Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
60+
meðGunnari Svanlaugs
Frá kr.
222.895
26. apríl í 19 nætur
Tenerife
Minjastofnun hefur úthlutað rúm-
lega 300 milljónum króna úr húsa-
friðunarsjóði. Samtals voru veittir
202 styrkir til ýmissa verkefna.
Sjóðnum bárust 267 umsóknir og
námu beiðnirnar tæplega einum
milljarði króna. Hæsti styrkurinn í
ár, 6,5 milljónir, rann til elsta hverf-
isins á Egilsstöðum sem skilgreint er
sem verndarsvæði í byggð. Hæsta
styrki til húsa og mannvirkja, 5 millj-
ónir króna, fengu Hljómskálinn í
Reykjavík, Verkamannabústaðirnir
við Hringbraut, Amtmannshúsið á
Akureyri og Fífilbrekka að Reykjum
í Ölfusi.
Úthlutað í sex flokkum
Úthlutað var í sex flokkum. 41
styrkur, samtals um 63 milljónir
króna, rann til friðlýstra kirkna víðs
vegar um land. Hæsti styrkur var 4
milljónir króna og fengu hann Holta-
staðakirkja, Krosskirkja og Ljósa-
vatnskirkja. Í flokknum friðlýst hús
og mannvirki voru veittir 37 styrkir
fyrir um 77 milljónir króna. Í flokkn-
um friðuð hús og mannvirki, en þar
er um að ræða byggingar sem eru
sjálfkrafa friðaðar við 100 ára aldur,
voru flestir styrkirnir, 95 að tölu, og
nam styrkupphæðin samtals tæplega
125 milljónum króna. Í flokknum
önnur hús og mannvirki voru veittir
22 styrkir, samtals að upphæð um 21
milljón króna. Hæsti styrkurinn, 4
milljónir króna, rann til Laxabakka
við Kjós. Stöpull undir styttu af
Héðni Valdimarssyni fékk einnar
milljónar krónu styrk. Í flokknum
rannsóknir voru veittir fjórir styrkir,
samtals fyrir 4 milljónir króna. Loks
voru þrír styrkir veittir í flokknum
verndarsvæði í byggð, samtals fyrir
tæplega 12 milljónir króna. Auk
styrksins til Egilsstaða voru gamli
bærinn á Blönduósi og Selvogur í
Ölfusi styrktir. gudmundur@mbl.is
Um 300 milljón-
ir í húsvernd
Úthlutun úr húsafriðunarsjóði lokið
Morgunblaðið/Arnaldur
Hljómskálinn Fimm milljóna styrk-
ur fékkst til endurbóta í ár.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er þessi árlega barátta eftir
veturinn. Það fýkur hingað mikið af
rusli, einkum frá Egilshöll og bygg-
ingarsvæðum í Úlfarsárdal. Mikið af
þessu rusli er popppokar, gosglös og
alls konar plast tengt fram-
kvæmdum. Svo er auðvitað mikið af
kertadósum og öðru dóti sem fýkur
af leiðunum,“ segir Helena Sif Þor-
geirsdóttir, garðyrkjuverkstjóri og
umsjónarmaður Gufuneskirkju-
garðs, í samtali við Morgunblaðið.
Gufuneskirkjugarður er í hjarta
Grafarvogshverfis, á milli Húsa-
hverfis og Rimahverfis, og er hann
rúmir 30 hektarar að stærð. Þar
starfa alls þrír einstaklingar við um-
hirðu og segir Helena Sif það vera
mikið verk að halda svæðinu hreinu.
Sökum þessa hefur hún brugðið á
það ráð að auglýsa eftir góðhjört-
uðum sjálfboðaliðum sem lagt geta
starfsmönnum lið, en það gerði Hel-
ena Sif nýverið á Facebook-síðunni
„Plokk á Íslandi“.
