Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 30

Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019 Aldarminning Faðir minn, Guðmundur Ara- son fæddist á Hey- læk í Fljótshlíð 17. mars 1919. Það eru því liðin 100 ár frá fæðingu hans og langar mig að minnast hans á þessum tímamót- um. Guðmundur var einn af þeim mönnum sem mörkuðu spor meðal samferða- manna sinna. Hann var kunnur hnefaleikakappi og þjálfari. Hann unni skáklistinni og vann ötullega að framgangi hennar. Var hann kosinn forseti Skák- sambandsins 1966-1968. Auk alls þessa var hann mikill at- hafnamaður, stofnaði sitt eigið fyrirtæki og rak til 84 ára ald- urs. Guðmundur var sonur hjónanna Jóhönnu Jónsdóttur og Ara Magnússonar. Bróðir hans var Ísleifur. Foreldrar þeirra hófu búskap í Flóanum en fluttu 1924 til Vestmanna- eyja. Þar keypti faðir hans hlut í bát og gekk útgerðin vel þar til heimskreppan skall á og út- gerðin varð gjaldþrota. Æsku- árin í Eyjum voru pabba ógleymanleg og mótuðu hann fyrir lífstíð. Hann hafði sterkar taugar til Eyja alla tíð og svo var einnig um Fljótshlíðina. Flutti fjölskyldan til Reykjavík- ur er pabbi var 11 ára. En lífs- baráttan var hörð í Reykjavík. Hann varð að leggja fjölskyld- Guðmundur Arason unni lið til að afla viðurværis og fékk vinnu sem sendi- sveinn. Hann var tekinn úr skóla tólf ára gamall til að leggja sitt af mörk- um til að greiða lán er fjölskyldan hafði fengið til húsnæðis- kaupa. Fimmtán ára var hann messagutti á togar- anum Gullfossi og átján ára réð hann sig á Esjuna. Hann stund- aði líka sjóróðra á opnum bát. Þegar hann varð tvítugur hafði hann loksins aldur til að hefja nám í plötu- og ketilsmíði í Stálsmiðjunni og má segja að með því hafi gunnur að ævi- starfi hans verið lagður. Er pabbi var 15 ára urðu kaflaskil í lífi hans. Hann var á gangi ásamt vini sínum Alfreð Elíassyni, sem síðar stofnaði Loftleiðir, er á þá var ráðist og þeir barðir í götuna. Í kjölfar þessa atburðar hófu þeir að æfa hnefaleika hjá Glímufélaginu Ármanni og þá varð ekki aftur snúið. Það kom í ljós að vinirnir tveir voru mjög efnilegir. Svo fór að pabbi hóf æfingar til und- irbúnings fyrir þátttöku á Ól- ympíuleikunum í London 1940. Þjálfað var í fimleikasal Austur- bæjarskóla. Þá skall stríð á og Bretar tóku skólann hernámi. „Þá var draumurinn úti“ skrif- aði hann í endurminningum sín- um. Ólympíuleikarnir sem halda átti í London 1940 féllu niður vegna heimsstyrjaldarinnar. Hann var einungis 19 ára er hann var ráðinn hnefaleikaþjálf- ari hjá Ármanni og var það upphaf mikillar grósku hnefa- leikadeildarinnar. Kom hann upp öflugum kjarna hnefaleik- ara og átti Ármann alla Íslands- meistarana árið 1947. Hann varð sjálfur Íslandsmeistari í þungavigt 1944. Hann fór með hnefaleikaflokk sinn víða um land og sýndi hnefaleika á úti- skemmtunum. Í einni ferðinni kom flokkurinn við á Hvann- eyri. Ég hef grun um að sú ferð hafi verið farin til þess að heim- sækja Rannveigu Þórðardóttur sem vann þar. Henni kynntist hann á balli í Iðnskólanum við Tjörnina og trúlofuðu þau sig 1943 á tvítugsafmæli hennar. Árin sem í hönd fóru voru við- burðarík. Hann kvæntist Rann- veigu 1945 og við börnin hans tvö fæddumst. Pabbi stundaði hnefaleika af mikilli ástríðu. Það voru því mikil vonbrigði er boxið var bannað með lögum 1956. Hann lét bannið þó ekki aftra sér frá því að iðka box ásamt félögum sínum. Í áratugi æfðu þeir sam- an. Með þeim ríkti ævarandi vinátta. Áttatíu og fimm ára að aldri sló pabbi sekkinn af mikilli ákefð og blés ekki úr nös. Hann hélt því fram að ekki væru til betri æfingar en þær sem til- heyrðu boxinu eins og hlaup, sipp og að slá bolta og sekk. Þegar boxið var bannað snéri hann sér að