Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Vogatunga 87-93 - 270 Mosfellsbær *Laust strax*
230,7 m2 raðhús, tilbúin til innréttinga á
tveimur hæðum, í byggingu. Fallegt útsýni. Á
jarðhæð er forstofa, bílskúr, 3 svefnherbergi,
baðherbergi, þvottaherbergi, og geymsla. Á efri
hæðinni er hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús,
stofa og svalir. V. 63,9-64,9 m.
Falleg 77,5 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð
(efstu). Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Ný
gólfefni, ný eldhústæki og borðplata í eldhúsi.
Baðherbergi endurnýjað.
Íbúðin er nýmáluð.
Frábær staðsetning.
Leikskóli í næsta húsi,
mjög stutt í skóla og í
verslunarkjarnann
Spöngina. V. 37,9 m.
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080
fastmos.is // fastmos@fastmos.is
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
S. 698 8555
Sigurður Gunnarsson
Löggiltur fasteignasali
S. 899 1987
Opið hús mánudaginn 7. janúar frá kl. 17:30 til 18:00
Laufrimi 1, íbúð 204 - 12 Reykjavík *Laust strax*
Hringdu og
bókaðu skoðun
Glóbalismi tók við af
alþjóðahyggju komm-
únista með hruni Sov-
étríkjanna fyrir þrem-
ur áratugum og er
ráðandi stefna á Vest-
urlöndum. George Sor-
os boðar opin landa-
mæri og hefur dælt að
eigin sögn 32 millj-
örðum dollara, eða sem
nemur fjögur þúsund
milljörðum króna í samtök sín, Open
Society Foundations, til þess að grafa
undan vestrænni siðmenningu. Tony
Blair og Gordon Brown komu á
bandalagi sósíalista við stórkapítalið
djúpt í iðrum City of London og Wall
Street. Nafnlausir brusselskir kóm-
ísarar hafa hert róður að evrópsku
stórríki. Clinton hjónin, Bush-feðgar
og Obama hafa í orði þóst berjast
gegn opnum landamærum en í verki
stutt opin landamæri heimsríkisins.
Pólitíkin hefur svikið arfleifð Vestur-
landa. Landamæri Vesturlanda hafa
verið opnuð til þess að breyta lýð-
samsetningu og kristnum gildum er
ýtt út á jaðar.
George Bush eldri boðaði New
World Order og Gordon Brown lýsti
alheimsstjórn þar sem alþjóðastofn-
anir setja leikreglur bak við luktar
dyr. Borgaralega sinnaðir flokkar
beggja vegna Atlantsála fylgja lín-
unni. Þjóðríkinu skal kastað á haug-
ana fyrir alheimsstjórn,
ættjarðarást úthrópuð
og grafið undan lýðræði.
Atlaga glóbalista að vest-
rænni siðmenningu er
hörð og grimm.
Bill Clinton kom á
breytingum á lögum um
eignarhald fjölmiðla svo
fáeinar samsteypur boða
fagnaðarerindið um opin
landamæri og niðurbrot
vestrænna gilda. Glóbal-
istar hafa breytt fjöl-
miðlum í glóbalskt trú-
boð falsfrétta. Þeir sem andmæla
glóbalistum eru hundeltir, sviptir
málfrelsi og úthrópaðir rasistar.
Open Society gegn
vestrænni siðmenningu
Stefna Open Society Foundations
hefur verið stefna brusselskra kómis-
ara í Evrópu og Demókrataflokksins
vestanhafs sem hefur verið yfirtekinn
af öfgaklíku Sorosar og smeygt sér í
raðir repúblikana og Brussel í Evr-
ópu. Aðförin að lýðræðislegri sið-
menningu Vesturlanda og þjóðríkinu
hefur komið innan frá. Kristnum gild-
um, sem mótað hafa vestræna sið-
menningu og lýðræði, er markvisst
ýtt út fyrir glóbalskt guðleysi sem
kemur úr myrkrinu þar sem ekkert
er.
Yfirlýst markmið Sorosar er að
knésetja Bandaríkin. Það er lykil-
hlekkur í samsæri glóbalista 21. aldar
að gera Bandaríkin að hverju öðru
héraði í alheimsríkinu. Evrópa er
þegar sem bikar á hillu. Til þess að
breyta lýðsamsetningu hafa milljónir
ólöglegra karla streymt til Vestur-
landa í nafni opinna landamæra. Það
er til marks um ógnartök glóbalista á
fjölmiðlum að FT útnefnir Soros
mann 2018. Lofgrein FT um Soros
minnir á Þjóðviljalygi 20. aldar.
Ögurstund í sögu Vesturlanda
Donald Trump var kjörinn forseti
til þess að verja bandaríska lýðveldið
og vestræna siðmenningu. Glóbalistar
eru hamslausir af heift, reiði og út-
hrópa forsetann, sem svarar í sömu
mynt. Nú er ögurstund í enn einni at-
lögunni að vestrænni siðmenningu
sem mótuð er á gyðingdómi og kristni
sem boða líf í ljósi.
