Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 16.03.2019, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 ✝ Björg Aðal-steinsdóttir fæddist í Neskaup- stað 29. júní 1959. Hún lést að heimili sínu 7. mars 2019. Hún var dóttir hjónanna Aðal- steins Ólafssonar, f. 12. desember 1906, d. 2. júní 1970, og Jakobínu Björns- dóttur, f. 22. ágúst 1920, d. 8 ágúst 1997. Björg ólst upp í Sólvangi á Borgarfirði eystra. Systkini hennar eru: Anna Ólöf, f. 1939, f. 11. mars 1984. Eiginmaður hennar er Hlynur Sveinsson, f. 28. maí 1983. Börn þeirra eru Brynjar Frosti Hlynsson, f. 23. apríl 2012, og Birta Björg Hlynsdóttir f. 12. ágúst 2016. 2) Birkir Björnsson, f. 16. nóvem- ber 1988. Sambýliskona hans er Ásta Hlín Magnúsdóttir, f. 8. apríl 1989. Barn þeirra er Björn Bragi Birkisson, f. 13. janúar 2018. Björg bjó alla sína ævi á Borgarfirði og vann þar tilfall- andi störf. Heimili hennar Sæ- tún var virkt samkomuhús sveit- unga sem og ættingja. Síðustu fimmtán árin barðist hún við ill- vígan sjúkdóm sem hafði að lok- um betur. Útför Bjargar fer fram frá Bakkagerðiskirkju í dag, 16. mars 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. Birna Þórunn, f. 1940, d. 2007, Ing- unn Gyða, f. 1942, Baldur, f. 1943, Sverrir, f. 1944, Bjarnþór, f. 1946, d. 1965, Jónína Sesselja, f. 1949, Ólafur, f. 1953, Björn, f. 1955, og Soffía, f. 1962, d. 1963 Sambýlismaður Bjargar var Björn Skúlason, f. 3. ágúst 1954, frá Framnesi á Borgarfirði eystra. Börn þeirra eru 1) Harpa Rún Björnsdóttir, Elsku besta mamma mín. Nú er komið að kveðjustund. Þó að 35 ár séu ekki nægur tími með mömmu sína hjá sér þá nýttum við tímann vel. Við áttum yndislega tíma saman. Hvort sem það var í þögn framan við sjónvarpið að hekla, á ferðalögum með fjöl- skyldu og vinum, allir dásam- legu sumardagarnir þar sem við sátum fyrir framan Sætún að spjalla við gesti og gangandi og letistundirnar þar sem við kúrð- um fram eftir í rúminu þínu með Frostaling, nafna þín er nú ekki eins hrifin af svona kúr- ustundum! Alltaf varstu boðin og búin að stökkva af stað, ef vantaði pössun eða ef eitthvað bjátaði á. Áhugi þinn og umhyggja fyr- ir öðru fólki var aðdáunarverð- ur. Alltaf spurðir þú frétta af vinum okkar og kunningjum, hvernig gengi hjá þeim og hvort ekki væri allt í lagi. Þú gast talað við allt og alla og nánast eftir hverja Reykjavík- urferð varstu með fullt af sög- um, hittir leigubílstjóra sem var frændi þessa eða sast á biðstofu með konu sem þekkti þennan. Alltaf að leita eftir tengingu, sem ansi oft kom svo á end- anum. Þó að höggið hafi verið mikið þegar þú fórst frá okkur þá grunaði okkur í hvað stefndi, það var farið að draga af þér. „helv. … fóturinn“ átti þar stærstan þátt. Ég syrgi það sem ég átti, ástríka, duglega, fyndna og skemmtilega mömmu og um leið bestu vinkonu sem ég var svo stolt af því öllum fannst hún svo fyndin og frábær. Svo hress og skemmtilega hreinskilin. Mömmu sem kunni allt og gat allt. Svo ótrúlega mikill og sterkur karakter. Ég syrgi það sem ekki verð- ur, að barnabörnin fái ekki að njóta þín lengur við, skapa fleiri minningar og skemmtilegar stundir með ömmu. Þið Frostal- ingur áttuð svo undurfallegt samband ykkar á milli, hann kunni sko að snúa ömmu í kringum sig! Best í heimi fannst honum að fá að fara einn á Borgó til ömmu og afa og fá að vera lengi, aldrei tilbúinn að fara heim því alltaf var nóg að brasast í ömmuhúsi. Ég syrgi það að enn einu sinni missir litla þorpið okkar svo litríkan persónuleika sem hafði