Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 ✝ Ragnar SveinnOlgeirsson fæddist á Innri- Skeljabrekku í Andakíl 3. janúar 1926. Hann lést á Brákarhlíð í Borgarnesi 29. desember 2018. Ragnar var son- ur Helgu Finns- dóttur húsfreyju í Borgarnesi, f. 20. apríl 1881 á Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd, d. 30. júlí 1970, og Olgeirs Friðfinnssonar verkamanns í Borgarnesi, f. 15. febrúar 1900 á Borgum í Vopna- firði, d. 6. ágúst 1989. Helga átti áður Ársæl Jóhannsson, f. 29. janúar 1912 á Skeljabrekku, d. 20. nóvember 1981. Faðir Jó- hann Þórðarson frá Skelja- brekku, síðar bóndi á Bakka í Leirár- og Melasveit. Ársæll bjó í Jórvík í Sandvíkurhreppi í Ár- nessýslu. Kona hans Hólmfríður Jóhannesdóttir, f. 7. mars 1912, d. 6. maí 1986. Synir þeirra voru tveir. Ragnar kvæntist 29. janúar 1952 Hönnu Vigdísi Sigurðar- dóttur, f. 8. janúar 1927 á Odds- stöðum í Lundarreykjadal. Hanna Vigdís var þriðja dóttir bændahjónanna á Oddsstöðum mars 1992; d) Sigurborg Hanna, f. 28. febrúar 1991. Barnsmóðir Sigurðar Odds er Kristbjörg Jörgensdóttir sjúkraliði. For- eldrar Jörgen Sigurðsson og Ás- dís Pétursdóttir. Barn: d) Jörg- en, f. 10. maí 1976. Kona hans Jóhanna Hjaltalín, f. 3. apríl 1968. Barnsmóðir Jörgens er Þórey Sigfúsdóttir, f. 17. októ- ber 1981. Barn Alexander, f. 20. febrúar 2009. 2) Olgeir Helgi, rekstrarfræðingur, f. 29. mars 1966, rekur prentþjónustu í Borgarnesi, kona hans Theo- dóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar, f. 7. ágúst 1958, foreldrar Þor- steinn Theodórsson og Sigríður Jónsdóttir. Dætur þeirra: a) Sig- ríður Ásta, f. 15. apríl 1994; b) Hanna Ágústa, f. 18. júní 1996. Ragnar gekk í barnaskóla Borgarness og vetur í Reyk- holti. Fór ungur á síld og var bíl- stjóri hjá Bifreiðastöð Borgar- ness. Árið 1954 tóku þau Hanna við búi á Oddsstöðum I og bjuggu þar til 1984 er þau fluttu í Borgarnes. Meðal annarra starfa með búskapnum var skólaakstur og hlutastörf hjá Vegagerðinni. Eftir 1984 starf- aði Ragnar hjá Bifreiðastöð Kaupfélags Borgfirðinga. Ragn- ar var m.a. heiðursfélagi Umf. Dagrenningar og Skógræktar- félags Borgarfjarðar. Útför Ragnars verður gerð frá Borgarneskirkju í dag, 5. janúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Lundarkirkjugarði. Sigurðar Bjarna- sonar, f. 28. júlí 1883, d. 22. júlí 1960, foreldrar Bjarni Sigurðsson bóndi á Hömrum í Reykholtsdal og Ingibjörg Odds- dóttir frá Brenni- stöðum, og Vigdís- ar Hannesdóttur, f. 18. júlí 1882, d. 25. september 1977, foreldrar hjón í Deildartungu Vigdís Jónsdóttir og Hannes Magnússon frá Vilmundar- stöðum. Ragnar og Hanna eiga tvo syni: 1) Sigurður Oddur, f. 12. júní 1953, kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir sjúkraliði, f. 4. september 1957, foreldrar Jón Ólafur Guðmundsson og Sig- urborg Ágústa Jónsdóttir. Guð- björg og Sigurður Oddur hafa búið á Oddsstöðum frá 1984. Börn þeirra eru fjögur: a) Ólaf- ur Ágúst, f. 6. júní 1979, b) Ragnar Finnur, f. 17. júní 1983, sambýliskona Hrafnhildur Bald- ursdóttir, f. 17. maí 1983; synir þeirra: a) Baldur Ragnar, f. 20. júní, 2012; b) Nikulás Tumi, f. 22. apríl 2014. c) Sigurður Hannes, f. 24. janúar 1989, sam- býliskona Denise Weber, f. 4. Elsku Ragnar. Kallið kom hægt og hljótt. Þú komst í heim- inn á jólum og kvaddir á jólum. Nú hugsar maður um allar góðu stundirnar sem við áttum með ykkur Hönnu. Þið tókuð svo vel á móti mér þegar ég kom inn í fjölskylduna og tókuð mér alltaf sem ykkar eigin dóttur. