Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 Ögmundur Jónasson segir fráþví á vef sínum að Mannrétt- indadómstóll Evrópu hafi á vafa- sömum forsendum neitað að taka fyrir mannréttindabrot Tyrkja.    Í fyrra hafi„Mannréttinda- dómstóllinn“ svo kveðið upp úr með að réttarhöldin yfir Geir H. Haarde „hefðu verið í góðu lagi og ekki pólitísk því atkvæða- greiðslan á Alþingi um að skjóta máli hans fyrir Landsdóm hefði ekki verið pólitísk! Auðvitað veit hvert mannsbarn að málið var frá upphafi til enda rammpólitískt!“    Og Ögmundur heldur áfram:„Nú hefur þessi sami dóm- stóll komist að þeirri ævintýralegu niðurstöðu að brotin hafi verið mannréttindi á manni sem dæmd- ur var í Landsrétti af dómara sem Mannréttindadómstóll Evrópu tel- ur að hafi ekki verið rétt skipaður enda þótt þjóðkjörið þing Íslands hafi staðfest skipan hans lögum samkvæmt, æðra dómsvald síðan staðfest dóm viðkomandi Lands- réttardómara í máli hins meinta brotaþola og að engar efasemdir hefðu komið fram um réttmæta málsmeðferð! Með öðrum orðum, Mannréttindadómstóllinn kemst að þeirri niðurstöðu að þegar kurl eru komin til grafar hafi mann- réttindi ekki verið brotin … en samt! … samt hafi þau verið brotin því viðkomandi hafi ekki fengið aðgang að rétt skipuðum dóm- ara.“    Ögmundur bendir einnig á aðþó að slæmt sé að verða vitni að niðurlægingu Mannréttinda- dómstóls Evrópu sé þó verst að af- staða innan þings og utan fari „í óhugnanlega ríkum mæli eftir flokkspólitískum línum“. Niðurlæging Mann- réttindadómstóls STAKSTEINAR Ögmundur Jónasson Karlmaður var í gær dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að hafa kýlt lögreglumann í andlitið og hótað honum lífláti. Fjórar tennur brotn- uðu í lögreglumanninum vegna árásar mannsins. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suður- lands. Maðurinn var handtekinn í jan- úar í fyrra og færður á lögreglu- stöð þar sem árásin átti sér stað. Maðurinn á að baki allnokkurn sakaferil og hefur frá árinu 2000 fengið 19 refsidóma og gengist undir eina lögreglustjórasátt. Árs fangelsi fyrir árás á lögreglumann Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Aðstæður við ána eru góðar til leit- ar núna,“ segir Oddur Árnason yfir- lögregluþjónn á Suðurlandi. Liðs- menn björgunarfélags Árborgar, sérsveitar Ríkislögreglustjóra og sérfræðingar Landhelgisgæslu mæla lögun og dýpt gjárinnar neð- an brúarinnar á Ölfusá á Selfossi í dag, laugardag og eiga aðgerðir að hefjast fyrir hádegi. Er þetta gert til að reyna að finna bifreið og mann sem fóru ána skammt neðan við brúna að kveldi 25. febrúar síðast- liðinn. – Góð reynsla er af tækjum eins og notuð verða við leitina í dag og standa vonir til þess að með mælingunum sjáist hvort bílinn sé í ánni og ná megi honum upp. Leitar- svæðið eru breiðurnar í ánni á hægri hönd þegar komið er að Ölf- usárbrú úr vestri. Eftir að bíllinn fór í ána var áin kembd mjög rækilega og bakkar hennar gengnir af björgunarsveitar- mönnum. Þær aðgerðir skiluðu ekki árangri og því er nú – til þrautavara – farið í mælinganar ef slíkt kynni að skila einhverjum árangri. Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson. Selfoss Leitað hefur verið stíft í Ölfusá síðustu vikurnar, án árangurs. Mælt verður og leitað í Ölfusánni í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.