Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 25

Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019 Martin Chungong, framkvæmda- stjóri Alþjóðaþingmannasambands- ins, IPU, heimsótti Alþingi í vikunni þar sem hann átti fund með for- mönnum eða fulltrúum þingflokka. Á fundinum ræddi hann jafnréttis- mál í þjóðþingum og mikilvægi þess að berjast gegn kynbundnu ofbeldi og mismunun. Í framhaldi átti hann hádegisverðarfund með þingmönn- um í Íslandsdeild Alþjóðaþing- mannasambandsins og átti síðan kvöldverðarfund með Steingrími J. Sigfússyni þingforseta. Fundaði með talsmönnum þingflokka Ljósmynd/Alþingi Alþingi Martin Chungong, framkvæmdastjóri IPU, á hádegisverðarfundi með formönnum og fulltrúum nokkurra þingflokka á Alþingi í vikunni. Sjávarútvegsskóli háskóla Samein- uðu þjóðanna var stofnaður 1998 á grundvelli þríhliða samkomulags milli Háskóla Sameinuðu þjóðanna, utanríkisráðuneytisins og Hafrann- sóknastofnunar. Síðan þá hafa 392 nemendur frá yfir 50 löndum lokið námi frá skólanum. Um miðjan mars brautskráðist 21. hópurinn frá skólanum. Að þessu sinni voru nemendur 24, þar af níu konur. Þau komu frá 15 löndum í Eyjaálfu, Asíu, Afríku, Mið-Ameríku og löndum í Karíbahafi. Við athöfn- ina flutti Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarp og Seion Richardsson frá Gvæjana flutti ávarp fyrir hönd útskriftarhópsins. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar og formaður stjórnar, stýrði athöfninni. Í lok hennar þakkaði hann Tuma Tómassyni, skólastjóra ShSÞ, sér- staklega fyrir vel unnin störf, en Tumi mun láta af störfum sem skóla- stjóri síðar á árinu. 21. útskriftin frá Sjávarútvegsskóla SÞ  Alls 392 nemendur frá yfir 50 löndum FISK Seafood á Sauðárkróki fagn- aði þeim áfanga á dögunum að búið væri að vinna úr 6.000 tonnum af hráefni á kvótaárinu, eða síðan 1. september sl. Veisla var haldin í landvinnslu fyrirtækisins. Þar héldu Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, og Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður fyrirtækisins, stuttar tölur. Þórólfur færði svo fulltrúum starfsmannafélagsins þrjár milljónir króna að gjöf frá stjórn fyrirtækisins. Togarar FISK Seafood hafa verið að fiska vel í vetur. Þannig voru Drangey SK og Málmey SK afla- hæstu togararnir í febrúarmánuði, Drangey með 811 tonn og Málmey með 763 tonn. Á vef Feykis kemur fram að Drangey hafi landað 204 tonnum í Grundarfirði á mánudag og Málmey verið með 203 tonn í síðustu viku. Starfsmenn fengu þrjár milljónir  FISK Seafood fagnaði veiðiáfanga Ljósmynd/FISK Seafood FISK Fulltrúar starfsmanna taka við gjöfinni frá Þórólfi Gíslasyni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sex ökumenn á sex klukku- stunda tímabili sl. þriðjudag vegna gruns um að aka undir áhrifum fíkniefna. Sumir þeirra höfðu ekki ökuréttindi og aðrir ítrekað komið við sögu lögreglu fyrir margháttuð brot. Ökumennirnir voru stöðvaðir í Breiðholti, Vesturbænum, í póst- númerum 105 og 108, sá fyrsti síð- degis í hverfi 108, eða korter fyrir sex, og sá síðasti upp úr miðnætti í Breiðholti. Einn ökumaðurinn var grunaður um sölu og dreifingu á fíkniefnum og lyfjum og var vistaður í fanga- geymslu á meðan lögregla rannsak- aði málið. Til viðbótar var einn öku- maður tekinn í Hafnarfirði, sem reyndist réttindalaus og hafði sá hinn sami áður verið tekinn fyrir það sama. Í fyrrinótt, á einni klukkustund, sektaði lögreglan á höfuðborgar- svæðinu eigendur níu ökutækja fyr- ir stöðubrot. Sex ökumenn undir áhrifum fíkniefna Endursöluaðilar á landsbyggðinni: Jötunn vélar Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum - Bike Tours Grindavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.