánar tiltekið frá Fjörukránni og að slippnum. Ólafur Ingi segir ekki gert ráð fyrir miklum landfyllingum vegna uppbygg- ingarinnar. Það sé enda vilji manna að ganga ekki meira á hafnaraðstöðuna. Áformað er að reisa íbúðahverfi austast á skipu- lagssvæðinu, milli Óseyrarbrautar og Hvaleyrar- brautar. Á svæðinu eru nú geymslur og iðnaðarhúsnæði og kallar upp- byggingin á niðurrif. Fjöldi íbúða á svæðinu hefur ekki verið ákveðinn. Við íbúðasvæðið er áformað að hafa biðstöð fyrir borgarlínu. Við Fornubúðir verður byggt upp þjónustu- og atvinnuhúsnæði. Hug- myndir eru um hótel. Þá stendur til að byggja upp þjónustumiðstöð fyrir skemmtiferðaskip á Suðurbakka. Um 20 slík skip komu sl. sumar. Hafnarfjarðarbær undirbýr líka hugmyndasamkeppni vegna nýs miðbæjar, á grundvelli skipulagslýs- ingar sem er í vinnslu. Skipulags- svæðið afmarkast af Víkingastræti, Suðurgötu, Strandgötu og allt að safnahúsum við Vesturgötu. Nýr miðbær byggður upp Rætt er um íbúðir og atvinnu- húsnæði. Hefur meðal annars verið teiknað 100 herbergja hótel. Með þessari uppbyggingu breyt- ist ásýnd miðbæjarins. Meðal ann- ars verður byggt yfir flest þeirra 900 bílastæða sem eru ofanjarðar. Ólafur Ingi telur raunhæft að uppbygging nýs miðbæjar geti hafist árið 2020 eða 2021. Hann segir meginmarkmiðið með þessum breytingum að tengja betur miðbæinn og höfnina. Öll þjónusta á svæðinu verði í göngufæri. Uppbyggingin muni styrkja mjög stöðu bæjarins í ferðaþjónustu. Verður nýr miðbær í Hafnarfirði  Nýtt rammaskipulag verður kynnt í maí  Nýtt miðbæjarskipulag í mótun St ra nd ga ta Hvaleyrarbraut Mörk skipulagssvæðis Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði Óseyrarbryggja Suðurbakki Drafnarslippur Íshús Hafnarfjarðar Möguleg nýbygging fyrir móttöku og þjónustu við skemmtiferðaskip Fyrirhuguð íbúðabyggð Höfuðstöðvar Hafró BATTERÍIÐ Fyrirhugað hótel við Strandgötu, norðan við Fjörðinn Núverandi útlit hafnarinnar Vinningstillaga 1-2 Vinningstillaga 1-2 KJELLGREN KAMINSKY ARKITEKTUR MARELD LANDSKAPSARKITEKTER JVANTSPIJKER REGINN FASTEIGNAFÉLAG HAFNARFJARÐARBÆR Fyrirhuguð íbúðabyggð Fiskmarkaðurinn Fyrirhugað er að á hafnarsvæðinu verði hótel, atvinnustarfsemi, verslanir og þjónusta Ólafur Ingi Tómasson Krabbameinsfélagið hefur ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni til að kanna hvort kostnaður við skimun- ina hafi áhrif á þátttöku kvenna. Munu konur sem verða 23 ára og 40 ára á árinu fá ókeypis fyrstu skim- un fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstakrabbameini á vegum Leit- arstöðvarinnar. Tilraunin er fjár- mögnuð af Krabbameinsfélaginu. Fyrsta skimun fyrir krabbameini ókeypis Leit Tveir árgangar fá ókeypis skimun. Starfsmenn Umhverfismiðstöðvar Akureyrar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk fram til 11. janúar. Einnig verða gámar við ýmsar verslanir þar sem hægt verður að losa sig við trén. Fram kemur á heimasíðu Akur- eyrar, að trén verði kurluð og not- uð í stíga eða sem yfirlag á trjá- og runnabeð. Jólatré fjarlægð á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.