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt ykkur að, alltaf voruð þið tilbúin að hjálpa. Og alltaf til í allt. Sjötugur skráðir þú þig í gítarnám í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, þá varstu elsti nemandi skólans og sonardóttirin yngsti nemandinn. Þú lærðir í nokkur ár og varst vel liðtækur í að spila undir fjöldasöng, kunnir alla texta og gast farið með heilu ljóðabálkana. Alltaf hress og kát- ur, og alltaf til í að vera með. Ættrækinn varstu og fróður um ættir, maður kom ekki að tóm- um kofunum þar. Ef maður þurfti upplýsingar um ættir og fólk leit- aði maður til þín og var ég ekki ein um það. Þú hélst sambandi við frændfólkið í Ameríku og Kan- ada. Það var frábært að þú skyld- ir skella þér með okkur vestur um haf tvö ár í röð, þrammaðir með okkur um götur New York-borg- ar rúmlega áttræður og varst enginn eftirbátur okkar í þeim málum. Minningarnar eru margar og góðar. Mér er ljúft að hugsa til stundanna sem við áttum saman síðustu árin, þú og ég. Við lásum saman úr hinum ýmsu bókum, fengum okkur göngutúr ef vel viðraði, skruppum þá kannski í kaffi á Kveldúlfsgötuna, spjölluð- um, horfðum á Hafnarfjallið og umferðina. Þessar minningar mun ég geyma og er svo þakklát fyrir. Þú hugsaðir vel um og til okkar allra og hafðir áhuga á því sem við vorum að gera. Þú fylgdist vel með því sem stelpurnar voru að aðhafast og hlakkaðir svo til að hitta þær í jólafríinu. Það var líka yndislegt að þær skyldu geta átt góðan tíma með þér núna um jólin. Minningarnar um góðan mann munu lifa. Hafðu þökk fyrir allt og allt, Ragnar minn. Þín tengdadóttir, Theodóra Þorsteinsdóttir. Elsku hjartans afi okkar, nú ert þú kominn til Draumalands- ins. Landsins þar sem þú ert örugglega nú þegar byrjaður í heyskap eða í smalamennsku, þú gætir jafnvel verið kominn á kaf í sauðburð – hver veit! Þar unir þú þér vel með ömmu Hönnu og fjöldanum öllum af góða fólkinu sem alltaf hefur umkringt þig. Við vorum lánsamar systurnar að fá að verja með þér hluta af síð- asta deginum þínum hér á jörð og enn lánsamari að hafa átt þig í okkar lífi. Afa sem spilar á gítar, afa sem bakar vöfflur, afa sem borðar harðfisk og hákarl, fer með vísur og hlær. Þú varst afi sem vildir allt fyrir okkur gera og varst alltaf svo góður. Alltaf tók á móti okkur vöffluilmur úr eldhús- inu þegar við komum, þú búinn að standa yfir vöfflujárninu til að hafa allt klárt. Þú varst svo stór hluti af daglegu lífi að það var auðvelt að taka þér sem sjálfsögð- um, en þú varst í sannleika sagt hreinn gimsteinn og við erum svo heppnar að hafa fengið að eyða tíma með þér í barnæsku sem og þegar við urðum fullorðnar. Alltaf kom maður að opnum dyrum, stóru brosi og alltaf stutt í hlát- urinn. Þú varst ævinlega hrókur alls fagnaðar og svo vinsæll – þegar við kynnum okkur fyrir nýju fólki borgar sig yfirleitt að kynna sig sem barnabarn Ragnars Olgeirs- sonar, fyrrverandi bónda á