sundknattleik og keppti fyrir Ármann. Alla tíð var hann mikill Ármenningur og bar hag þess félags fyrir brjósti. Hann var í byggingar- nefnd Ármanns í tuttugu ár og stóð að byggingu íþróttarhúss þeirra við Sigtún. Ósjaldan lá leiðin í Ármannsheimilið þar sem hann stundaði innanhúss- fótbolta og notfærði sér hlaupa- brautina til að skokka sér til ánægju. En hann lagði ekki bara stund á líkamlega hreysti, hann var góður skákmaður. Hann hafði sem snáði lært að tefla í KFUM í Vestmannaeyj- um og tefldi æ síðan. Þegar hann vann í Landssmiðjunni var þar öflugt skáklíf, sem leiddi svo til þess að hann var beðinn um að taka að sér að vera for- seti Skáksambandsins. Kom hann því meðal annars til leiðar að Skáksambandið eignaðist sitt eigið húsnæði. Síðar meir eða frá árinu 1995 stóð hann fyrir alþjóðlegum skákmótum. Pabbi stofnaði árið 1960 sitt eigið fyrirtæki, Borgarsmiðj- una, þegar hann hætti í Lands- smiðjunni og rak blómlega smiðju í Kópavogi. Pabbi sá að það hafði kosti í för með sér að flytja sjálfur inn járn fyrir smiðjuna sem þróaðist í þá átt að hann lagði hana niður og hóf alfarið innflutning á járni. Í fyrstu var lagerinn til húsa í smiðjunni og skrifstofan í Hafn- arstræti 5. En faðir minn var stórhuga maður og fékk hann lóð í Skútuvogi 4, þar sem hann reisti stálgrindarhús og fyrir- tækið blómstraði. Fjölskyldan hefur meira og minna komið að starfsemi þess í gegnum tíðina. Við minnumst Guðmundar og Rannveigar með þakklæti fyrir örlæti þeirra og umhyggju. Til heiðurs honum eru haldin hnefaleikamót og hraðskákmót núna um helgina. Anna Jóhanna Guðmundsdóttir. ✝ Daníel SævarJónsson fædd- ist 1. september 1943. Hann lést á sjúkrahúsi Akra- ness 25. febrúar 2019. Hann var sonur hjónanna Járnbrár Jónsdóttur og Johns Richards. Daníel átti sex systkini: Jón Gunn- ar, d. 19.4. 1971, Gunnhildur, d. 29.12. 2015, Erla, d. 28.1. 2014, Ólafía, d. 23.9. 2014, Ólöf og Kristín. Fyrrverandi eiginkona Daníels var Lilja Vilhjálmsdóttir og átti hún tvo syni en saman eignuðust þau soninn Þröst Daníelsson, f. 14.6. 1973, d. 14.10. 1995. Sambýliskona Daníels var Þór- anna Guðmunds- dóttir, f. 31.1. 1949, d. 7.9. 2007. Átti hún þrjú börn: Guð- mundur, f. 20.9. 1966, Sigurlaug, f. 22.7. 1972, og Hörður Þór, f. 21.9. 1978. Útför Daníels fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 16. mars 2019, klukkan 14. Elsku Danni. Það er svo skrýtið að þú skulir vera farinn. Við vorum vön að tala mikið saman í síma og er ég búin að grípa mig í því að vera komin með símann í höndina og hringja í þig. En mikið er ég glöð að hafa komið til þín á sjúkrahúsið á Akranesi daginn áður en þú lést, það var svo gott að halda í höndina á þér og tala við þig og auðvitað gátum við hlegið saman. Þín verður sárt saknað, elsku Danni minn. Þú varst mér sem pabbi og þú varst svo mikill afi barnanna minna en núna ertu kominn til mömmu og veit ég að hún tekur vel á móti þér. Ég kveð þig nú, elsku Danni minn, með söknuð í hjarta og bið al- góðan Guð að geyma þig. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Sigurlaug Harðardóttir. Í dag verður borinn til grafar frá Ólafsvíkurkirkju vinur minn Daníel Jónsson, eða Danni eins og hann var alltaf kallaður. Danna kynntist ég fljótlega eft- ir að ég flutti til Ólafsvíkur, með okkur tókst góð vinátta sem entist allt til hans dauða- dags. Danni hafði mikinn áhuga á sjónum og sjómennsku enda hafði hann farið ungur til sjós og verið sjómaður til margra ára. Danni hafði mikinn áhuga á að gera upp gamla trébáta og gerði hann upp nokkra slíka. Segja má að hann hafi verið nokkurs konar yfirumsjónar- maður hafnarsvæðisins í Ólafs- vík síðustu árin og lét hann menn vita ef eitthvað þurfti