Morgunblaðið - 21.03.2019, Page 28
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirtækið Arctic Trucks stefnir á að
verða leiðandi í breytingum og við-
gerðum á fjórhjóladrifnum bílum í
Evrópu á næsta ári. Félagið er nú
með starfsemi á Íslandi, Englandi,
Dubai og í Noregi. Þá reka sérleyfis-
hafar útibú í fjórum löndum; Póllandi,
Rússlandi, Finnlandi og Suður-
Afríku. Unnið er að sókn á ný mark-
aðssvæði á næstu misserum.
Tæknideild móðurfélagsins er á Ís-
landi en hún fer með þróunar- og
hönnunarvinnu.
Dótturfélagið í Noregi, Arctic
Trucks Norge, flutti á dögunum í nýj-
ar höfuðstöðvar í Solbergsmoen.
Þær eru um 11 km frá fyrri höfuð-
stöðvum félagsins í Drammen. Á leið-
inni þangað var ferðast frá Ósló til
Mjøndalen, sem er næsta stopp á eftir
Drammen, en ferðalagið tók um 40
mínútur með lest. Við tók nokkurra
mínútna akstur á áfangastað.
Þegar Morgunblaðið leit við í Sol-
bergsmoen á föstudaginn var voru
starfsmenn að ganga frá eftir vikuna.
Vinnudeginum á verkstæðinu lauk
klukkan eitt, að norskum sið. Menn-
irnir á verkstæðinu vinna frá 7 til
16.30 frá mánudegi til fimmtudags og
safna þannig vinnustundum til að
stytta föstudaginn og lengja helgina.
Alls 8 af 28 starfsmönnum fyrir-
tækisins eru Íslendingar.
Arctic Trucks Norge er nú með
samninga við Toyota, Nissan, Isuzu,
Volkswagen og Jeep um breytingar á
jeppum. Tekið er við pöntunum hjá
umboðum sem afhenda bílana eftir
breytingar. Um 95% af jeppum sem
Arctic Trucks Norge breytir koma
nýir til félagsins.
Skóflustungan í fyrrasumar
Örn Thomsen, framkvæmdastjori
Arctic Trucks Norge, stofnaði fyrir-
tækið árið 1998. Árið 1999 varð
Eiríkur Tómas Magnússon fyrsti
starfsmaður á verkstæði og hefur síð-
an verið yfirmaður þess. Starfsmenn-
irnir voru orðnir fjórir fyrstu áramót-
in en þeir hafa mest verið 49 árið
2012. Umsvifin voru mest þegar félag-
ið var með samstarfssamning við
norska herinn. Breytti félagið m.a.
Toyota Land Cruiser-jeppum sem
notaðir voru í Afganistan.
Jepparnir voru með skotheldu gleri
og sprengjuvarðir.
Skóflustunga að nýja húsinu í Sol-
bergsmoen var tekin 12. júní í fyrra-
sumar. Um 36 þúsund rúmmetrar af
leir voru fjarlægðir og 5.600 rúm-
metrar af sprengdum stein og möl
settir í staðinn. Byggingin var tekin í
notkun laugardaginn 9. mars sl.
„Með þessari nýbyggingu erum við
með stærstu miðstöð fyrir fjórhjóla-
drifna bíla í Skandinavíu. Það gerir
okkur kleift að bjóða nýja þjónustu.
Við erum nú í fyrsta sinn með alvöru
verslun og getum boðið upp á dekkja-
hótel og skoðun á bílum. Við munum
leggja áherslu á dekk frá Nokian og
BFGoodrich og m.a. bjóða hótel fyrir
dekk, skíðabox og þaktjöld, ásamt
uppsetningu á skíðaboxum og þak-
tjöldum,“ segir Örn.
Nýju höfuðstöðvarnar eru 4.300
fermetrar. Verslunin er 400 ferm. og
lagerinn 650 ferm. Hinn hlutinn eru
skrifstofur og verkstæði. Fyrirtækið
getur afhent 300 breytta bíla og 200
rafbíla á ári. Við þetta bætast afköst á
þjónustu- og dekkjaverkstæði.
Kostar um 2,8 milljónir
Félagið er með vefsíðu þar sem við-
skiptavinir geta sett saman tilboð.
