Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 5

Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 360° samtal fyrirtækja er tækifæri til að fara yfir reksturinn og framtíðaráætlanir hjá þínu fyrirtæki. Að auki færðu yfirsýn yfir öflugar og sérsniðnar lausnir Landsbankans fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Kynntu þér 360° samtal hjá fyrirtækjaþjónustu Landsbankans. Sigurður Bogi Sævarsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Niðurstaða Félagsdóms er mjög ánægjuleg fyrir samfélagið allt,“ segir Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu sem birt var í gær- kvöldi að fjögur örverkföll og vinnu- truflanir sem Efling stéttarfélag hugðist efna til væru ólögmæt. Verkföllin áttu að hefjast næst- komandi mánudag og í tiltekinn tíma áttu starfsmenn ekki að sinna ákveðnum störfum eða einungis þeim sem tiltekin eru í starfslýs- ingum. Í fyrsta lagi er um að ræða verkfall á 40 hótelum og hjá fyrir- tækjum í hópbifreiðaakstri. Einnig hjá almenningsvögnum Kynnis- ferða, en skv. því áttu bifreiðarstjór- ar að stöðva bifreið í 5 mínútur og þrífa þær ekki og ennfremur að hætta að fylgjast með greiðslu far- gjalds. Öndvert almennum skilningi „Í íslensku samfélagi er almennur skilningur að verkföll byggist á að mæta ekki til vinnu og þiggja þar af leiðandi ekki laun á sama tíma. Framkvæmd boðaðra örverkfalla Eflingar stéttarfélags átti hins veg- ar í einfaldaðri mynd að vera sú að starfsmenn mættu til vinnu, þægju laun og væru í verkfalli á sama tíma með því að sinna ekki ákveðnum verkefnum sem hverju starfi til- heyra. Þessari framkvæmd var hins vegar hafnað mjög afgerandi af Fé- lagsdómi,“ segir Halldór Benjamín. Niðurstöðuna segir hann góða að því leyti að nú séu leikreglurnar skýrar. „Nei, ég lít ekki svo á að yfir- standandi viðræður við stéttarfélög- in verði erfiðari eftir þessa niður- stöðu, því það er sameiginlegt verkefni að ná kjarasamningi milli SA og viðsemjenda og forða þannig miklu efnahagslegu tjóni sem verk- föll valda,“ segir Halldór ennfrem- ur. Nýta vopnið af skynsemi „Félagsdómur fellir þessar verk- fallsboðanir að hluta til á tækniat- riði. Óskýrleiki í einum lið boðunar- innar er túlkaður þannig að hún öll er ógild. Dómurinn útilokar alls ekki að það sé hægt að grípa til verkfalls- aðgerða af þeirri tegund sem við höfðum lagt upp með, að leggja nið- ur störf að hluta til,“ segir Viðar Þorsteinsson, framvæmdastjóri Efl- ingar stéttarfélags, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Viðar útilokar ekki að Efling geri aðra tilraun til þess að boða til samskonar verkfalla. Forysta fé- lagsins muni með sínum ráðgjöfum og lögmönnum fara yfir hvernig nýta megi verkfallsvopnið af sem mestri skynsemi. „Það var ekki síst uppleggið með þessum aðgerðum að hægt væri að boða til aðgerða sem hefðu ekki há- marksáhrif strax, heldur kæmu til áhrifa á mildari hátt og með stig- mögnun, sem mér kemur á óvart að Samtök atvinnulífsins hafi lagst gegn. Það sem við höfum lært af þessum dómi er að Félagsdómur er tilbúinn að hengja sig ansi fast á ákveðin framsetningaratriði. Við lærum af því og höldum ótrauð áfram,“ segir Viðar og ítrekar að úr- skurður Félagsdóms hafi engin áhrif á hefðbundnar verkfallsað- gerðir félagsins sem hefjast með sólarhringsverkfalli næsta föstudag. Fyrstu verkfallsaðgerðir þess hluta eru boðaðar í sólarhring 22. mars, síðan í tvo sólarhringa 28.-29. mars og þrjá sólarhringa dagana 3.-5. apríl, 9.-11. apríl, 15.-17. apríl og 23.