að laga eða ef eitthvað fór úrskeið- is. Í mörg ár hittust Danni og nokkrir félagar hans á hafnar- svæðinu og ræddu málin. Eftir þá fundi fékk ég oft orð í eyra frá Danna og mig grunar að hann hafi þá verið að verja vin sinn en komið svo til mín til að fá úr hlutunum skorið. Það brást heldur aldrei að þegar Danni keyrði fram hjá svefn- herbergisglugganum mínum mjög snemma morguns oftast fyrir klukkan sjö að hann þurfti nauðsynlega að ná tali af mér og „sat“ hann fyrir mér er ég kom út að morgni og bar upp erindið. Danni tók daginn ávallt snemma og var oftar en ekki mættur í bátinn sinn til að laga milli klukkan fimm og sex að morgni. Danni var laginn og báru bátarnir hans góðan vitn- isburð um hans góða handverk. Oft hittumst við þegar ég fór í mínar daglegu gönguferðir, þá tókum við tal saman og ef við þurftum að ræða málin enn frekar settist ég inn í bílinn hjá honum og við tókum rúnt sam- an um bæinn á meðan málin voru rædd og síðan skilaði hann mér aftur á sama stað svo ég gæti haldið áfram minni ferð. Minningin lifir, hvíl í friði, kæri vinur. Kristinn Jónasson. Daníel Sævar Jónsson ✝ RannveigÞórðardóttir fæddist á Óðins- götu 17b í Reykja- vík 12. maí 1923. Hún lést 11. ágúst 2017 á hjúkr- unarheimilinu Mörk. Foreldrar henn- ar voru hjónin Rannveig Krist- mundsdóttir, f. 26. september 1889, d. 29. maí 1923, og Þórður Guðni Magn- ússon, f. 1. september 1897, d. 18. júní 1976. Hún var tekin í fóstur af móðurömmu sinni og afa þeim Önnu Jónasdóttur, f. 16. janúar 1869, d. 5. nóvember 1952, og Kristmundi Snæbjörnssyni, f. 1. ember 1890 á Heylæk í Fljóts- hlíð, d. 12. apríl 1966. Börn þeirra eru Ari, f. 2. nóvember 1944, og Anna Jó- hanna, f. 27. júlí 1952. Ari er kvæntur Elínu Önnu Brynjólfsdóttur, f. 4. mars 1945. Börn þeirra eru Brynj- ólfur, f. 27. maí 1977, og Anna Rannveig, f. 11. desember 1979. Anna Rannveig er gift Kristni Þór Ólafssyni og eiga þau Elínu Birtu, f. 7. janúar 1998, Maríu Björtu, f. 24. sept- ember 2003, og Ara Snæ, f. 12. nóvember 2009. Anna Jóhanna er gift Kára Geirlaugssyni, f. 15. maí 1949, og eiga þau börnin Guðmund, f. 18. maí 1974, Erlu Björgu, f. 29. ágúst 1978, og Rannveigu, f. 4. maí 1983. Erla Björg er gift Kjartani Vídó Ólafssyni og eiga þau dæturnar Önnu Birnu, f. 14. október 2003, og Krist- jönu Emmu, f. 13. júlí 2010. Rannveig er gift Peter Luke Aisher. Útförin fór fram í kyrrþey. mars 1857, d. 12. júlí 1934. Þau bjuggu í Skálavík, vestan Bolung- arvíkur áður en þau brugðu búi og fluttu til Reykja- víkur. Rannveig giftist Guðmundi Arasyni, f. 17. mars 1919, d. 27. maí 2008. Hann fæddist á Heylæk í Fljótshlíð en átti heima í Vest- mannaeyjum til 11 ára aldurs er hann flutti til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum og bróður. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Jónsdóttir, f. 16. ágúst 1887 í Vest- mannaeyjum, d. 20. mars 1974, og Ari Magnússon, f. 1. sept- Mig langar að minnast móður minnar, Rannveigar Þórðar- dóttur, og heiðra minningu hennar um leið og þess er minnst að liðin eru 100 ár frá fæðingu eiginmanns hennar. Guðmundur Arason og Rann- veig áttu farsælt líf saman í 65 ár. Þau voru um margt ólík, hann mjög félagslyndur at- hafnamaður en hún hæglát kona. Öfugt við pabba þurfti að hafa mikið fyrir því að fá hana til að segja frá sjálfri sér en þau voru samhent hjón sem ávallt settu fjölskylduna í fyrsta sæti. Er ég hugsa um lífshlaup mömmu minnist ég hennar sem góðrar móður sem alltaf var til staðar. Hún var af þeirri kyn- slóð kvenna sem voru heima- vinnandi og sinntu börnum og búi. Foreldrar hennar voru hjónin Rannveig Kristmunds- dóttir og Þórður G. Magnússon. Bjuggu þau í húsi foreldra Rannveigar þeirra Önnu