Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2019 Betri líðan í hálsi og baki undir leiðsögn sjúkraþjálfara. Frábær aðstaða og góður tækjasalur á Bíldshöfða 9. Upplýsingar og skráning á www.bakleikfimi.is Bakleikfimi Hefst 10. jan. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skipulagsstofnun telur líkur á að fyrirhuguð aukning laxeldis Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði um 10 þúsund tonn muni hafa verulega nei- kvæð áhrif á villta laxastofna. Grundvallar stofnunin álit sitt á matsskýrslu Laxa á áhættumati Hafrannsóknastofnunar sem ekki hefur verið lögfest. Skipulagsstofnun birti í gær álit sitt á matsskýrslu Laxa fiskeldis vegna umhverfismats fyrir aukningu laxeldis í sjókvíum í Reyðarfirði úr sex þúsund tonnum í 16 þúsund tonn. Telur hún að helstu neikvæðu áhrif framleiðsluaukningar felist í áhrifum á botndýralíf, aukinni hættu á að fisksjúkdómar og laxalús berist í villta laxfiska og áhrifum á villta laxastofna vegna erfðablöndunar. Þá telur stofnunin að fyrirhuguð eldis- aukning muni hafa neikvæð sam- legðaráhrif með öðru, núverandi og fyrirhuguðu, eldi á Austfjörðum á villta laxfiska með tilliti til erfða- blöndunar og á landslag og ásýnd. Laxar fiskeldi miða eldi sitt í Reyðarfirði við burðarþolsmat Haf- rannsóknastofnunar sem metið er 20 þúsund tonn og hefur sótt um að fá að fullnýta það. Áhættumat Haf- rannsóknastofnunar er sett upp til að draga úr hættu á erfðablöndun eldislax sem hugsanlega sleppur úr sjókvíum við náttúrulega stofna í laxveiðiám. Gert er ráð fyrir áhættu- matinu í lagafrumvarpi sem kynnt hefur verið en ekki verið lögfest. Samkvæmt því mætti ekki hafa meira eldi í Reyðarfirði en níu þús- und tonn. Forsvarsmenn Laxa fiskeldis hafa gagnrýnt áhættumatið harðlega. Telja þeir að það sé slíkum annmörk- um háð að ekki verði á því byggjandi. Breiðdalsá hefur mest áhrif til skerðingar á laxeldi á Austfjörðum. Forsvarsmenn Laxa benda á að stofn hennar geti ekki talist villtur þar sem hann byggist á seiðaslepp- ingum og áin sé frekar hafbeitará. Of mikið eldi Í umfjöllun um málið í áliti Skipu- lagsstofnunar kemur fram að stofn- unin telur að leggja beri áhættumat Hafró til grundvallar við mat á um- hverfisáhrifum eldis á frjóum laxi í sjókvíum sem og við leyfisveitingar vegna sjókvíaeldis. Vitnað er til um- sagnar Hafrannsóknastofnunar þar sem fram kemur að áhættumatið sé ekki gallalaust vegna mikillar óvissu um marga þætti en samt sem áður sé það besta mögulega matið. Gildin í líkaninu séu valin varfærnislega með tilliti til þess að náttúran njóti vaf- ans. Þá liggi fyrir að áhættumatið geti tekið breytingum komi fram nýjar upplýsingar. Niðurstaðan er, eins og fyrr segir, að áætlanir Laxa geri ráð fyrir meira eldi en talið er ásættanlegt. Neikvæð áhrif á laxastofna  Skipulagsstofnun telur að leggja eigi ólögfest áhættumat Hafró til grundvallar umhverfismati og leyfum vegna aukningar laxeldis í sjókvíum í Reyðarfirði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reyðarfjörður Unnið að undirbún- ingi slátrunar lax úr sjókví Laxa. