Morgunblaðið - 21.03.2019, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
eldisfyrirtæki greiða þegar gjald í
Umhverfissjóð sjókvíaeldis.
Þá má nefna að hafnargjöld eru
hér á landi lögð á samkvæmt verð-
mætisreikningi, sem þekkist ekki í
Færeyjum. Þá hefur færeyskum eld-
isfyrirtækjum gengið óvenjulega vel
í rekstri á undanförnum misserum,
m.a. vegna aðgangs að Rússlands-
markaði.“
Skemmra á veg komnir
Ennfremur segir í greinargerð-
inni: „Það er lýðum ljóst að íslenskt
fiskeldi sem atvinnugrein er komið
skemmra á veg heldur en fiskeldi í
Færeyjum og aðstæður kunna að
vera um sumt aðrar. Því er ótvírætt
að ekki verður borin saman
rekstrarafkoma íslenskra og fær-
eyskra fiskeldisfyrirtækja svo sem
nú standa sakir.“
Í greinargerð kemur fram að það
sé ástæðan fyrir því að lögð er til sjö
ára aðlögun að fullu gjaldi. Jafn-
framt sé ljóst að komi til þess að upp-
bygging fiskeldis verði ekki slík, sem
að er stefnt ákveðnum skrefum af
fiskeldisfyrirtækjunum, þá geti það
kallað á endurskoðun gjaldtöku sam-
kvæmt frumvarpinu.
Lagt er til að Fiskistofa leggi á
gjöld vegna nýtingar á eldissvæðum
í sjó þar sem stofnunin hafi reynslu
af álagningu veiðigjalda í sjávar-
útvegi.
Úr greinargerð með frumvarpinu:
„Það eru aðeins fáir staðir í heim-
inum sem bjóða upp á vistfræði-
legar aðstæður til umfangsmikillar
og arðbærrar eldisframleiðslu í
sjókvíum á Atlantshafslaxi. Auk
Noregs og Færeyja eru það helst
Síle, Skotland og Kanada. Við Ís-
land hefur slík framleiðsla ekki
náð sér verulega á strik fyrr en á
allra síðustu árum.
Samkvæmt bráðabirgða-
uppgjöri Hagstofu Íslands fyrir út-
flutning ársins 2018 nam útflutn-
ingur á afurðum eldislax um 9
milljörðum kr. Á sama ári nam út-
flutningur afurða úr bleikjueldi 3,5
milljörðum. Að auki voru flutt út
lax- og silungshrogn fyrir tæpa 2
milljarða króna. Útflutningur ann-
arra sjávarafurða nam á árinu
2018, til samanburðar, um 240
milljörðum króna.“
Og ennfremur: „Sjö rekstrar-
aðilar starfrækja eldi á laxi og
regnbogasilungi í sjókvíum á Vest-
fjörðum og Austfjörðum. Í septem-
ber 2018 voru útgefin rekstrarleyfi
fyrir framleiðslu á laxi fyrir sam-
tals 45.200 tonn á ársgrundvelli
og 2.850 tonn af regnbogasilungi.
Til samanburðar voru árið 2009
framleidd 714 tonn af óslægðum
laxi í kvíum og 75 tonn af regn-
bogasilungi.“
Mikil uppbygging í eldi
ELDISLAX FLUTTUR ÚT FYRIR UM NÍU MILLJARÐA Í FYRRA
Sannkölluð náttúruperla á frábærum stað!
Hafnarfjarðarbær auglýsir nýjar lóðir í fjölskylduvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Við hönnun og skipulag hverfis er
áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Stutt er í alla
verslun, þjónustu og menningu. Möguleikar á að starfa í heimabyggð eru miklir og mikil nálægð við uppland
Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur. Grunnskóli í Skarðshlíð hefur þegar tekið til starfa og mun leikskóli taka til
starfa haustið 2019. Ný mislæg gatnamót eru komin í notkun, tvöföldun Reykjanesbrautar í sjónmáli og
Ásvallabraut komin á kortið. Áætluð verklok við færslu Hamraneslínu eru í september2019.
Einbýli | Tvíbýli | Parhús | Raðhús | Fjölbýlishús
Í Skarðshlíð rís blönduð byggð einbýlishúsa, parhúsa, raðhúsa, tvíbýlishúsa og fjölbýlishúsa. Fjölbreyttar lóðir
eru nú lausar til úthlutunar til einstaklinga og lögaðila. Einstaklingar ganga fyrir við úthlutun einbýlis- og
parhúsalóða. Sótt er um rafrænt áMÍNAR SÍÐUR á hafnarfjordur.is
Allar lóðir í áfanga 1 eru seldar og nokkur fjöldi lóða í áfanga 2. Nú hefur verið opnað á úthlutun lóða í áfanga 3.