svo mikinn drifkraft og áhuga fyrir því sem var um að vera eða þurfti að gera. En ég gleðst yfir því að nú er þínum þrautum lokið. Efst í huga er þakklæti. Þakklæti fyrir allt sem þú kenndir mér og gerði mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, allt sem þú gerðir fyrir mig og fjölskylduna mína. Þið pabbi bjugguð okkur fjölskyld- unni svo fallegt og notalegt heimili sem alltaf verður mitt „heima“, sama hversu lengi ég bý í Neskaupstað. Þú sást til þess að við áttum yndislega og áhyggjulausa barnæsku og allt síðan, endalaus ástúð, stuðning- ur og umhyggja. Ég er svo þakklát fyrir bar- áttu þína og þrjósku sem gaf okkur hinum lengri tíma með þér. Hvert bakslag var bara nýtt verkefni sem þurfti að klára. Tíu ár með ólæknandi sjúkdóm segir allt um hversu þrjósk og ákveðin þú varst í að vinna þessa baráttu. Ég mun gæta þess að minn- ing þín lifi og að Brynjar Frosti og Birta Björg muni muna eftir Böggu ömmu um ókomna tíð. Lofa aldrei að gleyma öllu því sem að þú kenndir mér. Oft er hugurinn heima og hjarta mitt slær með þér. (Á.I.A.) Takk fyrir allt, elsku besta mamma mín. Harpa Rún Björnsdóttir. Jæja mamma mín, þá er komið að því. Nú er komið að kveðjustund. Það verða erfiðir tímar án þín en að vita af því að þinni raun sé lokið veitir hug- arró. Orð eru ekki til sem lýsa þakklæti mínu til þín. Alla mína ævi var ég umvafin væntum- þykju frá þér og pabba, þrátt fyrir að ég hafi verið býsna „duglegur“ sem barn. Einu sinni sagðir þú, og brostir út í annað um leið, að þú hefðir ætl- að að eignast fleiri börn – en svo fæddist Birkir minn. Sem barn fékk ég að kynnast þinni háværu og skýru rödd. Ég fékk marga góða skammta af henni og í öll þau skipti átti ég það svo sannarlega skilið og er það að stórum hluta því að þakka að ég komst til manns. En mikið ofsalega hafði ég stundum fyrir því að fá öskrin, það var þrjóskan mín sem ég fékk að stórum hluta frá þér, og hafði oft ofsalega gaman af því að ná þér upp. Allir sem þig þekktu þekkja þína sjúkrasögu og þína hörðu baráttu við einn þann illvígasta sjúkdóm sem við þekkjum. Þessa baráttu háðir þú af aðdá- unarverðu hugrekki og með fullkomnu æðruleysi. Orðatil- tækið að gefast upp þekktist ekki í þínum bókum. Þessi tvö síðustu ár sem ég hef eytt í Kaupmannahöfn hjálpuðu mér að gera mér grein fyrir mikilvægi þínu í mínu lífi. Það leið ekki sá dagur að ég hringdi ekki í þig í gegnum tölvuna til að leita ráða og voru mörg þau símtölin, merkilega stór hluti samtalanna fór í að hlusta á þína einkennandi löngu og kraftmiklu geispa, en það virtist ekki skipta máli hvaða tíma dags, þú áttir alltaf inni einn góðan geispa. Ég elskaði það útaf lífinu hvað þú varst hreinskilin og, þegar þess þurfti, ekkert sérstaklega orð- vör, hlutur sem ég hef tileinkað mér í lífinu og mun gera áfram. Sárast verður að hann Björn Bragi, Brasi – Tuddi litli – Hlussi – Litli Bjössi, og öll hin dásamlegu nöfnin sem þú áttir yfir hann, muni ekki fá að alast upp með þér. Ég man ennþá símtalið okkar þegar ég til- kynnti þér að ég væri kominn með vinnu og við værum að flytja aftur til Íslands, hvað þú varst glöð, þú yrðir aðeins einni stuttri flugferð frá Brasa þín- um. Og þú sagðir í gríni að núna hefðir þú mann innan dyra RÚV svo að þú gætir ráð- ið dagskránni þar sem þú varð- ir svo miklum tíma fyrir framan sjónvarpið síðustu misserin. Daginn sem að þú kvaddir sátum við Björn Bragi einir heima þar sem hann var lasinn, þú hafðir áhyggjur og hringdir oft þannig að við náðum að eyða