Morgunblaðið - 15.03.2019, Qupperneq 25
tárum í augum, minningin þín
lifir í hjarta mínu alla tíð.
Þín Núpa litla,
Linda Rut.
Elsku amma.
Takk fyrir að vera sú amma
sem eflaust allir hefðu óskað
sér að eiga. Takk fyrir að
reyna að fita mig, kvöld eftir
kvöld með uppáhaldi mínu,
rjómatertu og ískaldri mjólk
þegar ég var í sveit, fyrir að
hafa snúið vörn í sókn eftir að
afi dó, að láta það ógert að
skamma okkur Sigga Ottó þeg-
ar við köstuðum úldnum eggj-
um í vegginn á fjósinu, að ég
fékk oft að njóta mjúku, hlýju
handanna þinna. Takk fyrir all-
ar fölsku tanna hlátursstund-
irnar með mér á mínum yngri
árum og nú í seinni tíð með
börnunum mínum og öll köku-
hlaðborðin þegar við litum inn
hjá þér í sveitinni. Þú ert sú
amma sem ég óskaði mér.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Sigurður Már Hlíðdal.
Það tilheyrir víst lífinu að
þurfa að sjá á bak nánu sam-
ferðafólki en alltaf er það jafn
erfitt.
Nú í mars kvaddi lífið kær
vinkona mín Marta Kristjáns-
dóttir. Mörtu kynntist ég 1976
og er ég forsjóninni þakklát að
hafa fengið að vera henni sam-
ferða í lífinu síðan þá. Strax
tókust þá með okkur svo góð
kynni að einstakt er að verða
annarri manneskju svo sam-
stiga á fullorðinsaldri. Talsverð
vegalengd var þó milli okkar,
hún búandi austur undir Eyja-
fjöllum og ég búsett í Kópa-
vogi. Ekki kom vegalengdin að
sök og urðu kynnin nánari eft-
ir því sem árin liðu. Hún bjó
myndarbúi ásamt Sigurði
Jónssyni manni sínum og
börnum á Seljalandi en þau
höfðu byggt þar upp mynd-
arlegt bú og voru þau einstök
heim að sækja. Var enda oft
skroppið austur og voru það
ánægjulegir tímar. Eftir að
Sigurður féll frá allt of
snemma og Auður dóttir
þeirra og Kristinn Ottósson
höfðu tekið við búinu og um-
svif hennar í búskapnum urðu
minni fjölgaði ferðum mínum
austur undir Eyjafjöllin. Er ég
hætti vinnu dvaldi ég oft um
langan tíma hjá henni og und-
um við okkur vel saman og
minnist ég þeirra stunda með
ánægju. Var þá prjónað og
spjallað og líka gott að þegja
saman, skroppið til nágranna
eða tekið á móti gestum sem
voru fjölmargir. Segja má að
Seljaland sé við þjóðbraut
þvera og hefur löngum verið í
alfaraleið og verslun mun hafa
verið þar áður fyrr.
Margir unglingar og skyld-
menni höfðu verið hjá þeim
Sigurði gegnum árin og héldu
þau tryggð við heimilið og litu
gjarnan í heimsókn þá er hent-
aði.
Eftir að Marta flutti á
Kirkjuhvol fækkaði ferðum
mínum austur og var þá sím-
inn notaður og stundum
skroppið dagpart austur. Vil
ég með þessum orðum þakka
henni og börnum hennar, Erni,
Auði og Björgvini, og fjöl-
skyldum þeirra fyrir áratuga
einlæga vináttu og votta ég
þeim samúð mína og bið þeim
blessunar Guðs.
Guðlaug Erla Jónsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur ÍSTEX hf
verður haldinn miðvikudaginn 3. apríl 2019,
kl. 19:00 í húsnæði félagsins í Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt
15. grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Þróunarmál - Aukin söluverðmæti ullar.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á
skrifstofunni í Mosfellsbæ viku fyrir
aðalfund hluthöfum til sýnis.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í
Mosfellsbæ á fundardag.
Mosfellsbæ, mars 2019.
Stjórn ÍSTEX hf.
Ársfundur
Vina Vatnajökuls –
hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs
Ársfundur Vina Vatnajökuls verður haldinn,
föstudaginn 29. mars 2019 kl. 16:00 í
Norðurstofu Safnahússins, Hverfisgötu 15,
101 Reykjavík
Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Eiðsvallagata 20, Akureyri, fnr. 214-5765, þingl. eig. Klara Sólrún
Hvannberg Hjartard og Sigurður Óli Jónsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Akureyrarkaupstaður og Sella tannlæknar ehf,
þriðjudaginn 19. mars nk. kl. 10:30.
Brimnes, Dalvíkurbyggð, fnr. 152149, þingl. eig. Arnar Gústafsson,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi eys, þriðjudaginn 19.
mars nk. kl. 14:30.
Hvanneyrarbraut 57, Fjallabyggð, fnr. 213-0551, þingl. eig. Anna
Hulda Júlíusdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Fjallabyggð,
fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 11:00.
Fannagil 28, Akureyri, fnr. 227-4147, þingl. eig. Axel Gunnar Vatnsdal
og Margrét Baldvinsdóttir, gerðarbeiðendur SS Byggir ehf. og Íbúða-
lánasjóður og Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 19. mars nk. kl. 10:45.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
14. mars 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold, nýtt nám-
skeið kl. 10.30, skráning á skrifstofu Aflagranda eða í síma 4112702.