og Kristmundar og þar fæddist mamma. Móðir hennar lést úr skarlatsótt er Rannveig litla var aðeins 17 daga gömul. Þetta var fjölskyldunni þung raun. Amma hennar tók hana að sér og ól hana upp sem sitt þrett- ánda barn. Hún ólst upp við mikið ástríki og gott atlæti. Milli Þórðar og mömmu var innilegt samband og fylgdist hann ávallt vel með högum hennar. Skömmu eftir fæðingu Rann- veigar fór kreppan mikla að hafa áhrif hér á landi. Misstu amma hennar og afi heimili sitt á Óðinsgötunni. Hvernig það bar til var aldrei talað um. Eftir þetta tóku tíðir flutningar við. Afi hennar var kaupmaður og fjölskyldan samhent dugnaðar- fólk og man mamma ekki eftir því að hafa nokkurn tímann lið- ið skort. Eftir að afi hennar lést bjuggu mæðgurnar á Eiríks- götu 15. Þar fæddist Ari bróðir minn 1944. Er mamma og pabbi giftu sig 2. júní 1945 fluttu þau á Bragagötu 22 og bjó gamla konan hjá þeim um tíma. Þar bjuggu líka foreldra pabba og bróðir hans ásamt fjölskyldu. Rannveig hafði ávallt sterkar taugar til fjölskyldu sinnar og skildi hversu mikilvægt var að eiga góða og trausta að. Mamma hafði unnið í hann- yrðaverslun áður en hún giftist. Hún var flink í höndum og list- ræn og bar heimili hennar þess merki. Hún lagði hart að sér til að okkur fjölskyldunni liði sem best. Einhverjar mínu bestu minningar eru frá æskuárum mínum í Kópavogi. Það voru mikil forréttindi að fá að alast upp við það frjálsræði og úti- veru sem Kópavogurinn bauð upp á þá. Ég er samt viss um að hún var á stundum einmana þar, langt frá sínu fólki og strætóferðir stopular. Pabbi vann langan vinnudag í Lands- smiðjunni og oft úti á landi. Í Kópavoginum bjuggum við í 17 ár eða þangað til við fluttum á Reynimel 68. Mamma var þá aftur komin á gömlu slóðirnar sínar, enda naut hún þess að vera komin nálægt miðbænum. Foreldrar mínir bjuggu í tutt- ugu ár á Reynimelnum en fluttu svo aftur upp í „sveit“ að þessu sinni í Garðabæinn. Bjuggu þau í næstu götu við mig og flutti bróðir minn ásamt sinni fjölskyldu einnig í Garða- bæ. Það var foreldrum okkar mikið gleðiefni að hafa okkur öll í nábýli við sig. Ótal gleði- stundir átti fjölskyldan saman í sumarbústaðnum í Öndverðar- nesinu. Þar naut mamma þess að vera með barnabörnunum sem hún alla tíð umvafði með einstökum kærleika og um- hyggju. Skömmu eftir að pabbi dó 2008 flutti mamma á heimili mitt og bjó hjá mér í sjö ár eða þar til hún þurfti meiri umönn- unar við. Hún lést í ágúst 2017. Þessi hljóðláta kona kvaddi þetta líf á hljóðlátan hátt, um- vafin kærleika barna sinna, sem hún unni svo heitt. Hennar er sárt saknað. Anna Jóhanna Guðmundsdóttir. Rannveig Þórðardóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, FINNBOGA HÖSKULDSSONAR véltæknifræðings. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans. Hildigunnur Þórðardóttir Rakel Þóra F. Larsen Keld Larsen Ásdís M. Finnbogadóttir Magnús Magnússon og barnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, tendagmóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR, áður til heimilis á Sléttuvegi 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2N á hjúkrunarheimilinu Eir. Jóna Helgadóttir Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir Matthildur Helgadóttir Tomás Óli Jónsson Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför föður, tengdaföður afa og langafa, HALLDÓRS G. BJÖRNSSONAR, fyrrverandi verkalýðsleiðtoga. Sérstakar þakkir fá starfsfólk og íbúar á Hrafnistu, Reykjavík. Grímur Halldórsson Hildur M. Blumenstein Guðrún Ellen Halldórsdóttir Guðmundur Kr. Jóhannesson Ketill Arnar Halldórsson Jóhanna H. Oddsdóttir Hrafnhildur Halldórsdóttir Smári Ríkarðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.