-25. apríl. Þá er boðað ótíma- bundið verkfall frá 1. maí. Önnur tilraun til aðgerða í skoðun  SA: „Mjög ánægjulegt fyrir samfélagið allt“  Efling: „Lærum af því og höldum ótrauð áfram“ Halldór Þorbergsson Viðar Þorsteinsson Morgunblaðið/Hari Í réttarsal Félagsdómur hefur nú í tvígang á stuttum tíma komið saman vegna verkfallsboðana Eflingar. Félagsdómur var einróma í dóms- orði sínu í gær þar sem fjórar af boð- uðum verkfallsaðgerðum á næstu vikum Eflingar eru dæmdar ólög- mætar. Í niðurstöðu dómsins um verk- fallsaðgerðir á hótelum sem áttu að felast í að starfsmenn vinni eingöngu þau störf sem tilgreind eru í starfs- lýsingu, segir m.a. að verkfallsboðun verði að bera með sér skýra og ná- kvæma tilgreiningu á umfangi vinnustöðvunar hverju sinni. Stétt- arfélög verði að bera hallann af öll- um vafaatriðum. Er það álit Fé- lagsdóms að vinnustöðvun sem eigi að ná til starfa utan starfslýsingar starfsmanna, án frekari tilgreining- ar, sé ekki nægilega afmörkuð og skýr. Komið hafi fram að allur gang- ur sé á því hvort starfslýsingar séu til staðar og því alls óvíst til hvaða vinnu slíkt verkfall nái. Er því fallist á að þessi boðaða vinnustöðvun sé ólögmæt. Í umfjöllun um aðgerðir hópferða- bílstjóra hjá Almenningsvögnum Kynnisferðum ehf. sem áttu m.a. að felast í að bílstjórarnir hliðri til reglubundnum störfum til að dreifa kynningarefni, stöðva á stoppistöðv- um í 5 mínútur á dag og þrífa ekki bílana að utanverðu, segir dómurinn m.a. að óljóst sé hvert skuli nánar vera umfang þeirra aðgerða að dreifa ótilgreindu kynningarefni. Þær séu því ólögmætar. Þá tók dómurinn fyrir boðaða vinnustöðvun sem ná átti til eftirlits með greiðslu fargjalda hjá Almenn- ingsvögnum Kynnisferðum. Minnt er á að til að vinnustöðvanir verði boðaðar með lögmætum hætti þurfi stéttarfélag að afmarka með skýrum og greinargóðum hætti til hverra þær taki, gegn hverjum þær beinast o.fl. ,,Með boðuðum aðgerðum stefnda er ætlunin að hópbifreiða- stjórar leggi niður aðeins einn af- markaðan þátt í starfi sínu, það er að hafa ekki eftirlit með greiðslu far- gjalds. Að mati dómsins er þessi verkþáttur svo samofinn og órjúfan- legur þáttur í eðlilegri rækslu starfs bifreiðastjóra að hann verði ekki skilinn frá öðrum þáttum starfsins sem þeir sinna samhliða. Þannig lýt- ur boðuð vinnustöðvun ekki að nægi- lega afmörkuðum hluta af starfs- skyldum þessara bifreiðastjóra til að hægt sé að framfylgja henni með raunhæfum hætti. Af því leiðir að boðuð vinnustöðvun stefnda undir þessum lið er ólögmæt,“ segir í dómi Félagsdóms. Er Eflingu gert að greiða Sam- tökum atvinnulífsins 400 þúsund kr. málskostnað. omfr@mbl.is Örverkföll Eflingar ólögleg  Félagsdómur einróma um þá niðurstöðu að fjórar verkfallsaðgerðir væru ólög- mætar  Vinnustöðvanir ekki nægilega afmarkaðar og skýrar að mati dómsins Samninganefnd Starfsgreina- sambandsins (SGS) samþykkti í gær að kæmu ekki nýjar hug- myndir eða viðbrögð frá Sam- tökum atvinnulífsins (SA) á næstu dögum hefði viðræðunefndin fulla heimild til að lýsa yfir árangurs- lausum viðræðum þrátt fyrir milli- göngu ríkissáttasemjara og slíta viðræðum. SGS segir í tilkynningu að samningaviðræður undir stjórn ríkissáttasemjara um nýjan kjara- samning SGS og SA hafi staðið undanfarnar þrjár vikur. „Forsendur viðræðna hafa verið umræða um nýja launatöflu, stytt- ingu vinnuvikunnar, samræmingu á vinnumarkaði og fleiri atriði,“ segir þar. Þá hafi ýmislegt áunn- ist, annað þokast í rétta átt en sumt sé óleyst. gudni@mbl.is Hafa heimild til að slíta viðræðum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.