Odds- stöðum. Það sakar í það minnsta ekki. Nú þegar við kveðjum þig í síð- asta sinn segjum við við þig: „Dansaðu nú djásnið mitt og ég skal pumpa prímusinn“ – hvað sem það nú þýðir, elsku afi. Við spyrjum þig þegar þar að kemur. Við elskum þig af öllu hjarta og miklu, miklu, miklu, miklu, þús- und-, hundrað-, milljón sinnum endurtekningarmerki meira! Þínar, Sigríður Ásta og Hanna Ágústa. Nú er fallinn frá afi minn, nafni og lagsmaður, Ragnar Sveinn Ol- geirsson. Vil ég minnast hans með nokkrum orðum. Á bernskuárum var afi ásamt ömmu oft á Odds- stöðum. Á vetrarkvöldum voru sagðar sögur, sungin kvæði eða horft á sjónvarpið. Þá kom sér vel að eiga góða að þar sem amma og afi skiptust á að þýða textann í sjónvarpinu og klóra manni á bak- inu. Ófáum stundum var varið við að planta hríslum í land þeirra í Sáðmannsgerði, og er þar nú ris- inn skógur sem heldur nafni þeirra á lofti um ókomin ár. Ekki vorum við krakkarnir alltaf viljug til verksins og hafði afi það lag á að hafa með sér eitthvert gotterí til að auka áhugann þegar hann þraut. Foreldrar mínir stunda ferða- þjónustu á Oddsstöðum og bjóða upp á hestaferðir á sumrin, þann- ig að tími til heyskapar var naum- ur hjá þeim vegna þess. Komu margir að þeim heyskap og var afi einn af lykilmönnunum. Úr Borg- arnesi kom hann með vörur sem vantaði hverju sinni; rúlluplast, garn og tilfallandi. Svo var haldið til verka án hiks og það klárað sem þurfti. Kappið var mikið og glatt á hjalla, betra var að gera eitthvað frekar en ekki neitt eru orð sem hann hafði oft uppi. Eitt sinn þegar við höfðum lokið við heyskap kom óvæntur galsi í okk- ur og við fórum af bæ. Við vorum kátir og á leiðinni segir hann við mig að ég þurfi að passa mig á því að rósin stingur. Ég dvaldi ekkert við þessi orð og áður en við viss- um af vorum við komnir á leið- arenda. Þar var okkur boðið kaffi og afa fannst það heitt og vildi kælingu í það. Gestgjafinn bar mjólk á borðið og enn var kaffið of heitt. Þá var náð í vatn og enn var kaffið of heitt. Við þessu þriðju umkvörtun afa um kælingu í kaffið sá gestgjafi um hvað ræddi og reiddi það fram. Þá varð kaffið loksins kælt. Á leiðinni heim lagði afi fyrir mig seinni lífsregluna og hana hef ég virt til þessa. En hún hljóðaði svo: „Þú skalt aldrei búa í sama húsi og tengdamóðir þín.“ Svona var hann, skarpur og stutt í kímn- ina. Afi var gæddur þeim eiginleika að taka lífinu með opnum hug sem gerði hann magnaðan í að með- taka hluti, skilja og læra. Þegar hann komst á eftirlaunaaldur fór hann að læra á hljóðfæri, og varð fljótt gítarásláttur að ástríðu hjá honum. Sló hann gítarstrengina í hljómmiklum takti og söng við. Við þessa iðju sat hann mörgum stundum og var notalegt að vakna við þessa tóna, því ekki var sofið þegar hann tók lagið. Þegar ég fór í framhaldsnám til Noregs fór afi að nota samskiptaforritið skype til að ná í mig, varð hann fljótt þekktur meðal samnemenda minna sem skype-afinn. Fylgdi því mikill aðdáun þar sem fáir áttu afa sem hafði tileinkað sér nútímasamskiptamiðla eins og skype og facebook. Eftir að afi var ekki lengur ferðafær sakir vanheilsu varð minna úr samverustundum. Vegna anna við búskap þar sem ekki leyfast óráðin ferðalög um lengri veg gafst afar sjaldan möguleiki á heimsóknum vestur í Borgarfjörð þessi seinni árin. En alltaf þegar ég kom tók á móti mér þessi vinalega rödd: „Ert það þú, nafni?