„Garðurinn hjá okkur er svo
gróinn að allt rusl festist mjög auð-
veldlega og þegar snjóa leysir er
þetta rusl mjög áberandi,“ segir hún
og heldur áfram: „Svo erum við svo
rosalega fáliðuð hér, eða bara þrjú
með 34 hektara land. Við ættum alla
jafna að vera sex talsins.“
Þröngur fjárhagur
Helena Sif segir starfsmenn í
garðyrkjuhópi Gufuneskirkjugarðs
hafa nýlokið við að tína leiðisgreinar
af leiðum, en hún segir hópinn vana-
lega flokka allt rusl, einnig grein-
arnar. „Það er mjög mikið af plasti
og vírum á þeim og því tekur langan
tíma að flokka greinarnar. Við gátum
hins vegar ekki flokkað þær í ár sök-
um manneklu og tímaleysis,“ segir
hún og heldur áfram: „Það fer mikill
peningur í sorphirðu og með þrengri
fjárhag síðustu ár þarf einhvers stað-
ar að skera niður. Og hefur það nú
verið gert í sorphirðunni.“
Vill hún því hvetja þá sem sækja
garðinn heim til að taka rusl með sér
í stað þess að skilja það eftir eða
koma því fyrir óflokkuðu í tunnur.
Þá vill Helena Sif einnig benda
þeim sem vilja taka til hendinni í
garðinum að hægt sé að skilja fulla
ruslapoka eftir við malbikaðar götur
garðsins, en þangað geta starfsmenn
sótt pokana með góðu móti.
Kallað eftir sjálfboðaliðum
Ljósmynd/Helena Sif Þorgeirsdóttir
Jóladrasl Starfsmenn Gufuneskirkjugarðs hafa lokið við að fjarlægja leiðisgreinar en aðeins þrír sinna verkinu.
„Hljóðið í bæjarstjóranum var ekk-
ert mjög jákvætt gagnvart breyt-
ingum á deiliskipulagstillögunni“
sagði Sigurður Örn Sigurðsson, einn
forsvarsmanna hóps sem mótmælt
hefur áfornmum um nýtt deiliskipu-
lag við Dalveg í Kópavogi, í samtali
við Morgunblaðið eftir fund með Ár-
manni Kr. Ólafssyni í gærmorgun.
Yfir eitt hundrað íbúar í Hjalla-
hverfi í Kópavogi hafa ritað undir
mótmæli vegna málsins, en á lóðinni
nr. 32 við Dalveg á að rísa stór skrif-
stofubygging með 300 bílastæðum
og verður hún á mótum Breiðholts-
brautar og Nýbýlavegar. Óttast íbú-
arnir að umferð um Dalveg aukist
mjög í kjölfarið, en hún er nú þegar
þung á álagstímum. Dalvegur er
aðalumferðarleið íbúa í Hjallahverfi
til og frá heimilum sínum.
Sigurður Örn og Rúnar Þór Stef-
ánsson náðu tali af bæjarstjóra í
reglulegum viðtalstíma hans á
bæjarskrifstofunni. „Þetta var ágæt-
is fundur,“ sagði Sigurður Örn.
Farið hefði verið yfir ýmis mál tengd
fyrirhuguðum framkvæmdum. Þeir
hefðu bent á að verktakinn hefði
keypt lóðina með 9.300 fermetra
byggingarmagni en ætlaðist nú til
þess að bæjarstjórn samþykkti tæp-
lega 21 þúsund fermetra. Þá hefði
verið rætt um umferð á svæðinu og
hljóðvist sem ekki væri góð. Meðal
annars hefði verið rætt um hugmynd
um veg sem liggja myndi meðfram
Reykjanesbraut frá Dalvegi 32 að
hópferðamiðstöð Teits Jónassonar
við Dalveg 22 og hefði bæjarstjóri
tekið vel í hana.
Þá hefði bæjarstjóri fallist á nauð-
syn þess að rannsaka frekar um-
ferðarþunga um Dalveg.
gudmundur@mbl.is
Umferðarþungi um Dalveg
verði kannaður frekar
Íbúar sem mótmæla nýju deiliskipulagi hittu bæjarstjóra
Teikning/Reykjastræti - fasteignafélag
Deiliskipulag Kópavogsbær vill breyta deiliskipulagi við Dalveg og heimila stórbygginguna á myndinni.