Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 12

Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 12
sp ör eh f. Sumar 12 Það er draumi líkast að ferðast um strandlengju Króatíu. Ferðin byrjar í Filzmoos fjallaþorpinu í Austurríki þar sem ólýsanleg náttúrufegurð tekur á móti okkur, m.a. í Hallstatt. Við munum eiga dýrðardaga í bænum Opatija við Kvarner flóa og fara þaðan í ævintýralegar ferðir, m.a. til eyjunnar Krk og til listamannabæjarins Rovinj sem er litríkur bær og iðar af mannlífi. 19. - 30. júní Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 283.300 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! Eyjaperlur Króatíu 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Kvefi og öndunarfærasýk-ingum fylgir oft roði íaugum eða auga ogstundum verulegur gröftur sem lekur úr augunum. Þá getur verið þroti á augnlokum eða svokölluð hvarmabólga (Blepharit). Þetta er í langflestum tilvikum hluti ein- kenna og alveg saklaust. Hvarmabólga er mjög algeng og langoftast hættu- laus. Einkenni geta þó verið erf- ið og stundum getur slímhimna augans vaxið inn á hornhimnuna og valdið vandræðum. Tárubólga (Conjunctivitis) er bólga í slímhúð augans eða augnhvítunni og er ekki alveg það sama. Stundum en sjaldnast er hvarmabólga vegna sjúkdóma eins og flösuexem eða rós- roða. Einkenni tárabólgu eru:  Graftarkennd útferð úr augum.  Augun oft límd saman á morgn- ana  Roði í slímhúð/augnhvítu  Pirringur í augum Einkenni hvarmabólgu geta verið:  Sviði í augum  Pirringur í auga eða augum  Kláði, sérlega ef ofnæmi er til staðar.  Roði  Bjúgur á hvörmum Nýlega birtist í The New York Times grein um gagn eða gagnsleysi augndropa við tárubólgu sem er hefðbundin sýking í augum. Þar er vitnað til greinar sem nýlega hafði birst í Opthalmology, en það er tímarit American academy of opt- halmology, sem er ameríska augn- læknafélagið. Rannsóknin er áhugaverð. Sam- tals náði hún til 340.372 þátttakenda um öll Bandaríkin á árunum 2001- 2014. Undanfari þessarar rann- sóknar er sú staðreynd að 80% af tárubólgu (Conjunctivitis) orsakast af veirusýkingu og því ekki með- höndlanleg með sýklalyfjum, hvorki augndropum né öðrum sýklalyfjum. Aðalhöfundur rannsóknarinnar og greinarinnar er Nakul S. Shekhawat og gerði hann ásamt samstarfsfólki sínu þessa yfirgripsmiklu rannsókn. Í rannsókninni fengu 198.462 manns sýklalyf í augndropaformi og 38.774 sýklalyf blandað í steradropa. Í raun á aldrei eða að minnsta kosti ekki nema í undantekningartilvikum að nota sterablöndur í bráðasýkingum af þessum toga. Í þeim tilvikum geta droparnir gert meira ógagn en gagn. Bakstrar á augnlok En hvað er til ráða? Ef hvarma- bólga veldur óþægindum má reyna að setja heita bakstra, til dæmis þottapoka, á augnlok eða auga eða þurrka gröftinn með bómull vættri í soðnu eða köldu vatni. Ef vandinn dregst á langinn eða er mjög erfiður er bara að leita að- stoðar, hvort sem það er á þinni heilsugæslustöð, Læknavaktinni eða á stofum augnlækna. Táravökvi inniheldur sýkladrep- andi eða heftandi efni og læknar því flestar sýkingar af þessum toga. Í verstu tilfellum verður líka að nota sýkladrepandi og bólgueyðandi dropa í augun. Hvarmahreinsun og mýkingu þarf oft að halda áfram vikum og mánuðum saman. Jafnvel ævilangt í verstu tilvikunum en þá alltaf í samráð við sérfræðing í augnsjúkdómum. Saklaus hluti kvefs Er þetta smitandi? Allt kvef er smitandi, líka það sem kemur í augu. Hvarmabólga er sjaldnast smitandi en tárubólga stundum. Þetta er þó afar sjaldan til vandræða og líkam- inn ræður vel við slíkt kvef án að- stoðar nema í undantekningar- tilvikum. Táravökvi inniheldur sýkladrepandi eða heftandi efni og læknar