deginum merkilega mikið sam- an. Ég mun lifa á því það sem eftir er þegar þið kvöddust í síðasta skiptið, þá stóð BB lengi og veifaði þér og þú veifaðir til baka en þú tímdir ekki að skella á hann á meðan hann var að veifa þér. Frá mínum dýpstu hjartarót- um kveð ég þig af miklum sökn- uði, elsku mamma mín. Við gerðum okkur flest grein fyrir því í hvað stefndi en höggið er engu að síður gríðarlegt. Þú fékkst að kveðja heima í Sætúni sem var nákvæmlega það sem þú vildir. Ég trúi því að við endum einhvers staðar. Því bið ég þig þegar þú kemur á þinn endastað að taka utan um Jónsa og minna hann á að skák- einvígið okkar stóð jafnt. Þið munuð hafa margt um að spjalla. Birkir. Sumu fólki fylgir gleði. Ein- hver óskilgreindur kraftur verður til í návist þess. Þessir eiginleikar fylgdu henni Björgu okkar, elskulegri tengdadóttur og mágkonu. Nú hefur hún kvatt, eftir hetjulega baráttu við langvinn og erfið veikindi. Á þeirri löngu og ströngu vegferð sýndi hún ótrúlega yfirvegun og einstakan kjark og æðruleysi. Þegar veik- indin hömluðu til stórra verka sat hún ekki auðum höndum, heldur skapaði hún með vand- aðri handavinnu sinni mörg meistaraverkin. Minningarnar frá langri sam- fylgd eru margar. Þegar við lít- um nú til baka á kveðjustund fer það þó gjarnan svo að við brosum gegnum tárin, jafnvel skellum upp úr, þegar tilsvör hennar og glettur við hin ýmsu tækifæri rifjast upp. Heimili Bjargar og Bjössa hefur frá upphafi staðið öllum opið. Frændfólki, vinum, kunn- ingjum, nágrönnum úr þorpinu eða fólki lengra aðkomnu. Það voru gæðastundir að tylla sér við eldhúsborðið í Sætúni. Kaffi og Mackintosh og Björg á spjallinu með tebollann sinn. Oftar en ekki fjölgaði gestum og urðu þá gjarnan líflegar samræður, þar sem hún, eins og alltaf, tjáði af hreinskilni skoðanir sínar á mönnum og málefnum. Á sumrum voru hennar sæl- ustu stundir, þegar gestum og gangandi fjölgaði, öll rúm skip- uð innandyra, lóðin við húsið þéttsetin tjöldum og húsbílum, trampólínið þakið glaðværum börnum, unglingar og fullorðnir á ferð og flugi. Fyrir kom að ókunnugir ferðalangar héldu að þarna væri rekin ferðaþjónusta, bönkuðu upp á og báðust gist- ingar. Þó að veikindin settu sitt mark á Björgu með tímanum hélst heimilisbragurinn óbreytt- ur: Allir velkomnir í Sætún – alltaf. Og þar kvaddi hún. Heima í Sætúni. Í firðinum okkar fagra, þar sem hún ólst upp í stórum hópi systkina, átti sitt hlýlega heimili með Bjössa, og börn þeirra Harpa Rún og Birkir, uxu þar úr grasi við náin tengsl og trausta handleiðslu foreldr- anna. Hópurinn þeirra stækkaði með tengdabörnum og barna- börnunum, sem voru henni miklir gleðigjafar og hún af ást og umhyggju fylgdist grannt með. Þau hafa misst mikið. Til- veran er breytt, en minning- arnar munu lifa. Elsku Bjössi, Harpa Rún, Hlynur, Birkir, Ásta og ömmu- börnin. Við kveðjum með þakk- læti og söknuði og vottum ykk- ur, og systkinum Bjargar og fjölskyldum þeirra, innilega samúð. Megi allar góðar vættir fylgja ykkur og styrkja á erf- iðum tímum. Fyrir hönd fjölskyldunnar frá Framnesi, Sigrún Skúladóttir. Í dag kveðjum við Böggu, það er alltof erfitt en mest er ég samt þakklát. Ég hefði í rauninni ekki getað pantað mér betri fjölskyldu til að ganga inn í. Takk fyrir að treysta mér fyr- ir Birki, takk fyrir að bjóða mig velkomna frá fyrsta degi, takk fyrir leyfa okkur og draslinu okkar alltaf að vera, takk fyrir matinn, takk fyrir saumaskap- inn. Takk fyrir allt brasið og alla snúningana. Takk fyrir mig. Fyrst fannst