Umsóknarfrestur í fyrstu úthlutun lóða í Skarðshlíð3. áfanga er22. apríl 2019.
Kynningarfundur fyrir verktaka þriðjudaginn 26. mars kl. 11:30 í Hafnarborg.
Kynningarfundur fyrir alla áhugasama fimmtudaginn 28. mars kl. 17 í Skarðshlíðarskóla.
Helstu upplýsingar
Sjá skardshlidin.is
Ítarefni á hafnarfjordur.is
Leitarorð: Lausar lóðir
Umsóknarfrestur
Frestur fyrir fyrstu úthlutun í 3.
áfanga er 22. apríl 2019.
Fylgigögn
Upptalning áhafnarfjordur.is
Leitarorð: Lausar lóðir
Umsóknir
Mínar síður áhafnarfjordur.is
Fyrirspurnir
hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
585 5500
EITT FALLEGASTA BYGGINGARLAND HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS!
Fyrsti fundur nýskipaðrar verk-
efnisstjórnar í byggðaþróunarverk-
efninu Brothættar byggðir á Bakka-
firði var nýlega haldinn í skóla-
húsnæðinu á Bakkafirði. Á fundinum
var farið yfir verklag í Brothættum
byggðum og rætt hvernig verkefnið
geti nýst samfélaginu á Bakkafirði.
Á fundinum var rætt um stöðuna í
byggðarlaginu, en ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt tillögur samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra um eflingu
byggðar við Bakkaflóa, segir á
heimasíðu Byggðastofnunar. Tillög-
urnar voru settar fram í skýrslu
nefndar sem ráðherra skipaði til að
fjalla um málefni byggðarinnar.
Í skýrslunni kemur fram að standi
vilji til þess að bregðast við nei-
kvæðri byggðaþróun með afgerandi
hætti þurfi það að gerast fljótt svo
að viðleitni í þágu byggðar við
Bakkaflóa verði þegar vart heima í
héraði. Jafnframt leggur nefndin til
að ríkið verji allt að 40 milljónum
króna á ári í fimm ár til undirbún-
ings verkefna á Bakkaflóasvæðinu
og að samningur þar um verði
endurskoðaður að tveimur árum
liðnum.
Aukin þjónusta
Íbúar völdu fulltrúa sína í verk-
efnisstjórn í kosningum í febrúar
síðastliðnum og voru kosningar
haldnar í húsnæði verslunarinnar.
Þar er unnið að endurbótum með
það fyrir augum að opna þar pönt-
unarþjónustu og kaffi- og veitinga-
aðstöðu fyrir íbúa og gesti.
Á fundinum var kynnt og undir-
ritað rammasamkomulag sveitar-
félagsins við Þorkel Gíslason um
umsjón tjaldsvæðis, uppsetningu
þjónustumiðstöðvar, verslunar og
verslunarþjónustu og uppsetningu
og reksturs gistiheimilis í skólahús-
næðinu á Bakkafirði.
Byggðaþróunarverkefnið er sam-
starfsverkefni íbúa á Bakkafirði og
nærsveita, Langanesbyggðar, Ey-
þings, Atvinnuþróunarfélags Þing-
eyinga og Byggðastofnunar. Næstu
skref eru að halda íbúaþing og vinna
að stefnumótun fyrir verkefnið.
Íbúaþing í opnu rými
Helgina 30.-31. mars er íbúum,
fjarbúum og öðrum hagsmunaaðil-
um samfélagsins við Bakkaflóa boðið
til íbúaþings. Það er haldið til að
vera verkefnisstjórninni og íbúum
veganesti í starfinu sem standa mun
í allt að fimm ár og eru skilaboð og
áherslur íbúa þungamiðja vinnunn-
ar, segir í frétt Byggðastofnunar.
Þingið stendur í tvo daga og er
ekki fyrir fram mótuð dagskrá held-
ur geta allir viðstaddir stungið upp á
umræðuefnum sem síðan eru rædd í
smærri hópum. Aðferðin kallast Op-
ið rými, eða Open Space á ensku, og
á sér rúmlega 30 ára sögu og hefur
gefist vel á íbúaþingum sem þessum.
Umsjón með íbúaþinginu hefur
Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá
ILDI og fer það fram í skólahúsnæð-
inu á Bakkafirði. aij@mbl.is
Unnið að átaki í þágu
byggðar við Bakkaflóa
Verkefnisstjórn tekur til starfa Íbúaþing fram undan
Morgunblaðið/Golli
Brothætt byggð Við bryggju í Bakkafirði fyrir þremur árum.