“ Með þökk fyrir samfylgdina. Þinn nafni og vinur, Ragnar Finnur Sigurðsson. Elsku afi, allt fer það eins og það vill einhvern veginn fara. Okkur langaði til þess að þakka þér fyrir allar þær góðu samveru- stundir sem við áttum. Efst í huga er þakklæti fyrir allan þann stuðning og áhuga sem þið Hanna amma höfðuð á tómstundum okk- ar. Áhugann sem þið sýnduð svo glöggt með því að heiðra okkur með nærveru ykkar, með miklu stolti, og voruð svo dugleg að dreifa því sem víðast hversu montin þið voruð af okkur og af- rekum okkar. Hvort sem það var í heimi hestamennskunnar, tónlist- ariðkunar eða á leiksviðinu í Brautartungu. Dillandi hláturinn, gleðin og góðmennskan var aðalsmerki ykkar ömmu sem við munum aldrei gleyma. Það var alltaf gam- an að koma í Borgarvík 19 til ykk- ar, þar sem gleðin fylgdi ykkur og hlátur smitaði út frá sér og met- um við daglegu sundferðirnar mikils sem og fjölmargar fjöru- ferðir að Ökrum. Af ykkur lærðum við afar margt og munum búa vel að þeirri visku út ævina, okkur þótti allar árstíðir hafa sinn sjarma en haustin eru eftirminnileg. Þá var mikið fjör á Oddsstöðum þar sem allir höfðu sitt hlutverk við heima- slátrun og átti máltækið hvað ungur nemur gamall temur vel við þar sem amma kenndi okkur líf- færafræði sauðfjár og þú kenndir okkur handtökin við að svíða hausa og lappir. Það var samt fleira sem þú kenndir okkur og við búum vel að til framtíðar, þá eigum við kannski helst við öll þau fjöl- mörgu kvæði og vísur sem þú kastaðir fram við hin ýmsu tilefni og við vorum svo montin af þekk- ingu þinni á þessu sviði. Þótt við kunnum kannski ekki nema brot þessara kvæða þá lagðir þú grunninn fyrir áhuga okkar á hagmælsku og sönggleði. Okkur er minnisstætt fleiri en eitt augnablik úr heyskapnum á Oddsstöðum, en allar þær stundir voru ánægjulegar þar sem alltaf mátti treysta á aðstoð þína. Sem var þó algjör aukabónus miðað við hversu góður félagsskapur það var að hafa þig með okkur í hey- skapnum. Þegar þið amma dvölduð í Sáð- mannsgerði, paradísinni ykkar í landi Oddsstaða, langdvölum eins og á meðan sauðburði stóð, þá var afar notalegt að koma til ykkar þar sem alltaf tók á móti okkur hlýja og væntumþykja. Mjólk, kex og kökur eins og við gátum í okkur látið. Einnig þótti okkur gaman að aðstoða ykkur við skóg- ræktina í Sáðmannsgerði, en ým- ist gróðursettum við tré eða geng- um á eftir þér með áburð í fötu. Sáðmannsgerði og sælureiturinn er meistaraverk ykkar ömmu, meistaraverk áhuga, dugnaðar og sjálfbærni. Jamm þa’ held ég. Takk fyrir allt og allt. Sigurborg Hanna og Sig- urður Hannes, Oddsstöðum, Ólafur Ágúst og Jörgen. Ragnar frændi minn lést 29. desember á Brákarhlíð í Borgar- nesi. Olgeir faðir Ragnars var föður- bróðir okkar systkinanna frá Merki í Vopnafirði og leit Ragnar því á sig alla tíð sem einn úr krakkahópnum. Ragnar var okk- ur kær frændi og hrókur alls fagnaðar og skemmtilegur hvar sem hann kom eða þegar við sótt- um hann heim. Hann var líka mik- ið á ferðinni, og mátti alltaf vera að því að