Morgunblaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019
Reykjavík Gaja
Eleonora Sas fæddist
17. júní 2018. Hún vó
3.844 g og var 51,5 cm
að lengd. Foreldrar
hennar eru Natalia
Graban og Konrad
Kordian Sas.
Nýr borgari
Ég ætla að halda uppá afmælið með þvíað spila í La Travi-
ata, þessari æðislegu óp-
eru, í kvöld,“ segir Geir-
þrúður Ása Guðjónsdóttir,
fiðluleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, en hún
á 32 ára afmæli í dag. Þá
verður önnur sýningin
haldin á óperu Verdis, en
frumsýningin var um síð-
ustu helgi.
„Það var alveg þvílíkt
stuð á frumsýningunni,
þetta var svo skemmtilegt.
Ég hélt að þakið ætlaði að
rifna af húsinu. Ég fæ síð-
an að skjótast til New York
að sjá tilvonandi eiginmann
minn syngja í frumsýningu
í Metropolitan-óperunni og
halda uppá síðbúið afmæli
en svo verð ég komin heim
rétt fyrir þriðju sýninguna
á La Traviata, sem verður
um næstu helgi.“ Sá lukku-
legi heitir Stuart Skelton
og mun hann fara með
hlutverk Sigmunds í Val-
kyrjum Wagners.
Það er annars nóg um að vera hjá Geirþrúði Ásu, Sinfónían er
þessa dagana í vinnustofu ásamt Önnu Þorvaldsdóttur tónskáldi og
Íslenska dansflokknum að undirbúa nýtt verk sem verður flutt á
næsta ári og framundan eru Star Wars tónleikar hjá Sinfóníunni.
Um bíósýningu verður að ræða og það verður í fyrsta sinn sem Sin-
fóníuhljómsveitin heldur Star Wars bíótónleika og verða þeir haldn-
ir 3., 4. og 5. apríl.
„Þetta verða eins og rokktónleikar. Ég tók þátt í Lord of the
Rings-sýningunni en það var ekki Sinfónían sem spilaði þá undir
heldur var meirihlutinn úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Svo er ég að taka þátt í æðislegu verkefni sem er á hverju ári, en
það heitir Upptakturinn, og ég hlakka alltaf til að taka þátt í því. Þá
spilar lítil kammersveit verk eftir ungskáld, sem eru 10-15 ára göm-
ul, á Barnamenningarhátíðinni sem verður 9. apríl. Hátíðin stækkar
á hverju ári og núna verðum við í Silfurberginu í Hörpu en við
byrjuðum í Kaldalóni, sem er minna rými.“
Spilar í óperunni
La Traviata í kvöld
Ása Guðjónsdóttir er 32 ára í dag
Fiðluleikarinn Ása Guðjónsdóttir.
U
nnur Dís Skaptadóttir
fæddist í Hafnarfirði
16. mars 1959, en ólst
upp í Reykjavík.
„Ég hóf skólagöng-
una í Ísaksskóla en gekk í Álfta-
mýraskóla, var einn vetur á Núpi í
Dýrafirði og var í fyrsta útskriftar-
hóp Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Á sumrin var ég í sveit og lengst af á
Harastöðum í Vesturhópi, en einnig
dvaldist ég nokkur sumur hjá ömmu
minni í Kaupmannahöfn þar sem ég
vann flest sumur á unglings-
árunum.“
Eftir stúdentspróf hóf Unnur Dís
nám við Háskóla Íslands í almenn-
um þjóðfélagsfræðum, en haustið
1983 fluttist hún til Bandaríkjanna
og lauk BA prófi í mannfræði frá
University of Massachusetts, Am-
herst, árið 1985. Doktorsprófi lauk
hún frá The Graduate Center of the
City University of New York árið
1995. Unnur Dís hóf störf sem
stundakennari við HÍ 1992 og var
ráðin lektor í mannfræði árið 1998,
en hefur verið prófessor frá árinu
2007.
Rannsóknir Unnar hafa síðustu
áratugi einkum beinst að fólksflutn-
ingum og að reynslu ólíkra hópa inn-
flytjenda á Íslandi, einkum frá Pól-
landi og Filippseyjum. Rannsókn-
irnar hafa fjallað um vinnutengda
flutninga, um stöðu innflytjenda í
samfélaginu og á vinnumarkaði,
þverþjóðleg tengsl og reynslu af því
að læra íslensku. Nýlega hefur hún
einnig beint sjónum að reynslu
flóttafólks á Íslandi. „Ég hef farið til
Filippseyja í rannsóknaleiðangra og
tekið viðtöl við aðstandendur þeirra
sem búa á Íslandi.“
Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í mannfræði við HÍ – 60 ára
Í Kaupmannahöfn Unnur Dís og Gunnar í heimsókn hjá systur Unnar, Steinunni Þóru, og eiginmanni hennar,
Mogens Lundahl. Þarna eru þau stödd við Gefjunarbrunn sem er við Löngulínu.
Rannsakar stöðu
innflytjenda á Íslandi
Morgunblaðið/Hanna
Fræðimaðurinn Unnur Dís.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
GRANDAVEGUR 42
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Sundlaug
4 mín.
11 mín.
Matvöruverslun
2 mín.
11 mín.
Háskóli
4 mín.
15 mín.
Grunnskóli
2 mín.
4 mín.
Leikskóli
1 mín.
5 mín.
Líkamsrækt
3 mín.
20 mín.
Bakarí
1 mín.
3 mín.
AÐEINS
8
ÍBÚÐIR
EFTIR