Meðalbreytingin á jeppa kostar um
200 þúsund norskar krónur, eða um
2,8 milljónir króna. Kemur þar til
kostnaður við aukahluti og vinnu en
breytingar geta kostað hundruð
vinnustunda. Við breytingarnar eru
bílarnir almennt hækkaðir, fjöðrunin
styrkt, sett stærri dekk og felgur og
komið fyrir brettaköntum.
Örn segir breytta bíla í Noregi
halda verðgildi sínu betur en óbreytt-
ir bílar. Það vitni um sterka stöðu
Arctic Trucks á markaðnum. „Við
erum með viðskiptavini sem eru að
kaupa bíla númer 4 og 5. Einn þeirra
ekur nú á tíunda bílnum.“
Meðal annarra nýjunga hjá Arctic
Trucks Norge er samstarf við Tembo
um að breyta Hilux pallbílum í rafbíla.
Tembo hefur þróað breytingar á bíl-
um í rafbíla fyrir námur.
„Við útbúum bílinn sem vinnuvél
fyrir námur og vinnusvæði. Frum-
gerðin kom hér fyrir viku, föstudag-
inn 8. mars, og fór svo til námufyrir-
tækis í Kiruna [á Lapplandi í Svíþjóð].
Fyrstu bílarnir koma á markað í
ágúst. Við erum með samstarfssamn-
ing við hollenska fyrirtækið Tembo og
höfum unnið með því lengi. Það hófst
með því að Tembo breytti bílum fyrir
okkur fyrir Afríkumarkað, nánar til-
tekið í frönskumælandi löndum.
Félagið hefur verið að breyta bílum
fyrir iðnað í um hálfa öld og hefur m.a.
breytt Toyota Land Cruiser í rafbíl.
Við ákváðum að gera samning við fé-
lagið um breytingar á Toyota Hilux
fyrir Norðurlöndin; Danmörk, Finn-
land, Ísland, Noreg og Svíþjóð.“
Örn segir aðspurður það kosta um
60 þúsund evrur, eða sem svarar 8
milljónum króna, að breyta Toyota
Hilux í rafbíl. Drægnin ræðst af því
hver burðargetan á að vera. Því meiri
drægni þeim mun stærri rafhlöður,
sem aftur skerðir burðargetu. Miðað
er við að almennt verði burðargetan í
Hilux-jeppum Arctic Trucks 800 til
1.000 kíló.
Hilux-pallbíllinn sá eini
Örn segir marga rafknúna pallbíla
að koma á markað. Hins vegar sé Hi-
lux-bíll Arctic Trucks sá eini sem sé
sérútbúinn fyrir erfiðar aðstæður.
„Markaðurinn hér í Noregi fyrir
svona vinnuhest, sem hefur fengið
rafmótor í stað sprengihreyfils, er
ekki talinn í þúsundum heldur senni-
lega í hundruðum,“ segir Örn og
bendir á að auknar kröfur eigi þátt í
hraðri útbreiðslu rafbíla í Noregi. Til
dæmis geti verktakar ekki boðið í
stærstu verk nema hluti ökutækja losi
Bílar og aukahlutir Ný verslun er í nýju höfuðstöðvunum. Á verkstæðinu Jóhann Örvar Sigurðsson og Jón Reynisson. Skipulag Fyrirtækið er nú með 650 fermetra lager.
Verða stærstir í Evrópu 2020
Arctic Trucks stefnir á nýja markaði næstu misseri Arctic Trucks í Noregi í nýjar höfuðstöðvar
Opna nýja verslun og bjóða meiri þjónustu Hefja markaðssetningu á rafknúnum Hilux-jeppum
Ljósmynd/Arctic Trucks
Félagar Eiríkur Tómas Magnússon og Örn Thomsen hafa starfað saman hjá Arctic Trucks Norge frá 1999. Félagið er nú leiðandi á sínu sviði í Noregi.
Ljósmyndir/Baldur
Í Solbergsmoen Nýju höfuðstöðvarnar voru vígðar 9. mars síðastliðinn. Verslun Halldór Stefánsson og Baldvin Einarsson við Isuzu með þaktjaldi.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019