Morgunblaðið - 21.03.2019, Qupperneq 29
ekki gróðurhúsalofttegundir. Það
dragi úr mengun að hætta notkun
bensín- og dísilbíla í námunum.
„Við sjáum fyrir okkur að stærsti
kúnnahópurinn [fyrir rafútgáfuna af
Hilux] verði námur. Kostnaður af loft-
ræstingu, af því að hreinsa mengunina
út og fá ferskt loft í staðinn, er hátt
hlutfall af heildarrekstrarkostnaði
námunnar. Þessar námur koma til
með að vera í rekstri og þar af leiðandi
er loftræstingin viðvarandi fasta-
kostnaður.
Bílunum er ekið inn og út úr nám-
unum. Vegirnir í þeim lengstu eru 6-8
km. Margar vinnuvélarnar eru orðnar
rafknúnar. Annaðhvort eru þær með
fastan straum eða með rafhlöður,“
segir Örn og rifjar upp að árin 2009-
2010 hafi markaðshlutdeild dísilbíla í
Noregi verið 70-72% en hafi nú hrapað
í 17% af heildarmarkaðnum. Samhliða
sé hlutfall rafbíla að aukast. Arctic
Trucks Norge horfi til þess að norski
bílamarkaðurinn sé að breytast hratt.
Meðal annarra samninga Arctic
Trucks er samstarf við bílaframleið-
andann Nissan. Felur það meðal ann-
ars í sér breytingar á Nissan-pallbíl
sem seldur er með 32 tommu dekkj-
um um alla Evrópu.
„Bíllinn er framleiddur hér fyrir
Skandinavíu. Framleiðslan fyrir Ís-
land fer fram heima á Íslandi og svo
er hann framleiddur fyrir Arctic
Trucks á Spáni fyrir stærstan hluta
Evrópu. Það er gerðarviðurkenning á
bílnum með þessari breytingu eins og
ef hann væri frá framleiðanda. Þetta
er alveg nýtt módel hjá Nissan sem er
á heimasíðu Nissan, merkt AT32. Öll
umboðin, hvort sem það er í Frakk-
landi, Þýskalandi eða annars staðar í
Evrópu, selja þennan bíl. Það er
enginn með svona mikla tengingu við
framleiðandann,“ segir Örn. Hann
segir fleiri lönd og heimsálfur til skoð-
unar.
„Við erum að skoða marga mark-
aði. Möguleikarnir eru miklir af því að
við erum komin í svo þétt samstarf
við framleiðendur á borð við Nissan,
Toyota og Isuzu. Bílarnir eru orðnir
áberandi. Á vinnubílasýningu í Birm-
ingham á Englandi [Commercial
Vehicle Show, 2018] voru Toyota,
Nissan og Isuzu til dæmis með
breytta bíla frá Arctic Trucks sem
voru á 35 tommu dekkjum. Það var
stórt skref fyrir okkur.
Þá er Arctic Trucks í Bretlandi að
útbúa 50 Hilux-jeppa í tilefni 50 ára
afmælis Hilux sem seldir verða
númeraðir í sérstakri afmælisútgáfu í
Bretlandi.“
Sérhönnuð aðstaða
Örn segir aðspurður að markaður
sé fyrir breytta bíla í allri Evrópu. Til
dæmis hafi breyttir Nissan-jeppar
frá Arctic Trucks nýverið verið teknir
í notkun við fjöruhreinsun á Eng-
landi.
Bílarnir henti undir fjölbreytta
notkun.
Arctic Trucks Norge
1990
Toyota
auka-
hlutir
verða
til sem
deild
innan
Toyota á
Íslandi
1997
Félagið Arctic Trucks
stofnað sem dótturfélag
Toyota á Íslandi
Fyrsta ferð Arctic Trucks
til Suðurskautslandsins.
Breyttir bílar félagsins
hafa síðan farið þangað í
fjölda ferða.
1998
Arctic Trucks Norge
stofnað, er í eigu
Toyota á Íslandi
Fyrsta ferð Arctic
Trucks til Grænlands
1999, júlí
Arctic Trucks
Norge flytur á
iðnaðarsvæði í
Drammen, félagið
byrjar að breyta
bílum
4 starfsmenn hjá Arctic
Trucks Norge
1999
Arctic Trucks Norge
er með kynningu fyrir
blaðamenn 15. ágúst
1999, tímaritið Vi Menn
fjallar um fyrirtækið og
fær bíl lánaðan í heilt
ár. Umfjöllunin er sam-
tals 28 síður á einu ári,
sem skapar félaginu
mikla kynningu.