heimsækja okkur systk- inin og var þá jafnan glatt á hjalla. Það var ávallt tilhlökkunarefni fyrir okkur Steina að heimsækja Ragnar og Hönnu í Borgarnesi og Olgeir föðurbróður meðan hann var á lífi. Þurfti þá mikið að ræða stjórnmálin enda pólitíkin mikið hjartans mál og sérstaklega Ol- geiri, sem var mikill vinstrimaður. Ég minnist þess líka að þegar við komum í heimsókn bauð hann okkur stundum í bíltúr á mjólk- urbílnum um uppsveitir Borgar- fjarðar að sækja mjólk á bæina og var það hið mesta ævintýri fyrir okkur. Ferðirnar í Borgarnes urðu árlegur viðburður snemm- sumars og ætíð mikið tilhlökkun- arefni og þannig kynntumst við Steini Borgarfjarðarhéraðinu. Það kom enginn að tómum kof- unum hjá Ragnari í ættfræðinni, það var eitt af hans mörgu áhuga- málum að vita allt um frændgarð- inn og ættingja aftur í aldir. Hann var líka söngelskur og tók þátt í störfum leikfélagsins áður fyrr, lék meðal annars Skugga-Svein í samnefndu leikriti. Hin síðari ár mætti hann yfirleitt með gítar með sér á mannfagnaði, tók lagið og stjórnaði fjöldasöng. Ragna og Hanna ferðuðust mikið erlendis og allt fram á sein- ustu ár ferðaðist Ragnar eins og ekkert væri með Olgeiri syni sín- um og hans fjölskyldu, jafnvel alla leið til Kanada á Íslendingaslóðir og auðvitað í leit að fjarskyldum ættingjum. Ragnar var einstakt ljúfmenni í alla staði og var okkur syst- kinunum kær. Blessuð sé hans minning. Sendi Sigurði Oddi, Olgeiri og þeirra fjölskyldum hugheilar samúðarkveðjur. Halldóra Helga Kristjánsdóttir. Ragnar Sveinn Olgeirsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HARALD S. HOLSVIK, Markholti 16, Mosfellsbæ, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þann 27. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 7. janúar klukkan 13. Gígja Sólveig Guðjónsdóttir Guðjón D. Haraldsson Valbjörg Þórðardóttir Guðrún Dagmar Harald. Grétar Ólafsson Gígja Björg, Þórður, Marteinn og Dagmar Guðjónsbörn Ólafur Harald Grétarsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐNI INGIMUNDARSON, Guðni á trukknum, heiðursborgari Garðs, frá Garðstöðum í Garði, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 16. desember. Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 15. Útsending verður frá athöfninni í Miðgarði, sal Gerðaskóla. Sigurjóna Guðnadóttir Ásgeir M. Hjálmarsson Ingimundur Þ. Guðnason Drífa Björnsdóttir Árni Guðnason Hólmfríður I. Magnúsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR HELGASON, Diddi véstjóri, Suðurgötu 96, Hafnarfirði, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sólavangi 25. desember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 13. Hulda Þórðardóttir Arnþrúður Þórðardóttir Eirikur Bj. Barðason Guðmundur Þórðarson Fríða Eyjólfsdóttir Ólafur Örn Þórðarson Erna Jóhannesdóttir Guðbjörn Þór Þórðarson Brynja Traustadóttir María Ólafsdóttir afabörn- og langafabörn Útför systur minnar, SIGRÍÐAR INGIBJARGAR ÞORGEIRSDÓTTUR kennara, Hæringsstöðum í Árborg, fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 8. janúar klukkan 13:30. Jarðsett verður í Gaulverjabæjarkirkjugarði. Fyrir hönd vandamanna, Sólveig Antonía Þorgeirsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.