Baráttan er hörð og óvægin. Glóba-
listar ráða vestrænum fjölmiðlum.
Þeir hafa rústað frjálsri, óháðri fjöl-
miðlun. Falsfréttamenn okkar tíðar
eru hælbítar sem ráðast á fólk á vakt
um þjóðríkið. Falsfréttir glóbalista
ljúga blygðunarlaust og rústa æru
fólks. Þeir vega að málfrelsi, upphefja
alræðisöfl og beita samkynhneigðum
fyrir vagn sinn. Bretland sem var
máttarstólpi skoðana- og málfrelsis er
semi-íslamskt, Þýskaland vegvillt
sem fyrri daginn, Frakkland logar í
óeirðum og Ameríka heiftúðug og
hatursfull.
Vísbendingar eru um að 11. sept-
ember sé svívirðilegt samsæri gegn
mannkyni. „Grand jury“ rannsókn er
að hefjast vestanhafs. Tvíbura-
turnarnir hrundu eftir sprengingar í
grunni og þriðji turninn án þess að
þota flygi á hann. Hvers vegna? Í
kjölfarið var styrjöldum í Afganistan,
Írak, Líbýu, Sýrlandi og fleiri ríkjum
hleypt af stokkunum. Tilviljun? Millj-
ónir hafa komið til Vesturlanda þar
sem ruddar og morðingjar hafa tekið
yfir nærsamfélög, glæpir magnast,
mansal daglegt brauð, vændi og
barnaníð. Glóbalistar eru að breyta
lýðsamsetningu Vesturlanda.
Nú er ögurstund í þessari baráttu.
John Huber sérstakur saksóknari
vestanhafs hefur gefið út 70 þúsund
„innsiglaðar ákærur“ á hendur
glæpahyski allt upp í efstu stig sam-
félags, stjórnsýslu og pólitík allt inn í
Hvíta húsið. Allt mun þetta opinber-
ast. Glæpir í skjóli glóbalisma á nýrri
öld hafa verið þaggaðir af spilltum
falsmiðlum sem hirða ekki um sann-
leikann. Bandarískt samfélag mun
nötra sem og allur hinn vestræni
heimur.
Hjálparsamtök í þjónustu
glóbalista
Siðlausir glóbalistar hafa gert
hjálparsamtök að pólitískum kross-
förum New World Order. Rauði
krossinn agiterar opin landamæri
með her lögfræðinga á ríkislaunum.
Peningaþvætti viðgengst í skjóli hins
alþjóð Rauða kross. Níðingar hafa
smeygt sér inn í hjálparsamtök. Al-
ræðisríki ráða Sameinuðu þjóðunum.
Íslendingar fylgja í blindni. Ekki þarf
að brýna RÚV til verka og miðlar 365
eru í eigu glóbalfirmans Vodafone
sem heldur áfram fréttastefnu
Skuggabaldurs gegn íslensku sam-
félagi í þágu fjölmenningar.
Baráttan er harðvítug líkt og þegar
guðlausir nazistar og kommúnistar
lögðu til atlögu við vestræna siðmenn-
ingu á 20. öld. Henni var hrundið.
Stenst vestræn siðmenning atlögu
21. aldar?
Atlagan að vestrænni siðmenningu
Eftir Hall
Hallsson » Það er til marks um
ógnartök glóbalista
á fjölmiðlum að FT út-
nefnir Soros mann 2018.
Hallur Hallsson
Höfundur er fréttamaður.
h.hallsson@simnet.is
Það fer ekki á milli mála að Ísland
er fiskveiðiland. Meiri vafi er
hvort við neytum fiskafurða í sam-
ræmi við það. Einnig er vitað að
þó nokkuð margar fiskbúðir eru
starfræktar í landinu, þótt ekki
allir geti rambað þangað tilsagnar-
laust. En almenningur sækir sínar
nauðsynjavörur í stórmarkaðina
og þar eru forláta frystiborð líka
fyrir fisk, en oftar en ekki er
tómahljóð í kistunum. Ekki verður
því trúað að kaupmenn vilji ekki
hafa þessa vöru á boðstólum og þá
er spurningin þessi: er ekki eftir-
spurn og þá af hverju? Getur verið
að landinn vilji ekki þessa vöru af
því að hún sé of dýr og hefur ný
kynslóð vanist af fiskneyslu í upp-
vextinum?
Stundum er haft á orði að það
sé aðallega gamalt fólk sem „leyfir
sér“ fiskkaup, og það jafnvel fólk
sem ekki hefur mest í buddu.
Nú er fiskur hollur og ríkið
hleypur undir bagga með margt
sem stuðlar að heilbrigði, niður-
greiðir meðöl t.d. Því skyldi ekki
vera sniðugt að niðurgreiða fisk?
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Fagur fiskur í búð
Fiskbúð Er landinn hættur að borða fisk?