mér Bögga al- veg ofsalega ógnvekjandi kona. Hikaði ekki við að gala, fyrir framan alla í Fjarðarborg, hvort Birkir væri nokkuð alltaf að gista hjá mér á bóksölunni. Ég forðaðist matarboðið eins lengi og ég gat, en endaði á að fara í kjötbollur og sushi seint í ágúst. Það var ekki næstum því jafn vandræðalegt og ég var bú- in að kvíða fyrir allt sumarið. Eiginlega alveg síðan hefur mér liðið eins og heima hjá mér í Sætúni. Bögga var blátt áfram, sagði það sem hún meinti og sagði það hátt. Það var fyrst og fremst skemmtilegt, allavega þegar ég komst yfir óttann við hana þarna í upphafi. Það hefur verið hugsað alltof vel um mig í Sætúni, uppbúin rúm þegar við komum, heitur matur í hádeg- inu og föt bætt í skjóli nætur. Það hefur líka verið bannað að vera svangur í Sætúni. Ef ég átti leið inn í eldhús, sama hve- nær dags, heyrðist gjarnan inn- an úr horninu hennar í sófanum „Finnurðu ekkert að borða, Ásta mín, það hlýtur eitthvað að vera til.“ Ég dáðist líka alltaf að auga Böggu fyrir smáatriðum og natni við að gera fallegt í kring- um sig. Allt jólaskrautið og páskaskrautið. Í hvert skipti sem við komum var búið að gera nýja fallega útstillingu í einhverju herbergi. Hún gat einhvern veginn gert allt svolít- ið fallegra, saumað nýtt utan um eða föndrað eitthvað. Hún gat líka lagað flest sem brotn- aði eða rifnaði. Sárast finnst mér að hugsa til þess að Björn Bragi fái ekki að spjalla meira við Böggu ömmu. En þó að við höfum ver- ið landfræðilega langt í burtu var amma aldrei langt undan og öll tölvusímtölin eru ómetanleg. Við heyrðum í Böggu daglega og stundum oft á dag. Amma og Brasi litli spjölluðu, lásu og sungu saman. Hún fylgdist vel með öllu hjá okkur og við feng- um fréttir frá Borgarfirði, viss- um oftast hvað var í matinn beggja vegna við hafið. Elsku Bögga, nú er ég búin að komast í gegnum að skrifa þetta niður án þess að kalla þig tengdamömmu mína enda held ég að bannið við því orði hafi ekki verið fallið úr gildi. Sjáumst hinum megin. Ég hlakka til að heyra hvað þér mun finnast um allt sem gerist þangað til. Ásta Hlín. Björg Aðalsteinsdóttir  Fleiri minningargreinar um Björgu Aðalsteins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Ísafirði, lést sunnudaginn 3. mars. Hún verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 16. mars klukkan 14. Sigríður Níelsdóttir Gísli Vigfússon Guðmundur G. Níelsson Guðrún Eyjólfsdóttir Kristinn J. Níelsson Harpa Jónsdóttir María Níelsdóttir Rúnar Már Jónatansson Kristín Theodóra Nielsen og ömmubörn Elskuleg móðir mín, systir, mágkona og frænka, ANNA JÓHANNSDÓTTIR frá Steinum, Kleppsvegi 58, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli miðvikudaginn 6. mars. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 19. mars klukkan 11. Jóhann Elí Guðmunda Jóhannsdóttir Sigurður Gunnsteisson Jóna M.R. Jóhannsdóttir Ólafur Haraldsson og systrabörn Ástkær bróðir okkar og fyrrverandi sambýlismaður, SVEINN KRAGH, lést miðvikudaginn 6. mars. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 21. mars klukkan 15. Kjartan Guðbrandsson Eydís Gréta Guðbrandsdóttir Rósa Jóhannesdóttir Okkar ástkæra systir, mágkona og frænka, GUÐRÚN HILMARSDÓTTIR, Skálatúni, Mosfellsbæ, lést á Landspítalanum 11. mars. Jarðarför fer fram 20. mars klukkan 13 frá Lágafellskirkju. Jón Hilmarsson Guðrún H. Theodórsdóttir Berglind Hilmarsdóttir Svanur P. Hilmarsson Dagbjört B. Hilmarsdóttir Hjálmar Diego frændsystkini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.