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Útlit er fyrir að í lok næstu viku liggi fyrir hvort stéttarfélagið Framsýn á Húsavík og Verkalýðsfélag Grinda- víkur draga umboð sitt til baka frá Starfsgreinasambandinu og vísa kjaradeilu sinni til ríkissáttasemj- ara, líkt og VR, Efling og Verkalýðs- félag Akraness hafa gert. Aðalsteinn Á. Baldursson, for- maður Framsýnar á Húsavík, segir að stíft verði fundað næstu daga í viðræðum SGS. „Við ákváðum að gefa þessu næstu viku. Þá verða áfram viðræður um sérmálin og síð- an launaliðinn. Ef við verðum ósátt, þá munum við vísa þessu til ríkis- sáttasemjara,“ segir hann og nefnir að hörku skorti í viðræðurnar. „Það að vísa deilunni til ríkis- sáttasemjara finnst okkur bara ábyrgðarhluti af því að með því er öllu ferli flýtt,“ segir hann. „Ef það verður ekki þannig í vikunni að það sé vilji til að semja og ná saman og SGS tekur ekki ákvörðun um að vísa þessu til ríkissáttasemjara, þá sé ég ekki annað en við munum taka um- boðið til baka og vísa til sáttasemj- ara,“ segir Aðalsteinn. Hann segir málið snúast um hvort félögin vilji „hafa áhrif á stöðu mála“ eða hvort þau ætli að „sitja hjá“. „Það fer enginn í aðgerðir ef hann er ekki búinn að vísa deilunni þangað,“ segir hann. Hörður Guðbrandsson, formað- ur Verkalýðsfélags Grindavíkur, segir að ákvörðun muni liggja fyrir í næstu viku. „Mér var veitt umboð til að taka stöðuna núna í byrjun janúar og taka síðan ákvörðun í framhaldi af því,“ segir hann. „Ég held ég geti alveg fullyrt það að ég taki ákvörðun á annan hvorn veginn í næstu viku.“ Hörður segir að óánægja sé með að hægt hafi gengið í viðræðun- um. „Við þurfum að setja meiri þrýsting á mótaðilann. Kröfurnar voru auðvitað mótaðar sameiginlega þannig að þetta snýst aðallega um aðferðafræðina,“ segir hann. Framsýn og VLFG ákveða sig um framhaldið í næstu viku  Setji meiri pressu  „Þetta snýst um aðferðafræðina“ „Þetta voru nú bara nánast allt góðir „laxamaðkar“, svo stórir og sprækir voru þeir,“ segir María Erla Geirs- dóttir, íbúi á Ystu-Nöf við Skúlagötu í Borgarnesi, en í garði hennar sáust ánamaðkar bera sig eins og það væri komið vor, í grænu grasi síðdegis í gær. Veðrið var vorlegt því hitinn fór upp í 10 gráður. María Erla stóðst ekki mátið og tíndi nokkra af gömlum vana en síð- an var þeim sleppt þegar búið var að mynda þá með Morgunblað dagsins í bakgrunni til sönnunar. Ánamaðkar bera sig eins og komið sé vor Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Laxamaðkar Eldspítnastokkurinn gefur til kynna hvað maðkarnir eru myndarlegir. Þátturinn Hrafnaþing hóf göngu sína á ný í gærkvöldi en þessi um- ræðu- og landsbyggðarþáttur var sýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN um tíu ára skeið. Nú verður þátturinn framvegis birtur vikulega á vefnum í Sjónvarpi mbl.is. Upptökur þáttarins fara fram í myndveri Morgunblaðsins í Hádeg- ismóum, en þeir Ingvi Hrafn Jóns- son og Jón Kristinn Snæhólm bera áfram alla ábyrgð á ritstjórn og framleiðslu þáttarins. „Ferill minn hófst hjá Morgun- blaðinu fyrir 53 árum síðan svo það er óhætt að segja að það sé gaman að fá að enda hann í þessum húsa- kynnum,“ sagði Ingvi Hrafn við mbl.is. Hann sagði þáttinn verða með sama sniði og þegar hann var sýndur á ÍNN. Þannig mun „heima- stjórnin“ koma saman auk fleiri fastagesta frá fyrri tíð. Hrafnaþingið sýnt vikulega á mbl.is Morgunblaðið/RAX Hrafnaþing Jón Kristinn Snæhólm og Ingvi Hrafn Jónsson fóru í loftið í gær. Eyjamenn tóku forskot á sæluna í gærkvöldi og kvöddu jólin með þrettándagleði. Hafa Eyja- menn haft það fyrir sið að kveðja jólin þetta snemma. Árleg þrettándaganga fór af stað kl. 18 og að því loknu dönsuðu litríkir álfar og annað huldufólk við brennuna og sungið var hátt. Eyjamenn tóku forskot á þrettándann Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.