því flestar sýkingar af þess- um toga Það er sem sagt mikilvægt að átta sig á því að tárubólga og hvarma- bólga er algengur og að jafnaði sak- laus hluti kvefs. Besta meðferðin er að sinna augunum af natni með því að þurrka gröftinn með volgum vættum bómullarhnoðra. Augnsýkingar sem oftast læknast mjög auðveldlega Heilsuráð Óskar Reykdalsson heimilislæknir og settur forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. Óskar Reykdalsson Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. Morgunblaðið/Eggert Sjón Allt kvef er smitandi, líka það sem kemur í augu. Ágerist veikindi er nauðsynlegt að leita aðstoðar. Táravökvi inniheldur sýkladrepandi eða heftandi efni og læknar því flestar sýkingar af þessum toga ingu BKR hlutu Píeta samtökin, en þau sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja sömuleiðis við aðstandendur. Í ályktun ársþings segir að stórauka þurfi forvarnir á sviði vímuefna á Ís- landi. Er skorað á yfirvöld fjár- og menntamála að veita auknu fé í mála- flokkinn. Í fréttum hafi komið fram að dánartíðni ungs fólks af völdum stórra lyfjaskammta og fíkniefna hafi aukist stórlega. „Fræðsla um skaðsemi þessara efna þarf að vera hluti af skólagöngu barna og unglinga og við megum ekki sofna á verðinum,“ segir BKR, sem sextán fé- lagasamtök í borginni, sem öll vinna að velferðarmálum, eiga aðild að. Bandalag kvenna í Reykjavík hélt 103ja ársþing sitt nýverið og valdi af því til- efni sem Konu ársins Báru Tómas- dóttur. Bára er móðir Einars Darra Óskarssonar sem lést í maí í fyrra eftir neyslu róandi lyfja. Í kjölfarið stofnaði hún minningarsjóð um son sinn og setti forvarnarátakið Ég á bara eitt líf á laggirnar með það að leiðarljósi að varpa ljósi á fíkniefnavandann á Íslandi. „Bára er baráttukona og hefur frá andláti sonar síns haft það að mark- miði að fræða unga sem aldna um skaðsemi róandi lyfja og heldur fræðslufundi um málefnið um land allt,“ sagði Fanney Úlfljótsdóttir, for- maður BKR, þegar Báru var afhent viðurkenningin. Hvatningarviðurkenn- Ársþing Bandalags kvenna í Reykjavík Bára var valin kona ársins Viðurkenning Frá vinstri; Fanney Úlfljótsdóttir formaður BKR, Bára Tómas- dóttir, Kona ársins, og dætur hennar, Andrea Ýr og Aníta Rún Óskarsdætur. Neskirkjuhlaupið fer að þessu sinni fram laugardaginn 23. mars kl. 10. Hlaupið er árvisst og er nú sem endra nær lagt upp frá Neskirkju í Vesturbæ Reykjavíkur. Farið eftir sóknarmörkum Nessóknar sem er í póstnúmeri 107. Mörk þessi liggja um Hringbraut í norðri, Suðurgötu í austri og mæri Reykjavíkur og Seltjarnarness í vestri, auk suðurstrandarinnar. Hlaupið er 10 km, án tímatöku, einnig er hægt að fara styttri hring. Boðið er upp á orku- ríkar og umhverfisvænar veitingar að hlaupi loknu og fararblessun áður en lagt er af stað. Neskirkjuhlaup á laugardag Hlaupið í 107 Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka Rauði krossinn á Íslandi og Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík, með stuðningi utanríkis- ráðuneytis, standa að málþingi sem verður í Norræna húsinu í Reykjavík, í dag fimmtudaginn 21. mars milli klukkan 9 og 12 og verður þar fjallað um Genfarsamningana og lög í stríði. Málþinginu er ætlað að auka þekk- ingu fagfólks og almennings á alþjóð- legum mannúðarlögum. Umfjöllunar- efnið afmarkast við lög í stríði með áherslu á vernd almennra borgara í átökum gegn kynferðislegu og kyn- bundnu ofbeldi og áhrif vopnaðra átaka á heilbrigðisþjónustu. Þá verð- ur jafnframt fjallað um mannúðar- réttinn og íslenskt lagaumhverfi. Rauði krossinn með málþing Ræða Genfar- samningana Sýrland Átökin eru afar langvinn. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.