Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 44

Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 44
laugardaga frá kl. 11 til 17 sunnudaga frá 13 til 17 Sími 568 9512 Opið virka daga frá kl. 11 til 18 Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen) 40-70% afsláttur af öllum vörum Troðfull verslun af merkjavöru Pétur H. Ármannsson arkitekt leiðir gesti um Safnahúsið við Hverfis- götu á morgun, sunnudag, kl. 14 og „segir frá byggingarsögu þessa veglegasta og vandaðasta stein- húss heimastjórnaráranna,“ eins og segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Safnahúsið sé að margra mati eitt fegursta verk á sviði byggingarlistar hér á landi. Segir frá byggingar- sögu Safnahússins LAUGARDAGUR 16. MARS 75. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Um er að ræða risaviðburð í amer- ískum fótbolta hér á landi. Með leiknum tökum við stórt skref fram á við vegna þess að andstæðingur- inn, Empire State Wolfpack, er mun sterkari en þau lið sem við höfum áður mætt,“ sagði Bergþór Pálsson, einn leikmanna Einherja sem stend- ur fyrir stórleik í amerískum fótbolta í Kórnum í Kópavogi í kvöld. »1 Einherjar taka stórt skref fram á við Menntaskólinn í tónlist (MÍT) held- ur nemendatónleika í Kaldalóni Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 14 þar sem flutt verður blönduð efnis- skrá bæði klassískrar og rytmískrar tónlistar. Aðgangur er ókeypis. „Tónleikarnir endurspegla fjöl- breytt námsúrval skólans og víða tónlistarlega sýn,“ segir Sigurður Flosason, aðstoðarskólameistari MÍT, en á tónleikunum koma fram nemendur úr öllum deildum skólans, m.a. stórsveit, djass- hljómsveit, kammer- tónlist og söngva- skáld. Skólinn mun færa út kvíarnar í haust og bjóða upp á nýja námslínu í popptónlist. Frá söngvaskáldum til stórsveitar í Hörpu ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við byrjuðum söfnunina í aðstöðu Sorpu á Sævarhöfða og var það sjálf Matthildur, sem er persóna úr sam- nefndum söngleik sem sýndur er í Borgarleikhúsinu, sem afhenti fyrsta hjólið, en það var stúlka að nafni Elsa Margrét Þórðardóttir sem tók á móti því,“ segir Aldís Yngvadóttir, verkefnastjóri kynn- ingarmála og fjáröflunar hjá Barna- heillum, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til hjólasöfn- unar Barnaheilla sem hleypt var af stokkunum um hádegisbil í gær. Mun söfnunin standa yfir til 23. apríl nk. og hefjast úthlutanir á hjólum í sama mánuði og standa þær fram í maí. Hjólin verða gefin börnum og ungmennum sem ekki hafa tök á því að eignast reiðhjól með öðrum hætti. Hægt verður að sækja um hjól í gegnum félagsþjónustu sveitarfé- laga. Var það Erna Tómasdóttir sem skellti sér í hlutverk hinnar úrræða- góðu Matthildar og afhenti hjólið. Öll hjól tekin í gegn á verkstæði Aldís segir öll hjól fara í skoðun og yfirhalningu á verkstæði áður en þau verða loks afhent nýjum eig- endum. „Hjólin fara í uppklössun á verkstæði sem við opnum sér- staklega þessa daga og vikur sem söfnunin stendur yfir. Þar standa sjálfboðaliðar vaktina sem hjálpa okkur að koma hjólunum í gott ástand,“ segir hún og bætir við að sumir þessara sjálfboðaliða séu starfsmenn bankanna sem bjóði fram vinnu sína og tíma. „Það er alls konar fólk sem býður fram aðstoð sína – menn þurfa ekki að vera neinir sérfræðingar. Við er- um með einn verkstæðisformann sem getur leiðbeint hópnum. Við höfum stundum fengið til okkar sveit af fólki frá bönkunum, en þeir eru með sjálfboðaliðahópa sem eru duglegir að bjóða sig fram.“ Þetta er í áttunda skipti sem hjólasöfnunin er haldin og er hún unnin í samvinnu við Æskuna barna- hreyfingu, Sorpu og fleiri góða vel- unnara, að sögn Aldísar, en alls safn- ast vanalega um 300 hjól. Frá árinu 2012 hafa um 1.800 börn notið góðs af hjólasöfnun Barnaheilla. Þeim sem langar að veita söfn- uninni lið er bent á endurvinnslu- stöðvar Sorpu á Dalvegi í Kópavogi, Breiðhellu í Hafnarfirði, Sævar- höfða, Ánanaustum og Jafnaseli í Reykjavík og Blíðubakka í Mos- fellsbæ. Þá er einnig hægt að fylgj- ast með verkefninu á Facebook- síðunni „Hjólasöfnun Barnaheilla“ og er þar einnig hægt að skrá sig til þátttöku í sjálfboðaliðastarfi og taka þannig þátt í hjólaviðgerðunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Góðverk Hátt í 2.000 börn hafa fengið hjól í gegnum hjólasöfnun Barnaheilla frá 2012 og hófst ný söfnun í gær. Matthildur mætti með fyrsta hjólið í söfnunina  Hjólasöfnun Barnaheilla er komin á fulla ferð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.