2000
Arctic Trucks Norge hefur sam-
starf við sjónvarpsþáttinn Auto-
fil, sem fjallar um bíla. Fyrstu
2 árin er fjallað um breyttan
Toyota Hilux-jeppa á 35 tommu
dekkjum. Næstu 2 árin er fjallað
um sama jeppa á 37 tommu
dekkjum. Meðal annars er farið
í ferðir til Íslands, farið í keppni
við ökutæki norska hersins og
átt í samstarfi við reynsluakstur
á fjórhjóladrifnum bílum.
2003
Fyrsti samn-
ingurinn
við norska
herinn
10
starfsmenn
hjá Arctic
Trucks
Norge
2007
Arctic Trucks
hefur starfsemi í
Bretlandi sem unnin
er í samstarfi við
sjónvarpsþáttinn
Top Gear. Farið er í
ferð til norðurpólsins
í apríl.
20 starfsmenn hjá Arctic
Trucks Norge
2005
Arctic Trucks á
Íslandi verður
sjálfstætt fyrir-
tæki. Artic Trucks
Norge verður
dótturfélag nýja
félagsins. Emil
Grímsson verður
aðaleigandi
félagsins.
2009
Arctic Trucks
hefur rekstur
dótturfélags í
Dubai
Sérleyfishafar
Arctic Trucks
hefja rekstur
í Finnlandi og
Suður-Afríku
2010
Arctic Trucks
Norge gerir
rammasamning
við norska herinn.
Starfsmönnum
Arctic Trucks
Norge er
fjölgað í
30 í kjölfar samn-
ingsins.
Arctic Trucks hefur samstarf við
Volkswagen og Jeep
Arctic Trucks fer með Top Gear að
skoða Eyjafjallajökul í apríl, rétt í
kjölfar eldgossins
Arctic Trucks Norge hefur samstarf við
hollenska fyrirtækið Tembo, sem hefur
framleitt bíla fyrir námur og iðnað.
Tembo hefur jafnframt frá árinu 2007
breytt bílum fyrir Arctic Trucks fyrir
Afríkumarkað, þ.e. í frönskumælandi
löndum álfunnar. Tembo hefur m.a.
breytt bílum fyrir fyrirtækið CFAO.
Sérleyfishafar Arctic Trucks í Rúss-
landi hefja rekstur
2011
Arctic
Trucks
Ex-
perience
hefur
störf og
býður
svo-
nefndar
self-dri-
ve ferðir
á Íslandi.
2012
Sérleyfishafar
Arctic Trucks í
Póllandi hefja
rekstur
49
starfsmenn
hjá Arctic
Trucks Norge
2014
Arctic
Trucks
hefur
samstarf
við Isuzu
2014-15
Starfsemi
Arctic
Trucks í
Bretlandi
er efld
24
starfsmenn
hjá Arctic
Trucks
Norge
2016
Arctic Trucks hefur samstarf við
framleiðendur Forza-tölvuleiksins
sem gerður er fyrir Xbox-leikjatölvur
2018
Arctic Trucks hefur samstarf
við Nissan
2019
Arctic Trucks Norge flytur
í nýjar höfuðstöðvar í
Solbergsmoen
28 starfsmenn hjá Arctic Trucks Norge
Arctic Trucks hefur
breytingar á rafbílum
Arctic Trucks Norge hefur
breytt samtals rúmlega
2.400 bílum og Arctic
Trucks um allan heim alls
11.500 bílum.
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2019
Sjónmælingar eru okkar fag
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
Á verkstæðinu í Solbergsmoen mátti
sjá breytta Land Cruiser- og Nissan-
jeppa. Athygli vakti hversu snyrtilegt
var á verkstæðinu. Hvergi sáust olíu-
blettir. Örn segir aðspurður að bygg-
ingin hafi verið sérhönnuð að óskum
Arctic Trucks Norge. Til dæmis var
eitt rýmið sérhannað fyrir þvott á
jeppum. Þá eru margir vaskar á verkstæðinu til að tryggja sem mestan
þrifnað og hindra að olía og óhreinindi berist um salinn. Örn segir fyrir-
tækið hafa átt í samstarfi við dekkjaframleiðandann Nokian um að fram-
leiða „fyrstu 35 og 44 tommu alvöru skandinavísku vetrardekkin“.
„Dekkin eru úr mjúku gúmmíi, með og án nagla, og gerð til að keyra með
lítið loft. Við hjá Arctic Trucks erum enda alltaf að sleppa lofti úr dekkj-
unum í jeppaferðum. Þetta eru bestu vetrardekkin sem við höfum fengið.
Raunar eru þetta fyrstu 35 og 44 tommu dekkin sem gerð eru fyrir vetur.
Öll önnur dekkin eru gerð fyrir sand, drullu eða grjót. Það er því mikill mun-
ur á amerískum og skandinavískum vetrardekkjum,“ segir Örn.
Hreinlætið í fyrirrúmi
HÖFUÐSTÖÐVARNAR VORU SÉRHANNAÐAR