Bingó kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr., veglegir vinningar. Kaffi kl.
14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við
Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffi-
spjall og blöðin. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10.
Botsía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Zumba leikfimi kl. 12.30-
13.30. Myndlistarnámskeið hjá Margréti kl. 13.30-15.30. Hæðargarðs-
bíó kl. 13.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Heilsuefling á Vitatorgi kl. 10-11.15,
þjálfun / ganga / botsía / æfingatæki, föstudagshópurinn kl. 10-11.30,
Handaband, vinnustofa í skapandi handverki, ókeypis og öllum opið
kl. 13-15.30. Bingó kl. 13.30-14.30, spjaldið kostar aðeins 250 kr. Vöfflu-
kaffi kl. 14.30-15.30. Velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, s. 411-9450.
Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi
kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20,
Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni
félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13–16. Velkomin!
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa
með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein-
anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist.
Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndarklúbbur /
bingó kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13,
allir velkomnir og kostar ekkert.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids,
kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9, sundleikfimi kl. 9 í Grafar-
vogssundlaug, brids kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa
kl. 12.30 í dag og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfasstöðum. Vöfflukaffi kl.
14.30 til 15.30 í dag.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, bókasafnashópurinn kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í krók kl. 10.30. Leikfimi salnum kl. 11. Söng-
stundin fellur niður í dag. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri
kl. 13.30. Munið bingóið með nemendum Mýrarhúsaskóla þriðjudag-
inn 19. mars í salnum á Skólabraut kl. 13. Vinsamlega skráið ykkur
sem fyrst í óvissuferðina nk. fimmtudag 21. mars. Skráningarblöð
liggja frammi á Skólabraut og Eiðismýri. Uppl. og skráning í síma
8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó
kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið kl. 13, þar
sem sögusviðið er Ísafjarðardjúp. Kennari Baldur Hafstað. Dansað
sunnudagskvöld 27. janúar kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir
dansi. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13-
14. Kaffi frá kl. 14-14.30. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Barnagæsla
Óskum eftir ömmu/afa
sem getur mætt að passa, nokkur
skipti í mánuði kl. 5 á morgnana og
skutlað svo í leikskólann. Einnig
einstaka kvöld og helgar.
Sími 848 8057.
Húsnæði íboði
3 herbergja orlofsíbúð til leigu á
Þingeyri við Dýrafjörð, til
sumardvarlar.
Fyrir félagasamtök eða fyrirtæki.
Gott aðgengi fyrir hjólastóla.
Upplýsingar í síma. 456-1600.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
Atvinnublað
Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is 200 mílur
Kveðja frá Ör-
yrkjabandalagi
Íslands
„Með samstöðu finnum við að
við eigum sem manneskjur meira
sameiginlegt en það sem aðskilur
okkur. Við getum deilt persónu-
legri lífsreynslu með öðrum. Við
getum létt af hjarta okkar og
notið gleði með öðrum. Allt þetta
veitir okkur lífsfyllingu.“
Þessi orð mælti Magnús Þor-
grímsson í grein í fréttabréfi
ÖBÍ árið 1989. Þau lýsa honum
vel.
Magnús var einlægur hug-
sjónamaður og baráttumaður
fyrir réttindum fatlaðs fólks og
varði kröftum sínum í þágu mála-
flokksins til síðasta dags.
Magnús starfaði lengi á þess-
um vettvangi, raunar megnið af
sínum starfsferli. Hann var með-
al annars formaður Geðhjálpar
og sat í stjórn Hjartaheilla. Hann
átti sæti í stjórn Öryrkjabanda-
lags Íslands og gegndi ýmsum
fleiri trúnaðarstörfum fyrir
bandalagið. Hann var sálfræð-
Magnús
Þorgrímsson
✝ Magnús Þor-grímsson fædd-
ist 21. mars 1952.
Hann lést 25. febr-
úar 2019.
Magnús var jarð-
sunginn 8. mars
2019.
ingur á Svæðisskrif-
stofu um málefni
fatlaðra í Reykja-
vík. Síðar stýrði
hann Svæðisskrif-
stofunni á Vestur-
landi. Þá var hann
síðustu ár réttinda-
gæslumaður fatlaðs
fólks í Reykjavík og
á Seltjarnarnesi.
Hann kom reglu-
lega á skrifstofu
ÖBÍ í þeim tilgangi að aðstoða
skjólstæðinga sína og lagði
gjarnan mikið á sig í þágu þeirra.
Þá kom hann einnig með góðar
ábendingar um margt sem mátti
bæta í samfélaginu.
Magnús lagði sig þannig fram,
bæði í orði og verki, til þess að
bæta kjör og aðstöðu fólks og var
ófeiminn við að horfa inn á við
jafnt sem út á við. Hann var
þeirrar skoðunar að þótt hópar
fatlaðs fólks væru ólíkir um
margt, þá væri meira sem sam-
einaði og að sú samstaða gæti yf-
irunnið margar hindranir.
Við kveðjum Magnús Þor-
grímsson með þökkum fyrir öfl-
ugt ævistarf sem við munum öll
njóta um ókomna tíð. Aðstand-
endum færum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Þuríður Harpa Sigurð-
ardóttir, formaður ÖBÍ,
Lilja Þorgeirsdóttir,
framkvæmdastjóri ÖBÍ.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar